Tíminn - 05.03.1982, Síða 3
Föstudagur 5. mars 1982
3
fréttir
Alusuisse vill
ræða vid rád-
herranefhdina”
- segir Steingrímur Hermannsson
■ ,,Ég hef fengið afrit af þessari
tilkynningu frá Alusuisse, þar
sem dr. Múller, lýsir þvf yfir að
hann sé reiðubúinn til þess að
koma hingað til viðræöna seint f
þessum mánuði,” sagði Stein-
grfmur Hermannsson, sjávarút-
vegsráðherraí viðtali viöTimann
i gær, en Steingrimur er einn
þriggja ráðherra i ráðherra-
nefnd, sem rikisstjórnin veitti
fullt umboð til þess að fara með
álmálið fyrir sina hönd.
Steingrimur sagði jafnframt:
„Dr. Muller býðst til þess að
koma hingað tillands, og ræða við
iðnaðarráðherra, ásamt mér og
forsætisráðherra, en það er á
misskilningi byggt, sem ég sá i
einhverju blaði i dag, að þessi
fundur komi í staöinn fyrir fund-
inn i Kaupmannahöfn, þvi sá
fundur átti að vera á milli við-
ræöunefndarinnar islensku og
fulltrúa Alusuisse, en þessi fund-
ur, ef hann verður, verður á milli
ráðherranna og Dr. Múller. Ann-
ars mun Hjörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra, ákveða þegar
hann kemur heim, hvort hann
samþykkir þessa málsmeðferð.”
— AB
„Steindórsmerm
aka án leyfa’5’
■ „Steindórsmálið er i ýtar-
legri, lögfræðilegri athugun,
og ég er svona jafnóðum að fá
hingaö inn lögfræðilegar álits-
gerðir,” sagöi Steingrimur
Hermannsson, samgönguráð-
herra, þegar blaðamaður
Timans spurði hann að þvi i
gær, hvorthann væri búinn að
gera upp hug sinn, varðandi
hugsanlega áfrýjun á úrskuröi
borgarfógeta.
Steingrimur var að þvi
spurður, hvort það væri ekki
slæmt fyrir markað þann sem
leigubílstjórar héri Reykjavik
hafa, að siðasta laugardag,
var fjölgað verulega i stétt
leigubilstjóra, þar sem 29 at-
vinnuleyfum var úthlutað, á
sama tima og bilstjórarnir 45
á Steindóri aka enn.
„Auðvitað er það slæmt fyr-
ir atvinnuhorfur leigubil-
stjóra, en leyfin hjá þeim
Steindórsmönnum voru aftur-
kölluö, og samkvæmt reglun-
um þá á aö úthluta ákveðnum
hluta leyfa þeirra sem inn
koma aftur, og úthlutunar-
nefndin var öll sammála um
aö gera það svona, og ég gerði
ekki athugasemd við það —
heldur féllst ég á það. Vissu-
lega var úthlutaö þarna fleiri
leyfum vegna þessa, en á það
má benda að menn þeir sem
keyra hjá Steindóri núna, þeir
keyra ekki á leyfum að okkar
dóm i. ’ ’
— AB
Viðskipta-
jöfnudurinn
í fyrra:
Óhagstæður
um ruman
milljarð
■ Viðskiptajöfnuðurinn árið 1981
reyndist óhagstæður um rúmar
■ 1.000 milljónir króna og miöað viö
þjóöarframleiðslu var viðskipta-
hallinn á siðasta ári um 5% sem
er tvöfalt meira en árið áður,
samkvæmt bráöabirgöaupp-
lýsingum Seðlabankans.
Útflutningur landsmanna jókst
úr6.118milljónumkrónaárið 1980
i6.536millj. árið 1981, eöa um tæp
7%, miöaö við sambærilegt gengi
bæði árin. A hinn bóginn vorum
viö enn duglegri i innflutningn-
um, sem jókst á sama tlma Ur
5.915 millj. i 6.732 millj. kr. eða
um tæp 14%.
— HEI
„Ég lœt bankann óvaxta penlngana mína."
Bankinn getur ávaxtað peninga þína
án nokkurs kostnaðar eða ánættu!
Þeir hœtta engu sem leggja peninga sína
inn á verðtiyggðan bankareikning.
Peningar á verðtryggðum bankareikningi
eru lausir tvisvar á ári. Þœgileg viðskipti,
íullkomið öryggi, engin sölulaun. Á verð-
tryggðum bankareikningi íœrðu auk
vaxtanna íullar vísitölubœtur.
Inneign þín er meira að segja skattírjáls.
Viðskiptabankamir
Því segja nú sífellt íleiri: „Ég lœt bankann
ávaxta peningana mína."