Tíminn - 05.03.1982, Qupperneq 4
4
Föstudagur 5. mars 1982
Egebjerg
baggavagnar
★ Buröargeta 80-150 baggar
* Verö frá kr. 21.500.-
Röskva hf. Dragi sf.
S !)1 84020 Akureyri
Ólafsvellir s 96 22466
S 09 6541
Hótelrekstur
Hér með er hótelið á Ólafsfirði auglýst til
leigu og rekstrar frá og með 1. mai 1982.
Hótelið er nýbyggt og aðstaða til rekstrar
góð. Gera skal ráð fyrir að það sé starf-
rækt allt árið. Upplýsingar veitir.
Ármann Þórðarson
simi 96-62120 og 96-62288
Umsóknir sendist til stjórnar félagsins
fyrir 20. mars n.k.
Stjórn Ilótels Ólafsfjarðar h.f.
fréttir
Flugumferðarstjóramálið:
,.Atti fullan rétt á
hlutlausu mati”
— segir Pétur Einarsson
■ ,,t fyrsta lagi, þá er flugráð
minn yfirmaður, þvi flugráð
stjórnar flugmálum i landinu,
undir yfirstjórn samgönguráð-
herra,og framkvæmdastjóri þess
er flugmálastjóri,” sagði Pétur
Einarsson, settur flugmálastjóri,
i viötali við Timann í gær, þegar
hann var um það spurður hvers
vegna hann heföi tekiö þá afstööu
að setja prófnefndina sem dæmdi
prófíirlausnir nema á grunnnám-
skeiði i flugumferðarstjórn af, og
skipa nýja prófnefnd.
Pétur sagði: „Flugráð uppá-
lagði mér að sjá til þess að þetta
próf yröi yfirfarið, og þess vegna
talaði ég við prófdómendurna
sem unnu i málinu, en þeir neit-
uöu að fara yfir prófúrlausn þessa
nema. Þessu næst skipaði ég nýja
prófnefnd og þegar hiin átti aö
dæma Urlausnirnar, þá neituöu
þeir Bogi Þorsteinsson og Valdi-
mar Ólafsson að yfirfara prófUr-
lausnina. Þá skipaði
ég aðra nefnd, og tók
sjálfur sæti i nefndinni að hiíðu
samráöi við formann flugráðs
ásamtþeim Guðmundi Matthias-
syni, deildarstjóra Flugum-
ferðarþjónustunnar og SkUla Jóni
Sigurðssyni, deildarstjóra i Loft-
ferðaeftirlitinu. Viö fyrirfórum
siðan i sameiningu prófUriausnir
allra nemanna, og reyndist það
engan veginn flókið mál.”
Niðurstööur nefndarinnar voru
lagðarfyrir flugráö á fundi þess i
gær.
Pétur var aö þvi spuröur hvort
þaö væri ekki hálfhæpin ráðstöfun
aö þriggja manna nefnd, þar sem
enginn nefndarmanna hefði rétt-
indi flugumferðarstjóra, yfirfæri
prófúrlausmr á grunnnámskeiði
flugumferðarstjóra.
„Það er ekkert hæpin ráðstöf-
un. 1 mínu lögfræðinámi þá tók ég
kandfdatsritgerö i flugrétti, ég
hef unniö hér við flugrétt í 4 ár og
ég er meö atvinnuflugmannspróf,
þannig að ég hef sambærilega
menntun við flugumferöarstjóra
fram aö þessu stigi.
Guðmundur Matthiasson, yfir-
maður flugumferðarþjónustu i
landinu, hann hefur alveg full-
gilda menntun iþetta og Skúli Jón
hefur eftir langvarandi reynslu i
þessum málum, næga þekkingu.
Ef hins vegar einhverjum dett-
ur i hug aö við höfum ekki þekk-
ingu til þess að meta þessi próf,
þá liggur próf umrædds nema
frammifyrir t.d. stjórn Félags is-
lenskra flugumferöarstjóra, ef
hún vildi yfirfara prófið,” sagöi
Pétur.
Neminn sem styrrinn hefur
staðið um, varð samkvæmt úr-
skurði þessarar prófnefndar, ni-
undi i rööinni, og sagöi Pétur að
hann heföi staðist prófið ágæt-
lega.
Pétur benti á, að áöur en nám-
skeiðiö hefði hafist sl. haust, þá
heföi veriö búiö að kanna þetta
mál, og flugmálastjórn hefði tek-
ið þá ákvörðun að neminn fengi
að sitja námskeiöið, og það án
þess að nokkurn tima væri látið
liggja aö þvi að hann fengi ekki að
ljúka náminu. Neminn heföi þvi
átt fullan rétt á þvi aö prófúr-
lausnirhansf engju hlutlaust mat,
eins og úrlausnir annarra nema,
enda hefðu lyktir málsins orðið
þær.
Hér fer á eftir niðurlag bréfs
þesssem Pétur Einarsson, settur
flugmálastjóri ritaöi próf-
dómurunum tveimur 25. febrúar,
sem neituðu að yfirfara úrlausn
nemans, sem hér um ræðir, þegar
kennarar af grunnnámskeiðinu
skiluðu úrlausnum nema af nám-
skeiðinu til prófdæmenda:
„Þetta mál h'tur þannig Ut i
minum augum:
Strax er ljóst, áður en grunn-
námskeið i flugumferðarstjórn
hefst, aö framlögð endurrit/sam-
rit af stúdentsprófi eru ekki i
samræmi við frumrit i vörslu
skólans, sem hann tók sitt próf
frá.
Stúdentspróf hans nægir til þess
aö hann fái seturétt á grunnnám-
skeiði flugumferðastjóra.
Af þvileiðir að hann hafði einn-
ig rétt til þess að taka próf og fá
það metið, sem aðrir nemendur,
enda hafði hann fengið seturétt á
námskeiðinu og mál hans áður
kannað.
Að boði flugráðs hef ég gert til-
raun til þess að fá prófdómendur
til þess að yfirfara próf hans.
Þeim tilmælum hafa þeir hafn-
að ákveöið.
Flugráð er tvimælalaust réttur
aöili til þess aðgéfa fyrirmæli um
meðferð málsins.
Ég tel það ekki sæmandi próf-
dómendum að ákveöa sjálfir
hvaða próf er fariö yfir og hvaða
próf ekki. Þannig afstaða heitir
að vera hlutdrægur. Prófdómandi
sem hinsvegar metur úrlausn
efnislega eftir framlögðum gögn-
um og án tillits til þess hver hefur
gert úrlausnina, hann vinnur
hlutlaust.
Störf ykkar sem prófdómenda
eru ekki aö ööru leyti véfengd.”
-AB
W/7/,
V//
V///7?.
V///7
V/
V//.
I
KJÖRGRIPUR BÖNDANS
nrí\EW HOLLAIND
heybindivélin
NEW HOLLAND-370
ÁVETRARVERÐI
Breidd sópara 1.57 m.
Stimpilhraði 80 slög við540 snúninga aflúrtak.
Stimpilslaglengd 76 cm.
Sérstakir
greidsluskilmálar
á þessari sendingu
VIÐ
BJÓÐUM
TVÆR
STÆRÐIR:
'VÍ\EW HOLLAIND
370
OG
NÝJA VÉL
JL_
"'rNE\A/ HOLLAI\D
378
Eftir að notkun heybindivéla hófst, hafa
vinsældir þeirra meðal bænda farið sivax-
andi og eru nú i fiokki nauðsynlegustu véla
i nútima búskap.
NEW HOLLAND heybindivélarnar fylgja
stöðugri tækniþróun og það hafa islenskii
bændur kunnað að meta, enda eru NEW
HOLLAND vinsælustu heybindivélarnar.
V?A
G/otXJS!
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555
Til afgreiðslu
í marz
'//Æ^""//a
'/////a
■"////Æ^y"///A
://
'Y/a
NEW HOLLAND-378 GEYSI
STÓR OG AFKASTAMIKIL
ÁVETRARVERÐI
Breidd sópara 2.00 m.
Stimpilhraði 93 slög við 540 snúninga af lúrtak.
Stimpilslaglengd 76 cm.
3ja hjöruliða drifskaft.