Tíminn - 29.04.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.04.1982, Blaðsíða 4
4 Jörð óskast til kaups eða ábúðar. Upplýsingar sendist á afgreiðslu blaðsins sem fyrst, merkt „Jörð 1718”. Félagsmálastofnun Reykjavíkurbörgar I' Fósturheimili Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir fósturheimilum til frambúðar fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára. Æskileg staðsetning Stór-Reykjavikur- svæðið. Upplýsingar i sima 74544 fyrir há- degi Forskoðun kynbótahrossa 1982 vegna landsmóts, fer fram eins og hér greinir: 26. april: Álftaver kl. 13, Kirkjubæjar- klaustur kl. 16 27. april: Fornustekkjavöllum kl. 13. 28. april: Á Mýrum 29. april: 1 Suðursveit. 30. april: Vik, Mýrdal kl. 10. Skógar kl. 14. 3. mai: Rangárbakkar við Hellu kl. 13-19 5. mai: Flúðir (Torfdalur) kl. 10-16 fyrir Hreppa og Skeið 6. mai: Selfoss kl. 10-16 fyrir Flóa, ölfus, Hveragerði og Þorlákshöfn. 10. mai: Kjósarhreppur kl. 10, Akranes kl. 14 11. mai: Sigmundarstaðir kl. 10-18 12. mai: Faxaborg (eða Hvanneyri) kl. 13- 18, Stakkhamar kl. 21 13. mai: Grundarfjörður kl. 10, Stykkis- hólmur kl. 15. 14. mai: Búðardalur kl. 13, Broddanes kl. 21 (fundur). 15. mai: Hólmavik kl. 10, Bæjarhreppur kl. 16. 17. mai: Mosfellssveit kl. 18-22. 18. mai: Keflavikkl. 10, Kópavogur kl. 15- 19. 19. mai: Hafnarfjörður og Garðabær kl. 13-18 20. mai: Viðivellir i Reykjavik kl. 9-18 21. -22. mai Iðavellir fyrir allt Austurland. 24. mai: Holt, V-Eyjafjöllum kl. 13, v. af- kvæmasýningar. 27. mai: Torfastaðir, Bisk. kl. 9, Bjarna- staðir, Grimsn. kl. 15 28. mai: Sýning og úttekt á stóðhestum i Gunnarsholti kl. 14. 2. júni: Lækjarmót, V-Hún. kl. 14. 3. júni: Stóra-Giljá, A-Hún. kl. 10 4. júni: Hólar, Hjaltadal kl. 9 5. -6. júni: Héraðssýning Vindheimamel- um, Skag. 7. -9. júni: Þingeyjarsýslur (ákv. nánar af stjórnum félaga). 10. júni. Ólafsfjörður kl. 11, Dalvik kl. 17 11. -12. júni: Melgerðismelar, Eyjafirði. Skráningareyðublöð fyrir kynbótahross fást á skrifstofum Búnaðarsambanda og hjá ráðunautum og formönnum hesta- mannafélaga. Ber að fylla þau nákvæm- lega út og aíhenda dómnefnd um leið og hrossum er framvisað til forskoðunar (dóms). Sé hross endursýnt verður að leggja fram eldri dóma (þá nýjustu) um leið, svo hægt sé að ákveða á staðnum, hvort það kemst áfram á landsmót eða ekki. Dómnefnd áskilur sér rétt til að visa frá, hrossum, sem ónógar upplýsingar fylgja. Búnaðarfélag íslands Hrossaræktarráðunautur Vöruskiptajöfnuður við útlönd fyrstu þrjá mánuði ársins: OHAGSTÆÐUR UM 564 MILUÓNIR ■ Vöruskiptajöfnuöur við útlönd fyrstu þrjá mánuði ársins var óhagstæður um rúmar 564 milljónir króna, en á sama tima- bili i fyrra var hann óhagstæður um rúmar 252 milljónir króna. Þetta kemur fram i frétt frá Hag- stofu tslands, en þar er jafnframt tekið fram að við samanburð við utanrikisverslunartölur 1981 veröi aö hafa í huga, að meðal- gengi erlends gjaldeyris i janúar- mars 1982 sé talið vera 39% hærra en það var sömu mánuði 1981. Á1 og álmelmi var verðmætasti útflutningur fyrsta ársfjórðungs- ins en útflutningsverðmæti þess var rúmar 218 milljónir króna. Kisiljárn var futt út fyrstu þrjá mánuðina fyrirtæpar 30milljónir króna. Aöföng til landsins svo nokkur dæmi séu nefnd voru þannig: Til Islenska járnblendifélagsins efni fyrir tæpar 11 milljónir króna, efnitil Landsvirkjunar fyrir rúm- ar 10 milljónir og til Islenska álfé- lagsins fyrir tæpar 36 milljónir króna. — AB Daníel Kristjánssori, bóndi á Hredavatni, er látinn ■ Danlel Kristjánsson. ■ Daniel Kristjánsson, bóndi á Hreðavatni, er látinn. Daniel fæddist 25. ágúst 1908 að Tungu i Hörðudal í Dalasýslu. Hann var við nám i Lýðskólanum á Hvitár- bakka 1926-28. Kynnti sér siðar skógrækt i Noregi. Daniel var bóndi á Gljúfurá og Beigalda i Borgarhreppi, en siðar á Hreðavatni frá 1948. Hann varð skógarvörður á Vesturlandi frá drinu 1941, og i stjórn Skóg- ræktarfélags Borgarfjarðar i 31 ár. Hann hefur gegnt mörgum opinberum störfum og tekið mik- inn þátt i félagslifi. Daniel var kvæntur Astu Sigriði Guðbjarna- dóttur. ■ Stjórnarmenn Stálfélagsins h.f., frá vinstri: Björn Sveinbjörnsson, verkfræðingur, Leifur Hannesson, verkfræðingur, Jón Magnússon, for- stjóri, formaðurinn Jóhann Jakobsson, efnaverkfræðingur, Markús Sveinsson, framkvæmdastjóri og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, heiid- sali. Á myndina vantar: Svein Sæmundsson, forstjóra og Þorstein Sveinsson, kaupfélagsstjóra. Mynd Guöjón Birgisson. Stálfélagið form- lega stof nað ■ Þá hefur Stálfélagið h.f. form- lega verið stofnað. Stofnfundur- inn var haldinn á Hótel Sögu siöast liðinn sunnudag, þar sem mættir voru 89 fulltrúar fyrir 300 stofnendur. Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson, lögfræðingur skýrði tillögu aö samþykktum félagsins sem samþykkt var með öllum at- kvæöum fundarmanna. Hlutafé við stofnun er 1.250.000 krónur. 1 setningarræðu formanns undirbúningsnefndar, Jóhanns Jakobssonar, minntist hann fyrr- verandi formanns Sveinbjarnar Jónssonar, forstjóra og bað fundarmenn aö risa úr sætum i virðingarskyni við hinn látna frumherja. Þá rakti Haraldur Sævaldsson verkfræöingur aðdraganda að stofnun félagsins. Friðrik Danielsson, efnaverkfræðingur greindifrá áætlun um framleiöslu steypustyrktarstáls og Sigtrygg- ur Hallgrúnsson sagöi frá hluta- fjársöfnun. 1 aðalstjórn Stálfélagsins voru kosnir: Jóhann Jakobsson, efna- verkfræðingur, sem stjðrnin hef- ur kosið sem formann, Jón Magnússon, forstjóri, Leifur Hannesson, verkfræðingur, Markús Sveinsson, fram- kvæmdastjóri og Sveinn Sæ- mundsson, forstjóri. Varamenn i stjórn voru kjörnir: Björn Svein- björnsson, verkfræðingur, Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson, heild- sali og Þorsteinn Sveinsson, kaupfélagsstjóri. Kjömir endur- skoðendur eru: Kristjana Milla Thorsteinsson, viðskiptafræðing- ur og Sveinn Jónsson, lögg. endurskoöandi. — HEI Sýning á hjálpartækjum og húsgögnum fyrir fatlaða og aldraða sýnd á Loftleiðum ■ Undanfarna daga hafa 5 dönsk fyrirtæki sýnt húsgögn og hjálpargögn fyrir fatlaða og aldraða að Hótel Loftleiðum. A sýningunni kennir margra grasa, þar má sjá t.d. stóla, sem hjálpa fólki við að standa upp og gera þvi auðveldara að komast i hjólastól eða göngugrind, hjólastólalyftur, rúm o.fl. húsgögn, svo og fjöl- marga smáhluti, sem gera fötl- uðu fólki einfaldara að fram- kvæma ýmsa hluti. Sum hjálpar- gagnanna hafa þegar hlotið viðurkenningu og borgar Tryggingastofnun rikisins þau, en mörg eru þau dýr, sökum hárra tolla og annarra gjalda, sem á þau eru lögð hér á landi. Sýningin er ekki siður ætluð einstaklingum en stofnunum og er bæði sölu- sýning og kynningarsýning. Að- sókn hefur verið mjög góð, en siðasti dagur sýningarinnar er, i dag og er hún opin kl. 10-18. Á meðfylgjandi mynd sjáum við hjólastólalyftuna. (Tiinamynd Ella)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.