Tíminn - 29.04.1982, Síða 19
Fimmtudagur 29. april 1982
23
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornid
■ Ekkehard Schall sem Franz Liszt (t.v.) og Richard Burton
sem Richard Wagner i myiidinni, sem nú er veriö aö taka um ævi
tónskáldsins.
Kvikmyndir i framleiðslu:
Burton í hlut
verki
I Kichard Burton sem undanfarin ár hefur einkum fengist vi6
ómerkileg hlutverk i slöppum kvikmyndum, er nú aö leika I
kvikmynd sem gefur honum tækifæri til aö sýna, aö hann sé enn
sem fyrr gamli snilldarleikarinn. Burton leikur sem sagt sjálfan
Richard Wagneri þriggja klukkustunda kvikmynd, sem veriöer
aö taka um þessar mundir og á aö vera tilbúin i byrjun næsta
árs, en þá eru eitt hundraö ár liöin frá andláti tónskáldsins.
■ Leikátjóri myndarinnar,
sem á að kosta 10 milljónir
dala, er Tony Palmer, sem
einkum er þekktur fyrir gerð
heimildarkvikmynda, auk
þess sem hann aðsloðaði Ken
Russel við leikstjórn „ísa-
dóru” um árið.
Palmer hefur íengið marga
góða og þekkta leikara til
liðs við sig fyrir utan Richard
Burton. Má þar nefna Vanessu
Redgrave, sem fer með hlut-
verk Cosimu, siðari eiginkonu
Wagners. Gemma Graven fer
með hlutverk fyrri konunnar,
Minnu, en i aukahlutverkum
eru m.a. Laurence Olivier,
John Gielgud, Ralph Richard-
son, Joan Plowright, Franco
Nero, Marthe Keller, Daphne
Wagner (tónskáldið er langafi
hennar), og óperusöngvararn-
ir Peter Hoffman og Gwyneth
Jones, Georg Solti, stjórnandi
sinfóniuhljómsveitarinnar i
Chicago, stjórnar tónlistar-
flutningi i myndinni.
Upphaflega stóö til að
Wagner-myndin yrði sjón-
varpsmyndaflokkur i átta
hlutum, en nú er ákveðið að
um þriggja klukkustunda
kvikmynd verði að ræða, sem
siðar verði skipt niður i sjón-
varpsmyndaflokk.
..Sagnfræðilega rétt”
„Við gefum sagnfræðilega
séð rétta mynd af Wagner”,
segir leikstjórinn i blaðavið-
tali. „Ég hef unnið að þessu
verki i sex ár. Fleiri bækur —
22.500 — hafa verið skrifaðar
um Wagner en nokkurn annan
aö Jesú Kristi undanskildum.
En meginheimild okkar er þó
barnabarn Wagners, Woll'-
gang”.
Palmer segist hafa fengiö
margvislegar upplýsingar frá
afkomendum lónskáldsins um
einstök atriði i lifi Wagners.
Sem dæmi nefnir hann hvern-
ig Wagner fékk hugmyndina
að „Hollendingnum fljúg-
andi” þegar hann var á flótta
undan kósökkum skamml frá
Riga árið 1839.
Meðal umdeildra atriöa,
sem sýnd verða eins og þau
raunverulega gerðust, er and-
lát Wagners, en hann lést i
átökum við konu sina, Cosimu,
sem kom til vegna aíbrýði-
semiskasts eiginkonunnar.
Annars er sagt lrá öll-
um helslu atburðum i storma-
sömu lifi Wagners frá þvi
hann var 35 ára og fram'iand-
látið. Fram kemur, að hann
var íoríallinn fjárhættuspil-
ari, drykkju- og kvennamað-
ur, og stöðugt á flótta undan
lánadrottnum sinum. Jaín-
framt olli tónlist hans miklu
fjaðrafoki og m.a. mun sýn-
ingin á „Tannhauser” i Paris
hafa valdið einu umtalaðasta
hneyksli i óperuheiminum.
Þannig ler að sjálfsögðu oft
fyrir sporgöngumönnum i list-
sköpun . En persónulegt at-
ferli Wagners varð honum að
sjálfsögðu ekki til framdrátt-
ar.
Myndatakan i „Wagner” er
i höndum Vittorio Storaro,
sem nú nýverið hlaut Oscar
fyrir myndatökuna i „Rauð-
liðum” en hafði áður gert
garðinn frægan i „Apocalypse
Now” og nokkrum myndum
Bertoluccis.
Kvikmyndin er tekin á öll-
um þeim stöðum, þar sem
Wagnerbjó og staríaði á áður-
nefndu timabili í ævi sinni, svo
sem Vin, Búdapest, Siena,
Miinchen, Feneyjum, Niirn-
berg, og Bayreuth.
Eftir öllum sólarmerkjum
að dæma er þetta kvikmynd,
sem á eftir að
vekja verulega
athygli.
—ESJ
lElias Snæland
Jónsson skrif-
ar
if. * + Eldvagninn
+ Lifvörðurinn
★ ★ Lögreglustöðin i Bronx
★ ★ ★ Bátarallýið
★ ★ ★ Leitin að eldinum
★ ★ Rokk i Reykjavik
★ ★ ★ The Shining
★ ★ ★ Fram i sviðsljósið
★ ★ ★ Montenegro
* Hetjur fjallanna
if jf Aðeins fyrir þin augu
Stjörnugjöf Tfmans
* * * * frábær • * * * mjög góð • * * gód • * sæmlleg ■ O léleg