Tíminn - 08.10.1982, Side 1
„Helgarpakkinn” er 12 sídur í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 8. okt. 1982
229. tbl. - 66. árgangur
la 15 - Pósthólf 370 Reykjavík - Ritstjórn I
ingar 18300
Óskabyrjun á háhyrningsveidunum:
FENGU ÁTTA HÁHYRNINGA
STRAX í FYRSTA KASTI
Guðrún GK kom með þrjá háhyrninga til Grindavíkur
■ - Þetta hefur alit gengið mjög vel.
Við fengum dýrin í fyrsta kasti og þau
eru vel á sig komin þrátt fyrir langa
siglingu, sagði Jón Gíslason, skipstjóri
á Guðrúnu GK í samtali við blaðamann
Tímans en Guðrún var þá nýkomin til
hafnar í Grindavík með þrjá háhyminga
sem veiddir höfðu verið fyrir Saedýra-
• safnið í Hafnarfírði.
- Við lögðum af stað í þennan
leiðangur á laugardag, en við urðum svo
varir við háhyrningana á Héraðsflóa,
sagði Jón og bætti því við að ein átta dýr
hefðu lent í vörpunni í fyrsta kasti, en
af þeim náðust svo þrjú góð dýr af
hæfilegri stærð.
Það er útgerðarfyrirtækið Ásar hf. í
Hafnarfirði, sem á Guðrúnina sem gerir
út á þessar háhyrningsveiðar, en veiðar
þessar hafa verið stundaðar á hverju
hausti síðan 1976. Leyfl hefur verið veitt
til að veiða sex dýr í ár, en það ér
Sædýrasafnið sem kaupir svo dýrin og
selur þau áfram til sædýrasafna og
dýragarða vfða um heim.
Jón Gunnarsson, forstjóri Sædýra-
safnsins sem var með í þessari veiðiferð
eins og öllum fyrri veiðiferðum, sagðist
í samtali við Tímann vera ánægður með
árangurinn.
- Við vorum heppnir að ná dýrunum
þetta fljótt og ég er ánægður með það
hvað dýrin eru hraust, sagði Jón
Gunnarsson.
Vel gekk að koma háhyrningunum
frá borði í Grindavíkurhöfn, en dýrin
voru öll sett í sérstaka flutningakassa á
vörubílum og var þeim síðan ekið í laug
Sædýrasfnsins við Hafnarfjörð, þar sem
þau verða geymd fram eftir vetri.
Háhyrningarnir verða síðan sendir til
sinna nýju heimkynna ekki síðar en upp
úr miðjum nóvember.
Sjá nánar bls. 3
- ESE
■ Einn háhyminganna hífður frá borði. Eins og sjá má þurfti fjöldi manna að hanga á „börunum“ er þær voru hífðar
upp til að stýra þeim á réttan stað. Tímamvna- G.E.
8
mmi
Ræstingakona látin hætta fyrir
að nota einkasíma borgarstjóra:
„TALAÐI EKKI
TIL IÍTLANDA"
— segir ræstingakonan,
en borgarstjóri heldur hinu
gagnstæða fram
■ „Það er alls ekki rétt sem haft er
eftir borgarstjóranum að ég hafí verið
að tala til útlanda þegar hann kom að
mér. Hins vegar var ég að nota
einkasíma hans, eftir lokun skrifstof-
unnar, og talaði út á land,“ sagði
ræstingakonan, sem Davíð Oddsson,
borgarstjóri, vildi ekki að ræsti
skrífstofu sína framar vegna þess að
hann kom að henni þar sem hún var
að tala í einkasíma hans, meðan hún
var ein á skrífstofunni.
í samtali við DV í gær sagði Davíð
að í sínum huga væri enginn vafi á því
að konan hafi verið að taía til útlanda.
„Það fór ekkert á milli mála,“ er haft
eftir borgarstjóranum.
„Davíð var ósköp kurteis þegar
hann kom inn. Hann sagði bara að mér
væri ekki heimilt að tala í þennan síma
og var rólegur," sagði ræstingakonan.
Ræstingakonan kvaðst hafa verið í
afleysingum á borgarskrifstofunum í
ágústmánuði s.l. Hún átti eftir að vera
þar í nokkra daga þegar umrætt atvik
átti sér stað. Var hún látin hætta þegar
í stað, og fékk ekki laun fyrir dagana
sem hún átti eftir.
Konan hefur unnið við ræstingar í
einum af grunnskólum borgarinnar í
nokkur ár. Hún heldur því starfi.
— Sjó.
Svíþjóð:
Eru kafbátarnir
tveir eða fleiri?
Frá Gylfa Kristinssyni,
fréttarítara Tímans í Svíþjóð:
Kafbátamálið í Svíþjóð hefur tekið
óvænta stefnu þegar það spurðist út að
ýmislegt benti til að í stað eins kafbáts
væru tveir eða fleiri á sveimi í
Hársfjárden, í skerjagarðinum suður
af Stokkhólmi.
Á fundi með fréttamönnum síðdegis
í gær vildi talsmaður hersins hvorki
staðfesta eðaneita þessum tíðindum.
Hinsvegar er Ijóst að herskip og þyrlur
hafa einskorðað leitina við tvö svæði í
firðinuin og varpað þar niður
djúpsprengjum.
A þessum fréttamannafundi var
staðfest að sænski herinn hefði orðið
var við eitthvað í fjarðarmynninu sem
gæti verið kafbátur. Það virðist því
ljóst að hinn ókunni farkostur, einn
eða fleiri, er ekki genginn úr greipum
Svía.