Tíminn - 12.11.1982, Síða 1
Píanóleikarinn Sam Avent leikur við hvern sinn
fingur þrátt fyrir pilsnerinn
■ Góður gestur er í heimsókn á
Hótel Loftleiðum þessa dagana. Er
það hinn góðkunni breski píanóleik-
ari Sam Avent, sem reynir hið
ómögulega í þriðja sinn, nefnilega að
skapa breska bjórstemmningu á
íslandi. Hefur barnum á Hótel
Loftleiðum verið breytt í „breskan
pub“ og verður hann opinn með Sam
við píanóið á hverju kvöldi fram til
21. nóvember.
Píanóleikarinn Sam Avent á orðið
marga góða kunningja hérlendis eftir
fyrri heimsóknir sínar og er hann var
hér síðast sagði hann í samtali við
blaðamann Tímans að það væri erfitt
að skapa hina einu sönnu bresku
bjórstemmningu, annars staðar en í
Bretlandi og eiginlega væri það allt
að því vonlaust. Sam Avent lætur sér
annars ekki allt fyrir brjósti brenna
en hann byrjaði 13 ára gamall að
leika á píanó með breskum dans-
böndum. Síðan hefur hann helgað
sig „pöbb-músikkinni“ og ferðast
víða um heim í sambandi við það
starf.
Sem fyrr segir er barinn á Loftleið-
hótelinu sérstaklega skreyttur
vegna þessa „bjórævintýris", en því
miður verður aðeins pilsner, eða
íslenskur „þunnur" bjór á borðum.
Sumir hafa svindlað á þessu með því
að kaupa sér eitt staup af kláravíni
með og hellt því út í, en það verður
hver maður að gera upp við sig. Þess
má geta að ýmsir smáréttir í breskum
stíl verða á boðstólum og ættu þeir
a.m.k. að geta kætt bragðlaukana.
Jafnframt því sem bjórkvöldin byrja
á Hótel Loftleiðum, verður haldið
sérstakt villibráðarkvöld í kvöld og
þar gefst fágætt tækifæri til að bragða
gómsæta rétti sem sjaldan eru á
boðstólum. -ESE
Jazzsveitin AIR
með tónleika hér
■ Áhugafólk um jazztónlist til-
kynnir komu bandarísku jazzhljóm-
sveitarinnar AIR til landsins, en hún
mun halda tónleika 16. nóvember
n.k. í íslenska óperuhúsinu (Gamla
Bíói) kl. 9. Koma AIR til landsins
telst til stærri viðburða í tónlistarlíf-
inu hér á landi, því hljómsveitin er
ein af bestu jazzsveitum vorra daga
og nægir að nefna þessu til stuðnings,
að AIR átti hljómplötu ársins 1980 í
Downbeat að mati gagnrynenda.
AIR skipa þeir Henry Threadgill,
sem leikur á allar tegundir saxafóna,
flautna og hjólkoppafón (þ.e. áslátt-
arveggur er samanstendur af hjól-
koppum og cymbölum); Fred
Hopkins, leikur á bassa og Steve
McCall á trommur. Upphaf hljóm-
sveitarinnar má rekja allt aftur til
1971 þegar þrcmenningarnir komu
saman í Chicago til að flytja ragtime
tónlist Scott Joplins, cn sú tónlist
hefur lengi verið á dagskrá þeirra.
Vendipunktur fyrir hljómsveitina
var þegar þeir fluttu til New York
1975 og byrjuðu að koma fram
reglulega og hljóðrita hljómplötur.
Síðan þá hefur AIR hlotið margvís-
legar viðurkenningar og er óhætt að
segja að af frjáls-jazz hljómsveitum
(að Art Ensemble of Chicago undan-
skildri) nýtur AIR hvað mestra
vinsælda og virðingar gagnrýnenda.
Hljómplötur þeirra félaga teljast til
sígildra verka, t.d. Air Lore platan
þar sem þeir leika nær eingöngu verk
eftir Scott Joplin og Jelly Roll
Morton í eigin útsetningum.
Fullyrða má að AIR er ein fremsta
jazz hljómsveit vorra daga. Hljóm-
sveit sem aldrei fer troðnar slóðir í
tónlistarsköpun eða útsetningum.
Forsala á þennan tónlistarviðburð
stendur nú yfir í Fálkanum, Lauga-
avegi 24, og Gramminu, Hvcrfisgötu
50, og er miðaverð 150 kr.
; ||
■ Hljómsveitin AIR.
Tólf kíló
af betrekki
á túkall
■ Hvernig litist þér á að borga tvö
kíló af krónum í strætó, eða tólf kíló
fyrir lítinn yddara? Nú ef þú ætlaðir
út í búð og fá þér jakkaföt, þá
þyrftir þú að fá þér hjólbörur undir
krónupenignana, sem þá myndu
líklega ekki vega undir eitt hundrað
kílóum. Nýr bíll myndi kosta einn
vörubílsfarm af krónupeningum og
líklega myndir þú þurfa að borga
allmarga hjólbörufarma fyrir
leiguna á vörubílnum. Og svona
gengi þetta þangað til að þú yrðir svo
bakveikur og bágstaddur, að þú
þyrftir örugglega ekki að hafa áhyggj
ur af því að þurfa að eiga sund-
Iaugarfylli af krónupeningum til að
borga þig inn á elliheimili.
12 kíló af verðbólgu
Pað er ekki oft sem að ég sé ástæðu
til að taka fram sparihrósyrðin um
eitthvert atriði á dagskrá útvarps og
sjónvarps, en það verð ég svo
sannarlega að gera eftir hinn ágæta
Kastljóss-þátt sjónvarpsins sl. föstu-
dag. í þættinum var fjallað um
verðlagsmál og var kastljósinu beint
að hinum eilífu og sívaxandi verð-
hækkunum sem yfir landslýð dynja
þessa dagana. Rætt var við verðbólgu-
hrjáðan almenning og enginn vissi
hvað kaffipakkinn eða mjólkurlíter-
inn kostaði á þeirri s'tundu. Ekki einu
sinni formaður kaupmannasamtak-
anna vissi hvaðan á sig stóð veðrið
og þó hefur hann þótt sæmilega
talnaglöggur fram að þessu.
Hápunktur Kastljóssins var svo
þegar stjórnandinn dró fram krukku
fulla af krónupeningum (12 kíló)
sem maður úti í bæ átti, en krónurnar
voru af gömlu góðu gylltu gerðinni.
Dæmisagan hér að ofan lýsir því svo
hvert verðgildi þessara krónukílóa er
í dag og ég verð að segja að þrátt
fyrir að ég hafi verið búinn að drekka
heila hvítvínsflösku þá hrökk ég í
kút. Þarna var gamla Weimar-lýð-
veldishrunssagan í Þýskalandi ljóslif-
andi komin og hver er svo að bölva
verðbreytingunni. Ef hún hefði ekki
komið til og gert einhverja ríka, þá
værum við að veggfóðra með hund-
raðköllunum nú. Sem sagt húrra
fyrir Kastljósi.
Hrútleiðinleg
langavitleysa
Það er annars ansans merkilegt
hvað fréttaskýringaþáttur eins og
Kastljós getur verið góður. þegar
■ Má bjóða þér betrekk fyrir slikk?
haft er í huga að það er sama fólkið
scm ber ábyrgð á honum og fréttum
sjónvarpsins. Þær eru yfirleitt dauðl-
únar og ég verð að segja eins og er
- hvar væri fréttastofa sjónvarps
stödd ef hún hefði ekki Ómar
Ragnarsson? Þó að loftmyndafrétirn-
ar geti orðið þreytandi til lengdar, þá
á Ómar fáa sína líka og einn af fáum
á ríkisfjölmiðlunum, e.t.v. að lngva
Hrafni undanskildum, sem hefur
áhuga á að vcra fyrstur með fréttirn-
ar.
Nýlega var tekið uþp ógurlega fínt
fréttamagasín hjá Útvarpinu og þar
duga ekkert minna en 45 mínútur og
hrútlciðinleg kynningarlög. Fyrst ég
er á annað borð farinn að skrifa hér
í þessum dálki, þá er best að segja
það strax að ef fréttirnar í sjónvarp-
inu eru dauðlúnar, þá eru fréttirnar
í útvarpinu, dánar fyrir löngu. Að
vísu gengur þctta dálítið í bylgjum
og útvarpið getur notið sín þegar lýsa
þarf beint af vettvangi, t.a.m. í
kosningum og stjórnarmyndunarvið-
ræðum, en að öðru leyti baka blöðin
fréttastofuna varðandi fréttaöflun-
ina. Það er ekki nóg að álpast út í
bæ með segulband á öxlinni og taka
fullt af þjónustuviðtölum til að fylla
„lönguvitleysu". Og ekki nóg með
það. íþróttirnar koma auðvitað síð-
astar og þó að þeirra sé getið í yfirliti
þá gcngur ekki að menn séu látnir
bíða eftir úrslitum dagsins, heilu og
hálfu kvöldin. Svo ég segi nú skilið
við fréttirnar, þá legg ég til að síðustu
að sjónvarpið taki upp örstuttan
fréttatíma í dagskrárlok og geri þar
kunnugar, vonandi nýjustu fréttir.
íþróttir fyrir
sagnfræðinga
Ekki sá ég' Félagsheimili Hrafns
Gunnlaugssonar á laugardagskvöld-
ið, vegna 85 ára afmælis Blaða-
mannafélagsins, en mér er sagt að
fylleríið í félagsheimilinu hafi haldið
áfram. Þetta fer nú að verða alvarlegt
með ráðskonuna, enda er haft fyrir
satt að ekki hafi runnið af henni í
bráðum tvo mánuði. í alvöru, ætti
ekki einhver að láta SÁÁ vita.
Talandi um þennan íslenska fram-
haldsmyndaflokk, þá er sagt að
Jónas Guðmundsson, stýrimaður og
alls ekki höfundur þáttar númer tvö,
þori ekki orðið fyrir sitt litla líf að
stíga fæti sínum inn í brauðgerðar-
hús. Er Jónas dauðhræddur við allar
franskbrauðsserðingarnar sem ganga
Ijósum logum utan sem innan félags-.
■ heimilisins og hver veit líka nema
einhver taki hann í bakaríið.
Ekki ncnni ég hér að svekkja mig
á því að lýsa yfir vanþóknun minni á
vikugömlum fótboltaleikjum í sjón-
varpinu, en ég spenni greipar og
vona að fimleikafólkið sem var á
skjánum fyrir bráðum hálfum mán-
uði finni ekki aftur leiðina inn í
íslenska sjónvarpið. Það bara gengur
ekki að bjóða upp á svona hund-
gamalt efni og reyna svo að láta líta
út fyrir að allt hafi gerst í gær eða á
morgun. íþróttir, og fréttir af þeim
eru þannig í eðli sínu að þær verða
að vera nýjar. Gamla ruglið skulum
við láta sagnfræðingunum eftir.
Og að lokum legg ég til að einhver
finni jarðstöðina Skyggni fyrir for-
ráðamenn Sjónvarpsins og Póstur og
sími hætti að láta eins og kjáni.
^\
Kiríkur St.Eiríks- V ”9*
son, skrífar um 4 ' ?
dagskrá ríkis-
(jölmidlanna.
Dagskrá ríkisfjölmidlanna 13. nóvember til 19. nóvember