Tíminn - 24.12.1982, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.12.1982, Blaðsíða 3
FÓSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982 3 ■ Úr myndinni Stir Crazy. Stjörnubíó: Geggjað gaman —önnur jólamynd er It's My Turn ■ „Að Gene Wilder og Richard Pryor leiki saman í gamanmynd er gulltrygging fyrir krampakenndum hlátri og geggj uðu gríni eins og raunin er með myndina Stir Crazy“, segir m.a. í kvikmyndagagnrýni Tímans um aðaljólamynd Stjörnubíós í ár „Snargeggjað" en í he'nni leiða saman hesta sína fyrrgreindir heiðursmenn undir stjórn leikstjórans Sidney Poitier. Wilder og Pryor leika félagana Skip og Harry. New York búa sem fengið hafa sig fullsadda af heimsborginni og ákveða því að halda í vestur í sólina, sandinn og hina víðfeðmu ónumdu „kvenakra“ sem þeir telja að fylgi með. A leið til þessa „himnaríkis" staðnæmast þeir í smáborginni Glenboro og þar sem þeir eru auralausir ákveða þeir að fá sér vinnu í banka þar sem þeir eru nokkurs konar skemmtiatriði og koma fram í spætubúningum. Tveir ópruttnir náung- ar nota síðan, spætubúningana til að ræna bankann. Skip og Harry er kennt um og fá þeir hvor um sig 125 ára fangelsisdóm. I fangelsinu uppgötvar stjórinn að Skip er búinn miklum hæfileikum á kúrekasviðinu og því er ákveðið að hann keppi fyrir fangelsið í ródeókeppni. Skip og Harry hafa í millitíðinni eignast þrjá félaga í fangelsinu, Mexíkana, homma og tröll að nafni Grossberger en sá er alræmdasti fjöldamorðingi fylkisins, leikinn af De Jeude, sem einhverjir kannast kannski við úr myndinni The Wanderers. Þessi hópur ákveður að ródeókeppnin sé þeirra eina von að losna úr fangelsinu og skipuleggja því flótta. Nú er komið að mér Önnur jólamynd Stjörnubíós er gam- anmyndin It‘s My Turn sem gæti útlagst „Nú er komið að mér“, með þeim Michael Douglas, Jill Clayburgh og Charles Grodin í aðalhlutverkum, leik- stýrt af Claudia Weill. It-s My Turn er fyndin ástarsaga um stærðfræðiprófessorinn Kate Gunzinger (Claybourgh) og fyrrum hornboltahetj- una Ben Lewin (Douglas). Hún er ein af þeim sem hefur lífið í nákvæmum og réttum skorðum áður en hún hittir þann síðarnefnda í giftingaveislu föðurs síns. Með þeim takast ástir og líf hennar tckur óvænta stefnu. Allir aðstandendur þessarar myndar hafa getið sér gott orð áður í kvikmynd- ím, einkum leikstjórinn Weill sem fyrst vakti athygli fyrir mynd sína Girlfreinds og Jiil Claybourgh í aðalhlutverkinu en nún hefur tvisvar verið tilnefnd til Óskarsverðlauna. -FRI ■ Clayburgh og Douglas í hlutverkum sínum. Einir mestu listamenn kvikmynda í dag, þeir ROBERT DE NIRO og MARTIN SCORSESE, standa á bak vif þessa mynd. Framleiðandinn ARON MILCHAN, segir: Myndin er bæði fyndin, dramatisk og spennandi og þaí má með sanni segja að bæði De Niro og Jerry Lewis sýna allt aðrar hliðar á sér en áður. Robert De Niro vai . stjarnan í Deer Hunter, Taxi Driver og Raging Bull Aðalhlutverk: Robert De Niro, Jerry Lewis, Sandra Bernhard. Leikstjóri: Martin Scorsese. Hækkað verð SÝND KL. 5.05, 7.10, 9.10 og 11.15. Sími 78900 SALUR - 1 JÓLAMYND 1982 HEIMSFRUMSÝNING Á ÍSLANDI ur grínsins JÓLAMYND 1982 LITLI LAVARÐURINN Stóri meistarinn (Alec Guinness) hittir litla meistarann (Ricky Schroder). Þetta er hreint frábær jólamynd fyrir alla fjölskylduna. Myndin er byggð eftir sögu Frances Burnett og hefur komið út í íslenskri þýðingu. Samband litla og stóra meistarans er með ól íkindum. Aðalhlutverk: Alec Guinness, Ricky Schroder, Eric Porter. Leikstjóri: Jack Gold SÝND KL. 5, 7 og 9. Salur - 2 Átthyrningurinn Chuck Norris í baráttu við Ninja sveitirnar. Sýnd kl. 11 Salur - 3 Bílaþjófurinn Bráðskemmtileg og fjörug mynd með hinum vinsæla leikara úr American Graffiti, RON HOWARD ásamt NANCY MORGAN Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 Salur - 4 Maðurinn með barnsandlitið Hörkuspennandi amerísk-ítölsk mynd með TRINITY-BRÆÐRUM. TERENCE HILL er klár með byss- una og við spilamennsku, en BUD SPENCER veit hvernig hann á að nota hnefana. Aðalhlutverk: Terence Hill, Bud Spencer, Frank Wolf SÝND KL. 5.05 og 11 Snákurinn (Venom) Venom er ein spenna frá upphafi til enda, tekin í London og leikstýrt af Piers Haggard. Þettaermyndfyrirþá sem unna góðum spennumyndum, mynd sem skilur eftir. Aðalhlutverk: Oliver Reed, Klaus Kinski, Susan George, Sterling Hayden, Sarah Miles, Nicol Williamson. Myndin er tekin í Dolby stereo og sýnd í 4ra rása stereo. Sýnd kl. 7 og 9 Bönnuð börnum innan 16 ára Salur - 5 Fram í sviðsljósið Sýnd kl. 9 (8. sýningarmánuður) Gleðileg jól

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.