Tíminn - 24.12.1982, Síða 7
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
7
jólakvikmyndir
Regnboginri:
Sænskir gras-
ekkjumenn
■ Aðaljólamynd Regnbogans að þessu
sinni er sænska myndin Grasekkju-
mennirnir eða Grasánkjlingar, gaman-
mynd með þeim Gösta Ekman og Janne
Carlsson í aðalhlutverkum og leikstýrt
af Hans Iveberg en hann gerði m.a.
myndina Göta Kanal sem hér hefur
verið sýnd.
Þetta mun vera heimsfrumsýning á
þessari mynd í Regnboganum, önnur
slík hérlendis á þessu ári, sem er nokkuð
merkileg þróun út af fyrir sig.
Grasekkjumennirnir fjallar um tvo
mjög ólíka persónuleika sem hittast eina
sumarviku í Stokkhólmi. Eiginkonur
beggja hafa haldið á brott og hefur annar
þeirra einsett sér að halda týpíska
ungkarlaviku en hin einsett sér að halda
rólega vinnuviku. Vikan breytist síðan í
eitthvað sem hvorugan óraði fyrir.
Lasse, sá er ætlaði að skvetta úr
klaufunum, finnur brátt út að hann á
fullt í fangi með að annast börnin sín
þrjú auk þess sem við bætist að Gary
reynist einnig þarfnast umönnunnar
hans. Gary aftur á móti finnur sig í hinu
dæmigerða grascklahlutverki, skeggið
vex, klæðnaðurinn verður losaralegri
■ Þeir Gosta Ekman og Janne Carlsson í hlutverkum sínum.
Jólamynd Nýja bíós
Jólamyndin í ár hjá Nýja bíói er ævintýramyndin „VILLIMAÐURINN CONAN“, en hún
fjallar um ævintýri og raunir söguhetjunnar, sem allir þekkja af teiknimyndasíðum
Morgunblaðsins.
Aðalhlutverkin eru í höndum: Arnold Schwarznegger, James Earl Jones, Max von Sydow
og Sandahl Bergman.
Sýnd á öllum sýningum yfir hátíðarnar.
A-salur
Jólamyndin 1982
Snargeggjað
The funniest comedy team on the screen...
Heimsfræg ný amerísk gamanmynd í litum. Gene
Wilder og Richard Pryor fara svo sannarlega á
kostum i þessari stórkostlegu gamanmynd -
jólamynd Stjörnubíóis i ár. Hafirðu hlegið að
„Blazing Saddles", Smokey and the Bandit," og The
Odd Couple", hlærðu enn meira nú. Myndin er
hreint frábær.
Leikstjóri: Sidney Poitier.
SÝND KL. 5, 7.05, 9.10 og 11.15.
íslenskur texti.
B-salur
Jólamyndin 1982
Frumsýning
Nú er komið að mér
JILL
CLAYBURGH
MICHAEL
CHARLES
DOUGLAS
tiRODIN
A funny lovt’ xtory.
íslenskur textí
Bráðskemmtileg ný bandarisk gamanmynd i
nútima konu og flókin ástamál hennar. Mynd þe:
hefur alls staðar fengið mjög góða dóma.
Leikstjóri: Claudia Weill.
Aðalhlutverk: Jill Clayburgh, Michaei Douglas
Charles Grodin.
SÝND KL. 5, 7,9 og 11.
Sýning annan í jólum.
Sýnd kl. 3, 5, 7.05, 9.10 og 11.15
Barnasýn kl. 3
Ferðin til jólastjörnunnar
Frábær norsk ævintýramynd.
Ath. ofangr. sýningartími verður fram yfir nýár.