Tíminn - 07.01.1983, Qupperneq 11
IB KR-ingar standa sig vel á alþjóöa-
mótinu í handknattleik í Vestur-Þýska-
landi. í gxr léku KR-ingar við þýska
liðiö Dankersen. Leikurinn var vel
leikinn af KR-ingum, og höfðu þeir
^ forystu í leikhléi 15-14.
I síðari hálfleik komu Þjóðverjarnir
brjálaðir til leiks og var ekki beitt
neinum vettlingatökum á KR-inga.
Að sögn Þorvarðar Höskuldssonar
fararstjóra var hreint ótrúlegt hve
Þjóðverjarnir gátu verið gróflr. „Jó-
hannes Stefánsson og Gunnar Gíslason
eru allir marðir og bláir eftir þá auk
þess sem þeir eru með kólur út um allt.
Og Gísli Felix Bjarnuson er meiddur,
það var einn sem kom hreinlega inn í
markið á eftir boltanum.“
Dankersen sigraði í leiknum 25-21.
Anders Dahl Nielsen skoraði mest
KR-inga í gærkvöldi, 9 mörk. Stefán
Halldórsson skoraði 6 mörk, en hann
skoraði einmitt 8 mörk í fyrrakvöld
gegn Kiel. Stefán hefur því skorað 14
mörk í tveimur leikjum, dágott. Jó-
hannes Stefánsson, Alfreð Gíslason
og Guðmundur Albertsson skoruðu 2
mörk hver.
Vestur þýski landsliðsmaðurinn See-
hase skoraði mest fyrir Dankersen, og
félagi hans úr landsliðinu Niemayer
skoraði 6.
Eins og áður sagði meiddist Gísli
Felix Bjarnason í leiknum, og er ekki
vitað hvfort hann getur leikið á
morgun. Gísli meiddist snemma í fyrri
■ Gísli Felix Bjarnason varði vel
gegn Kiel í fyrrakvöld, og í leiknum
gegn Dankcrsen í gærkvöld þar til
hann meiddist.
hálfleik, og kom þá Jens Einarsson inn
á í hans stað. Jens stóð sig frábærlega
í leiknum að sögn Þorvarðar.
■ í fyrradag léku KR-ingar við Kiel
lið Jóhanns Inga Gunnarssonar þjálf-
ara. Jóhann Ingi var illa fjarri góðu
gamni þar sem hann var veðurtepptur
á íslandi, enda sigruðu KR-ingar
glæsilega þetta sterka lið. Lokatölur
urðu 26-23 KR í hag. Gísli Felix átti
stórleik í marki KR og var öðrum
fremur maðurinn að baki sigri KR.
Stefán Halldórsson skoraði mest KR-
inga 8 mörk, Alfreð Gíslason skoraði
6, Anders Dahl og Jóhannes Stefáns-
son 4 hvor.
Úr heimi atvinnugolfleikara í Bandaríkjunum:
BRAUST ÚR FÁTÆKÍ MEÐ BÆKIADAN HANDLEGG
■ Það er með Calvin Peete eins og
Ijóta andarungann, hann varð að lokum
að svani. Sumir segja að Ijóti andarung-
inn hafl átt sxldarlíf miðað við Peete.
Calvin Peete er einn 19 systkina, faðir
hann var tvígiftur. Hann hxtti í skóla
eftir að hafa lokið 8. bekk, til þess að
vinna og hjálpa fjölskyldu sinni að hafa
í sig og á.
Hann gat ekki unnið erflðisvinnu, því
hann gat ekki rétt úr vinstri handlegg.
Tólf ára gamall hafði hann fallið niður
úr tré, og tvíbrotið olnbogann. Lxknir-
inn sagði að ef hann brotnaði aftur yrði
að taka handlegginn.
Eins og faðir hans byrjaði Calvin að
tína korn og baunir á ökrum mið-Flór-
ída. Og hann komst líka að því hvað
það þýddi að vera svartur. Faðir hans
sagði gjarnan: „Ef þú vilt komast áfram,
þá er ekki nóg að standa hvíta manninum
jafnfætis, þú verður að standa framar".
Calvin Peete komst áfram, hann er nú
atvinnugolfleikari, það er takmark sem
ekki er auðvelt að ná og hefur nær
eingöngu verið fyrir hvíta menn.
Og andstætt mörgum atvinnugolfleik-
urum sem ólust upp með silfurskeið í
munni, og fengu fystu kylfuna þegar þeir
gátu haldið á henni, gekk Peete ekki í
golfklúbb fyrr en hann varð 23 ára.
■ Calvin Peete með vinnuvettlingana.
Síðasta ár, sjöunda ár Peete sem
atvinnumanns var það besta sem hann
hefur leikið á ferli sínum. Hann sigraði
í fjórum meiriháttar mótum. Frammi-
staða hans gaf honum um það bil 320
þúsund dollara í aðra hönd, en það
jafngildir um 5,8 milljónir íslenskra
króna.
Síðasta ár var einnig minnisvert fyrir
Calvin Peete á annan hátt. Hann lauk
menntaskólaprófi.
Framadraumar
Calvin lét sig dreyma um það með
félögum sínum á unglingsárunum að
verða einhvern tíma ríkur. Um 16 ára
aldur skipti hann um starf, hætti að tína
korn og fór að vinna við framleiðslu íláta
sem korntínendur tíndu í. Þetta var skref
upp á við, smátt að vísu. 18 ára skipti
hann aftur um starf, gerðist sölumaður,
því að hann kynntist kúbönskum inn-
flytjendum sem komu á ekrurnar og
seldu vörur sínar. Þeir komu á hlöðnum
bílum, en fóru á þeim tómum. Peete
keypti eldgamlan skutbíl og hóf að selja
verkafólki á Austurströnd Flórída föt og
skartgripi. Þá hugsaði Peete lítið um
golf, „ef ég sá það í sjónvarpinu, þá
skipti ég alltaf um rás til að sjá
körfubolta eða stríðsmynd," - segir
hann. Honum fannst ekki mikið til
íþróttarinnar koma, ekki fyrr en hann
heyrði að Jack Nicklaus græddi 200
þúsund dali á ári.
Upphafíð
Um tvítugt lenti hann úti á golfvelli
með vinum sínum. Innan sex mánaða
frá því að hann fyrst tók á kylfu fór hann
átján holur á innan við 80 höggum. Eftir
átján mánuði var hann farinn að ná pari
vallarins. Þetta tókst honum án þess að
fara nokkurn tíma í golftíma. Hann
þorði því ekki. Hann var viss um að
kennarinn mundi segja honum að hann
yrði aldrei góður, úr því að hann byrjaði
svo seint,og hefði þar að auki bæklaðan
handlegg.
Peete tók sér auknar frístundir frá
vinnunni og kenndi sér sjálfur að leika
golf. Hann las mikið bækur um golf eftir
kappa ein og Sam Snead, Jack Nicklaus,
Bob Toski og Doug Ford. Hann lærði
hvcrnig hann ætti að halda á kylfunni
hjá manni sem seldi honum golfhanska,
og hóf að æfa sig á baseballvelli. Þar æfði
hann sig í því að slá kúlurnar á ákveðinn
stað. Hann eignaðist einnig litla kvik-
myndatökuvél til að sjá hvernig hann
sjálfur sló. Stundum kom hann á völlinn
áður en götuljósin voru slökkt á
morgnana og fór aftur eftir að þau voru
kveikt á kvöldin.
Samt náði hann ekki tilskyldum
árangri í skóla atvinnugolfsambandsins
sem gefur mönnum réttindi til að verða
atvinnumenn, í fyrstu tvö skiptin sem
hann það reyndi. Loks í þriðju tilraun
tókst honum það, árið 1975. Þá var hann
orðinn 32 ára gamall.
Peete tókst þetta þrátt fyrir sinn
bæklaða handlegg. Einsoghver byrjandi
t' golfi veit er ætlast til þess að menn slái
með beinan vinstri handlegg á kylfunni.
En þetta getur Calvin ekki. Kylfan á líka
að vera lárétt fyrir ofan golfleikarann í
upphafi sveiflu fyrir upphafshögg. Calv-
in nær henni aðeins rúmlega lóðréttri.
En hann hefur sína eigin aðfgerð, sem
er frá því runnin er hann lék pool í gamla
daga. Hann fer kringum kúluna, kíkir
út stefnuna og það allt saman, stillir sér
upp og slær kúluna með mikilli bol-
sveigju.
Upphafshögg hans eru um 240 metrar,
nálægt því sem gerist hjá öðrum golfleik-
urum. Og það sem hjálpar honum þó
hans högg séu ívið styttri er að hann slær
teig högg með meiri nákvæmni en
nokkur annar, en það er niðurstaða
rannsóknar sem gerð var keppendum á
síðasta ári.
Tók menntaskólapróf
Calvin Peete er einn fjögurra
blökkumanna sem leika sem atvinnu-
golfleikarar í Bandaríkjunum. Hinireru
Lee Elder, Jim Dent og Jim Thorpe. Þá
leikur einn til, Pete Brown af og til. „Ég
er enginn brautryðjandi", segir Calvin,
„margir reyndu þetta á undan okkur sem
erum með nú, en fengu ekki aðgang. Ef
þeir hefðu ekki verið til og svo Martin
Luther King væri þetta enn ekki hægt“.
Calvin er hamingjusamlega giftur, og
er kona hans Christine enskukennari í
menntaskóla. Þau eiga fjögur börn á
aldrinum 7-14 ára.
„Fyrstu þrjú árin í atvinnumennsk-
unni fannst mér framfarir litlar hjá mér.
Ég vann mér inn um 20 þúsund dollara
á ári. í raun var það Christine sem vann
fyrir fjölskyldunni. Ég var að því
kominn að gefast upp en hún hjálpaði
mér. Ég fór aftur að vinna með
kvikmyndatökuvélinni og þá fór þetta
að koma.“
En Calvin tók menntaskólapróf á
síðasta ári. „Ég vildi sýna börnum
mínum það að mér finnst menntun
mikið atriði“, segir hann. „Ég vildi líka
ná þessu áfanga sem ég ekki gat þegar
ég var unglingur. Þegar ég tók prófið var
ég miklu taugaóstyrkari en þegar ég er
að pútta í erfiðri keppni á stóru móti“.
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
11
Umsjón: Samúel Örn Erling^son
1£NA KOPPEN
HÆTTIR f MAÍ
■ Lena Köppen xllar að taka eina lotu
enn í badminton. Þessi iota, skorpa eða
hvað má kalla það mun standa þar til í
maí, en þá verður heimsmeistaramótið
í badminton í Bröndby höllinni í
Kaupmannahöfn.
Lena Köppen hafði ekki leikið
badminton í tvo mánuði er hún tók fram
spaðann að nýju nú um áramótin og hóf
að æfa á nýjan leik. Þessi yfirburðakona
í badminton sem Lena Köppen heíur
óumdeilanlega verið síðustu árin, sagðist
vera orðin leið á íþróttinni, þegar hún
var spurð um það skyndilega frí sem hún
tók sér frá æfingum og keppni. Það var
seint í október eftir opna Skandinavíska
mótið í KB höllinni í Kaupmannahöfn
þegar hún tapaði í undanúrslitum fyrir
18 ára gamalli kínverskri stúlku.
Allt eða ekkert
Fyrir Lenu Köppen er það allt eða
ekkert. Hún ntun aldrei sætta sig við að
verða meðalgutlari í badminton í enda
ferils síns. hún mun nú taka fjögurra
mánaða skorpu, og síðan leggja spaðann
á hilluna. Hún hafði frest til 5. janúar
að tilkynna þátttöku sína í heimsmeist-
Mjög skemmtileg viðureign var í gærkvöld í Reykjavíkurmótinu í innanhússknatfspyrnu. Þessi mynd er frá leik Fram og Ármanns. Hvað eru strákamir eiginlega að gera
og hvemig endar þetta eiginlega?
FJÖRAR VfTASPVRNUR DUGÐU EKKI
Vfkingur Reykjavikurmeistari í meistaraflokki karla á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu innanhúss
aramótinu, og það gerði hún á elleftu
stundu, eða alla vega þeirri tíundu.
„Við höfum ekkert gert til þess að
reyna að hafa áhrif á ákvörðun Lenu“
sagði formaður danska badmintonsam-
bandsins, Fredé Kruse Christiansen.
„Þetta er alfarið undir Lenu sjálfri
kornið."
Lcna Köppcn lék í Indónesíu og
Malaisíu í ágúst og september. Og
sigurinn í heimsbikarkeppninni í Kuala
Lumpur sem er einn stærsti sigur sem
hún hefur unnið um ævina megnaði ekki
að ná henni það á strik hvað ánægjuna
snerti, að bakslagið kæmi ekki í október
í KB höllinni.
Auk heimsmeistaramótsins í Bröndby
höllinni, All England keppninnar og
danska meistaramótsins er líklegt að
Lcna taki þátt í hollenska meistaramót-
inu scm vcrður nú á fyrri hluta ársins.
Þessa ákvörðun Lenu að leika í
heimsmeistarakeppninni er Dönum til
mikillar ánægju, þeir geta þá reiknað
með cinum gullverðlaunum á mótinu.
Sumir telja að Lena haldi áfram,
ekkert er hægt um það að scgja, en þegar
hún hættir verður mikill sjónarsviptir.
Allur heimurinn hefur í gegnum árin
fylgst með þessari frábæru íþróttakonu.
■ Örfáar sekúndur til lciksloka, staðan
4-3 Víkingi í hag í útsiitaleiknum í
Rcykjavíkurniótinu í knattspymu. Fram er
í sókn. Vikingar brjóta á lcikmanni Fram,
dæmt víti. Spenna ríkir í salnum. Boltanum
er stilt upp, Víkingar skipta Óskari
Tómassyni ínn á og hann fer í markið.
Flautan gellur skotið ríður af, framhjá. Þá
er það búið, nei, flautan gellur: Óskar
hreyfði sig of fljótt segir dómarinn. Vítið
skal endurtekið. Annar leikmaður Fram
spyrnir í þetta sinn. Aftur yflr, aftur hreyfir
Óskar sig, aftur endurtekið. Víti númer
þrjú: Allt orðið vitlaust í höllinni og farið
að síga í Víkinga. Enn fer allt á sömu leið,
nema að nú ver Óskar. Enn flautað. í
fjórða sinn er vítið tekið. Nú er ekki gaman
að vera Framari, spennan orðin yflrgnæf-
andi. Enn er spymt, og nú beint á Oskar
Tómasson. Reykjavíkurmeistaratitillinn í
innanhússknattspymu er í höfn, enn einn
titill Víkinga.
Mótið var í heild skemmtilegt og margir
fallegir taktar sáust. KR-ingar urðu í þríðja
sæti eftir úrslitaleik við Fylki, sigruðu 8-4.
KR-ingar höfðu léttleikandi og skemmti-
legt lið, það höfðu Framarar líka, léku þó
mjög yfirvegaðan fótbolta. Víkingar ömgg-
astir.
Hér koma úrslitin í mótinu:
Þróttur - Víkingur 5-7
Valur - Fylkir 4-3
Ármann - ÍR 6-7
Fram - KR 4-3
Víkingur - Fylkir
Þróttur - Valur
Í R - KR
Ármann - Fram
Valur - Víkingur
Fylkir - Þróttur
Fram - ÍR
KR - Ármann
Urslit um 3. sæti
KR - Fylkir
um 1. sæti
Víkingur - Fram
Lena Köppen ætlar nú að leggja spaðann á hilluna.
Danmörk ísland í kvöld í körfu.
■ „Ég veit ekkert um þetta danska landslið, en þú?“ sagði James Dooley
landsliðsþjálfari í körfuknattleik, í viðtali seint í gærkvöldi, eftir síðustu
æflngu liðsins fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld. Þetta var góð æfing, ég er
geysilega ánægður með strákana, þeir leggja mikið á sig, hreint ótrúlega,
eins og veðrið er hér. Ég er bjartsýnn, við ætlum að leika góða vörn,
„scrcena“ vel og skjóta vel. Ég vona að þctta danska lið sé gott, þá fáum
við góðan leik“. Þeir sem hvfla i kvöld af 13 manna hópnum eru Pétur
Guðmundsson, Ríkharður Hrafnkelsson og Viðar Þorkelsson. Þeir fimm sem
helja leikinn em Þorvaldur Geirsson, Simon Ólafsson, Torfi Magnússon
fyrirliði, Valur Ingimundarson og Jón Kr. Gíslason. Hreinn Þorkelsson,
Kristján Ágústsson varafyririiði, Axel Nikulásson, Pálmar Sigurðsson og
Bjöm Víkingur Skúlason hefja ieikinn á bekknum.
Leikurinn í kvöld er í íþróttahúsinu í Keflavík og hefst klukkan 21.00.
íþróttamaður ársins útnefndur í dag.
■ í dag verður útncfndur af Samtökum íþróttafréttamanna iþróttamaður
ársins. Tilnefningin verður á Hótel Loftleiðum. Ekki er gott að segja um
hver hlýtur titilinn, en þcir sem hiotið hafa hann oftast íslcndinga eru
Vilhjálmur Einarsson sem hlaut titilinn fimm sinnum alls, og Hreinn
Halldórsson sem hlotið hefur titilinn fjórum sinnum.
Pólverjar sigruðu
■ Pólverjar sigraðu Dani í landsleik í handknattleik í Kaupmannahöfn í
vikunni 22-19. Aðalhetja Pólverja var hinn ungi Waszkiewicz sem skoraði
11 mörk. Lcikmenn Dana vora mjög jafnir og dreifðust mörkin á marga.
Skólamót BLÍ
■ Frestur til að skiía inn þátttökutilkynningum í skólamóti Blaksambandsins
hefur verið framlengdur til 15. janúar. Hér er um að ræða mót í
grunnskólaflokki framhaldsskólaflokki og háskólaflokki. Keppt verður að
sjálfsögðu í stúlkna og piltaflokki.
„LÝK FERUNUM HJA NEWCASTIE
,,Er sáttur við að leika ekki með landslidinu meirff, segir Kevin Keegan
fyrrum landslidsfyrirliði Englands
■ „Ég ætla að ljúka ferli mínum hér“
segir Kevin Keegan knattspyrnumaður
hjá Newcastle United. Hann hefur nú
náð sér af augnmeiðslum sem hann átti
við að stríða. „Að vísu skrifaði ég aðeins
undir eins árs samning í haust, en ég ætla
að halda hér áfram og enda ferilinn hér.
Ég vona að Newcastle verði komið upp
í fyrstu deild að einu og hálfu ári liðnu,
það er það sem við stefnum að.“
Kevin Keegan skrifaði undir samning
við Newcastle United í haust. Áður
hafði hann leikið með Liverpool, þá
Hamburger Spoortveirein í Vestur-
Þýskalandi og síðast hjá Southampton.
Hann hefur verið talinn besti knatt-
spymumaður Bretlandseyja í nærfellt
tíu ár. Hann var fyrirliði enska landsliðs-
ins um árabil allt þar til í sumar á
heimsmeistarakeppninni á Spáni þar
sem hann gat ekki leikið nema hálfan
leik vegna bakmeiðsla.
í kjölfar heimsmeistarakeppninnar
urðu þjálfaraskipti hjá landsliði Eng-
lands eins og víða annars staðar. Hinn
nýi landsliðsþjálfari Englands Bobby
Robson setti Keegan út úr landsliðinu
um sama leyti og hann hóf að leika fyrir
Newcastle. Þessi ákvörðun Robsons
hefur verið mjög umdeild, Keegan er af
mörgum talinn alltof góður til að standa
fyrir utan hópinn. Allan Simonsen
Daninn frægi, segir „Kevin er sá
leikmaður í Evrópu sem ég dái mest.
Það er óskiljanlegt að hann sé ekki í
enska Iandsliðinu“.
Keegan varð mjög sár þegar Robson
tilkynnti ákvörðun sína, sagðist aldrei
mundi leika fyrir England aftur. Aðdá-
endur í Newcastle hans urðu æfareiðir
og þannig má lengi telja.
Ekki bætti það úr skák að Keegan átti
hvern stórleikinn á fætur öðrum í haust,
skoraði 11 mörk í fyrstu 14 leikjunum.
Þar af skoraði hann 4 mörk í einum leik.
Þegar komið var fram á tímabilið
meiddist Keegan á auga og gat ekki
leikið fyrr en rétt fyrir áramótin. Hann
hélt uppteknum hætti, skoraði m.a.
mark gegn Bolton í leik liðanna á
nýársdag.
Á móti þessu öllu kcmur að hver nýr
þjálfari sem tekur við landsliði eins og
Robson, verður eiginlega að gera ein-
hverjar breytingar á liðinu, sérstaklega
þar sem mikið framboð er á mjög góðum
knattspyrnumönnum eins og á Englandi,
er óneitanlega. Og Kevin Keegan er
orðinn 31 árs gamall.
Mikið hefur verið rætt og ritað um það
hvort Keegan komi virkilega inn í
landsliðshópinn aftur. Bobby Robson
segir: „Keegan er utan minna áætlana
um skipan landsliðsins". Keegan segir:
„Mínum landsliðsferli er lokið. Ég
einbeiti mér nú að því að lkeika með
Newcastle. Ég ætla að Ijúka mínum ferli
hér, og ég bind miklar vonir við félagið.
Ég hélt að þegar að því kæmi að maður
yrði að hætta að leika knattspyrnu á
alþjóðlegum vettvangi yrði það eins og
að missa hluta áf sjálfum sér, hönd eða
fót jafnvel. En svo er ekki. Ég er svo
sáttur við þetta að ég hefði ekki einu
sinni trúað því sjálfur að óreyndu.
■ Kevin Keegan ásamt fjölskyldu sinni, konunni Jean og
dælmnum Laura-Jane og Sarah Marie.