Tíminn - 12.01.1983, Side 1

Tíminn - 12.01.1983, Side 1
Sex nýir spámenn í getraunaleik Tímans — bls. 10-11 FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 12. janúar 1983 8. tölublað - 67. árgangur. Norðmenn og Japanir komu hingad í gær til viðrædna um Járnblendifélagid: TAUÐ AD ELKEM VIUI SEUA JAPÖNUM UM 20% EIGNARHUIT ■ Síðdegis í gær komu hingað til lands frá Osló fulltrúar Elkem Spiegerverket og fulltrúar japanska fyrirtækisins Sumi Tomo, sem Elkem hyggst nú selja um 20% af 45% eignarhluta sínum í íslenska járnblendifélaginu, en Tíminn greindi frá því í gær að nú stæðu viðræður yfir á milli Elkem og Japananna um þessi mál. Þessir aðilar eru nú komnir til íslands í þeim erindagjörðum að eiga viðræður við íslenska aðila um sama mál. Blaðamaður Tímans hitti dr. Rolf Nordheim við komuna í gær, en dr. Nordheim á sæti ásamt tveimur Norðmönnum öðrum, fyrir Elkem hönd, í stjórn íslenska járnblendifélags- ins. Dr. Nordheim var spurður hvernig viðræðum þessara þriggja aðiia yrði háttað og hversu mikinn hluta Elkem hygðist selja Sumi Tomo: Dr. Nordheim sagði: „Ég get ekkert um það sagt á þessu stigi. Við erum hingað komnir, ásamt Ja- pönunum, til þess að ræða við íslensku eigendurna, en á þessu stigi málsins get ég ekki upplýst um hvað viðræðurnar munu snúast." Fulltrúar japanska fyrirtækis- ins, Sumi Tomo voru jafnvel enn þögulli, því þegar forsvarsmaður þeirra var spurður hvers konar fyrirtæki Sumi Tomo væri, sagði hann einungis: „Ég er ekki fulltrúi neins japansks fyrirtækis. Ég er prófessor í sögu!“ Ttminn hefur aflað sér heim- ilda fyrir því að Sumi Tomo er eitt af stærstu japönsku fyrir- tækjunum á sínu sviði, en það er í alhliða iðnaðarframleiðslu úr stáli, áli og fleiru. AB Rostungur sást á Rifi á Snæfellsnesi: EKKI SÉST HÉR FYRR Á ÖLDINNI ■ Rostungur var að spóka sig i brimgarðinum á Rifi á Snæfells-' nesi í gærmorgun og mun hann vera sá fyrsti sem sést hefur hér á landi á þessari öld. „Við sáum hann fyrst rétt fyrir hádegið og þá lá hann uppi á brimbrjótnum. Eg gekk að hon- um landleiðis, en sjórinn var að falla undir hann, og þá brölti hann í sjóinn. Enginn asi var á honum og ekki var hægt að sjá að hann væri sérstaklega styggur," sagði Sæmundur Krist- jánsson, vigtarmaður á Rifi, en hann var meðal þeirra fyrstu sem sáu til skepnunnar. „Mér virtist hann vera þarna í æti, sennilega skel eða smokkfisk, en hann flækist víst hingað á eftir smokknum. Hann stakk sér nokkrum sinnum og var alveg ótrúlega lengi í kafi, kom upp rétt við fæturna á mér og var þá að maula eitthvað." - Var þetta stórt dýr? „Hann var nú ekki stór, enda skilst mér að hann sé mjög ungur. Hann var bara með aðra tönnina, sem var ekki nema svona fjögurra tommu löng.“ - Gastu séð mikinn mun á honum og venjulegum sel úr fjarlægð? „Nei, enda hélt ég fyrst að þetta væri útselsbrimill sem lægi þarna veikur og ætlaði að aflífa hann, en til allrar lukku sá ég hvers eðlis var áður en ég fór út í það,“ sagði Sæmundur. „Það heyrir helst annálum til að rostungar sj áist hér við land,“ sagði Sólmundur Einarsson, fiskifræðingur, í samtali við blað- ið í gær. „Ég veit að þeir sáust nokkrir fyrir Norðurlandi á síðustu öld, en síðan er ekki vitað um ferðir þeirra. Aftur á móti hafa þeir fundist á Bret- landseyjum, í Noregi og Hol- landi á undanförnum þremur árum. Það voru ungir tarfar sem villtust frá hjörðunum í ætisleit." -Sjó KAFARAR GÆSLUNNAR MÁNUÐ í VERKFALLI! Lögðu niður vinnu og skiluðu búnaði sfnum ■ Kafarar Landhelgisgæslunn- ar hafa ekki kafað undanfarin mánuð vegna deilu um kjör sín við stjórn Landhelgisgæslunnar. Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði í Straumsvíkurmálið: w LIKLEGA AFRYJAÐ 11 11 ■ „Ég tel það líklegra en ekki að áfrýjað verði þessum dómi en ég á eftir að ræða það betur við iögfræðing minn“ sagði Guð- mundur Jónasson í samtali við Tímann en hann var stefnandi í Straumsvíkurmálinu sem nýlega var dæmt í í bæjarþingi Hafnar- fjarðar og stefndi, ísal sýknað að kröfum stefnda. „Ég hef ekki kynnt mér dóm- inn nákvæmlega ennþá. maður vissi að þetta gat farið á hvorn veginn sem var en maður er óhress með niðurstöðuna." „Bjuggumst við þessu“ „Þetta er ekki meira en það sem við bjuggumst við, dómur- inn féll eins og við höfðum gert ráð fyrir“ sagði Ragnar Halldórs- son forstjóri ísal í samtali við Tímann er við spurðum hann álits á dómnum . Hann sgði að hann hefði ekki kynnt sér dóm- inn nægilega vel ennþá til að segja eitthvað frekar um hann en hann bjóst fastlega við að málinu yrði áfrýjað. FRI samtali við Tímann að slitnað hefði upp úr samningaviðræðum og hann boðið köfurunum að leggja málið fyrir gerðardóm. Er við höfðum samband við forsvarsmenn kafaranna kom í Ijós mikil óánægja með það hvernig stjórn LHG hefði staðið að samningamálunum við þá. Þeir fóru fyrst fram á samningafund þann 4. okt. s.l. með bréfi til stjórnar LHG. Því var ekki svarað og sendu þeir annað bréf þann 15. okt. Þá voru ákveðnir samningafundir og fjórir slíkir haldnir í nóvember. Töldu kafararnir að samkomulag væri í augsýn en þá var áfram- haldandi samningafundum, um mánaðarmótin nóv./des. frestað hvað eftir annað og köfurunum loks tilkynnt þann 10. des. að samningaviðræðum væri slitið og hefði lokatilboð LHG komið fram á síðasta fundinum. Samþykktu kafararnir síðan á fundi þann 13. des. að leggja niður vinnu og skiluðu þeir útbúnaði sínum til eftirlits- manns. Allir kafarar LHG vinna sem stýrimenn, vélstjórar eða loft- skeytamenn en hafa köfunina sem aukastarf. Mikill munur er á launum þeirra í þessum störf- um og gerist á almennum mark- aði, sem dæmi má nefna að samkvæmt því samkomulagi sem gert varð 1980 og kafararnir vildu fá breytt fá þeir 1662 kr. fyrir köfun innanhafnar á móti 5-6 þús. kr. hjá öðruni köfurum og fyrir köfun utanhafnar fengu þeir í sumar 2141 kr. á móti um 15. þús. kr. hjá öðrum. Sjá nánar á bls. 3 FRI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.