Tíminn - 12.01.1983, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1983
3
fréttir
Kafarar Landhelgisgæsiunnar neita að kafa vegna ágreinings
um launamál:
HAFA EKKERT KAFAÐ I
MANUÐ VEGNA DEILNA!
„samingaviðræðum slitið, er samkomulag var f augsýn” segja
forsvarsmenn kafaranna
■ Kafarar Landhelgis-
gæslunnar hafa ekki stund-
að köfun frá 13. desember
s.I. en þá var samningavið-
ræðum vegna launamála
við þá slitið, þegar sam-
komulag virtist vera í aug-
sýn að sögn forsvarsmanna
kafaranna.
Kafarar Landhelgisgæslunnar stunda
þessi störf sem aukastörf en eru í
aðalstörfum sem stýrimenn, vélstjórar
eða loftskeytamenn. Fyrir störf sín fá
þeir almennt rúmlega helmingi lægri
laun er gerist hjá köfurum á almennum
markaði og var sá launamismunur
kveikjan að því að þeir fóru fram á
samningaviðræður við stjórn LHG í
byrjun október s.l.
Þann 4. október s.l. sendu þeir stjórn
LHG fyrsta bréfið með beiðni um
viðræður. Er ekkert svar hafði borist við
þeirri beiðni þann 15. okt. var annað
bréf sent og þá fór LHG fram á
samningafund í málinu.
Er samningafundir hófust fengu kafar-
ar LHG 1662 kr. fyrir köfun innan
■ Störf Itflfnranna eru oft tvísýn og hættuleg og leggja þeir áherslu á þá kröfu sína
að þeir séu jafnan tveir saman að störfum.
„Bauð þeim
gerðardóm”
— segir Gunnar Bergsteinssson
forstjóri Landhelgisgæslunnar
■ „Það sem samkomulag náðist ekki
í málinu skrifaði ég köfurunum bréf
þar sem þeim var boðið að láta
gerðardóm ákveða sanngjama þóknun
fyrir störf þeirra“ sagði Gunnar Berg-
steinsson forstjóri Landhclgisgæslunn-
arí samtali við Tímann er við spurðnm
hann um næstu skref í launadeilu
kafara hjá LHG.
Gunnar sagði að svar hefði enn ekki
borist við þessari málaieitan en kafarar
hefðu lagt niður störf og tilkynnt
skipherrum sínum að þeir mundu ekki
kafa meðan samkomulag næðist ekki
í deilunnni.
„Flestir kafaranna eru starfsmenn
sem ráðnir eru til Gæslunnar sem
stýrimenn, vélstjórar og loftskeyta-
menn og hafa þeir lært köfun hjá
okkur og við útvegum þeim útbúnað.
Samkomulag sem þeir hafa sagt upp
var gert 1980 en í kröfum sínum hafa
þeir miðað við aðra kafara."
-FRl
hafnar en á almennum markaði fá
kafarar á milli 5 og 6 þús. kr. fyrir slíkt.
Fyrir köfun utan hafnaf fengu kafarar
LHG 2141 kr í sumar á móti um 15. þús.
kr. sem borgað er á almennum markaði.
Alls voru haldnir fjórir samninga- og
viðræðufundir/ í nóvember og var á
þeim að mati kafaranna komið sam-
komulag um mikilvægustu atriðin og
höfðu kafarar þannig samþykkt grunn-
taxtann um innanhafnarköfun, 2500
kr., en svolítið bar á milli í utanhafnar-
köfun og um orðalag í samningunum.
Síðan komu margboðaðir áframhald-
andi samningafundir frá 29. nóvember
og fram á miðvikudaginn 8. des. en þeim
alltaf frestað af stjórn LHG vegna ýmissa
atriða. Þann 10. des. er st'ðan sagt að
samningaviðræðum sé endanlega slitið
og 13 des. barst þeim bréf, en í því sagði
að lokatilboð LMG hefði verið sett fram
á síðasta fundi.
Skiluöu útbúnaði sínum
Kafarar héldu síðan fund þann 13.
desember og á þeim fundi var samþykkt
að segja skipherrum LHG að kafarnir
sæju sér ekki fært að sinna þessu starfi
sínu vegna launamála og framkomu
stjórnar LHG við þá og skiluðu kafar-
arnir útbúnaði sínum til eftirlitsmanns.
Eitt skipa LHG varþá að leggja úrhöfn,
Týr, og tilkynntu kafarar þess skips
skipherra að þeir væru einnig hættir
köfun en í fyrstu grein samnings kafara
í LHG frá apríl 1980 segir að kafararnir
séu ekki skyldugir til að kafa ef þeir
samþykkja það ekki sjálfir.
Forsvarsmenn kafaranna sögðu í
samtali við Tímann að hið eina sem
raunverulega átti eftir að ræða um í
samningaviðræðunum var sú krafa
kafaranna að utanhafnar, eða úti á
rúmsjó, yrðu ávallt tveir menn látnir
kafa í einu þar sem þetta eru mjög
hættuleg störf og til að tryggja að svo
yrði vildu þeir fá inn ákvæði sem tryggðu
slíkt eða að ef einn maður yrði látinn
kafa við slíkar aðstæður fengi hann
tvöfalt kaup.
„Meðferð þessa máls leggst mjög illa
í okkur. Við komum jákvæðir til
viðræðnanna og töldum að samkomulag
væri á næstu grösum er okkur var
tilkynnt um að samningaviðræðum væri
slitið" sögðu forsvarsmenn kafaranna.
Þeir sögðu ennfremur að kafarar
hefðu aldrei, utan tvisvar, fengið auka-
bónus fyrir að hafa unnið að björgun
skipa þótt skýrt væri tekið fram í
sjólögum að svo megi gera og að í
óformlegum viðræðum við tryggingar-
félög, skipaeigendur og aðra kafarar
hefði komið fram að þessir aðilar teldu
kaup þeirra hlægilega lágt, fyrir þessi
störf. FRI
„Ekki borið á
vandræðum
ennn
— segir Höskuldur Skarp-
hédinsson skipherra á Ægi,
en lítið hefur verið af
skipum á miðunum
■ „Þetta er bagalegt fyrír þá sem
þurfa að njóta þcssarar aðstoðar en
ekki hefur borið á neinum vandræðum
ennþá þar sem litið hefur verið af
skipum á miðunum“, sagði Höskuldur
Skarphéðinsson sldpherra á varðskip-
inu Ægi í samtali við Tímann er við
spurðum hann hvemig launadeila kaf-
ara Landhelgisgæslunnar kæmi við
störfin á varðskipinu.
„Ég myndi telja það æskilegast að
hægt væri að komast að samkomulagi
strax og.væri þannig hægt að fara að
vinna eftir nýjum samningum og veita
þessa þjónustu þeim sem þurfa hana.
Það hlýtur öllum að vera kappsmál
sem hlut eiga að máli.
Höskuldur sagðist ekki hafa verið
nógu kunnugur kröfum kafara til að
tjá sig um þær en hann taldi þá ekki
ofsæla af því sem þeir fengju. Hann
sagði að hann hefðu unnið við_þetta í
tuttugu áV, þetta væri skítavinna, erfið
oft á tíðum, alltaf volk sérstaklega á
þessum tíma árs og kuldi sem fylgdi
þessu starfi.
„Eftir þvf sem mér skilst bera þeir
sig saman við aðra kafara og ég get
ekki fundið það að það sé sanngjamt1*
sagði Höskuldur.
Prófkjör og skoðanakannanir
vfða um helgina:
Á laugardaginn hjá Fram-
sókn í Norðurlandi vestra
alþingiskosningar að verða tilbúnir
fyrstú daga febrúarmánaðar.
Hjá Alþýðubandalaginu fer fyrri hluti
forvals fram um næstu helgi í Reykjavík,
á Vesturlandi og í Norðurlandskjör-
dæmi-eystra. Einnig var búist við að
síðari hluti forvals fari fram á Vestfjörð-
um um þessa sömu helgi, en í fyrri
umferð sigraði Kjartan Ólafsson með
yfirburðum. Þá fór fyrri hluti forvals
fram á Suðurlandi um síðustu helgi.
Hjá Alþýðuflokknum vom 4 prófkjör
sögð framundan. Hið fyrsta á Suðurlandi
hinn 22. janúar, en síðan í Reykjanes-
kjördæmi, Norðurlandi-eystra og á
Austurlandi helgina 29. og 30. jan.
Prófkjör á Vestfjörðum verður ekki fyrr
en í mars.
Hjá Sjálfstæðisflokknum verður próf-
kjör á Vesturlandi um næstu helgi, 15.
og 16. jan. En helgina þar á eftir, 22. og
23. jan. verða prófkjör í Norðurlands-
kjördæmi-eystra og á Suðurlandi. Að
sögn Más Jónssonar hefur ekki enn verið
ákveðið hvenær prófkjör flokksins á
Austurlandi og í Reykjaneskjördæmi
fara fram. í prófkjörum Sjálfstæðis-
flokksins eru það flokksbundnir 16 ára
og eldri ásamt stuðningsmönnum flokks-
ins sem láta skrá sig, sem greiða mega
atkvæði. -HEI
■ Skoðanakönnun um röðnn á
lista Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi-vestra fer
fram á aukakjördæmisþingi með
tvöföldum fulltrúafjölda í Mið-
garði n.k. laugardag, 15. janúar.
Jafnframt er búist við að auka-
kjördæmisþingið á Reykjanesi,
sem fresta þurfti vegna ófærðar
síðasta laugardag, verði haldið á
laugardaginn kemur ef veður
leyfír, en endanlega ákvörðun
átti að taka í því máli á fundi í
gærkvöldi.
Skoðanakannanir á Vestfjörðum og
Austfjörðum verða síðan haldnar helg-
ina 29. og 30. janúar n.k. { þeim hafa
atkvæðisrétt stuðningsmenn Framsókn-
arflokksins í þeim kjördæmum. Á
Vesturlandi er uppstillingarnefnd að
störfum en síðan verður boðað þar til
aukakjördæmisþings til að ákveða
endanlega uppröðun síðari hluta þessa
mánaðar. Þingdagur verður ákveðinn
síðar.
Að sögn Hauks Ingibergssonar, fram-
kvæmdastj. flokksins eiga allir fram-
boðslistar framsóknarmanna við næstu
Lestunar-
áætlun
Goole:
Arnarfell .....................18/1
Arnarfell .....................31/1
Arnarfell ......................14/2
Arnarfell ......................28/2
Rotterdam:
Arnarfell .....................20/1
Arnarfell ..................... 2/2
Arnarfell......................16/2
Arnarfell...................... 2/3
Antwerpen:
Arnarfell ..
Arnarfell ..
Arnarfell ..
Arnarfell ..
Hamborg
Helgafell ..
Helgafell ..
Helgafell ..
21/1
3/2
17/2
3/3
18/1
8/2
28/2
Helsinki:
Dísarfell ......................31/1
Mælifell........................18/2
Dísarfell ...................... 3/3
Larvik:
Hvassafell
Hvassafell
Hvassafell
24/1
7/2
21/2
Gautaborg:
Hvassafell................ 25/1
Hvassafell................... 8/2
Hvassafell...................22/2
Kaupmannahöfn:
Hvassafell..................26/1
Hvassafell................... 9/2
Hvassafell...................23/2
Svendborg:
Hvassafell................. 13/1
Helgafell...................20/1
Hvassafell..................27/1
Helgafell....................10/2
Hvassafell...................24/2
Árhus:
Helgafell...................22/1
Helgafell....................12/2
Gioucester, Mass:
Jökulfell...................28/1
Skaftafell..................25/2
Halifax, Canada:
Jökulfell...................31/1
Jökulfell....................28/2
- í :: —— u. - -X'
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambándshúsinu ^ ■ .
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Hlaðrúm úr furu f viðarlít
n
r “ -rz
=f
og brúnbæsuða. Áhersla er
lögð -á' vandaða lökkun.
' Stærðir: 65x161 cm og 75x190 crn.
Sendum gegn póstkröfu,
Furuhúsið hf„
Suðurlandsbraut 30,'
sími 86605.