Tíminn - 12.01.1983, Qupperneq 6

Tíminn - 12.01.1983, Qupperneq 6
6______________ í spegli tímans MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1983 ■ Góður nætursvefn hressir og endurnær- ir líkama og sál, um það eru allir sammála, en svo hefurhversínasérviskuog sérskoðun á því, hve lengi og við hvaða aðstæður best er að sofa. Sumir halda því fram, að segulmagn jarðar hafi sitt að segja í sambandi við svefninn, og þá sé áríðandi að snúa rétt, - með höfuðið í norður og fætur í suður. Napóleon keisari trúði þessu, og sama er að segja um rithöfundinn Charles Dickens, en Dickens hafði alltaf með sér áttavita til að vera viss um áttirnar. Ef Dickens kom á ókunnan stað, t.d. hótel eða annan gististað, þá byrjaði hann á því að taka upp áttavitann og færa rúmið til eftir honum. ■ Churchill þótti gott að koma í svalt rúm Svefnveniur kunnra manna: ■ Rithöfundurinn Charles Dickens hafði jafnan með sér áttavita til að rúmið hans stæði rétt - í norður og suður ■ Les Margaret Thatcher þingtíðindi undir svefninn? vana að geta fengið sér smáblund, og hvfldin gefur þeim kraft til að halda áfram að vinna endumærðir á eftir. Sérfræðingum kemur saman um að okkur sé svefninn bráðnauðsynlegur, og nýiega var gerð rannsókn á . her- mönnum, sem voru sjálfooða- liðar. Þeim var meinað að sofa, og þegar þeim hafði verið haldið vakandi í 98 klukkutíma voru þeir orðnir meira og minna ruglaðir. Margir sáu ofsjónir, - einn sá marga hunda allt í kring um sig, og öðrum þótti sem köngulóarvef- ur félli þétt að andliti sínu og reyndi í ofboði að strjúka hann framan úr sér, og flestir vissu ekki hvort dagur var eða nótt. Ráðin til að sofa vel og rótt, em óteljandi, en reynast mis- jafnlega. Gott er að vera vel TVO Sérfræðingar eru ekki á einu máli um hversu mikill eða lítill nætursvefn er hollastur. Sumir ■ Sagt er, að til séu þeir, sem öfunda Elton John af nýja búningnum RUM BETRI EN EITT? — það sagði Churchill a.m.k. segjast ekki hafa þörf fyrir nema 4-5 tíma nætursvcfn. Má þar til nefna breska forsætisráð- herrann Margaret Thatcher, og Winston Churchill var sagð- ur hafa þarfnast lítils nætur- svefns, en hann fékk sér oft smáblund á daginn. I einni bók sinni segir Churchill: „Eg hef fyrir vana, að leggja mig að minnsta kosti í klukkutíma um eftirmiðdaginn, Með því að hvíla mig þannig seinni hluta hvers dags gat ég afkastað 11/2 dags vinnu á hverjum degi.“ Churchill var sammála Benjamin Franklin, banda- ríska stjórnamálamanninum, sem uppi var á 18. öld, en hann sagði að það væri nauðsynlegt fyrir góðan svefn, að hömndið væri hæfilega svalt og herberg- ið ekki of heitt, sem sofið var í. Franklin sagðist nota tvö rúm í sínu svefnherbergi til þess að geta skipt yfir í kalt rúm. Þegar honum væri orðið of heitt í rúminu og gæti ekki sofnað þá færi hann yfir í kalda rúmið og sofnaði þá oftast vært. Winston Churchill tók þetta upp, eftir að hann hafði lesið þessa frásögn Benjamins Franklin, og Churchill heimt- aði svo alltaf tvö rúm í sínu herbergi ef hann var á ferða- lagi, og auðvitað heima hjá sér. Svo skipti karl um rúm eftir því sem honum hentaði. „Það er svo þægilegt að kom upp í svait rúm“, sagði hann, þegar hann var spurður um hina frægu svefnvana hans. Margir frægir stjómmála- menn hafa tamið sér þann líkamlega þreyttur þegar farið er að sofa, og einnig mælti sálfræðingurinn dr. W.C.Wright með því að lesa eitthvað mjög dauft og leiðin- legt fyrir svefninn. „Líklega les frú Thatcher þingtíðindi fyrir svefninn", sagði sálfræð- ingurinn, „því að hún segist alltaf sofna fast og vel um leið og hún halli sér á koddann“. Elton John slær met ■ Elton John hefur löngum' verið drjúgur við að finna sér nýja og nýja búninga til að koma fram í á tónleikum. Hann þótti þó hafa slegið öll met, þegar honum hugkvæmd- ist að láta gera sér einkennis- búning, sem myndi hæfa hers- höfðingja í óperettu, gulli sleg- inn i bak og fyrir. Elton hefur hugsað sér að vígja þennan dýrmæta búning á tveggja mánaða hljómleikaferð um England. Sá orðrómur hefur komist á kreik, að einhver af einræðis- herrum Suður-Ameríku hafi séð sér leik á borði og látið gera sér nákvæma cftirlíkingu af búningnum. Þetta hefur þó ckki verið staðfest. Connery verður ekki allsnakinn sem James Bond ■ Sean Connerv, sem orð- inn er 52 ára, hcfur nú aftur tekið til við aö leika ofurhug- ann 007. Það er talsvert álak að taka áftur til við aö fara í spor garpsins mikla, enda hcfur hann tekið ýmsum brcytingum á þeim tíma sem liðinn er síðan Sean fékkst við hann síðast. Eitt er það þó, sem liggur við að Sean setji fyrir sig. Það cr sú árátta að hylja mest litið í ástaratriðunum. Nektin skal vera þar í fyrrúmi. Umboðsmaður Seans harð- ncitar því þó, að Sean eigi eflir að bregöa fyrir alls- nöktum. - Hann verður a.m.k. með hárkolluna, segir hann hinn hrcssasti, vidtal dagsins ■ „Ætli það hafi ekki einkum verið forvitni og nýjungagirni sem varð þess valdandi að ég ákvaö aö slá til og fara suður“, sagði Áskell Þórisson, nýráð- inn framkvæmdastjóri Sam- bands ungra framsóknar- manna í samtali við Tímann, „en auk þess langaði mig til að leggja mitt af mörkum innan vcggja Framsóknarflokksins. Áskell starláði sem blaðamað- ur við Dag á Akureyri síöustu fimm árin og hafði áður veriö blaðamaður á Tímanum. Eins og fram hefur komið í blaöinu eru þéir Áskell og Haukur Ingibcrgsson nýir starfsmenn á skrifstofu flokksins við Rauð- arárstíg, cn Haukur tók við starfi framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins af Þráni Valdimarssyni. „Það er heldur snemmt að spyrja mig náið út í starfið enda er stutt síðan ég tók við því. Það virðist vera á margan hátt áhugavert enda hafa sam- tök á borð við S.U.F. í ýmsu að snúast. Kosningar eru á næsta Iti ti og ég mun verða að STARFIÐ A, lyiARGAN HATT AHUGAVERf’ — segir Áskell Þórisson, nýráðinn framkvæmdastjóri SUF sinna margskonar verkefnum sem tengjast þeim. Síðast en ekki síst vil ég nefna fyrirhug- aða útgáfu á stjórnmálariti, sem S.U.F. mun standa fyrir. Ef vel tekst til verður þetta rit að föstum pósti í tilverunni. Fyrsta eintakið á að líta dagsins Ijós um miðjan næsta mánuð, en alls eiga fjögur blöð að koma út á árinu. í þeim verður einkum fjallað um Framsókn- arflokkinn og samvinnuhreyf- inguna“. - Telur S.U.F. að Tíminn og Samvinnan hafi ekki sinnt þessum málum nógu vel? „Síst af öllu vildi ég kasta rýrð á þau blöð sem þú nefndir, þau hafa staðið sig ágætlega, en góð vísa verður aldrei nógu oft kveðin. í stjórnmálaritinu, sem enn hef- ur ekki hlotið nafn. verður vonandi hægt að taka þessa málaflokka nýjum tökum og Tímamynd GE ■ Áskell Þórísson á skrifstofu sinni, fjalla ýtarlegar um þá en hefur verið mögulegt í Tímanum og Samvinnunni. Það er Helga Jónsdóttir sem stýrir ritnefnd- inni og með henni er vaskur hópur, en mitt hlutverk hefur m.a. verið að safna auglýsing- um í þetta blað“. - Er ekki erfitt að fjármagna samtök á borð við S.U.F.?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.