Tíminn - 12.01.1983, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 1983
13
menningarmál
Sissy Spacek og Jack Lemmon leika aðalhlntverkin í „Missing“.
Kvikmyndamat tfmaritsins „films”:
„Missing”
talin besta
mynd ársins
■ Breska kvikmyndatímaritið „films“ hefur valið kvikmyndina umdeildu „Missing“
(Saknað) eftir Costa-Gavras bestu kvikmynd liðins árs. Jafnframt valdi timaritið
Sissy Spacek bestu leikkonu ársins fyrir frammistöðu sína í þessari sömu mynd, en
hún lék þar unga bandaríska konu, sem leitar að eiginmanni sínum, sem hvarf þegar
herforingjarnir í Chile gerðu þar stjórnarbyltingu gegn Allende. Lík eiginmannsins
fannst loks eftir langvarandi leit og hafði
herforíngjanna.
„Missing" hefur ekki enn verið sýnd
hér á landi. Það hefur hins vegar sú
mynd, sem „films“ valdi bestu kvik-
myndina á öðru tungumáli en ensku. Þar
varð fyrir valinu franska myndin „Diva“,
eða „Stórsöngkonan“, sem sýnd var hér
á frönsku kvikmyndavikunni í fyrra.
Stórvirki Richard Attenboroughs
„Gandhi" hlaut aðeins eina viðurkenn-
ingu hjá tímaritinu. Það var Ben
Kingsley sem var talinn hafa sýnt bestan
leik í aðalhlutverki karla, en hann fór
með hlutverk Gandhis í myndinni og er
það af erlendum gagnrýnendum talin ein
sú besta frammistaða sem leikari hafi
sýnt í kvikmynd.
Pólverjinn Jerzy Skolinmovsky, sem
hefur unnið utan heimalands síns mörg
undanfarin ár, var kjörinn besti leikstj óri
ársins hjá „films“ fyrir mynd sína
„Moonlighting“, sem vakti verulega
athygli á Cannes-hátíðinni í fyrra.
Handrit hans að þessari mynd var einnig
talið besta frumsamda kvikmyndahand-
ritið á árinu.
Tímaritið taldi, að Jay Presson Allen
hefði samið besta kvikmyndahandritið,
sem byggð væri á öðru verki, fyrir
„Deathtrap“, en það er þriller sem
byggður er á þekktu leikriti sem gengið
hefur lengi bæði í London og í New
York. Christopher Reeves, sem hér á
landi mun þekktastur sem „Superman",
var einnig talinn hafa sýnt bestan leik í
aukahlutverki í þessari sömu mynd. Sú
leikkona, sem hlaut hliðstæðan heiður,
var hins vegar Maureen Stapelton fyrir
frábæra frammistöðu sína í „Reds“,
kvikmyndinni um John Reed.
Nýjasta kvikmynd Woody Allens
„A Midsummer Nights Sex Comedy“ -
hlaut tvær viðurkenningar hjá „films“.
Annars vegar þótti kvikmyndun Gordon
hann það verið myrtur af handlöngurum
Willis það besta, sem fram kom á árinu,
og svo þótti hin unga leikkona Julie
Haggerty standa sig best nýliða ársins í
kvikmyndaleik. Sá karlleikari, sem tal-
inn var lofa bestu af frumraun sinni,
nefnist Sting og lék í mynd sem nefnist
„Brimstone and Treackle“.
„Films“ valdi nýjustu mynd Wim
Wenders - „Hammet“ - hugmyndarík-
ustu kvikmynd ársins, og leikmynda-
smiðir hans, Dean Tavoularis og Eugine
Lee, fengu einnig viðurkenningu fyrir
bestu sviðsmyndir ársíns.
Engin kvikmynd var talin verð sæmd-
arheitsins „besta söngleikjamynd
ársins“, en „Poltergeist“, sem Tope
Hooper leikstýrði eftir sögu Steven
Spielbergs, var talin besta hryllings-
myndin, „Fitzcarraldo“ Wemer Her-
zogs besta ævintýramyndin, „Mad Max
2“ besti vestrinn (!), og „Dead Men
Don’t Wear Plaid“ eftir Carl Reiner
besta gamanmyndin. Síðasttalda kvik-
myndin hlaut reyndar líka viðurkenn-
ingu fyrir bestu klippingu.
Tæknibrellur eru sívaxandi þáttur í
kvikmyndagerð og þeir, sem stóðu að
þeim brellum í nýjustu kvikmynd John
Carpenters - „The Thing“ - þóttu
standa sig best á árinu að áliti tímaritsins.
„Burden of Dreams“ eftir Les Blank
um gerð myndarinnar „Fitzcarraldo"
var kjörin besta heimildarkvikmynd
ársins.
Þá má þess geta að lokum, að „films“
taldi að kvikmynd Ridley Scotts „Blade
Runner“ væri „ofmetnasta“ kvikmynd
liðins árs. „Vanmetnasta“ myndin væri
hins vegar Victor/Victoria“ eftir Blake
Edwards, „ógeðfelldasta" mynd ársins
„Porky’s“, sem sýnd hefur verið hér á
landi, en „Pennies from Heaven“ hefði
valdið mestum vonbrigðum. -ESJ
Aðeins skuldlausir áskrifendur getatekiðþátt í getrauninni.
Getraunaseðlamir birtast i laugardagsblöðunum
ISUZU
TROOPER
ISUZU
Isuzu Trooper MMC Pajero Scout 77 Bronco Suzuki
Hjólhaf 2650 2350 2540 2337 2030
Heildarlengd 4380 3920 4220 3863 “5325"
Breidd 1650 1680 177Q 1755 1460
Veqhæð 225 235 193 206 240
Hæé 1800 1880 1660 1900 1700
Eigin þyngd 1290 1395 1680 1615 855
TROOPER
Orðið jeppi hefur frá fyrstu tíð merkt sterkbyggð bifreið
með drifi á öllum hjólum sem hentar jafnt á vegi sem
vegleysum og er einnig voldugt vinnutæki.
Isuzu uppfyllir allar þessar kröfur og gerir enn betur því
hann kemur til móts við kröfur nútímans um þægindi
aksturseiginleika og orkusparnað.
Isuzu Trooper er enginn hálf-jeppi. Það eina sem er hálft
hjá Isuzu T rooper er verðið sem er aðeins helmingsverð
sambærilegra vagna. Isuzu Trooper er:
Aflmikill en neyslugrannur
Harðger en þægilegur
Sterkbyggður en léttur
Isuzu Trooper hentar jafnt til flutninga á fólki sem far-
angri.
Isuzu Trooper má fá hvort heldur með bensín- eða
diselvél.
Sérgrein Isuzu bllaframleiðendanna er gerð pick-up
bíla með drifi á öllum hjólum og einnig hönnun vöru-
bifreiða og vinnuvéla.
Við hönnun Isuzu Trooper hefur verið beitt allri þeirri
reynslu og tækni sem hefur aflað Isuzu pick-up heims-
frægðar og vinnuvélum og vörubifreiðum Isuzu aiþjóð-
legrar viðurkenningar.
Því til viðbótar kemur svo glæsileiki búnaðar banda-
rísku GM verksmiðjanna. Af því leiðir að Isuzu Trooper
er í engu ábótavant hvort heldur sem voldugu vinnu-
tæki eða veglegum ferðavagni.
■1 Hringið og aflið upplýsinga, við greiðum símtalið.
Trooper í tómstundum.
Trooper til allra starfa.