Tíminn - 12.01.1983, Blaðsíða 18

Tíminn - 12.01.1983, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1983 Kvikmyndir ■ Guðmundur Bjamason. Rannsóknir á laxagðng um verði stórauknar — vegna aukinna veida Færeyinga Salur 2 Salur 3 Aöalhlutv: Alec Guinness, Ricky Schroder og Eric Porter. Leik- stjóri: Jack Cold. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Snákurinn Frábær spennumynd í Dolby stereo Sýndkl. 11 Jólamynd 1982 Bílaþjófurinn Bráöskemmtileg og fjörug mynd með hinum vinsæla leikara úr American Graffiti Ron Howard ásamt Nancy Morgan Sýnd kl. 5,7,9 og 11 ■ AlkunnaeraðsjávarveiðiFæreyinga á laxi hefur stóraukist nú síðustu árin. Færeyingar hófu laxveiðar í sjó 1968. Árleg veiði þeirra fyrsta áratuginn var að meðaltali 21 tonn. 1978 komst hún upp í 51 tonn og óx ört úr því 1979 var hún 194 tonn, 1980 var veiðin 718 tonn, 1981 komst laxveiðin í 1027 tonn. Veiðikvótinn á síðustu vertíð var 75o tonn og umsaminn kvóti á nýbyrjaðari vertíð er 625 tonn. ■ Páll Pétursson. Hinar auknu veiðar Færeyinga hafa átt sér stað samtímis því að laxveiðar hér á landi hafa minnkað hvað tölu laxa snertir, þ.e. á árunum 1980,81 og 82. Menn hafa viljað tengja þetta tvennt saman og hafa því kennt Færeyingum veiðirýrnunina á laxi hér á landi þessi ár. Gögn eru ekki fyrir hendi sem sanna að svo sé. Ábending um að íslenskur lax leiti á Færeyjamið, er fyrir hendi þar sem skilað hefur verið merkjum af þremur íslenskum löxum sem veiðst hafa í og við Færeyjar. Á hinn bóginn er ekki vitað að hve miklu leyti laxinn leitar austur í haf frá fslandi og er veiddur á Færeyjamiðum. Vitað er að laxinn okkar leitar einnig vestur fyrir Grænland og veiðist þar, en sjö íslenskum laxa- merkjum hefur verið skilað frá Grænlandi. Auk þess hefur lax merktur við Vestur-Grænland veiðst í Laxá í Dölum. Þetta er úr greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögu um eflingu rann- sókna á laxastofninum. Flutningsmenn eru Davíð Aðalsteinsson Páll Pétursson og Guðmundur Bjarnason. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um að nú þegar verði rannsóknir á laxastofninum stórefldar, vegna aukinnar sjávarveiði Færeyinga á laxi. í greinargerð segir ennfremur: Orsakir rýrnandi laxveiði hér á landi á árunum 1980,1981 og 1982 hvað töluna snertir eru vafalaust margar. Pað ber einnig að nefna að vetrar-, vor og sumarkuldarnir 1979 og lágur sjávarhiti fyrir Norður- og Austurlandi það ár eiga líklega sinn þátt í rýrnuninni. Afleiðingar kuldanna 1979, sem voru einir þeir mestu frá upphafi veðurathug- ana hér á landi, komu fram í tregari göngu’ laxaseiða til sjávar sumarið 1979 en ella. Þá hafa skilyrði í sjónum vegna óvenjulegs kulda verið mjög óhagstæð fyrir seiðin. Vísbending um lélega afkomu sjógönguseiða kemur fram í því, að lítið er af eins árs laxi úr sjó (smálaxi) í veiðunum 1980 og lítið af tveggja ára laxi úr sjó í veiðunum 1981. Orsakir veiðirýrnunar geta verið margar, eins og áður sagði, bæði heima fyrir, í hafinu og vegna veiða á fjarlægum hafsvæðum, og svo geta þær verið sambland af öllu þessu eins og helst er útlit fyrir hvað snertir veiðirýrnunina hér á 1andi þessi árin. Þekking á ferðum laxins um úthafið var mjög af skornum skammti þar til laxaveiðarnar við Vestur-Grænland hóf- ust fyrir alvöru fyrir um tveim áratugum og síðar veiðar í Noregshafi og við Færeyjar. Rannsóknir á laxi við Vestur- Grænland hafa m.a. leitt í ljós að um helmingur laxins, sem þar veiðist, er upprunninn í Ameríku, en hann er að langmestu leyti frá Kanada, og hinn helmingurinn í laxalöndum Evrópu. Um uppruna laxins, sem veiðist við Færeyj- ar, er minna vitað með vissu. Merkingar á sjógönguseiðum í upprunalöndum lax- Frumsýnir stórmyndina ■ Sá sigrar sem þorir (Who Dares Wins) Þeir eru sérvaldir, allir sjálfboöaliö- ar svifast einskis, og eru sérþjálf- aðir. Þetta er umsögn um hina frægu SAS (Special Air Service) Þyrlu-björgunarsveit. Liöstyrkur þeirra var það ein a sem hægt var að treysta á. Aðalhlv: Lewis Collins, Judy Davis, Richard Widmark, Roberl Webber Sýnd kl. 5, 9 og 11.25 Bönnuð börnum innan 14 ára. HÆKKAÐ VERÐ nuKifjES'CoMtm Einir af mestu lista- mönnum kvikmynda i dag I þeir Robert De Niro og Martin Scorsese standa á bak viö þessa mynd. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Jerry Lewis, Sandra Bernhard Leikstjóri: Martin Scorsese Sýnd kl. 5, 7.05, 9.10 og Hækkað verð. Davíð Aðalsteinsson ins og merkingar á laxi veiddum og merktum á Færeyjamiðum hafa hingað til gefið til kynna að langmestur hluti laxins, sem þar veiðist, sé upprunninn í Noregi, Skotlandi og írlandi. Við íslendingar bönnum laxveiði í sjó í lögum með fáeinum undantekningum og er því sjávarveiði á laxi okkur andstæð. Áhugi beinist að því, að bönnuð verði sjávarveiði á laxi. Mikil- vægt er að afla vitneskju um að hve miklu leyti hann veiðist við Færeyjar og Vestur- Grænland, en tíu merkjum af íslenskum löxum veiddum á nefndum svæðum hefur verið skilað eins og áður segir. Merkingar á sjógönguseiðum af laxi hafa fárið fram héF landi samíelit í rúma þrjá áratugi, lengst af smáum stíl. Laxaseiða- merkingar voru stórauknar á þessu ári. Um 140 þús. sjógönguseiðum var sleppt í ár og frá hafbeitarstöðvum víðs vegar um landið, þar af um helmingur á Norður- og Norðausturlandi, en ætla má að laxaseiði af þessum landshlutum gangi fremur austur í Atlantshaf. Auk framkvæmda við merkingarnar þarf að leita að merktum löxum og taka þátt í alþjóðlegri samvinnu um gagnasöfnun og rannsóknir laxagangna. Þar sem löndin við norðanvert At- lantshaf austan Grænlands leggja lax til Færeyjaveiðanna virðist eðlilegt að þau kanni sameiginlega hve hvert land leggur stóran hlut til veiðanna. Alþjóða- hafrannsóknaráðið hefur beitt sér fyrir samvinnu um rannsóknir á laxi sem veiðist á Norður-Atlantshafi, á hliðstæð- an hátt og var áður vegna laxveiðanna við Vestur-Grænland. Gert er ráð fyrir að þátttökulöndin í rannsóknunum standi hvert um sig undir kostnaði við framlag sitt til rannsóknanna. í desembermánuði 1981 komu saman í Þórshöfn í Færeyjum fiskifræðingar frá upprunalöndum laxins til þess að semja áætlun um rannsóknir sem ná bæði til gagnasöfnunar og úrvinnslu gagna. Enn fremur var verk- efnum skipt milli þátttökulandanna. ís- land tekur þátt í rannsóknunum. Fram- lag okkar er fólgið í laxaseiðamerking- um, endurheimt merkja og gagnsöfnun um borð í færeyskum laxveiðibáti. Veiðimálastofnunin sendi rannsóknar- mann til Færeyja í febrúar 1982 sem dvaldist um borð í laxabáti í þrjár vikur til gagna- og upplýsingasöfnunar. Gert hefur verið ráð fyrir að senda skoðunarmann um borð í færeyskan laxabát snemma á árinu 1983, á sama hátt og gert var á þessu ári, og að kosta leit að laxamerkjum í Færeyjum á laxavertíðinni í vetur að hluta á móti öðrum þátttökulöndum í rannsóknun- um. Það er skoðun flutningsmanna þessar- ar tillögu, að allar rannsóknir þurfi að efla. Niðurstöður laxarannsókna munu verða haldbestu rökin þegar samið er um að draga úr eða stöðva laxveiðar utan upprunalanda laxins. Því þarf að stórauka fjárframlög til þeirra rann- sókna. Konungur grínsins (King of Comedy) Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy) Salur 5 Being There Sýnd kl. 9 (10. sýningarmánuður)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.