Tíminn - 01.02.1983, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1982
fréttir
Áfengis-
neysla
dregst
saman
um 1.6
prósent
■ Sala áfengis frá ÁTVR varð minni
í fyrra en síðustu tvö ár þar á undan.
Miðað við 100% alkóhól varð saian
1982 um 3,13 lítrar á hvern íslending,
en 3,18 htrar árið á undan. Minnkunin
er tæp 1,6%, samkvæmt upplýsingum
Áfengisvarnarráðs.
í krónum talið nam hinsvegar áfeng-
issala ÁTVR samtals 626,7 millj.
króna á síðasta ári, miðað við um 411
millj. kr. árið 1981, sem er aukning
upp á 52,5%. Verulegur munur varð
þó á aukningu milli einstakra útsölu-
staða. Norðlendingar virðast mest
hafa dregið úr sínum brennivínskaup-
um á síðasta ári, sérstaklega þó
Siglfirðingar'þar sem aukning í krón-
um talið nam aðeins 42%, en 46,4% á
Akureyri. Á öðrum stöðum utan
Reykjavfkur varð aukningin einnig
undir 50%, nema hvað Vestmanna-
eyingar láta ekki deigan síga og hafa
farið með 56,4% fleiri krónur í Ríkið
en árið áður. í Reykjavík var þessi tala
53,9%.
„Þetta er gleðilegt að heyra, þó
maður varist að draga miklar ályktanir
þegar sölutftinnkun er ekki meiri en
þetta“, sagði Þórarinn Tyrfingsson,
læknir á Silúngapolli er við spurðum
rhann hvort rekja megi minnkaða sölu
m.a. til starfsemi þeirra í SÁÁ. „En
allavega gefur þetta manni vonir um
að við höfum breytt þróuninni eitt-
hvað, þ.e. að þetta séu ekki alltaf
síhækkandi tölur.“ Taldi hann þarna
fyrst og fremst muna um þá menn sem
hatl drukkið mikið, en séu nú hættir.
„Þetta munar nú svo litlu að litlar
ályktanir er hægt að draga. En reynslan
hefur sýnt að salan minnkar á erfið-
leikaárunt. Það virðist nokkuð Ijóst að
þjóðartekjur og áfengisneysla haldast
í hendur,“ sagði Ólafur Haukur Áma-
son áfcngisvamarráðunautur.
- HEl
Bardavogur:
Eldur laus
í rúmfötum
■ Slökkviliðið var kallað út um 6
leytið á sunnudagsmorguninn að
Barðavogi 18. Þar var cldur laus í
kjallara hússins og hafði hann kviknað
í svefnbekk og rúmfötum.
Slökkvistarf gekk greiðlega og leigj-
andanum, sem til staðar var, varð ekki
mcint af eldinum.
- FRl
Lýst eftir
sjónar-
vottum
■ Ekið var utan í Toyotu Crcssidu,
beigelitaða á laugardagskvöldið, þar
sem hún stóð í bílastæði fyrir aftan
Austurbæjarbíó.
Óhapp þetta mun hafa skeð ein-
hvcrn tímann á bilinu 18.30-24 og eru
sjónarvottar, ef einhverjireru, virrsam-
lega beðnir um að hafa samband við
lögregluna.
■ Marteinn Ólafur Pétursson
■ Útför þeirra sem létust í flóðunum
á Patreksfirði verður gerð í dag og
verður sérstök sameiginleg athöfn
fyrir þá aila í félagsheimili staðarins.
„Þetta fer eiginlega fram eins og
venjuleg útfararathöfn nema að ekki
■ Kvikmyndahátíð Listahátíðar í
Reykjavík var sett á laugardaginn með
sýningu vesturþýsku kvikmyndarinnar
Þýskaland náföla móðir eftir Helmu
Sanders-Brahms og var hún viðstödd
■ „Það eru rétt um 50 þúsund manns
búnir að sjá myndina núna og við sjáum
fram á að hún muni bera sig,“ sagði Egill
Ólafsson söngvari Stuðmanna í samtali
við Tímann í gær. Aðsókn að kvikmynd
þeirra og Grýlanna, Með allt á hreinu
hefur verið afar góð en nú hefur myndin
verið sýnd á flestum stærri stöðum út
um land og jafnframt í Háskólabíói, þar
sem ekkert lát er á aðsókn.
Egill sagði að í upphafi hafi verið gert
ráð fyrir því að um 47 þúsund manns
þyrftu að sjá myndina til að hún stæði
undir kostnaði, en það hefði breyst,
vaxtahækkunin fyrr í vetur hefði sitt að
■ Valgerður Jónsdóttir
verður kastað rekum á kistu litla
barnsins þar sem hún verður jörðuð í
Reykjavík á mánudaginn", sagði Þór-
arinn Þór sóknarprestur á Patreksfirði
í samtali við Tímann. „Þetta verður
kveðjuathöfn um hana en venjuleg
frumsýninguna. Meðal gesta var forseti
Islands, Vigdís Finnbogadóttir.
Á kvikmyndahátíðinni eru sýndar 32
erlendar kvikmyndir frá 17 löndum.
segja til hækkunar á kostnaði og gengis-
lækkunin hefði hækkað erlendar skuldir
sem voru um ein milljón. En þrátt fyrir
þetta væru nú komið á daginn að myndin
kæmi til með að borga sig.
„Þetta er uppörvandi fyrir alla sem
eru að standa í því að gera myndir á
íslandi." sagði Egill. „Menn eru að spá
því að hver ný mynd setji aðstandendur
sína á hausinn og þetta eru auðvitað
ofboðslega erfiðar aðstæður að þurfa að
treysta á þessa feikna aðsókn. Ef það
brygðist stæðu allir aðstandendur uppi
sem öreigar, algerlega eignalausir menn
því að það er allt veðsett, sem hægt er
■ Sigurbjörg Sigurðardóttir
útför fyrir hin. Mæðgin sem fórust
verða jarðsett síðar inni í Haga á
Barðaströnd."
Þau sem létust eru Marteinn Ólafur
Pétursson, Valgerður Jónsdóttir, Sig-
Gestir hátíðarinnar, auk Sanders-
Brahms, eru Connie Field frá Bandaríkj-
unum og Zulawsky frá Póllandi, en hann
hefur undanfarin ár búið í Frakklandi.
að veðsetja."
Egill sagði að áhugi væri fyrir mynd-
inni hjá sjónvarpsstöðvum á Norður-
löndunum og jafnframt væri áhugi á
henni hjá kvikmyndahúsum í Svíþjóð.
Myndin var nýlega sýnd á norrænni
kvikmyndahátíð í Finnlandi og vakti
talsverða athygli. Á þessari hátíð voru
staddir kvikmyndagagnrýnendur hvað-
anæva að úr Evrópu og má því búast við
að hún fái allgóða auglýsingu á næstunni
í formi greina í fagblöðum um kvik-
myndir svo og í ýmsum stórblöðum
Evrópu.
JGK
■ Sigrún Guðbrandsdóttir
urbjörg Sigurðardóttir og Sigrún Guð-
brandsdóttir.
Fjársöfnun
vegna naud-
staddra Pat-
reksfirðinga
■ Vegna hinna þungu og válegu
atburða, sem urðu á Patreksfirði
laugardaginn 22. jan., þegar flóð-
bylgjur runnu þar yfir byggðarlagið
með þeim afleiðingum ,að fjórir
létust og fjöldi manns missti heimili
sín hafa nokkrir einstaklingar'ákvcð-
ið að hafa forgöngu um fjársöfnun
meðal almennings til styrktar þeim
og hjálpar scm verst urðu úti.
Þeir sem vilja leggja hönd á
plóginn er vinsamlcgast bent á
gíróreikning nr. 17007-0 á pósthús-
um, í bönkum og sparitýóðum en þar
mun vera hægt að leggja framlög til
söfnunarinnar fram.
- FRI
Elín Björk
Jóhannesdóttir
ráðin til starfa
hjá FUF
í Reykjavík
■ Stjórn FUF samþykkti á fundi sínum
þann 30. janúar sl. að ráða Elínu Björk
Jóhannesdóttur starfsmann FUF í
Reykjavík, frá og með 1. febrúar að
telja.
Elín Björk er 19 ára og stundar nám
í Menntaskólanum í Reykjavík. Hún á
sæti í stjórn FUF og er jafnframt ritari
utanríkisnefndar FÚF. Tíminn óskar
Elínu Björk velfarnaðar í hinu nýja
starfi.
■ Elín Björk Jóhannesdóttir
Utför þeirra sem létust í flóðunum á Patreksfirði gerð f dag:
AlHðfN f FÉLAGSHEIMIUNU
■ Frá setningu Kvikmyndahátíðarinnar, f.v.: Örnólfur Árnason, framkvæmdastjóri, Helma Sanders-Brahams, leikstjóri
Þýskalands náföla móðir, og pólski leikstjórinn Zulawsky. Tímamynd: Árni
Kvikmyndahátidin hófst á laugardaginn
Aðstandendur myndarinnar „Með allt á hreinu”:
Komnir með allt á
hreint f járhagslega