Tíminn - 01.02.1983, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1982
5
fréttir
Sjálfstæðismenn vilja ekki atkvæðagreiðslu um bráðabirgðalögin
■ Stund milli stríða á Alþingi í gær og forsætisráðherra notar tækifærið til þess að
líta í dagblöðin. (Tíinamynd Árni).
Bessi leikur
gestaleik með
fslensku
óperunni
■ Þjóðleikhússtjóri hefur veitt leyfi
sitt til þess að Bessi Bjarnason ieikari
leiki gestaleik í óperunni Mikado, sem
frumsýnd verður 11. mars n.k. af
íslensku óperunni. Að sögn Garðars
Cortes óperusöngvara cr hér um að
ræða eitt af aðalhlutverkunum í
óperunni, sent væri yfírleitt reynt að fá
úrvais grínleikara til að leika en ekki
óperusöngvara. „Reyndar þarf við-
komandi leikari líka að hafa góða rödd
og þessa kosti sameinar Bessi ágæt-
lcga. Við í íslensku óperunni erum í
sjöunda himni yfir því að fá hann til
liðs við okkur."'
Bessi Bjarnason sagði í stuttu spjalli
við Tímann í gær að hann myndi eftir
sem áður gegna öllum sínum störfum
við Þjóðleikhúsið. Hann kvaðst ekki
hafa tekið þátt í óperu áður en oft
leikið hlutvcrk í söngleikjum hjá
Þjóðleikhúsinu.
Ópcran Mikado cr eins og áður
hefur komið fram hér í blaðinu.
gamanópera eftir Gilbert O'Sullivan.
Æfingar eru þegar hafnar en leikstjór-
inn sem verður bandarfskur cr ekki
enn kominn til landsins.
JGK
■ Umræðanumbráðabirgðalögríkis-
stjórnarinnar er lífseig. Efnahagsað-
gerðirnar frá í ágúst hafa verið til
meðferðar í alþingi í á þriðja mánuð og
er enn ólokið. I gær var framhaldið
umræðu um frumvarpið í neðri deild og
í gærkvöldi var umræðunni frestað fram
á miðvikudag, en þá mun verða gert út
um málið, að því er forseti deildarinnar
Sverrir Hermannsson tilkynnti.
Það eru þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins sem draga umræðuna á langinn og
koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um
frumvarpið. Síðast liðnar 2 vikur hefur
Siggeir Björnsson setið á þingi, en hann
er varamaður Eggerts Haukdal og lýsti
hann yfir að hann myndi veita bráða-
birgðalögunum brautargengi. Á föstu-
dag, sem var síðasti dagur Siggeirs á
þingi var hægt að Ijúka nrálinu, en
einhverra hluta vegna kærðu Sjálfstæðis-
menn sig ekki um það ög héldu uppi
málþófi. Eggert mætti til þings í gær, og
þar með fellur frumvarpið um efnahags-
aðgerðirnar á jöfnum atkvæðum ef allir
stjórnarandstæðingar greiða atkvæði á
móti. Stjórnarliðar hafa ekkert gert til
að tefja málið nema síður sé, og
þingmenn Alþýðuflokksins hafa marg-
lýst yfir að þeir tefji ekki framgang þcss.
Þingfundir hófust að venju kl. 14.00.
I upphafi fundar tilkynnti forseti neðri
deildar að hlé yrði gert á fundi kl. 16.00
vegna þingflokksfunda en yrði fram
haldið kl. 18.00. Var fastlega búist við
að atkvæðagreiðsla yrði um málið í gær.
Matthígs Á. Mathiesen hélt áfram
ræðu sem hann lauk ekki fyrir helgi og
talaði lengi. Hann beindi m.a. spurning-
um til tveggja ráðherra sem þeir svöruðu
skorinort.
Vilmundur Gylfason sté næstur í
ræðustól og sagðist hafa verið andvígur
þessu frumvarpi frá upphafi og að hann
myndi greiða atkvæði á móti því.
Vilmundur fór hörðum orðum um
vinnubrögð þingsins og sagði mcnn
ræða frumvarpið fram og til baka án
þess að hafa hugmynd um hvort það yrði
fellt eða ekki.
Fundarhlé var gert í miðri ræðu
Vilmundar á meðan þingflokkarnir
ræddu málin. Var þá ekki vitað betur en
að atkvæðagreiðsla mundi fara fram
samdægurs. Kl. 18.00 var fundi fram
haldið. Á sama tíma hafði verið boðað
til fundar í utanríkisnefnd. Farið var
þess á leit að þeint fundi yrði frestað.
Við þeirri ósk varð ekki orðið. Formaður
utanríkisnefndar er Geir Hallgrímsson.
Þegar deildarfundur hófst að nýju
beindi Vilmundur þeirri spurningu til
forsætisráðherra hvað fall þes'sa frum-
varps mundi fela í sér á næstu klukku-
stundum eða dögum í stjórnarfarslcgum
efnum. Þá vildi hann að forntaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins gerði
grein fyrir þeim ummælum sínum í DV,
að hann hafi boðið upp á allsherjarsam-
komulag um framgang málsinsog hverjir
hefðu undirgengist það samkomulag.
Jóhanna Sigurðardóttir krafði Guð-
mund .1. Guðmundsson svara við hvort
hann mundi greiða tilteknum ákvæöum
laganna atkvæði.
Þegar hér var komið umræðunni
frcstað og boðaði deildarfcrrseti fram-
haldsumræður á morgun, miðviku-
dag, og sagði að þá yrði málið tekið til
cndanlegrar afgreiðslu.
Áður en fundi var frestað héldu
forsetar þingsins og formenn þingtlokka
örstuttan fund þar sem samkomulag
náðist um írestunina og að málið yrði
loks endanlega afgreitt.
Það er greinilegt á þeim vinnu-
brögðum sem viðhöfð eru á Alþingi
þessa dagana, að það eru Sjálfstæðis-
menn í stjórnarandstöðu sem vilja tefja
afgreiðslu bráðabirgðalaganna, og gera
allt sem í þcirra valdi stendur til að koma
í veg fyrir endanlega afgreiðslu, en vilja
násamkomulagi umaðbráðabirgðalögin
nái fram að ganga og að ákvarðanir verði
teknar í kjördæmamálinu og um kjördag.
Stjórnarliðar eru ekkert uppnæmir fyrir
þessu og vilja að frumvarpið verði borið
undir atkvæði sem fyrst.
En það scm enginn skilur utan
þingflokks sjálfstæðismanna, er hvers
vegna þeir töfðu atkvæðagreiðsluna á
meöan Siggeir Björnsson var enn á
þingi, ef þeim er svona um að bráða-
birgðalögin nái fram að ganga.
OÓ
Fleirum
sendar lág-
launabætur
segir f jármála-
ráðherra
■ Rcglurnar sem láglaunabótum var
úthlutað eftir í des. s.l. voru gallaðar,
en greitt var cftir skattaframtölum ársins
á undan, sagði Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra á Alþingi í gær. Er nú
vérið að cndurskoða útborgunina og í
kjölfar hcnnar er gert ráð fyrir að hún
verði endurbætt og allmargar greiðslur
scndar út til viðbótar.
Unnið er að nýjum útborgunarrcglum
scm farið vcrður eftir í ár.
Forval Alþýðubandalagsins á Suðurlandi:
Gardar í fyrsta sæti
Baldur í fjórda sæti
Margrét Frímannsdóttir varð í 2. sæti
■ Garðar Sigurðsson, alþingismaður
hlaut 1. sætið í síðari umferð forvals
Alþýðubandalagsins á Suðurlandi -
hlaut hann 101 atkvæði í það sæti, en í
öðru sæti varð Margrét Frímannsdóttir,
oddviti á Stokkseyri með 81 atkvæði,
þannig að Garðar hlaut 25% atkvæðum
meira en Margrét í 1. sætið.
Þriðja sæti listans hlaut Ragnar Ósk-
arsson, skólastjóri Vestmannaeyjum og
það fjórða Baldur Óskarsson, en hann
gefur ekki kost á sér í það sæti.
Það voru um 270 manns sem tóku þátt
i forvalinu á Suðurlandi, sem er um 90%
félagsbundinna alþýðubandalagsmanna
í kjördæminu. - AB
„Ég get ekkert
verið óánægður“
segir Garðar Sigurðsson,
alþingismaður um sína út-
komu í forvali Al-
þýðubandalagsins
■ „Ég get ekkert verið óánægður með
mína útkomu í forvalinu, því það
stefndu þrír í fyrsta sætið," sagði Garðar
Sigurðsson, alþingismaður í samtali við
Tímann, en Garðar hlaut fyrsta sætið í
síðari umferð forvals Alþýðubandalags-
ins á Suðurlandi.
„Ég er nú sérstaklega ánægður fyrir
þá sök,“ sagði Garðar, „að ég tók nú
lítinn þátt í þessari „agitation" fyrir
forvalsdaginn, að mínum heimabæ,
Vestmannaeyjum undanskildum."
Garðar sagði jafnframt: „Það er hætt
við því að það vcrði oft grimm átök
innan flokks, þcgar barist er um sæti,
þannig að það getur tekið sinn tíma að
aílt falli í sama horf á nýjan leik. En ég
hef nú trú á að þetta eigi allt eftir að
jafna sig.“
Garðar var spurður hvort hann teldi
að einhver maskína gegn honum hefði
verið í gangi fyrir forvalsdagana, vegna
þess að hann hefði oft verið kallaður
svarti sauðurinn í þingflokki Al-
þýðubandalagsins, - þ.e. að hann leyfði
sér helst til oft, að mati forystunnar, að
hafa sjálfstæðar skoðanir. Garðar svar-
aði: „Nei, nei, - það held ég alls ekki.
Hins vegar þá held ég að menn hafi
aldrei of sjálfstæðar skoðanir."
- AB
„Ekkert óánægður
með úrslitin“
segir Baldur Óskarsson,
sem varð í 4.sæti í forvali
Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi
■ „Það var auðvitað ekkcrt laun-
ungarmál að ég og mínir stuðningsmenn
stefndum að því að ég næði fyrsta sæti
á listanum,“ sagði Baldur Óskarsson,
sem hafnaði í 4. sæti forvals Al-
þýðubandalagsins á Suðurlandi, erTím-
inn spurði hann álits á úrslitum forvals-
ins.
„I því sæti situr þingmaöur, scm verið
hefur þingmaður í 12 ár, og óskaði eftir
því að fá að halda áfram þingmennsku,"
sagði Baldur, „þannig að það var
augljóst mál að þetta yrði þungur róður
fyrir mig.og á brattann að sækja.Miðað
við það er ég ekkert óánægður með
úrslitin í sjálfu sér, þó að ég heföi
auðvitað gjarnan kosið að ég fengi
meira, en ég fékk 74 atkvæði í 1. sætið.
■ Garðar Sigurðsson.
Ég er sem sagt prýðilega sáttur við lífið
og tilveruna, og mun sem framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins leggja mig
allan fram við að rækja mitt starf sem
allra best og taka þátt í því að flokkurinn
nái sem bestri útkomu í komandi
kosningum."
- AB
Kjartan í
fyrsta sæti
á innan vid
50% atkv
■ 3392 tóku þátt í prófkjöri Alþýöu-
tlokksins á Reykjanesi nú um helgina
og hlaut formaður flokksins Kjartan
Jóhannsson fyrsta sætið, mcð 1610
atkvæðum cða innan við 50% greiddra
atkvæða og Karl Steinar Guðnason
alþingismaður hlaut 2. sætið, nteð
1130 atkvæði í 2. sæti, en samtais í 1.
og 2. sæti hlaut Karl Stcinar 1928
atkvæði. Kristín Tryggvadóttir varð í
3. sæti meö 1888atkvæði í I. til 3. sæti.
Gunnlaugur Stefánsson varð í 4. sæti
með 1736 atkvæði í I. til 3. sæti og í
5. sæti varð svo Ásgcir Jóhannsson,
með 955 atkvæði í I. til 3. sæti.
- AB
Noröurland
eystra
Árni f 1.
sæti
■ Árni Gunnarsson, alþingismaður
hlaut örugga kosningu í fyrsta sæti
prófkjörs Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra. í gærkveldi, þeg-
ar um 800 atkvæði, af 1150 höfðu verið
talin, var Árni með 559 atkvæði í 1. sæti,
Hreinn Pálsson í 2. sæti með 438 atkvæði
og Arnljótur í 3. sæti með 359 atkvæði.