Tíminn - 01.02.1983, Qupperneq 10

Tíminn - 01.02.1983, Qupperneq 10
ÍO____________ viðskiptalffid ftnmro ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1982 umsjón: Skafti Jónsson — segir Agnar Fridriksson, framkvæmdastjóri Arnarflugs ■ „Við hiifum ekki enn gert upp reikninga nyliðins árs en ég býst við að mér sé óhætt að segja að þeir komi til incð að sýna bæði Ijösa punkta og dökka,“ sagði Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, þegar hann var spurður um afkomuna á s.l. ári. „Það liggur til dæmis Ijóst fyrir," sagði Agnar, „að tap varð talsvert á innan- landsfluginu. Við náðum ekki sömu far- þegatölu og árið áður; fluttum nú 19.000 farþega á móti 20.300 árið 1981. Það er erfitt að segja hvað veldur þessu, því það er svo margt sem áhrif hefur. Ég gct nefnt sem dæmi að það skiptir okkur talsverðu máli hvort skíðalandsmót er haldið á stað sem við fljúgum á eða ekki. Árið '81 var það á Siglufirði og þangað fljúgum við.“ - Hvað geturðu sagt mér um áætl- anaflugið til Evrópu? „Það gekk mikið betur en mcnn þorðu að vona þegar farið var af stað. 1 vctur höfum við aðeins flogið til Amsterdam og náð viðunandi sætanýtingu og mér sýnist að á því verði framhald. Núna erum við að gera áætlanir fyrir sumarið og ég reikna mcð, að flug til Zúrich og Dusseldorf verði tekið upp að nýju um miðjan maí. Nýlega gerðum við nýjan samning við Líbíumenn og samkvæmt honum hefur a.m.k. önnur vélin verkefni til næstu áramóta. í þessum samningi er einnig tekið fram að falli. til verkefni þá hafi hin vélin okkar forgang svo ég er alls ekki svartsýnn þótt ég auðvitað geri mér fulla grein fyrir því að samkeppnin um þessa flutninga er gífurleg. Af verkefn- um okkar í Líbýu hafa 20 manns atvinnu. Við höfum líka verið með verkefni hjá Britannia Airways fimm daga í viku. Samningur um það rennur út um mánaðamótin mars/apríl og nú er verið að tæða framhaldið." - Electran, sem Arnarflug keypti af íscargo - hafa fengist verkefni fyrir hana? „Hún er núna að fara í skoðun í Osló og að henni lokinni standa vonir til að vélin fái verkefni bæði í Noregi og víðar. Samningar þar að lútandi hafa ekki verið gerðir svo á þessari stundu á ég erfitt með að greina frá hvaða verkefni er um að ræða.“ - Arnarflug er í þann mund að taka upp nýtt bókunarkerfi? „Við erum núna að taka í notkun Corda-kerfið, bókunarkerfi KLM. Aðalskrifstofa okkar í Amsterdam er ■ Agnar Friðriksson, framkvæmda- stjóri Arnarflugs. þegar tengd kerfinu og skrifstofan hér í Reykjavík verður tengd því mjög fljót- lega. Við bindum við kerfið miklar vonir og gerum ráð fyrir að það muni skapa mikla hagræðingu fyrir okkur og þar af leiðandi betri þjónustu við viðskiptavin- inn,“ sagði Agnar. ■ Inga Kristinsson, starfsmaður Arnarflugs í Amsterdam, við innskriftarborð á hinu fullkonma Corda-bókunarkerfi, sem Arnarflug er í þann mund að taka í notkun. Einnig verðum við með leiguflug fyrir íslenskar ferðaskrifstofur eins og verið hefur svo það er fyrirsjáanlegt að fclagið verður með flug til og frá íslandi á hverjum degi yfir háannatímann," sagði Agnar. - Nú eruð þið með talsvert umfangs- mikla starfsemi í Lýbíu? „í vetur höfum við haft tvær Boeing 707 vöruflutningavélar í föstum verkefn- um í Lýbíu og þær verða þar báðar fram í mars a.m.k. „Aætlanaflugið hefur gengið betur en menn þorðu að vona” „Leidir saman óskir kaup- anda og seljanda” — segir Ingi- mundur Einars- son, fram- kvæmdastjóri Kaupþings h/f um tölvu sem fyrirtækið notar í fasteigna- viðskiptum ■ „Með notkun þessarar tölvu getum við boðið upp á þjónustu, sem tryggir bæði kaupendum og seljendum hagræði’ og öryggi umfram það sem hingað til hefur tíðkast á fasteignamarkaðnum,“ sagði Ingimundur Einarsson, lögfræð- ingur og framkvæmdastjóri Kaupþings h/f í Hú.si verslunarinnar, en fyrirtækið stundar m.a. fasteignasölu. „I rauninni er unnt að láta tölvuna leiða saman óskir kaupanda og seljanda og aðstoða við að koma sambandi þeirra í milli. Seljandinnskráireignsína til sölu og gefur upp stærð, staðsetningu, verð, greiðsluskilmála og afhendingartíma. Kaupandinn aftur á móti skráir inn á tölvuna óskir sínar um eignina, sem hann leitar að." Raunvirði tilboða Ingimundur sagði ennfremur að þegar nýr kaupandi léti skrá sig, kannaði tölvan hvort cignaskráin hefði að geyma eignir sem kaupandi hefur áhuga á. Og þegar ný eign bættist á eignaskrá mætti sjá, hvort einhver kaupandi hefði sýnt slíkri eign áhuga. Þannig bæri tölvan saman óskir kaupanda og seljanda. Auk þessa nefndi lngimundur að unnt væri að láta tölvuna bera saman raun- virði mismunandi tilboða og reikna upp áhvílandi veðskuldir og ganga úr skugga um að óskir kaupanda og seljanda færu sem best saman að þessu leyti. ■ Þrátt fyrir að ekki tækist að selja nema helming þess skreiðarmagns, sem selt var árið 1981, á nýliðnu ári, var það þriðja mcsta skreiðarsöluár í sögu Sjávarafurðadeildar Sambandsins. Skipadeild Sambandsins: Festi kaup á 25 tonna gáma- lyftara ■ Skipadeild Sambandsins keypti nýlega stóran og íullkominn gámalyft- ara af gerðinni Lansin Henley. Lyftir hann 25 tonnum og mun vera einn af hinum stærstu sinnar tegundar á landinu. í nýútkomnum Sambandsfréttum segir að tilkoma þessa tækis bæti mjög aðstöðu deildarinnar til að meðhöndla gáma. Skammt er síðan skipadcild festi kaup á sjö gámaflutningavögnum og dráttarbíl, og auk þess er hún mcð samtals 18 mismunandi stóra lyftara á Holtabakka. Þá kemur fram í Sambandsfréttum að skipadeildin keypti nýlega 200 nýja gánta frá Svíþjóð. Eru þetta 20 feta stálgámar, sem verða afhentir á tímabilinu janúar til mars. Þar með á skipadeild talsvert á sjötta hundrað gáma, auk þess sem hún hefur jafnan allmarga á lcigu. Sjávarafurðadeild Sambandsins: FLUTTI ÚT FYRIR 1,2 MILLJARÐA KR. ■ Sjávarafurðadeild Sambandsins flutti út sjávarafurðir fyrir 1.203 milljónir króna að cif-verðmæti á nýliðnu ári. Var það 49 af hundraði meira en árið áður, að því er segir í nýútkomnum Sambandsfréttum. Um 85 prósent veltunnar má rekja til frystra sjávarafurða, en á árinu voru fluttar út 34.400 lestir af frystum afurðum, samtals að cif-verðmæti 1.021 milljón króna. Útflutningur allra frystra afurða jókst um 7,5 af hundraði en cif-verðmæti í íslenskunt krónum um 83 af hundraði. í Sambandsfréttum segir, að þýðingar- mestu markaðir fyrir frystar botn- fiskafurðir hafi verið sem jafnan áður Bandaríkin, Sovétríkin og Bretland. Til Bandaríkjanna voru fluttar 19.200 lestir, sem var 12 prósent minna en árið þar á undan, til Sovétríkjanna 5.900 lestir, sem var 32 prósent aukning, og til Bretlands 3.900 lestir, og var það rúmlega tvöföldun á sölu frá árinu áður. Mikil söluaukning á rækju og humar Útflutningur fyrstra sjávarafurða, annarra en botnfiskafurða, jókst mikið á árinu. Söluaukning á rækju var um 43 af hundraði, um 52% söluaukning varð á humri og rúmlega þriðjungs söluaukn- ing varð á freðsíld Útflutningur Sjávarafurðadeildar á mjöli nam um 3.100 lestum, sem var fjórðungi minna en á árinu 1981. Um 3000 lestir af skreið og hcrtum hausum seldust úr landinu, sem er aðeins rúmlega helmingur af því sem selt var á árinu 1981. Þrátt fyrir minnkunina var árið 1982 þriðja mesta skreiðarár í sögu Sjávarafurðadeildar. -

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.