Fréttablaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 42
26 5. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
KARL SIGURBJÖRNSSON, BISKUP
ÍSLANDS, ER 62 ÁRA Í DAG.
„Egg er viðkvæmt og brot-
hætt. Eins og lífið. Boð-
skapur páskanna er krafa
um lotningu fyrir lífinu! Við
sköpum ekki líf. Við getum
ekki skapað eitt einasta
lóuegg. En við eigum auð-
velt með að brjóta það!“
Áður en Karl Sigurbjörnsson
varð biskup þjónaði hann sem
sóknarprestur í Hallgríms-
sókn í Reykjavík.
„Fyrirtækið var stofnað árið 1919 af föður mínum, Otto B.
Arnar, og var hann þá aðeins 24 ára,“ segir Birgir Arnar,
framkvæmdastjóri Otto B. Arnar ehf. en fyrirtækið fagn-
ar í dag 90 ára afmæli.
„Pabbi hóf starfsferil sinn hjá Landsímanum árið 1914 og
þar kynntist hann símtækninni,“ segir Birgir. „Árið 1915
stofnaði hann Félag íslenskra símamanna sem var fyrsta
hagsmunafélag opinberra starfsmanna og er hið elsta sinn-
ar tegundar í dag. Árið 1919 fékk hann verslunarleyfi og
stofnaði sitt eigið fyrirtæki en fljótlega upp úr þessu má
finna auglýsingar frá honum í blöðum.“
Otto auglýsti fyrst Corona-ritvélar en þegar hann hóf
verslunarrekstur flutti hann inn talsíma og ritvélar. „Hann
var mikill frumkvöðull en á þessum tíma var hann búinn
að sigla bæði til Bandaríkjanna og Evrópu og kynna sér
tæknina í Bandaríkjunum. Hann opnaði fyrstu útvarps-
stöðina á Íslandi árið 1926 og var framsýnn maður og
heimsborgari sem talaði mörg tungumál reiprennandi,“
segir Birgir áhugasamur og nefnir að faðir hans hafi verið
sjálfmenntaður eftir barnaskóla. „Hann var beðinn um að
koma aftur inn í Símann til að sinna þar störfum síma-
verkfræðings, eftir að hann stofnaði fyrirtækið, en þá var
enginn í starfanum. Þótt hann væri ekki menntaður verk-
fræðingur né með nein háskólapróf var hann settur sem
símaverkfræðingur.“
Mikið var skrifað um Otto bæði í Morgunblaðið og Ísa-
fold á sínum tíma en auk þess skrifaði Otto sjálfur marg-
ar greinar í dagblöð og tímarit um efni eins og siglinga-
tækni og fjarskipti. Skrifstofuvélar og annar tækni- og
rafeindabúnaður hafa ávallt verið aðalinnflutningsgrein-
ar fyrirtækisins og eru enn. Tvö elstu umboð þess eru
Datacard, sem er afleiða af Addressograph-fyrirtækinu,
og Pitney Bowes sem eru frímerkjavélar. Núna eru Data-
card-vélar notaðar við útgáfu allra greiðslukorta á Íslandi
og lengi vel voru frímerkjavélarnar þær einu sem seldust
hérlendis. „Í dag erum við með fjölda annarra umboða og
eru helstu söluvörurnar stimpilklukkur og tímaskráning-
arkerfi, skjalatætarar, innbindivélar, plöstunarvélar, um-
slagaísetningarvélar og pappírsbrotavélar. Auk þess höfum
við undanfarin 20 ár verið leiðandi í innflutningi á Visa og
Mastercard bankakortum,“ segir Birgir.
Þrátt fyrir kreppu horfir Birgir bjartsýnn fram á veg-
inn. „Fyrirtækið hefur alltaf verið í eigu fjölskyldunnar og
verður væntanlega áfram,“ segir hann og brosir.
hrefna@frettabladid.is
OTTO B. ARNAR EHF.: ER 90 ÁRA
Farsælt starf
FRAMSÝNN FRUMKVÖÐULL Birgir fer fögrum orðum um föður sinn,
Otto B. Arnar, sem stofnaði fjölskyldufyrirtækið fyrir 90 árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
timamot@frettabladid.is
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús St. Magnússon
pípulagningameistari í Hafnarfirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 30. janúar,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00.
Guðrún E. Guðmundsdóttir
Sigríður Harðardóttir
Margrét Magnúsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir Einar Gylfason
Guðmundur Magnússon Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Magnús Kristinn
Finnbogason
vélstjóri, Álfhólsvegi 151, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn
30. janúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 6. febrúar klukkan 13.00.
Erlendur Magnússon Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir
Kristín Magnúsdóttir
Lárus Pálmi Magnússon Sonja Lampa
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar,
Guðríður Sveinsdóttir
Kleppsvegi 120, Reykjavík,
áður Hábæ í Vogum,
lést þriðjudaginn 27. janúar. Útför hennar verður gerð
frá Kálfatjarnarkirkju í dag, fimmtudaginn 5. febrúar
kl. 14.00.
Systkini hinnar látnu.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Georg Jónsson
blikksmíðameistari,
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 30. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóel H. Georgsson Eygló F. Guðmundsdóttir
Eyjólfur Georgsson
Guðm. Birgir Georgsson Dong Qing Guan
Helga U. Georgsdóttir Hafsteinn Vilhelmsson
Edda J. Georgsdóttir Albert Pálsson
afabörn og langafabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Dagbjartur Jónsson
Álakvísl 106, 110 Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi, mánudaginn
2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Auður Ingvarsdóttir
Dagrún Dagbjartsdóttir Halldór Jónsson
Viktoría Dagbjartsdóttir Júlíus Þór Júlíusson
Inga Hanna Dagbjartsdóttir Jónas J. Hallsson
Þóra Jóna Dagbjartsdóttir Hlynur Hjörleifsson
Dagbjartur Vigfús Dagbjartsson
Ellen Árný Barnes Jeffrey Barnes
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langlangamma,
Hulda Stefánsdóttir
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn 31. janúar.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
7. febrúar kl. 14.00.
Hrafnhildur Stefánsdóttir Birgir Björnsson
Álfhildur Stefánsdóttir Marteinn Haraldsson
Stefán Páll Stefánsson Ingibjörg Oddsdóttir
Guðrún Stefánsdóttir Theodór Júlíusson
Hilmar Jón Stefánsson Sigríður Þórarinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Helgu Guðrúnar
Sigurðardóttur
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis í Stafholti 14, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Víðihlíðar,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Þórður Snæbjörnsson
Snæbjörn Þórðarson Liv Gunnhildur Stefánsdóttir
Helga Kristrún Þórðardóttir Karl Jónsson
Haukur Þórðarson Kristbjörg Jónsdóttir
Örn Þórðarson Ingibjörg Eyjólfsdóttir
Hrafn Þórðarson Ragnheiður Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts föður okkar og tengdaföður,
Helga Hálfdanarsonar,
Máshólum 19, Reykjavík.
Hálfdan Helgason Erla Benediktsdóttir
Ingibjörg Helgadóttir Árni Björnsson
Sigurður Helgason Kristín Magnúsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Einarsdóttir
frá Drangsnesi,
áður til heimilis að Hvassaleiti 58,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 2. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Halldóra Hallfreðsdóttir Gunnar Guðmundsson
Hanna Hallfreðsdóttir Hjálmar Haraldsson
Einar Hallfreðsson Margrét Ingólfsdóttir
Bjarni Hallfreðsson Gerður Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við fráfall, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Önnu Ástu Georgsdóttur
Laugarnesvegi 89, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni, fyrir alla umönnun og hlýhug.
Halldór Steinþórsson Bryndís Kristjánsdóttir
Steinþór Steinþórsson Sigríður Erna Valgeirsdóttir
Georg Steinþórsson Susan P. Dunning
Margrét Steinþórsdóttir Kristinn Klemenzson
Okkar elskaði eiginmaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
Óttar Bjarkan Bjarnason
bakarameistari,
lést laugardaginn 31. janúar á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá
Hjallakirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 15.00.
Guðrún Ásgerður Sölvadóttir
Róbert Óttarsson Selma Barðdal Reynisdóttir
Rebekka Óttarsdóttir Ögmundur Arnarson
Þuríður Óttarsdóttir
Eygló Þóra Óttarsdóttir Heimir Sverrisson
Pálmi Bjarni Óttarsson
og afabörn.