Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 2
2 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR STJÓRNSÝSLA Bankastjórar Seðla- bankans ætla að svara Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra því „fyrr en seinna“ hvort þeir munu fara að tilmælum hennar um að víkja úr stjórn Seðlabankans, að sögn Ingimundar Friðrikssonar bankastjóra. Bankastjórarnir þrír funduðu um málið í gærkvöldi, en gáfu ekkert svar þótt frestur sem ráðherra gaf þeim til að svara hefði runnið út í gær. Það sem skýrir töfina, að sögn Ingimundar, er að Davíð Oddsson, formaður stjórnarinnar, hefur verið í vinnuferð í London og kom ekki til landsins fyrr en um fimm- leytið í gær. Hann vildi ekki tjá sig við blaðamann í Leifsstöð og svar- aði stuttaralega „nei“ þegar hann var beðinn um viðtal. Hann hélt síðan til fundar við Ingimund og Eirík Guðnason, hina bankastjór- ana tvo, í gærkvöldi. „Við gerðum ráðuneytinu við- vart undir kvöld að svar kæmi ekki í kvöld [gærkvöld] og því var vel tekið þar,“ segir Ingimundur. Jóhanna Sigurðardóttir vildi ekki tjá Fréttablaðinu viðbrögð sín við ákvörðun bankastjóranna í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var ekki rætt við hana beint, heldur barst tilkynn- ing bankastjóranna til ráðuneytis- stjóra forsætisráðuneytisins. Þeir munu ekki hafa farið fram á lengri frest til að svara, einungis tilkynnt að svar myndi ekki berast í tíma. Spurður hvenær svars er að vænta segir Ingimundur: „Ég get ekki sagt um það. Það verður fyrr en seinna.“ Hann segist heldur ekkert geta sagt um það hvort nið- urstaða náðist um málið á fundi þeirra. „Ráðherranum verða kynnt viðbrögðin fyrst,“ segir hann. Í frumvarpinu um Seðlabankann, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi og verður tekið til umræðu í dag, er kveðið á um að forsætis- ráðherra skipi seðlabankastjóra til sjö ára í senn að undangeng- inni auglýsingu. Seðlabankastjóri skal hafa lokið meistaraprófi í hag- fræði og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á peningamálum. Ekki er heimilt að skipa sama mann seðlabankastjóra oftar en tvisvar sinnum. Forfallist hinsvegar seðla- bankastjóri getur forsætisráðherra sett annan mann tímabundið í emb- ættið. stigur@frettabladid.is ghs@frettabladid.is Við gerðum ráðuneytinu viðvart undir kvöld að svar kæmi ekki í kvöld og því var vel tekið þar. INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON SEÐLABANKASTJÓRI Gunnar, ertu farinn úr LÍNklæðunum? „Já, ég er farinn úr þeim enda orðin slitin eftir sautján og hálft ár.“ Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur vikið frá stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, var formaður stjórnarinnar. EFNAHAGSMÁL Kristin Halvor- sen, fjármálaráðherra Noregs, kemur til landsins á hádegi í dag, og fundar með Steingrími J. Sig- fússyni fjármálaráðherra klukk- an 15.45. Steingrímur lýsti áhuga sínum á efnahags- og myntsamstarfi við Norðmenn í viðtali við norska blaðið Klassekampen á föstudag- inn fyrir viku. Þar var sagt að Steingrímur hefði boðið Halvor- sen til viðræðna um þetta, en henni var upphaflega boðið til að fagna tíu ára afmæli Vinstri- græns framboðs. Halvorsen brást við í norska miðlinum e24 í vikunni: „Ég býst við að ræða ýmsar hliðar efna- hagsástandsins á Íslandi við Steingrím Sigfússon fjármála- ráðherra, einnig myntsamstarf, beri það á góma.“ Formaður norska Miðflokksins, Liv Signe Navarsete, sagði sama dag og Klassekampen-viðtalið birtist að Norðmenn ættu að taka vel í það, ef íslensk stjórnvöld sýndu áhuga í þessa veru. Þannig mætti koma í veg fyrir að Ísland gengi í Evrópusambandið. Halvorsen var svo hvött til þess í leiðara Dagens Næringsliv að gefa Steingrími skýr svör. Sagði þar að norskir andstæðingar ESB virðist vilja kaupa aftur eyjuna, sem Norðmenn hafi misst þegar þeir fóru inn í Kalmarsambandið á 14. öld. - kóþ Fjármálaráðherrar Noregs og Íslands ræða efnahags- og myntsamstarf: Norski ráðherrann lendir í dag FJÖLMIÐLAR Uppsetningu á Frétta- blaðskössum í Fjarðabyggð lauk í vikunni. Með þeirri vinnu hefur dreifing blaðsins á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Neskaupstað og Reyðarfirði aukist til mikilla muna, en áður var Fréttablaðið einungis fáanlegt í verslunum á ofannefndum stöðum. Þá hefur Vestmannaeyjabær framlengt leyfi fyrir Fréttablað- skössum til tveggja ára, og er það til marks um ánægju bæjarbúa með dreifingu blaðsins. Fréttablaðskassarnir stuðla að umhverfisvernd, því öllum umframblöðum er komið í endur- vinnslu. - kg Uppsetning Fréttablaðskassa: Betri dreifing í Fjarðabyggð DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í gær hálfáttræðan karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum. Hæstiréttur staðfesti með þessu dóm héraðsdóms, en hækkaði auk þess skaðabætur til annarrar stúlk- unnar, úr 700 í 900 þúsund krónur. Maðurinn braut gegn annarri stúlkunni árið 1994 og hinni í kringum aldamót. Þær voru báðar um ellefu ára aldur. Hann káfaði á báðum þeirra og stakk fingri sínum inn í leggöng annarrar. Hann er stjúpafi annarrar. Fram kemur í dómnum að fleiri konur hafi vitnað um að hann hafi einnig brotið gegn þeim þegar þær voru á barnsaldri. - sh Öldungur í fangelsi í tvö ár: Misnotaði tvær ungar stúlkur KRISTIN HALVORSEN STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON DÓMSTÓLAR Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá karl- menn fyrir hlutdeild í smygli á rúmlega einu kílói af maríjúana, sem sent var hingað til lands frá Pól- landi. Pakkinn sem um ræðir innihélt matvæli og rúmlega 1,1 kíló af maríjúana. Hann var send- ur á nafngreindan íbúa að Kjarrhólma í Kópavogi. Sá einstaklingur átti alls ekki von á neinni send- ingu. Lögreglan tók fíkniefnin úr pakkanum og setti önnur lögleg efni í staðinn. Pakkinn var síðan sendur á heimilisfangið í Kjarrhólma. Þar voru þremenningarnir mættir fyrir utan og gerði einn þeirra tilraun til að fá pakkann í hendur fyrir utan húsið áður en hann yrði afhentur skráðum móttak- anda. Það gekk ekki eftir. Sá ákærði átti að fá tut- tugu þúsund krónur fyrir að komast yfir sending- una. Eftir að íbúinn hafði fengið pakkann lét hann annan þremenninganna hafa hann í stigaganginum í Kjarrhólma. Mennirnir óku á brott við svo búið og héldu að Álfatúni í Kópavogi. Þar komst einn þeirra undan lögreglu á hlaupum. Mennirnir, sem allir eru af erlendu bergi brotnir, eru á tvítugs- og þrítugs- aldri. Einn þeirra er, auk þess sem að ofan getur, ákærður fyrir vörslu á amfetamíni og hassi. - jss PÓSTURINN Pakkinn var sendur með póstinum. Þrír karlmenn ákærðir fyrir þátttöku í fíkniefnasmygli til landsins: Pakki frá Póllandi með mat og einu kílói af maríjúana LÖGREGLUMÁL TF-EIR, þyrla Land- helgisgæslunnar, leitaði að neyð- arsendi í um klukkustund eftir að stjórnstöð barst tilkynning um að flugvélar í yfirflugi næmu merki frá neyðarsendi í gærmorgun. Þyrlan gat þrengt leitarsvæðið og við tóku starfsmenn flugdeil- ar gæslunnar, sem fundu sendinn með aðstoð handmiðunartækis eftir þriggja tíma leit. Í ljós kom að sendinum hafði verið komið fyrir og hann gangsettur í Breið- holti. Að sögn vaktstjóra hjá Land- helgisgæslunni er ekki vitað hverjir voru að verki, en líklegast er að sendinum hafi verið stolið út báti eða skipi. Hrekkurinn kosti nokkur hundruð þúsunda, en svipuð mál hafi komið upp áður. - kg Neyðarsendis leitað: Hundruð þús- unda hrekkur TF EIR Þyrla Landhelgisgæslunnar var í gær send af stað vegna símahrekks. LÖGREGLAN Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til notkunar lög- reglu á rafbyssum. Hún segir að skoðun standi yfir á eiginleikum rafstuðtækja og reynslu af þeim í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Sífellt þurfi að skoða hvaða leiðir séu bestar til að auka öryggi lögreglumanna og tryggja að þeir geti sinnt starfi sínu. „Ég legg áherslu á að þetta verði skoðað vandlega og á ekki von á því að ákvörðun liggi fyrir fyrir næstu kosningar,“ segir hún. - kóþ Nýr dómsmálaráðherra: Rafbyssur eru enn í skoðun Tveir vilja túnfiskinn Tvö fyrirtæki sendu inn umsóknir um tæplega 50 tonna túnfiskskvóta Íslendinga þegar umsóknarfrestur rann út um síðustu mánaðamót. Niðurstaða úthlutunar liggur fyrir á næstu vikum. SJÁVARÚTVEGUR Samtök verslunar og þjónustu í Árborg óttast að ný lega þjóðvegar 1 um nýja Ölfusárbrú norðan við byggðina á Selfossi hafi neikvæð áhrif í bænum. Meirihluti bæjarráðs segir núverandi legu vegarins ekki ásættanlega. VERSLUN Óttast veg framhjá Selfossi Bæjarstjórn Fjallabyggðar segir skýrslu atvinnuráðgjafa sýna að Siglufjörður sé ákjósanlegur til að byggja upp þjónustuaðstöðu við þann flota sem starfar við rannsóknir og boranir á Drekasvæðinu. SIGLUFJÖRÐUR Vilja þjóna olíuleitarflota Seðlabankastjórarnir svara „fyrr en seinna“ Seðlabankastjórar svöruðu forsætisráðherra ekki hvort þeir hygðust láta af störfum áður en frestur sem þeim var veittur til svars rann út. Þeir funduðu í gærkvöldi eftir heimkomu Davíðs Oddssonar og ætla að svara „fyrr en seinna“. DAVÍÐ KOMINN HEIM Bílstjóri og töskuberi biðu Davíðs við heimkomuna í gær. Hann neitaði að tala við blaðamann. MYND/VÍKURFRÉTTIR INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON EIRÍKUR GUÐNASON SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.