Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 4
4 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is VIÐSKIPTI Skuldir gamla Kaup- þings eru 2,432 milljarðar króna. Þetta kemur fram í mati sem skilanefndin hefur kynnt. Eignir bankans eru ríflega 618 milljarð- ar króna. Þar af eru lán til við- skiptavina 250 milljarðar króna. Fyrirtækið skuldar því rúmlega 1,8 milljarða umfram eignir. Í skýrslu skilanefndarinn- ar, sem kynnt var kröfuhöfum í bankann í gær, var hvatt til að greiðslustöðvun yrði framlengd. Þannig yrði hagsmunum kröfu- hafa betur borgið en að láta fyr- irtækið verða gjaldþrota. Sala eigna myndi hafa umtalsvert tap í för með sér fyrir kröfuhafa. - kóp Gamla Kaupþing: Skuldir langt umfram eignir VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhann- es faðir hans hafa misst Baug úr greipum sér. Þetta er mat Jóhannesar, sem var gestur Björns Inga Hrafnssonar í Markaðnum í gær- kvöldi. „Ég held að það þurfi mjög mikið til að svo verði ekki,“ sagði hann. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis hafa lagst gegn því að Baugi verði veitt greiðslustöðvun. „Mikið hefur gengið á áður en ákvörðun er tekin um að gjaldfella lán. Í þessu tilviki voru vanskil talsverð,“ segir Árni Tómasson, for- maður skilanefndar Glitnis. Hann vill hvorki greina frá skuldbindingum Baugs gagnvart Glitni né upphæð vanskilanna. Bankinn gjaldfelldi lán Baugs í fyrradag um svipað leyti og skilanefnd Landsbankans sótti um heimild fyrir greiðslustöðvun dóttur- félags Baugs í Bretlandi. Landsbankinn gekk að veðum BG Holding í gær og skipaði Pricewaterhou- se Coopers í Bretlandi til- sjónarmenn með þeim. Í tilkynningu skilanefnd- ar Landsbankans segir að bankinn sé ekki orð- inn beinn eigandi bréfanna heldur sé tryggt að ekki verði hægt að ráðstafa þeim án samráðs við bankann. Breskir fjölmiðlar segja ljóst hvert Baug- ur stefni. Telegraph segir eignir duga upp í þriðjung skulda, sem hljóða upp á 1,32 millj- arða punda, jafnvirði 200 milljarða króna. Þá hefur Financial Times eftir heimildum, að sjóðir Baugs séu því sem næst þurrausnir. Árni segir ljóst að bankarnir taki yfir hlutafjáreign Baugs í breskum verslunum og muni rekstri þeirra haldið áfram í sem næsta óbreyttri mynd. Ekki sé stefnt að sölu þeirra í nánustu framtíð. - jab / - sh Jóhannes Jónsson í Bónus segir nær öruggt að hann og Jón Ásgeir, sonur hans, hafi misst Baug: Gengið að veðum í breskum eignum Baugs VEÐ LANDSBANKANS Verslanir Eignarhlutur Iceland Foods 13,73% Highland Group Holdings Ltd* 34,90% Aurum Group** 37,75% Corporal Ltd*** 63,70% * House of Fraser ** Skartgripaverslanir Goldsmiths, Mappin & Webb og Watches of Switzerland. *** Leikfangakeðjan Hamleys. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 15° 7° 4° 6° 4° 7° 7° 7° 4° 3° 20° 4° -1° 18° -1° 7° 17° 1° -5 -8 -7 -4 -4 -3 -6 0 -5 -5 -11 5 3 3 3 3 7 4 5 5 3 3 0 -7 -5 -4 0Á MORGUN 8-13 m/s suðvestan til an- nars mun hægari. -9 SUNNUDAGUR 3-8 m/s -5 -7 HELGIN Á morgun snýst vindur til suðaustlægrar áttar, nokkuð stífrar við suðvestanvert landið, 8-13 m/s, annars hægari. Það dregur úr frosti suðvestan- og vestanlands en áfram verður þó frost. Horfur eru á björtu veðri fyrir austan annars þung- búnara og stöku él á stangli. Á sunnudag verður rólegt veður af austri. Stöku él syðra annars úkomlaust. Áfram víðast frost. -4 -4 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNSÝSLA Indriði H. Þorláks- son, fyrrum ríkisskattstjóri, hefur verið skipaður ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu. Ind- riði er settur í embættið til 30. apríl. Steingrím- ur J. Sigfús- son fjármála- ráðherra veitti Baldri Guðlaugssyni, fráfarandi ráðuneytisstjóra, leyfi frá störf- um á sama tímabili. Ástæða þess að um tímabundna ráðstöfun er að ræða mun vera sú að núverandi ríkisstjórn telji sig hafa takmarkað umboð, sam- kvæmt heimildum blaðsins. End- anlegri ákvarðanir bíði næstu ríkisstjórnar. - kóþ Baldri vikið frá um tíma: Indriði verður ráðuneytisstjóri Á málþingi LBL á Akureyri á laugar- daginn mun Páll Skúlason fjalla um framtíð lýðræðis, Hjörleifur Einarsson um ný tækifæri í sjávarútvegi, Harald- ur Benediktsson um framtíð landbún- aðar/lífrænn iðnaður? og Þorsteinn Ingi Sigfússon fjallar um nýja sköpun – nýja framtíð. LEIÐRÉTTING INDRIÐI HAUKUR ÞORLÁKSSON STJÓRNSÝSLA Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra skipaði í gær Gunnar Haraldsson nýjan stjórn- arformann Fjármálaeftirlits- ins (FME). Gunnar er for- stöðumaður Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands. Aðrir í stjórninni eru Kristín Har- aldsdóttir lög- fræðingur og Jón Þ. Sigur- geirsson fram- kvæmdastjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands. Varamenn eru Óskar Sig- urðsson lögmaður, Þóra Hjalt- ested lögfræðingur og Guðrún Ögmundsdóttir sérfræðingur. Gunnar tekur við af Jóni Sig- urðssyni, sem vék ásamt stjórn sinni eftir að Björgvin G. Sig- urðsson viðskiptaráðherra sagði af sér 25. janúar. - sh Ný stjórn Fjármálaeftirlitsins: Gunnar leiðir stjórn FME GUNNAR HARALDSSON JÓHANNES JÓNSSON Ríkissaksóknari hefur ákært mann um tvítugt fyrir hættulega líkamsárás. Hann sló annan mann í höfuð með glerglasi. Sá hlaut skurð við eyra og alvarlega slagæðarblæðingu. DÓMSTÓLAR Slagæðablæðing eftir árás Tveir karlmenn hafa verið dæmdir í 80 þúsunda króna sekt hvor og sviptir veiðikorti í eitt ár fyrir að nota torfærutæki, svokallað sexhjól, við hreindýraveiðar á Fljótsdalshéraði. Sektaðir og sviptir veiðikorti SJÁVARÚTVEGSMÁL Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra neitar að láta þrýsting flýta því að hann taki ákvörðun um það hvort hann snúi við ákvörðun fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra um að heimila hvalveiðar. Þetta sagði hann á fjölmennum fundi um hval- veiðar á Akranesi í gærkvöldi. Forsvarsmenn Akranesskaup- staðar og verkalýðsfélagsins á staðnum segja fyrirhugaðar hval- veiðar í sumar skipta gríðarlega miklu máli fyrir atvinnuhorfur á staðnum og með öllu ólíðandi ef sitjandi sjávarútvegsráðherra aft- urkalli fyrirhugaðar veiðar. Steingrímur sagði jafnframt að hann gerði sér grein fyrir mikil- vægi málsins og að mörg störf væru undir. Einar K. Guðfinnsson, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra, hvatti núverandi sjávarútvegsráðherra til að snúa ákvörðun sinni ekki við. Hann sagðist hafa verið í full- um rétti til að taka ákvörðun sína, og hnykkti á því að ákvörðun um hvalveiðar hefði verið tekin árið 1999 og þær stundaðar síðan. „Hvalveiðar okkar einkenn- ast af varúðarnálgun þar sem við göngum gríðarlega varlega um auðlindina. Öll rök hníga að því að hvalveiðar séu hér stund- aðar. Tölfræðin varðandi ferða- mennsku og hvalaskoðun sýnir öll að mikil aukning hefur verið síðan ákvörðun um hvalveiðar var tekin. Ákvörðun mín var ekki tekin í bráðræði heldur eftir langa umhugsun þar sem allar stærðir voru þekktar.“ Vilhjálmur Birgisson, formað- ur Verkalýðsfélags Akraness, tal- aði um það skelfilega ástand sem skapast hefði í atvinnumálum á landinu. Hann sagði að hvalveið- ar skiptu bæjarfélag eins og Akra- nes gríðarlegu máli, þrjátíu störf myndu skapast strax við hrefnu- veiðar þar sem 300 manns ganga nú atvinnulausir í bænum. „Þetta yrði gríðarleg innspýting og það yrði sorglegt ef eitt af fyrstu verkum sitjandi sjávarútvegsráð- herra yrði að koma í veg fyrir að fólk væri sjálfbjarga um að skapa sér störf á svæðinu.“ Gísli A. Víkingsson, hvalasér- fræðingur Hafrannsóknastofn- unar, sagði á fundinum að rann- sóknir bentu til að stofnar hrefnu og langreyðar væru í mjög góðu ásigkomulagi og hafi stofnunin ráðlagt veiðar í því ljósi. Alþjóða- hafrannsóknaráðið (ICES) hefur staðfest að ráðgjöf Hafró séu sjálfbærar veiðar. Einar K. gaf út leyfi á veiðar á 150 langreyðum og 100 hrefn- um skömmu áður en fyrrverandi ríkisstjórn fór frá. Var leyfið til fimm ára. Þessa ákvörðun gagn- rýndu þingmenn Samfylkingar og Vinstri grænna harðlega. Eftir fyrsta ríkisstjórnarfund flokk- anna í vikunni sendi Steingrímur út viðvörun til þeirra sem hyggja á veiðar og vinnslu hvals að til greina kæmi að afturkalla leyfið sem gefið var út eða á því yrðu gerðar breytingar. svavar@frettabladid.is / stigur@frettabladid.is Ráðherra lætur ekki beita sig þrýstingi Hart var sótt að sjávarútvegsráðherra að banna ekki hvalveiðar á fundi á Akra- nesi í gærkvöldi. Ráðherrann segist gera sér grein fyrir alvöru málsins. Formað- ur Verkalýðsfélags Akraness sagði hvalveiðar skipta bæinn miklu máli. FUNDAÐ UM HVALVEIÐAR Steingrímur J. Sigfússon, Sturla Böðvarsson, Jón Bjarna- son og Kristinn H. Gunnarsson voru á meðal þeirra sem sóttu fundinn á Akranesi. MYND/EIRÍKUR KRISTÓFERSSON GENGIÐ 05.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 183,1083 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,56 115,1 166,49 167,29 147,6 148,42 19,804 19,92 16,728 16,826 13,882 13,964 1,2764 1,2838 171,37 172,39 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.