Fréttablaðið - 06.02.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég hef eldað þessa súpu í mörg
ár og boðið öllum upp á hana
marg oft,“ segir Ingibjörg Guð-
mundsdóttir um fiskisúpuna
góðu. Uppskriftina fékk hún hjá
frænku sinni og segir hana ein-
falda í gerð fyrir óreynda í eld-
húsinu.
„Það má slumpa og sirka í þessa
súpu og breyta henni eftir smekk.
Til dæmis má nota mismunandi
grænmeti og allar tegundir af
fiski. Sumir eru hræddir við að
breyta og sjálf notast ég yfirleitt
við uppskriftir við eldamennsk-
una, en breyti þeim gjarnan. Ég
er hrifnust af venjulegum íslensk-
um heimilismat og uppáhaldsmat-
urinn minn er lamb. Ég elda mikið
af venjulegum mömmumat en hef
samt prófað alls konar rétti. Það
skemmtilegasta sem ég geri er að
elda og bjóða fólki í mat og ég les
matreiðslubækur áður en ég fer
að sofa á kvöldin,“ segir Ingibjörg
hlæjandi.
Kotasælubollurnar segir hún
ómissandi með súpunni og eins og
súpuna, einfaldar í framkvæmd.
heida@frettabladid.is
Súpa sem má slumpa í
Ingibjörg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur gefur lesendum uppskrift að ilmandi fiskisúpu sem hún
segir einfalda í gerð. Einnig lumar hún á kotasælubrauðbollum sem nauðsynlegu meðlæti.
Ingibjörg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur les matreiðslubækur fyrir svefninn og býður vinum reglulega í mat.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 stór laukur
3 hvítlauksrif
3 gulrætur
3 stönglar sellerí
3 kartöflur
1 dós tómatþykkni
1 dós maukaðir niður-
soðnir tómatar
Salt og pipar eftir smekk
2-3 tsk. basil
2 tsk. majoram
2 teningar grænmetis-
kraftur
1 peli rjómi
1 lítri vatn
600 g fiskur, skorinn í
hæfilega bita (hægt að
nota hvaða fisk sem er,
eina tegund eða nokkrar
saman.
Olía hituð í stórum
potti, grænmetið
brytjað í passlega bita
og mýkt í olíunni. Tóm-
atþykkni, niðursoðnum
tómötum og græn-
metiskrafti bætt út í
og látið krauma stutta
stund, vatni bætt út í
og látið sjóða í um 30
mínútur. Þá er kryddi
og rjóma bætt út í,
smakkað til og látið
sjóða í nokkrar mínútur
í viðbót . Að lokum er
fiskinum bætt út í og
soðið í stutta stund.
Kotasælubollur
(ómissandi með
súpunni)
12 dl hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
1 bréf þurrger
½ lítri mjólk
3 msk. matarolía
Lítil dós kotasæla
Mjólkin er hituð þar til
hún er fingurvolg þá
er geri og sykri bætt út
í og hrært vel saman
við, látið standa þar til
fer að freyða.
Setjið hveiti og
salt í skál og bætið
germjólkinni varlega
saman við, bætið
að endingu olíu og
kotasælu út í og hrærið
saman við. Látið hefast
í u.þ.b. 30 mín.
Þegar degið hefur hef-
ast er gott að hnoða
smá hveiti upp í deigið
þar til það er orðið
meðfærilegt, betra er
að hafa deigið frekar
blautt því þá verða
bollurnar mýkri.
Mótið bollur, flott er að
raða bollunum saman
í einn stóran hleif.
Bakað í 15 mín. við
200° C.
SÚPA INGIBJARGAR
Fiskisúpa FYRIR 6-8
RAUÐ VÍNBER eru rík af andoxunarefnum sem eru
mjög góð fyrir húðina. Vínber eru fyrirtaks snakk á milli
mála þar sem þau eru sæt, safarík og seðjandi.
H
rin
gb
ro
t
2. janúar -28. febrúar
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður
bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem
unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“
með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti
RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA
með humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI
með ristuðu grænmeti, kartöflumauki
og hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖND
með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)
NAUTALUND
Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati
og sperglum (6.590 kr.)
LOGANDI CRÈME BRÛLÉE
með súkkulaði ís
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA