Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 6
6 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR 1000 KR Eittþúsund króna Gildir út febrúar 2009inneign á öll samstæðuspil Skeifan 550-4110, Smáralind 550-4140, Kringlan 550-4130, Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Vestmannaeyjar 550-4180, Egilsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150, Ísafjörður 550-4170 SP I L MÁNAÐ ARINS EFNAHAGSMÁL Íslenskir auðmenn hafa fengið háar upphæðir í arð- greiðslur frá því að viðskiptabank- arnir voru einkavæddir, og einhver hluti af því fé er falinn í skattapar- adísum, segir Atli Gíslason, þing- maður Vinstri grænna. Atli skorar á auðmennina að koma með peningana aftur til Íslands. „Þeir eiga að sjá sóma sinn í að koma með þessa peninga heim, eða stíga ekki niður fæti hér á landi aftur,“ segir Atli. „Þeir eiga að koma með sitt fé hér inn á ögur- stundu, og skila ránsfengnum. Það er þjóðin sem er að borga þeirra skuldir.“ Hagnaður viðskiptabankanna þriggja á fimm ára tímabili, frá 2003 til 2007, var samanlagt ríf- lega 464 milljarðar króna, sam- kvæmt ársreikningum bankanna. Mestur var hagnaðurinn í Kaup- þingi, samtals 232 milljarðar. Hagnaður Landsbankans var 130 milljarðar, og eigendur Glitnis högnuðust um 102 milljarða. „Það er algerlega ljóst að þeir eiga verulegar upphæðir, og þeir hafa miskunnarlaust flutt pening- ana úr landi,“ segir Atli, og vísar í gríðarlegan hagnað viðskiptabank- anna. Hann segir að féð sé vænt- anlega geymt að einhverju leyti í erlendum skattaparadísum. Aðspurður segist Atli varla reikna með því að auðmennirnir taki áskoruninni, en segir líklegt að þeim myndi líða betur létu þeir verða af því. - bj Þingmaður VG segir auðmenn sitja á háum upphæðum í skattaparadísum: Auðmenn skili ránsfengnum ÞJÓÐIN BORGAR SKULDIR „Þeir eiga að sjá sóma sinn í að koma með þessa peninga heim,“ segir Atli Gíslason. DÓMSMÁL Þrír af fjórum svo- nefndra Keilufellsmanna hafa áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Mennirnir voru dæmdir í tveggja og hálfs og þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að ryðj- ast inn í hús í Keilufelli, þar sem þeir réðust á menn sem þar voru fyrir. Fjórmenningarnir beittu hættulegum vopnum og bareflum á varnarlausa mennina. Þrír íbú- anna hlutu beinbrot og einn lífs- hættulegan áverka. Árásarmenn- irnir voru, auk fangelsisrefsingar, dæmdir til að greiða þeim skaða- bætur. Þeir krefjast sýknu og að bótakröfum verði vísað frá. - jss Dómur héraðsdóms: Þrír Keilufells- menn áfrýja LÖGREGLUMÁL Rannsókn á amfet- amínverksmiðjunni sem lögregla upprætti í Hafnarfirði í októb- er hefur miðað vel að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gögn hafa verið að berast erlendis frá og þess er vænst að rannsókn ljúki í næsta mánuði. Málið verður þá sent til ríkissaksóknara. Tveir menn sitja inni vegna málsins og eru þeir báðir í afplánun vegna eldri brota. Þeir eru Jónas Ingi Ragnarsson, kenndur við lík- fundarmálið í Neskaupstað og Tindur Jónsson, sem hefur hlotið dóm fyrir sveðjuárás. - jss Amfetamínverksmiðjan: Rannsókn á lokastigi Fylgdist þú með eldhúsdagsum- ræðum á Alþingi? Já 34% Nei 66% SPURNING DAGSINS Í DAG: Finnst þér að ljúka eigi við gerð Tónlistarhússins í Reykjavík? Segðu skoðun þína á visir.is. SVÍÞJÓÐ, AFP Sænska stjórnin ákvað í gær að aflétta banni við byggingu nýrra kjarnorkuvera í landinu, þremur áratugum eftir að Svíar ákváðu að hætta smám saman að nota kjarnorku. Ríkisstjórn hægri- og mið- flokka segir nú nauðsynlegt að efla kjarnorkuvinnslu til þess að afla nýrrar orku samfara baráttu gegn hlýnun jarðar. Stuðningur Svía við nýtingu kjarnorku hefur aukist undanfarið. - gb Stefnubreyting í Svíþjóð: Svíar leyfa ný kjarnorkuver GAMAN Í SVÍÞJÓÐ Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra skýrir frá ákvörðun stjórnarinnar ásamt Maud Olofsson og Jan Björklund. NORDICPHOTOS/AFP SAMGÖNGUR Vegurinn úr Bjarn- arfirði norður í Djúpavík var mokaður í gær eftir að hafa verið ófær í meira en þrjár vikur. Jón Hörður Elíasson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík, segir regluna hafa verið þá að veg- urinn sé aðeins ruddur einu sinni frá áramótum fram á vor. Í fyrra hafi þó komið fyrirmæli um að leitast við að halda veginum opnum ef snjóalög væru lítil. Að sögn Jóns er vegurinn víða niður- grafinn. Hreyfi mikinn vind skafi því fljótt í veginn. Þegar vegur- inn er lokaður reiða íbúar Árnes- hrepps sig á áætlunarflug tvisvar í viku. - gar Rofar til á Ströndum: Í vegasamband eftir þrjár vikur HEILBRIGÐISMÁL Yngstu hassneyt- endurnir sem leituðu til Foreldra- húss á síðasta ári voru einungis tólf ára. Þá leituðu þangað unglingar sem höfðu selt sig fyrir fíkniefni. Þar á meðal voru stúlkur sem höfðu byrjað að selja sig þrettán ára. Þetta segir Díana Óskarsdóttir ICADC-ráðgjafi, sem starfar hjá Foreldrahúsinu. Hún segir sívax- andi fíkniefnaneyslu unglinga og barna mikið áhyggjuefni, sem starfsfólk Foreldrahúss hafi varað við allt síðastliðið ár í fjölmiðlum. Á því tímabili hafi á þriðja hundr- að unglinga leitað þangað með fíkniefnavanda sinn. Ársskýrsla Foreldrahúss fyrir árið 2008 er í vinnslu og nákvæmar tölur liggja því ekki fyrir. En á þremur fyrstu mánuðum þess árs voru tekin um 490 viðtöl við börn og unglinga undir 16 ára, sem gefur nokkra mynd af starfseminni. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn- ir á Vogi, hafði áður lýst áhyggjum sínum í Fréttablaðinu vegna auk- innar hassneyslu í yngsta aldurs- hópnum. „Það eru stöðug viðtöl vegna þessa vanda og hassneysla er orðin svo algeng að það þykir ekk- ert „tiltökumál“ að vera fjórtán ára og búinn að reykja hass í hálft ár,“ segir Díana. „Á síðasta ári fengum við hingað inn tólf ára einstaklinga í verulegri neyslu. Þeir voru sem betur fer ekki margir, innan við tíu talsins.“ Díana segir að yngstu krakk- arnir séu ekki einungis í kannabis- neyslu. Þau neyti einnig e-taflna og áfengis. „Hvað fjölda í neyslu varðar má miða við fermingaraldurinn,“ segir hún. „Upp úr fermingunni er hægt að tala um heilu hópana.“ Að sögn Díönu leita bæði ungl- ingar sjálfir svo og foreldrar þeirra til Foreldrahúss. Í boði eru viðtöl og stuðningur fyrir fjölskyldur sem lent hafa í vanda meðal annars vegna fíkniefnaneyslu. Þá er boðið upp á eftirmeðferð þegar ungling- ar eru farnir að viðurkenna vand- ann og vilja snúa við blaðinu. Spurð um ástæður þessarar neysluaukningar í yngsta aldurs- hópnum segir Díana orsakir marg- víslegar. Þær geti legið í óreglu á heimili, geðrænum kvillum, brot- inni sjálfsmynd, eða einsemd. „Í kreppunni bætist svo við örvænting og óöryggi á heimil- um og foreldrar uppteknir í mik- illi vinnu til að ná endum saman. Eftir sitja börnin með sjálf sig og vita ekkert í hvorn fótinn þau eiga að stíga.“ jss@frettabladid.is Tólf ára hassfíklar leituðu í Foreldrahús Allt niður í tólf ára börn komu í Foreldrahús á síðasta ári vegna þess að þau voru komin í vanda vegna hassneyslu. Í hópnum voru einnig stúlkur sem höfðu byrjað að selja sig til að ná sér í fíkniefni þegar þær voru þrettán ára. FORELDRAHÚSIÐ Á þremur fyrstu mánuðum síðasta árs voru tekin um 490 viðtöl við börn og unglinga undir 16 ára aldri. Þar er meðal annars tekið á fíkniefnavanda sem nær orðið til barna allt niður í tólf ára. DÍANA ÓSKARSDÓTTIR Yngstu krakkarnir ekki einungis í hassneyslu. Þau neyta einnig e-taflna og áfengis. KÖNNUN Flestir sjálfstæðismenn vilja Bjarna Benediktsson sem næsta formann flokksins, eða 57 prósent, sam- kvæmt könn- un sem Frjáls verslun gerði fyrir vefinn heimur.is. Næst kemur Þor- gerður Katrín Gunnarsdótt- ir, varaformað- ur flokksins, með 22 prósent, og þar á eftir Kristján Þór Júlíusson og Guð- laugur Þór Þórðarson, með fimm og fjögur prósent. Þó ber að taka fram að enn sem komið er hefur einungis Bjarni lýst yfir fram- boði til formennsku í flokknum. Könnunin var gerð meðal 600 manna, þar af var um þriðjung- ur stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins. - sh Viðhorf til formannsefna: Bjarni efstur BJARNI BENE- DIKTSSON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.