Fréttablaðið - 06.02.2009, Qupperneq 22
2 föstudagur 6. febrúar
Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga 900 - 1800
Laugardaga 900 - 1300
núna
✽dýrkum listir
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
augnablikið
Stórskotalið í nýju námi
Sennilega hafa aldrei jafn marg-
ir nafntogaðir einstaklingar kennt á
einu námskeiði og raunin er í nýju
diplómanámi Háskólans á Bifröst
og Listaháskóla Íslands. Námið
heitir Prisma og byggir á skapandi
og gagnrýnni hugsun. Meðal þeirra
sem stíga á svið og fræða nem-
endur eru Hallgrímur Helgason rit-
höfundur, Kristín Eysteinsdótt-
ir leikstjóri, Halldór Guðmundsson
rithöfundur, Hjálmar H. Ragnars-
son, tónskáld og rektor LHÍ,
og Andri Snær Magnason rit-
höfundur. Kennararnir eru
alls um fimmtíu sem verður
að teljast nokkuð gott í tveggja
mánaða námi.
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ELÍZA GEIRSDÓTTIR NEWMAN TÓNLISTARKONA
Ég er að spila í leynipartíi í kvöld en svo held ég að helgin fari bara í algjör róleg-
heit. Maður er aðeins kominn út úr miðbæjarstuðinu. Ég sé fyrir mér heita pott-
inn í Sundhöllinni og ferð út í Gróttu ef veðrið verður gott. Þar eru tveir selir
sem liggja alltaf á sömu steinunum. Ég þarf endilega að heilsa upp á þá.
B úningarnir skírskota meðal annars í hrun ofurmennishugsjónarinnar,“ segir Filippía
Elísdóttir hönnuður um búninga sýningarinn-
ar Velkomin heim, sem Íslenski dansflokkur-
inn frumsýnir 5. febrúar næstkomandi. „Þessi
íslenska hetja sem hefur verið ráðandi í við-
miðum síðustu ára, féll á gúmmísverðið og
mun því væntanlega rísa upp aftur einhvern
tíma síðar tilkomumeiri en nokkru sinni fyrr,
en sýningin fjallar samt ekki bara um hetjur,
heldur líka um ósköp venjulegt fólk í óvenju-
legu ástandi,“ útskýrir Filippía sem fékk stíl-
istann Agniesku til liðs við sig. Þetta er í
fyrsta sinn sem þær stöllur vinna saman
en Agnieska hefur aðallega unnið í tísku-
og tónlistarheiminum til þessa.
„Mér líkaði dekadensinn í verkum Agn-
iesku, ákveðin tragedía og myrk dramatík
sem hreyfði við mér. Kannski er það í genun-
um hennar enda er hún frá Póllandi, pólska
þjóðin hefur öldum saman gengið í gegnum
mikla umbrotatíma og á sér gamla og merki-
lega sögu. Að þessu leyti held ég að við eigum
vel saman því ég hef alltaf unnið út frá ákveðn-
um dekadens, melankólíu og stundum pess-
imískri sýn. Við viljum báðar einhvers konar
myndrænan árekstur við áhorfandann, ná að
kalla fram löngun hans til að vilja breyta lífi
sínu til hins betra og kalla fram innri bylt-
ingu. Sérstaklega núna í ljósi þessa umbrota-
tíma sem þjóðin er að fara í gegnum,“ útskýr-
ir Filippía.
Hún segir þær Agniesku fá innblástur úr
öllum áttum við hönnun búninganna. „Við
erum alætur á áhrifaþætti og horfum ekki
í eina átt við sköpun svona sýningar. Dans-
inn getur krafist þess að búningurinn búi yfir
miklli hreyfigetu eða hann sé statískur og jafn-
vel „monúmental“ svo hann sé nánast hluti
af sviðsmyndinni. Flóknir samverkandi þætt-
ir þurfa oft að kallast á, svo sem sýn höfunda
dansverksins, sýn sviðsmyndahönnuðar, ljósa-
höfundar, tónlistarhöfundar og dansara, svo
vonandi nær maður að þjóna því, en það sem
skiptir mestu máli á endanum er að listamað-
urinn þarf að standa á sviðinu og koma verki
höfundanna til skila,“ segir Filippía. - ag
Filippía Elísdóttir og Agnieska Baranowska hanna búninga á ÍD:
VENJULEGT FÓLK Í
ÓVENJULEGU ÁSTANDI
Skapandi Filippía
og Agnieska hanna
saman búninga fyrir
dansverkið Velkomin
heim og segjast vera
alætur á áhrif þegar
að sköpuninni kemur.
helgin
MÍN
FJÖLNIR ÞORGEIRSSON sýndi
fram á fjölhæfni sína í vikunni þegar
hann stökk ofan í Tjörninna og lagði
læri sitt að veði til bjargar hrossum í
neyð. Við erum heppin að eiga mann
eins og Fjölni.
„Þetta er náttúrlega ferlegt,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, nýskipaður
menntamálaráðherra, og hlær.
Katrín kennir námskeið í Endur-
menntun sem snýst um að lesa
jólabækur og greina þær. „Ég losaði
mig við flestar aðrar skuldbind-
ingar þegar hagir mínir breyttust
en það varð úr í samráði við nem-
endur mína að ég myndi
ljúka námskeiðinu,
þetta er náttúrlega
svo skemmtilegt,“
segir Katrín sem
hefur áður kennt
nokkur námskeið
hjá Endurmennt-
un. „Þetta er 30
kvenna hópur, við
veljum bækurn-
ar sem lesnar
eru í samráði
og fáum svo
einhverja af
höfundunum
í heimsókn.“
Þær bækur sem Katrín og henn-
ar nemendur taka fyrir eru Skap-
arinn, Konur, Vetrarsól, Rökkur-
býsnir og Rán. Nú þegar hafa tvær
þær fyrstnefndu verið teknar fyrir.
„Það voru skiptar skoðanir á þeim
en báðar eru þrælathyglisverðar,
fjalla um kvenhlutverkið en hafa
mjög ólíka nálgun á það.“ Katr-
ín segir kennsluna afar skemmti-
lega. „Þetta er skemmtilegasta
starf sem ég hef lagt stund á
að ráðherradómi meðtöld-
um. Sumir fara á hestbak
í frítímanum, ég kenni.“
- sbt
Menntamálaráðherra kennir í Endurmenntun
Kryfur jólabækurnar
í kvennafans
Katrín Jakobs-
dóttir Kennslan
er skemmtileg-
asta starf sem
hún hefur lagt
stund segir
nýr ráð-
herra.
Einn Rúv-ari inn fyrir annan
Berghildur Erna Bernharðsdóttir,
fréttamaður á Rúv, hefur verið ráðin
upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings.
Þar tekur hún við keflinu af öðrum
fyrrum fréttamanni ríkisútvarpsins,
Benedikt Sigurðssyni, sem gegndi
starfinu hjá gamla Kaup-
þingi reyndar. Hann
missti vinnuna við
gjaldþrot bankans en
Berghildur er í hópi
þeirra starfsmanna
Rúv sem var
sagt upp í
nóvember-
lok.