Fréttablaðið - 06.02.2009, Side 46
34 6. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT 2. sælgæti, 6. kusk, 8. mjöl,
9. bókstafur, 11. leita að, 12. slagorð,
14. urga, 16. pípa, 17. til viðbótar, 18.
kvabb, 20. tveir eins, 21. ögn.
LÓÐRÉTT 1. munnvatn, 3. kringum, 4.
peningagræðgi, 5. hamfletta, 7. ljótur,
10. framkoma, 13. atvikast, 15. sál,
16. espa, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ló, 8. mél, 9. eff,
11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. æð, 17.
enn, 18. suð, 20. dd, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. slef, 3. um, 4. fégirnd,
5. flá, 7. ófríður, 10. fas, 13. ske, 15.
anda, 16. æsa, 19. ðð.
„Ég er engin tískumaður en ég
hef gaman af að dressa mig
upp. Ég set stundum upp bindi
en aðallega þegar það á ekki
við.“
Sigtryggur Baldursson í viðtali við
Helgarpóstinn í janúar 1988. „Þarna var
í gangi tíska sem var bergmál af Duran
Duran-æðinu, menn brettu upp ermar á
jökkunum. Eftir að Bogomil Font fæddist
er tískuhliðin hans mál, ég nýt þess að
vera bara í gallabuxum heima hjá mér.“
„Ég átti ekki annarra kosta völ,“
segir Arnar Jónsson sem þurfti
að gefa Idol-draum sinn upp á bát-
inn vegna þátttöku sinnar í Euro-
vision. „Þeir eru tæknilega séð
að svíkja mig,“ bætir hann við og
vandar framleiðendum Idol ekki
kveðjurnar.
Arnar var í lok síðasta árs beð-
inn um að syngja með Edgari
Smára kántrílagið Easy to Fool í
Eurovision. Hann hafði áður kom-
ist í gegnum Idol-prufurnar og
bað framleiðendur þáttanna því
um leyfi hvort hann mætti einn-
ig syngja í Eurovision. Hann fékk
grænt ljós á það en eftir að Easy
to Fool komst í úrslitin kom babb
í bátinn. „Ég var kallaður á fund
og þeir sögðu að núna þyrfti ég að
velja. Þarna var leiðinlega komið
fram við mig því ég var búinn að
ráða mig í verkefni og kominn
hálfa leið með það. Þeir báðu mig
um að bakka út úr því sem ég, sam-
viskunnar vegna, hafði ekki í mér
að gera.“
Arnar er svekktur að geta ekki
haldið áfram í Idol því hann var
kominn í tuttugu manna loka-
hóp, einn tíu stráka. Átti hann því
ágæta möguleika á tveggja millj-
ón króna sigurlaununum. „Ég ætl-
aði að gera mitt besta og sá mig
komast eitthvað áleiðis. Þetta hefði
verið frábær kynning fyrir mig
sem söngvara og ég var orðinn
mjög spenntur. Svo kemur þetta
mál upp.“
Þór Freysson, framleiðandi Idol,
segir að Arnari hafi verið leyft að
taka þátt í Eurovision til að halda
öllum möguleikum hans opnum,
enda hefði hann getað staðið
frammi fyrir því að komast áfram
í hvorugri keppninni. „Við höfum
alltaf reynt að koma eins mikið
til móts við keppendur og hægt er
varðandi framkomu þeirra áður en
Idol byrjar,“ segir Þór.
Eftir að í ljós kom að Arnar
tekur þátt í úrslitum Eurovision
13. febrúar, kvöldið áður en útsend-
ingar frá Idol hefjast, þurfti aftur
á móti að taka í taumana. „Hann
tók ákvörðun eftir sinni bestu sam-
visku og vildi ekki svíkja félaga
sína og lagahöfundinn, sem er
mjög virðingarvert. Það er leiðin-
legt að missa hann úr keppninni
því hann er mjög hæfileikarík-
ur strákur en við höfðum nóg af
keppendum sem bönkuðu á dyrnar
til að koma í staðinn fyrir hann,“
segir Þór. Hann játar að aðrir Idol-
keppendur hafi komið að máli við
sig og kvartað yfir þátttöku Arn-
ars í Eurovision. Það hafi samt
ekki haft áhrif á sinnaskiptin.
Spurður hvort framleiðendur
Idolsins hafi lofað upp í ermina á
sér gagnvart Arnari segir hann:
„Það kom bara í bakið á okkur að
hafa veitt þetta leyfi. Auðvitað var
það mjög leiðinlegt að geta ekki
staðið við þetta en þetta þróaðist
svona.“
Torfi Ólafsson, höfundur Easy to
Fool, er hæstánægður með ákvörð-
un Arnars. „Hann er svo efnileg-
ur og góður söngvari að hann hefði
getað sagt sér það sjálfur að þessi
staða gæti komið upp, að hann færi
svona langt í báðum keppnum. En
það hefur aldrei boðað gott að eiga
tvær kærustur.“ freyr@frettabladid.is
ARNAR JÓNSSON: ÞURFTI AÐ GEFA IDOL-DRAUMINN UPP Á BÁTINN
Framleiðendur Idol sviku
Eurovision-söngvara
ARNAR JÓNSSON Framleiðendur Idolsins létu Arnar velja á milli Idol-keppninnar og
Eurovision og hann valdi á endanum hið síðarnefnda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Hljómsveitin Papar er ákveð-
ið vörumerki sem maður á hlut í
að hafa byggt upp. Einn daginn
fór ég að fá símtöl og var spurð-
ur hvort ég væri að syngja hér
og þar. Ég vissi ekkert hvað var í
gangi,“ segir Matthías Matthías-
son, kenndur við Papa.
Það sem var í gangi var að tveir
stofnmeðlimir Papa, þeir Georg
Ólafsson og Hermann Ingi Her-
mannsson (úr Logum) höfðu tekið
upp á því að endurvekja Papa-
bandið og voru farnir að spila.
„Þeir komu bara með lögbann og
við nenntum ekki að standa í ein-
hverju stríði,“ segir Vignir, bróð-
ir Georgs, sem var í Pöpum og er
í endurvöktu útgáfunni. Hljóm-
sveitin heitir því Hrafnar í dag. „Í
sjálfu sér skiptir engu hvað hljóm-
sveitir heita eins lengi og þær eru
skemmtilegar.“
„Eysteinn trommari fékk einka-
leyfi á Papa-nafnið og við lítum
svo á að Papar sé ekki starfandi
lengur,“ segir Matti. Ekkert Papa-
kombakk er í spilunum. „Þetta
hjá þeim er dálítið eins og ef Jón
Ólafsson og Halli Þorsteins myndu
byrja að spila sem Sálin hans Jóns
míns,“ segir Matti.
Hrafnar leikur á Rás 2 í dag kl.
11 og Vignir segir bandið vera í
gamla rokkinu og „írsku deild-
inni“ – „Auðvitað flýtur svo eitt-
hvert Papa-efni með. Það er ekki
hægt að banna manni að spila það,“
segir hann. - drg
Papar neyddir til nafnabreytingar
PAPAR Á HÁTINDI VINSÆLDANNA Matti er fremstur, Vignir lengst til hægri.
Íslenska fyrirtækið On the Rocks hefur
framleitt tölvuleik fyrir iPhone og iPod
Touch sem nefnist TiltaFun. Er hann fáan-
legur víðs vegar um heiminn í gegnum
iTun es-búðina á Netinu.
„Við byrjuðum við bankahrunið í byrjun
október og þetta tók um þrjá mánuði,“ segir
Pétur Sigurðsson, framkvæmdastjóri On the
Rocks, um leikinn. „Við erum upprunalega
auglýsinga- og kvikmyndafyrirtæki en sáum
fram á að það væri kannski ekki mikið að
gera í þeim bransa á næstunni.“
Pétur segir að TiltaFun sé einfaldur leikur
sem höfði meira til yngri aldurshópa. „Þótt
þetta sé langminnsti og einfaldasti leikur-
inn okkar erum við að leggja mikið í hann og
hann er í mjög háum gæðum.“
Leikurinn hefur fengið mjög góða dóma
að undanförnu, eða tvo fimm stjörnu dóma
á iTunes og 7 af 10 mögulegum á stærstu
tölvuleikjasíðu Evrópu, Pocketgamer. „Við
vissum ekki hvernig útkoman yrði en þetta
lofar góðu fyrir það sem koma skal,“ segir
Pétur og játar að hægt sé að hafa töluvert
upp úr svona leikjum ef allt gengur upp.
„Það er að aukast salan á þessum leikjum.
Þeir sem eru á topp tíu seljast í um fimmtán
þúsund eintökum á dag og þeir kosta frá 99
sentum upp í 9,99 dollara,“ segir hann. Til-
taFun byrjaði í 1,99 dollurum en er nú seld-
ur á kynningarverðinu 99 sent.
Vilji Íslendingar festa kaup á leiknum
þurfa þeir að stofna iTunes-reikning í gegn-
um síðuna Tunecard.biz og velja síðan upp-
hæð sem þeir vilja kaupa fyrir.
On the Rocks er með fleiri tölvuleiki í
undirbúningi, þar á meðal leik sem verður
byggður á teiknimyndinni Thor sem Caoz
framleiðir. - fb
Gerðu tölvuleik fyrir iPhone
PÉTUR SIGURÐSSON Framkvæmdastjórinn ásamt sam-
starfsfólki sínu hjá On the Rocks. Hann er hæstánægð-
ur með þá dóma sem TiltaFun hefur fengið.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Auðunn Blöndal, sjónvarpsmað-
urinn góðkunni, hefur verið
annálaður smekkmaður á
bíla. Þótt fátt jafn gott og
mæla göturnar á glæsileg-
um faraskjótum. Nú síðast
var það BMW sem
heillaði Auðun upp úr
skónum. En sjónvarps-
maðurinn hefur nú
skipt um bíl og sá er ekki af verri
endanum, skínandi fögur Audi-
bifreið klæðir nú Auðun hvert sem
hann fer. Samstarfsmaður hans,
Sverrir Þór Sverrisson, lætur sér
hins vegar nægja hógværari bifreið,
Grand Vitara-jeppling.
Þórður Guðjónsson, þekktastur
fyrir afrek sín á knatt-
spyrnuvellinum með ÍA,
hyggst söðla rækilega
um. ÍA féll sem kunnugt
er niður í fyrstu deild
og ætlar Þórður nú
að tækla lands-
málin. Hann
hefur tilkynnt
framboð sitt í Norðvesturkjör-
dæmi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
setur markið hátt; ætlar að bjóða
sig fram til eins af þremur efstu
sætunum sem gætu gefið þingsæti
í kosningum. Þórður á ekki langt að
sækja hæfileikana í pólitík, frænka
hans er Inga Jóna Þórðardóttir,
fyrrverandi borgastjórnarfulltrúi og
forsætisráðherrafrú. Hún er systir
Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara á
Englandi, sem er pabbi Þórðar.
Ágúst Borgþór,bloggari og rit-
höfundur, greinir frá því á heima-
síðu sinni að hann sé hættur hjá
Íslensku auglýsingastofunni. Ágúst
segir í færslunni að engan bilbug
sé á honum að finna þrátt fyrir
allt en undrast þó að hann sé ekki
enn kominn á rithöfundalaun frá
ríkinu. „Það er dálítið magnað að
horfa upp á mér töluvert yngri
kunningja detta inn á þessi laun,
fólk sem jafnvel er að leita
til mín um ráðleggingar
og aðstoð við skrif sín,
höfundar sem eru miklu
minna þekktir en ég og
með minna á bak
við sig,“ skrifar
Ágúst. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
HELGARBLAÐIÐ
Ragnhildur Gísladóttir - þriðju gráðu irheyrsla
“Ég elska Ísland.” - kátir útlendingar kvaddir með brennsa og
hrútspungum.
HEIMILI OG HÖNNUN
Sigursæl í Svíþjóð. Katrín Ólína Pétursdóttir hlýtur verðlaun Forum
Aid í lokki innanhússarkitektúrs.
MENNING
Meistara Alfreðs Flóka minnst, irlitssýning verka hans opnaði í
gær.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Rúnars Júlíussonar.
2 Gunnar I. Birgisson.
3 Framsóknarflokkinn.