Tíminn - 04.03.1983, Page 2

Tíminn - 04.03.1983, Page 2
Tillaga um nýja álvidrædunefnd samþykkt í gær í atvinnumálanefnd með mótatkvæði fulltrúa Alþýðubandalagsins: _ VHMtÆÐUR VIÐ ALUSUISSE UR HðNDUM IÐNAÐARRAÐHERRANS Hugmyndum þriggja ráðherra um málamiðiun hafnað f þingflokkum Framsóknar- Alþýðu- og Sjálfstæðisflokks ■ Sem eins konar málamiðlunartil- lögu, varðandi skipan nýrrar álviðræðu- nefndar, lagði forsætisráðherra fram til- lögu á fundi ríkisstjómarinnar í gær- morgun, sem gerir ráð fyrir 5 manna álviðræðunefnd, þar sem stjórnaraðilar eigi 3 fulltrúa og fulltrúar stjórnarand- stöðu eigi tvo fulltrúa og Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra skipaði formann nefndarinnar. Tillagan hlaut á ríkisstjórnarfundinum fylgi þeirra Svav- ars Gestssonar og Steingríms Her- mannssonar, en ákveðið var að fresta ákvörðun um hana, þar til þingilokkum hefði verið kynnt hún. Síðan gerðist það í eftirmiðdaginn í gær, að þingflokkar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks sam- þykktu að standa að þeirri tillögu sem lá fyrir í atvinnumálanefnd sameinaðs þings, en Tíminn greindi efnislega frá þeirri tilllögu í gær. Hún var samþykkt síðdegis á fundi atvinnumálanefndar með öllum greiddum atkvæðum, nema fulltrúa Alþýðubandalagsins, Garðars Sigurðssonar. Tillagan er svohljóðandi. „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að óska án tafar eftir viðræðum við Alusuisse um endurskoðun á samningi íslenska ríkisins við fyrirtækið um rekstur íslenska álfélagsins. Til að ann- ast viðræðurnar skal ríkisstjórnin þegar skipa 6 manna viðræðunefnd og skal hver þingflokkur tilnefna einn fulltrúa, forsætisráðherra einn og Landsvirkjun ein. Nefndin kýs sér formann. Við endurskoðun á samningnum verði lögð rík áhersla á verulega hækkun raforkuverðs. Jafnframt verði leitað eftir hækkun á raforkuverði, sem gildi aftur í tímann. Alþingi telur að stækkun álversins komi til greina í tengslum við viðunandi hækkun á raforkuverði. Einnig komi til reina, að nýr hluthafi gerist aðili að slenska álverinu. Þá verði og leitað eftir samkomulagi um breytingar á skattaákvæðum samn- ingsins. Til að stuðla að því að viðræður geti hafist án tafar verði fallist á að setja deilumál um verð á súráli, rafskautum og skatta í gerðardóm, sem aðilar koma sér saman um. Viðræðunefndin skal hafa fullan að- gang að öllum þeim gögnum sem þegar liggja fyrir um mál þetta. Ennfremur er nefndinni heimilt að leita samstarfs við hvern þann aðila sem hefur sérþekkingu á málum er varða störf hennar. Opinber- um aðilum er skylt að veita nefndinni hverjar þær upplýsingar sem hún óskar. Kostnaður af starfi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“ Þingsályktunartillögu atvinnumála- nefndar fylgir svohljóðandi greinargerð: „Að undanförnu hefur komið í Ijós að iðnaðarráðherra hefur ekki auðnast að ná víðtækri samstöðu um hagsmunamál þjóðarinnar gagnvart Alusuisse. Ekkert tillit hefur verið tekið til ábendinga annarra í máli þessu og ráðherra lagt fram þingmannafrumvarp í Nd. Alþingis um einhliða aðgerðir. Þar með hefur ráðherrann siglt málinu inn á brautir sem enginn sér fram úr. Að þessari tillögu standa allir nefndar- menn atvinnumálanefndar nema fulltrúi Alþýðubandalagsins, Garðar Sigurðs- son. Nefndarmenn vilja með þessari tillögu leggja áherslu á víðtæka sam- stöðu til að ná fram mikilvægum hags- munamálum og telja það best gert með þeim hætti sem fram kemur í tillögunni." „Reiðubúinn til að standa frammi fyrir vantrauststillögu” — segir Hjörleifur Guttormsson, idnadarrádherra, en vill ekki tjá sig um það hvort þingsályktun- artillaga atvinnumálanefndar, um nýja álviðræðunefnd er vantrauststillaga á hann ■ Hjörleifur Guttormsson. ■ „Égmetþaðmálogtjáimigumþað, fyrst þegar slíkt liggur fyrir,“ sagði Hjör- leifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, þegar blaðamaður Tímans spurði hann í gær hvort hann liti á tillögu þá sem samþykkt var í atvinnumálanefnd í gær, um skipun nýrrar álviðræðunefndar, þar sem málið væri þar með tekið úr höndum hans, sem vantrauststillögu. „Það hafa áður heyrst raddir á meðal þingmanna á Alþingi um að það ætti að flytja vantraust á mig, og ég hef lýst mig reiðubúinn til þess að standa frammi fyrir slíkri tillögu hvenær sem er,“ sagði Hjörleifur. “Þessi tilllaga sem atvinnumálanefnd hefur nú samþykkt," sagði Hjörleifur „hún þjónar ekki hagsmunum Islands, og það væru meiriháttar mistök, ef hún yrði samþykkt á Alþingi. Ég á nú eftir að sjá að þessi tillaga verði samþykkt hér á Alþingi, og reyndar á ég efti'r að sjá að hún komi hér fram. Aðspurður um það hvort slíkt yrði brottfararatriði fyrir Alþýðubandalagið úr ríkisstjórn, sagði Hjörleifur: „Við metum stöðuna frá degi til dags, í sambandi við stjórnarsamstarf.“ Hjörleifur sagði jafnframt í samtali sínu við Tímann: „Það eru nú tíðindi útaf fyrir sig, að formaður Framsóknar- flokksins stendur að ákveðnum tillögu- flutningi í ríkisstjórn, ásamt forsætisráð- herra, og fær ekki stuðning við þann málabúnað í þeim flokki. Slíkt ber nú ekki vott um að það sé mikil eining þar innan dyra, eða mikið traust á formann- inum, en ég verð hins vegar að vona að þeir framsóknarmenn eigi eftir að sjá að Halldór Ásgrímsson, annar fulltrúi Framsóknarflokksins í atvinnumálanefnd: „Iðnaðarráðherra búinn að sigla málinu í strand” ■ „Alþýðubandalagið tók þá ákvörð- un að flytja fruntvarp á Alþingi um einhliða aðgerðir gagnvart Alusuisse, en það eru engir, að alþýðubandalags- mönnum undanskildum, sem hafa trú á því að það sé rétt í þessari stöðu,“ sagði Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins og annar fulltrúi flokksins í atvinnumálanefnd sameinaðs þings, að loknum fundi nefndarinnar í gær, þar sem þingsályktunartillagan um nýja álviðræðunefnd, sem kysi sér sjálf formann, en fengi ekki skipaðan for- mann af iðnaðarráðherra, var samþykkt. „Það hafa verið lagðar fram tillögur formanns Framsóknarflokksins í ríkis- stjórn," sagði Halldór, „um að samn- ingaleiðin yrði reynd til þrautar. Hann hefur talið að sú leið hafi ekki verið reynd og þess vegna þurfi að gera það, áður en gripið verði til einhliða aðgerða. Afstaða Alþýðubandalagsins kemur glöggt fram í þessu frumvarpi, og okkur er ekki kunnugt um að nokkuð hafi breyst í þeirri afstöðu. Það er ekki hægt að bera ábyrgð á því að þessi mál séu í algjörri kyrrstöðu. Með þessari tillögu er atvinnumálanefnd að gera sitt til þess að málið komist strax á hreyfingu. Það verður ekki við það unað að þetta fyrirtæki greiði svo lágtraforkuverð sem raun ber vitni lengur. Iðnaðarráðherra er búinn að vera með þetta mál árum saman og ekkert hefur gengið. Hann er búinn að sigla því nú í strand, og þess vegna eru menn nú að reyna að koma málinu úr þeirri sjálfheldu sem ráðherra hefur komið því í.“ -AB ■ „Við alþýðubandalagsmenn höldum að sjálfsögðu fast við tillögu ráðherranna þriggja, og munum leggja áhcrslu á að það verði unnið samkvæmt henni,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, er Tíminn spurði hann um hver afstaða Alþýðubandalags- ins væri nú, eftir að þingflokkur Fram- sóknarflokksins, hefði ákveðið að standa að þeirri tillögu sem lá fyrir í atvinnu- ntálanefnd um nýja skipun álviðræðu- nefndar. ■ Svavar Gestsson. Svavar Gestsson, formadur Alþýðubandalagsins: „Höldum fast vid tillögu ráðherranna” „Ríkisstjórnin hlýtur að fylgja þeirri Svavar var að því spurður hvernig stefnu í meginatriðum, sem þar var lögð hægt væri að halda fast við ráðherrahug- til,“ sagði Svavar Gestsson. Svavar myndirnar frá því á ríkisstjórnarfundi, sagðist ekkert hafa um það að segja þar sem ljóst væri að Alþýðuflokkur og hvaða áhrif það hefði á veru Alþýðu- Sjálfstæðisflokkur hygðust ekki tilnefna • bandalagsráðherranna í ríkisstjórn að fulltrúa íálviðræðunefndsamkvæmtráð- þingflokkur Framsóknarflokksins stæði herrahugmyndunum: „Þú segir mér að tillögunni sem samþykkt var í at- freftir,“ sagði Svavar, „ég hef aldrei vinnumálanefnd, ásamt fulltrúum Al- heyrt það fyrr.“ þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. -AB Tómas Árnason, vidskiptarád- herra um ráð- herratillöguna: „Tillagan var ekki samþykkt í ríkis- stjórn”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.