Tíminn - 04.03.1983, Side 4
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1983
■ Síðasta sýning þess heimsþekkta leikflokks „Bread and Puppet Theatre“ er í
Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þessa mynd tók Ijósmyndari blaðsins á xflngu flokksins í gær,
þar sem verið var að undirbúa sýningu á leikverkinu „Þrumuveður yngsta barnsins.“
(Tímamynd Róbert)
Patreksfjarðar-
söfnunin nemur
á fimmta hundrað
þúsund krónum
■ Nú er mánuður liðinn síðan fjár-
söfnun hófst vegna nauðstaddra Patreks-
firðinga eftir náttúruhamfarirnar, sem
þar urðu þann 22. janúar síðastliðinn.
Með þessu stutta ávarpi viljum við,
sem að söfnuninni höfum staðið, færa
aíúðarþakkir þeim fjölmörgu víðsvegar
um landið, sem þegar hafa lagt þessu
málefni lið með rausn og myndarskap.
Við viljum leggja áherslu á það að
með fjársöfnun þessari er um skyndi-
hjálp að ræða, sem hvergi nær til að bæta
nema lítið eitt af skaða fjölda fólks, en
mun koma sér vel fyrir þá, sem njóta,
þrátt fyrir mikinn sársauka og marghátt-
að óbætanlegt eignatjón.
Söfnunin nemur nú á fimmta hundrað
þúsund króna.Og verður það fé nú þegar
sent vestur og afhent hinum mætustu
mönnum á Patreksfirði til úthlutunar í
samráði við hreppsnefnd, sem öllum
hnútum er kunnugust.
Við höfum ákveðið að halda áfram
söfnuninni til 15. þ.m. - 15. mars og
væntum þess að við bætist og enn fleiri
verði sem sjá sér fært að leggja með
okkur hönd á plóginn.
I þeirri von, kærusamborgarar, kveðj-
um við ykkur að sinni og minnum á
Patreksfj arðarsöfn un i na, giróreikning
nr. 17007-0 á pósthúsum, í bönkum og
sparisjóðum landsins.
Virðingarfyllst,
Sigfús Jóhannsson Steingrímur Gíslason
Svavar Jóhannsson Hanncs Finnbogason
Tómas GuömundssonGrímur Grímsson
t
Móðursystir mín
Hersíiía Sveinsdóttir
fyrrverandi skólastjóri,
lést að heimili sínu 2. mars.
Fyrir hönd vandamanna
Sveinfríður Sveinsdóttir.
Alúðar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður.tengdaföður og afa
Svavars Péturssonar
frá Laugarbökkum
Skagafirði
Sigríður Helgadóttir
Marta Svavarsdóttir
Helgi Svavarsson
SteingrímurSvavarsson
Elísabet Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Stefán Haraldsson
Edda Þórarinsdóttir
VordísValgarðsdóttir
Karl Karelsson
Við þökkum öllum þeim sem heiðruðu minningu
Ólafs Jónssonar
bónda Eystra-Geldingaholti
og sýndu okkur vináttu vegna fráfalls og útfarar hans. Starfsfólki
Sjúkrahúss Suðurlands þökkum við góða umönnun.
Fjölskylda hins látna.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður
okkar og tengdamóður
Jóhönnu Ásgrímsdóttur
Björn Bjargsteinsson Ásgrímur H. Bjargsteinsson
Margrét Bjargsteinsdóttir Dan íel Pálsson
Sérframboð sjálfstæðismanna á Vestfjörðum:
„Flokksvélin
ekki notuð”
VESTFIRÐIR: Sjö manns hafa gefið
kost á sér í skoðanakönnun Sérfram-
boðs sjálfstæðismanna á Vestfjörðum
sem ákveðin hefur verið um næstu
helgi. „Framkvæmdin verður eins og í
prófkjöri með atkvæðaseðlum og
leynilegri atkvæðagreiðslu, að öðru
leyti en því flokksvélin verður ekki
notuð, heldur vinna sjálfboðaliðar í
öllum byggðum Vestfjarða að fram-
kvæmd skoðanakönnunarinnar", segir
í frétt frá sérframboðsmönnum.
Þeir sem gefið hafa kost á sér eru:
Guðjón Kristinsson og Halldór Her-
mannsson, skipstjórar á fsafirði,
Hjálmar Halldórsson á Hólmavík,
Jóna Kristjánsdóttir í Alviðru, Jónas
Eyjólfsson í Hnífsdal, Kolbrún Frið-
þjófsdóttir í Litlu-Hlíð, Sigurlaug
Bjarnadóttir og Þórarinn Sveinsson á
Hólum í Reykhólahreppi.
Skoðanakönnunin er sögð opin að
því tilskildu að viðkomandi undirriti
stuðningsyfirlýsingu við sérframboðið
í alþingiskosningunum og mótmæli
jafnframt ákvörðun kjördæmisráðs um
að hafna prófkjöri um val á frambjóð-
endum flokksins.
- HEI
■ Haraldur Haraldsson, bæjarstjóri ávarpaði gesti í mótttöku í tilefni af
afhendingu íbúðanna.
_ _ __ _ _ Mynd G.S. Ísaflrði
Hnífsdalur:
Átta nýjar
leiguíbúðir
afhentar
Bænda-
för til
Nordur-
landa
■ Bændaför til Norður-Noregs, Sví-
þjóðar og Finnlands er fyrirhuguð á
vegum Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins nú í sumar ef næg þátttaka
fæst. Lagt yrði af stað þann 21. júní og
komið heim aftur þann 5. júlí.
Samkvæmt áætlun U.L. verður flog-
ið til Tromsö. Þaðan verður ekið
norður eftir Noregi alla leið til Kirken-
es. Frá Kirkenes er gert ráð fyrir að
aka til Kaaresutant í Finnlandi, síðan
til Kiruna í Svíþjóð og aftur til Tromsö
í Noregi með viðkomu í Narvik. í
ferðinni verða skipulagðar heimsóknir
til bænda og tilraunastöðva og einnig
gert ráð fyrir að skoða laxeldi í sjó og
heimsækja loðdýrabændur. Þá verður
farið á venjulegar ferðamannaslóðir
og heimkynni Lappa á norðurslóðum.
Ferðin er skipulögð í samvinnu við
bændasamtökin í Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi.
■ Búnaðarþing hefur samþykkt að
fela Búnaðarfélagi íslands að kanna
viðhorf meðal- bænda sem orðnir eru
sextugir til þess möguleika að byggðar
verði séríbúðir fyrir aldraða á lögbýl-
um. En erindi þetta var lagt fram á
Búnaðarþingi af Búnaðarsamba'ndi
Austur-Húnvetninga.
Jafnframt verði kannaður vilji
ÍSAFJÖRÐUR: í síðustu viku voru
afhentar í Hnífsdal 8 nýjar íbúðir sem
byggðar eru eftir leigu- og söluíbúða-
stjórnvalda fyrir því að ákvæði þessa
efnis verði sett í lög um Húsnæðis-
stjórn ríkisins, sem nú eru í endur-
skoðun, með það fyrír augum að
stofnunin veiti hagkvæm lán til þessara
bygginga, svo og viðhorf stjórnar Líf-
eyrissjóðs bænda í sama augnamiði.
-HEI
kerfi Húsnæðisstofnunar ríkisins. Alls
hafa þá verið byggðar 57 íbúðir eftir
því á ísafirði og í Hnífsdal, að sögn
Guðmundar Sveinssonar, formanns
bæjarráðs.
Að sögn Magnúsar Reynis Guð-
mundssonar, bæjarritara munu allar
nýju íbúðirnar verða í eigu bæjarins og
leigðar út. Mikill leiguíbúðaskortur
hefur verið á ísafirði þrátt fyrir það að
bærinn eigi þegar töluvert af leiguíbúð-
um - sennilega fleiri hlutfallslega en
flest önnur sveitarfélög, að því er
Magnús Reynir telur. En bærinn verð-
ur að ráða töluvert af fólki að t.d. bæði
í heilbrigðisþjónustuna og í skólana og
oft veltur þá á því að hægt sé að útvega
viðkomandi íbúðir á staðnum. - HEI
- HEI
ÍBÚÐIR FYRIR ALDRAÐA
REISTAR Á LÖGBÝLUM?
Þorlákshöfri:
RUM 30% TEKNA
TIL FRAMKVÆMDA
— Nýr grunnskóli og gangstéttagerd aðalmálin
ÞORLÁKSHÖFN: „Helstu fram-
kvæmdir sem ákveðnar hafa verið á
þessu ári eru byrjun á 1. áfanga að
nýjum grunnskóla, samkvæmt nýrri
teikningu, og að fullgera gangstéttir
við þær götur sem bundnar hafa verið
með varanlegu slitlagi", sagði Stefán
Garðarsson, sveitarstjóri í Þorláks-
höfn spurður hvað efst væri á baugi í
framkvæmdum hreppsins.
Hann kvað þarna um stóra byggingu
að ræða, M.a. eigi hún að rúma 8.
kennslustofur og um 600 fermetra
fjölnýtisal sem rúma eigi um 200
manns í sæti ef svo bjóði við að horfa.
En Stefán tók fram að í Þorlákshöfn sé
t.d. ekkert félagsheimili ennþá. Varð-
andi framkvæmdahraða kvað Stefán
hafa verið talað um þennan skóla sem
sex ára verkefni. Áður hefur verið
byggt við skólann. „En fjölgunin er
svo ör, að allar viðbyggingar springa á
fáum árum“, sagði Stefán og nefndi
sem dæmi að um 300 af um 1.100
fbúum Þorlákshafnar eru nú í grunn-
skólanum.
í Ölfushreppi luku menn við gerð
fjárhagsáætlunar ársins 1983, þegar í
desemberbyrjun s.l. og taldi Stefán að
þeir hefðu veriðfyrstireðaa.m.k. með
fyrstu sveitarfélöagum til að ljúka
slíku verki. Af um 23,8 milljóna króna
áætluðum tekjum sagði Stefán um 7
milljónir króna áætlaðar til verklegra
framkvæmda, eða rúm 30% af tekjum.
Auk fyrrgreindra framkvæmda sem
ákveðnar hafa verið kvað Stefán ýmsar
aðrar sem ekki sé þó búið að móta.
M.a. verði hugsanlega farið út í enn
frekari gatnagerð. Sex götur hafi verið
malbikaðar í fyrra og til tals hafi komið
að halda áfram - ljúka tveim í sumar
og reyna síðan að ljúka malbikun allra
gatna á kjörtímabilinu. Ennþá sé hins
vegar ekki ákveðið hvort af þessu
verður.
- HEI