Tíminn - 04.03.1983, Side 6
■ Jane Fonda hefur sýnt mikið viðskiptavit í sambandi
við líkamsræktarstöðvar þær, sem hún hefur komið á fót.
••
■ Liv Ullmann er mikið niðri fyrir, þegar hún lýsir skömm sinni á þeirri sjálfsdýrkun, sem henni finnst koma fram í heilsuræktaræði því, sem Jane
Fonda hefur gengið manna best fram í að hrinda af stað.
• íéíIIS
R.lll ' ): $fi
pÉi ipil
Liv Ullmann skammar Jane Fonda;
„ÞÚ TEYMIR KONIIR
A ASNAEYRUNUM!”
■ Liv Ulhnann er orðin 43
ára. Hún liefur nýlega tekið
stórt upp í sig í samhandi við
líkainsræktar- og megrunaræði
það, sem komið er upp í
iiandaríkjunum undir dyggri
stjórn Jane Fonda.
- A sama tima ogáhangend-
ur Jane kaupa vítamín fyrir
milljónir dollara, eru ekki til
peningar fyrir einni einustu
saltupplausnartöflu, sem gæti
bjargað bömum frá því að
þorna upp af niðurgangi, segir
Liv.
Liv hefur undanfarin ár gert
víðreist í þróunarlöndunum,
og þar hafa augu hennar opnast
fyrir því, hversu alvarleg
vandamál við er að stríða.
Henni finnst nú orðið lítilmót-
legt að setja það á oddinn að
ná aukakílóum af sílspikuðum
Vesturlandabúum, þegar börn
og fullorðnir eru að veslast upp
úr hungri og vesöld víða um
heim.
- Við ættum að kunna að
meta hnellnar og kátar konur,
segir hún og ráðleggur þeim,
sem fengið hafa megrunarkúra
og líkamsrækt á heilann, að
sleppa því að falla fyrir næstu
megrunarkúrabók og kaupa
sér hcldur í staðinn t.d. bók
eftir Balzac, sem veiti hugsun-
inni og heilanum æfingu, ekki
veiti af á þeim vígstöðvum.
- Konur ríka heimsins með
Jane Fonda í fararbroddi hefðu
gott af því að koma til landa eins
og Eþíópíu og Kampucheu.
Þá sæju þær kannski betur
sjálfar sig í samhengi við á-
standið í heiminum, segir Liv.
Liv er um þessar mundir að
skrifa bók um reynslu sína af
því að ferðast um þróunarlönd-
in sem sendiherra UNICEF,
barnahjáipar Sameinuðu þjóð-
anna.
Losa sorgartár
líkamann við
eiturefni?
■ Vísindamenn í Banda-
ríkjunum halda þvi fram, að
tár, sem stafa af sorg, kunni
að fjarlægja eitruð efni úr
likamanum.
Læknir við St. Paul-Rams-
ey Mcdical Centre í Minne-
sota fékk 100 sjálflmðaliða til
að horfa á sorglegar kvik-
myndir. Hann safnaði sainan
tárunum, scm hrundu af
hvörmum þeirra yfir hörmum
þeim, sem söguhctjurnar
urðu fyrir. Þá bað hann þá að
standa yfir hrúgum af ný-
skornuin lauk.
Tárunum, sem þá féllu,
safnaði læknirinn líka saman.
Við efnagrciningu kom fram,
aö tárin, sem stöfuðu af geðs-
hræringu, innihéldu mun
meira af eiturefnum en hin,
sem einungis stöfuðu af ert-
ingu.
Vann stóran sigur í skólaskákmóti í Finnlandi:
TEFLDI 6 SKAKIR
0G VANN ALLAR
- rætt við 10 ára skákkappa, Hannes Hlffar Stefánsson
■ í síðasta mánuði var haldin í
Turku (Ábo) í Finnlandi ein-
staklingskeppni í norrænni
skólaskák. Keppt var í 5 aldurs-
flokkum. Islensku keppendurnir
stóðu sig með mikilli prýði í
keppninni, tveir keppendur, en
þcir voru tvcir úr hverjum
aldursflokki, og í efsta og lægsta
aldursflokknum skipuðu Islend-
ingar tvö efstu sætin. í efsta
flokknum kepptu tveir kunnir
skákkappar, Karl Þorsteins, sem
varð efstur og Elvar Guðmunds-
son, sem varð númer tvö. I yngsta
flokknum 10 ára piltur úr
Reykjavík, Hannes Hlífar
Stefánsson og fékk hann 6 vinn-
inga úr 6 skákum, eða fullt hús,
eins og það heitir á fagmáli. Við
áttum stutt spjall við þennan
unga og efnilcga skákkappa.
Af hverju varst þú valinn til að
taka þátt í þessu móti?
„Það var út af því að ég •
og annar strákur vorum nýbúnir
að taka þátt í löngu skákmóti,
skákþingi Reykjavíkur."
Voru keppendur þar á öllum
aldri?
„Já, já það voru margir dálítið
sterkir skákmenn þar. Ég fékk
fjóra og hálfan vinning af 11
vinningum."
Vannstu eitthvað af sterkum
skákmönnum?
„Já, ég vann einn sem var nteð
1700 og eitthvað ELO stig, ég
held að hann hafi verið sá
sterkasti sem ég vann. Ég var
með 1315 stig fyrir Reykjavíkur-
mótið, en svo á ég eftir að
hækka, ég hugsa að ég hækki
töluvert eftir þessi tvö mót.“
En svo gekk þér mjög vel úti í
Finnlandi?
„Já, það var allt annað, þeir
voru ekkert mjög sterkir þar. Ég
vann allar skákirnar sem ég tefldi
og fékk 6 vinninga. Þetta var alls
ekkert erfitt skákmót."
Var þetta ekki fyrsta skipti
■ Hannes Hlífar við skákborðið Tímamvnd GE