Tíminn - 26.03.1983, Síða 1

Tíminn - 26.03.1983, Síða 1
Fermingar á pálmasunnudag - bls. 12-13 Bla 1 ð 1 Tvö blöð ídag Helgin 26.-27. mars 1983 72. tölublað - 67. árgangur Bankarrair í Reykjavlk íhuga að koma upp beinlínuvinnslu: „MIKIÐ FYRIRTÆKI AÐ KOMA ÞVÍ UPP” en talid ad kostnadurinn muni skila sér fljótt aftur segir Jónas Haralz, bankastjóri ■ „Það hefur verið til athugun- ar hjá bönkunum í Revkjavik undanfarin þrjú ár að taka upp svokallaða beinlínuvinnslu og þess er að vænta að ákvörðun verði tekin nú á næstunni,“ sagði Jónas Haralz bankastjóri í sam- tali við Tímann í gær. „Beinlínuvinnsla felst í því að það er komið á fót beinu sam- bandi á símalínum milli af- greiðslustöðva bankanna og reiknistofnunar. Gjaldkerar í af- greiðslustöðvunum verða með skjái sem þeir geta kallað fram upplýsingar á og allt sem gerist við afgreiðslu er skráð og sent samstundis til reiknistofnunar- innar. Þessi tækni hefur verið notuð í flestum nágrannalanda okkar í 10-12 ár. Þetta er mikið fyrirtæki að koma þessu upp en það er talið að það geti bætt þjónustu-við viðskiptavini bank- anna og skapað bönkunum aukið oryggi. Einnig á það með tíð og tíma að geta sparað fólkshald. Ég get ekkert sagt um kostn- aðinn á þessu stigi, hann er umtalsverður en það er talið að hann muni skila sér tiltölulega fljótt aftur." Jónas sagði að cf af yrði mýndu standa að uppsetningu þessarar tækni sömu aðilar og standa að reiknistofnun bank- anna þ.c.a.s. allir bankar í Reykjavík og nokkrir sparisjóð- ir. .r-JÍJK. ■ Leikhópar á Reykjavíkursvæðinu efndu til uppákomu í góða veðrinu á Lækjartorgi í gær, og vöktu athygli íjölda vegfarenda. Tilefnið; húsnæðisleysi lcikstarfseminnar í borginni. „Það er búið að vísa okkur út úr Hafnarbíói og hvert eigum við að fara? Út á götuna. Það er verið að vega að tilvist allra frjálsra leikhópa í borginni, Gránufjélagsins, Revíuleikhússins, Alþýðuleikhússins og leikfélög mcnntaskólanna eru í vandræðum með að finna hús fyrir sína starfsemi. Við viljum líka að áhugaleikhópum á landsbyggðinni sé gefinn kostur á að sýna í Reykjavík, en hvar? Þrátt fyrir allar byggingarnar í Reykjavík erum við á götunni,“ sagði talsmaður hópsins við blaðamann Tímans eltir uppákomuna. Tímamynd Arni Sæberg Sigurrós Kristinsdóttir dregur úr innsendum svörum við áskrifcndagetraun Timans í gærdag. Þeir Elías Snæland Jónsson, ritstjóri Timans og Þorkell Gfslason, borgarfógeti, fylgjast með. (Tímamynd G.E.) Daihatsubifreiðin fór á Höfn; „ERTU AÐ SEGJA SATT — unnum vi6 bílinn?" voru fyrstu orð Sigrfðar Sigurgeirsdóttur, þegar hún frétti um virmingirm ■ „Ég á ekki til orð. Ertu að segja salt, unnum við bílinn?" sagði Sigríður Sigurgeirsdóttir á Hiifn í Hornafirði, þegar lienni var tilkynnt að stærsti vinningurínn í áskriftagetraun Tímans, Daihatsu Charade, að verðmæti 172.(KI0 krónur, hcföi koinið á seðil eiginmanns hcnnar, Eríðriks Krístjánssnn- ar, rafveitústjóra, en drcgið var úr réttum svörum að við- stöddum borgarfógcta í gær. „Þctta cr cinkennilcgt, cg á einmitt bíl af sþmu gcrð, þriggja ára gamlan, og var að Íiugsa um að fara að skipta," sagði Sigríður og bætti við að það hcfði verið hún sem fyllti út scðilinn þrátt fyrir að hann hefði verið á náfni ciginmanns- ins, cn á hans nafni cr áskriftin aö Tímanum. Sigríður sagöi að þau hjónin ættu tvo bíla, cn í fjölskyldunni væri þrcnat mcð bílpróf. Hún sagðist þó tclja víst að gamli Daihatsúinn yrði seldur fljót- lcga. - Hafið þiö áður unnið í happdrætti? „Við höfum unnið smávinn- inga. Engan líkan þessum - cnda1 er cg alveg orölaus," sagði Sigríður. Hún sagðist búast við að annað hvort cða bæði þeirra hjóna kæmi til Reykjavíkur strax-eftir helgi og sækti vinn- inginn. -Sjó. UVERPOOL OG UNITED Á SKIÁNUM KL 14.50 Sjónvarpað er beint frá Wembley! ■ I dag verður sýnt beint í íslenska sjónvarpinu frá leik Liverpool og Manchester Uni- ted í úrslitum ensku deildabik- arkeppninnar á Wembley í Lundúnum. Bjami Felixson mun hefja útsendingu klukkan 14.15 með syrpum úr ensku knattspýrnunni, en klukkan 14.50 hefsl svo úrslitaleikur- inn. Liverpool og Manchester United em íslenskum áhuga- mönnum um knattspyrnu að góðu kunn. í síðasta lcik lið- anna, scm leikinn var 26. fchrúar á Old Trafford, heima- velli Manchester United, stilhu bæði lið upp 11 leikmönnum sem allir eru landsliðsmenn. Þú varð jafntcfli. Hvað verður nú? Bátasjómenn í Grindavík æfir vegna togveida í „frímerkinu”: „VEIT EKKI HVAÐ Á EFTIR AÐ SKE HÉR” ■ „Menn eru svo óhressir yfir þessari opnu, að ég veit eiginlega ckki hvað á eftir að ske hér fyrir rest, því það verður ekki séð að nein friðun sé lengur í gildi“, sagði Bjarni Þórarinsson, hafn- arstjórí (áður sjómaður) í Grinda- vík. En bátasjómenn þar eru nú æfir yfir því að opnað hefur verið fyrír togarana til veiða 10 mílur inn á „frímerkið", sem þeir kalla, sem er friðað hrygningar- svæði á Selvogsbanka. Þannig að togararnir geti nú fiskað þarna á sama tíma og þeir eru látnir taka upp netin. Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins segir erfitt fyrir ráðuneytið að ganga í berhögg við vísindalcgt álit Haf- rannsóknarstofnunar og álit stjórnar Fiskifélagsins, sem hafi samþykkt þessa opnun. Jakob Magnússon, fiskifræðingur kvað þá hafa farið eftir gögnum úr rannsóknarleiðöngrum á þetta friðaða svæði, þegar það hefur verið lokað, þar sem hafi sýnt sig að sára lítill þorskur hafi verið á því svæði sem nú var opnað. „Við vitum þó betur, því þarna erum við búnir að vciða þrosk á hrygningartímabilinu í áraraðir. Fiskifræðingarnir þyrftu því að lesa upp og læra betur", segir Bjarni Þórarinsson. - HEI Sjá nánar bls. 2.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.