Tíminn - 26.03.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.03.1983, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 26. MARS 1983 Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs Laus staða Staða (75%) sérfræðings í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp við Sjúkrahús Keflavíkurlæknis- héraðs er laus til umsóknar. Æskilegt væri að umsækjandi hefði einhverja reynslu í almennum skurðlækningum. Skilyrði fyrir veitingu er að umsækjandi verði búsettur í Keflavík eða nágrenni. Umsóknir sendist til stjórnar sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs fyrir 10. maí 1983 ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Staðan veitist frá 1. júlí 1983 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfir- læknir sjúkrahússins í síma 92-1400. Stjórn Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs. Fiskvinna Starfsfólk óskast í pökkun og snyrtingu. Bónus vinna. Fæði og húsnæði á staðnum. Mikil vinna. Upplýsingar gefur verkstjóri vinnusími 94-6107. Heimasími 94-6118. Fiskiðjan Freyja h.f. Suðureyri. Hvolhreppur hyggst beita sér fyrir byggingu iðngarða á Hvolsvelli. Þeir sem hafa áhuga á að gerast aðilar og fá þar inni gefi sig fram við sveitarstjóra Hvolshrepps fyrir 1. maí n.k. Sveitarstjóri. Aðalskoðun bifreiða 1983 í Mýra- og Ðorgarfjarðarsýslu fer fram við Bifreiðaeftirlitið í Borgarnesi, kl. 9-12 og 13-16.30 eftirtalda daga. Þriðjudagur 5. apríl M-0001 — M-0200 Miðvikudagur 6. apríl M-0201 — M-0400 Fimmtudagur 7. apríl M-0401 — M-0600 Föstudaginn 8. apríl M-0601 — M-0800 Þriðjudaginn 12. apríl M-0801 — M-1000 Miðvikudaginn 13. apríl M-1001 — M-1200 Fimmtudagur 14. apríl M-1201 — M-1400 Föstudaginn 15. april M-1401 — M-1600 Mánudaginn 18. apríl M-1601 — M-1800 Þriðjudaginn 19. apríl M-1801 — M-2000 Miðvikudaginn 20. apríl M-2001 — M-2200 Þriðjudaginn 26. apríl M-2201 — M-2400 Miðvikudaginn 27. apríl M-2401 — M-2600 Fimmtudaginn 28. apríl M-2601 — M-2800 Föstudaginn 29. apríl M-2801 - M-3000 Mánudaginn 2. maí M-3001 — M-32Q0 Þriðjudaginn 3. maí M-3201 og þar yfir. LOGALAND 4. maí kl. 10-12 og 13-16 LAMBHAGI 5. mai kl. 10-12 og 13-16 OLÍUSTÖÐIN 6. maí kl. 10-12 og 13-16 Aukaskoðun fer fram í Borgarnesi dagana 13.-15. júní og í Lambhaga og Olíustöð 16. júní á sama tíma og áður er getið. Við skoðun ber að framvísa kvittunum fyrir greiddum bifreiðagjöldum og tryggingaiðgjöldum ásamt gildu ökuleyfi. Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 14. mars 1983. Auglýsingasími TÍMANS er 18-300 fréttir ■ Borgarnes séð frá brúnni. Tímamynd Ragnheiður. Verkalýdsfélag Borgarness hvetur til: Þjóðarsamvinnu um ábyrga efnahags- og atvinnustef nu BORGARNES: „Til að sigrast á þeim erfiðleikum sem nú blasa við er nauð- synlegt að þjóðarsamstaða náist um ábyrga efnahags- og atvinnumála- stefnu. Verkalýshreyfingin þarf að stuðla að því að slík samstaða náist“, segir m.a. í ályktun um efnahags- og atvinnumál sem samþykkt var á aðal- fundi Verkalýðsfélags Borgarness sem haldinn var s.l. miðvikudag. geysar dragi úr fjárhagslegu sjálfstæði einstaklingsins, ógni atvinnuöryggi allrar alþýðu landsins og brenni upp framkvæmdafé sveitarfélaganna svo við blasi stórfelldur samdráttur. Því verði svo fljótt sem kostur er að móta ákveðna efnahagsstefnu sem hafi það að höfuð markmiði að draga úr verð- bólgu án þess að stofna til atvinnuleys- is. Fundurinn átaldi harðlega aðgerðar- leysi stjórnmálamanna í efnahagsmál- um síðustu mánuði, sem skaðað hafi þjóðina stórlega. Óðaverðbólgan sem Fundurinn skorar eindregið á fólk að velja íslenska framleiðslu og styrkja þar með atvinnustarfsemi og atvinnu- öryggi í landinu. Áhersla var lögð á að treysta grundvöll atvinnulífsins til þess að auka framleiðni og gjaldeyristekjur. Draga verði úr opinberum útgjöldum og erlendri skuldasöfnun og áhersla lögð á sparnað á ýmsum sviðum t.d. í bankakerfinu. En kaupmáttur lægstu launa verði ekki skertur. Stjórn Verkalýðsfélags Borgarness varð sjálfkjörin en hana skipa: Jón Agnar Eggertsson, formaður, Karl Á. Ólafsson, Agnar Ólafsson, Baldur Jónsson, Sigrún D. Elíasdóttir, Ólöf Svava Halldórsdóttir og Guðríður Þor- valdsdóttir. - HEI ■ Eiríkur Bjarnason frá Bóli, hóteleigandi og tónskáld í Hveragerði lést í árslok 1981, 72ja ára að aldri. Hálfu ári síðar keypti Logi Einarsson hótelið og rak það í nokkra mánuði, en það hefur síðan verið lokað síðan í haust. Tímamynd Gunnar Vilja opna Hótel Hveragerdi á ný Héraðsvaka Rangæinga: Lokahófið í Njálsbúð f kvöld RANGÁRÞING: “Við vonum að það komi eitthvað af Rangæingum úr Reykjavík á lokahófið í Njálsbúð á laugardagkvöldið - enda völdum við fyrir það stærsta hús sem við gátum fengið í sýslunni“, sagði Sigríður Theódóra f Skarði, formaður Héraðs- vökunefndar. Lokahóf Héraðsvöku Rangæinga verður í Njálsbúð f kvöld og hefst kl. 21.30. Verður þar mikið um að vera. Lúðrasveit Tónlistarskóla Rangæinga lífgar upp' á mannskapinn með léttum tónum við komuna. Þá ávarpar Sig- ríður Theódóra gesti. Næst á dag- skránni er kórsöngur Rangæingakórs- ins undir stjórn Önnu R. Ingólfsdóttur og að því loknu flytur Dóra Ingvars- dóttir formaður Rangæingafélagsins í Reykjavík ávarp kvöldsins. Þá flytur Kvenfélag Oddakirkju leikþáttinn „Óvænt heimsókn". Næst er upplestur sem Kvenfélagið Berg- þóra úr V-Landeyjum sér um og að því loknu sér Ungmennafélagið Njáll úr V-Landeyjum um gamanmál. Þá er komið að verðlaunaafhendingu til þeirra er hlutskarpastir urðu í íþrótta- mótum Héraðsvöku og að því loknu verður fjöldasöngur - enn mikill Rang- æingakór. Kynnir dagskrárinnar verð- ur Jónas Jónsson. Að lokinni þessari dagskrá leikur hljómsveitin Glitbrá fyrir dansi fram eftir nóttu. Þess má geta að aðgangs- éyrir er 120 krónur, en þetta er eini atburður vökunnar sem greiða hefur þurft aðgangseyri að. - HEl HVERAGERÐI: Mikill áhugi er nú fyrir því í Hverágerði að Hótel Hvera- gerði verði komið í rekstur á ný, en það er nú búið að vera lokað mánuðum saman og húsið liggur undir skemmdum. Kom lokunin sér mjög illa fyrir marga, m.a. Sérleyfisbfla Sel- foss sem urðu þá með viðskipavini sína á götunni, skólabörnin úr Ölfusinu er höfðu þar athvarf og fæði í hádeginu, Matsala lagðist niður nema hvað Heilsuhælið býður upp á grænmetis- rétti og auk þess hefur félagsstarf í Hveragerði átt erfitt uppdráttar, að því er fram kemur í frétt frá nefnd er starfað hefur undanfarnar vikur að könnun á möguleika á að kaupa Hótel Hveragerði. Milli 40 og 50 manns sóttu fund er nefndin boðaði til um málið. Tillaga hennar er sú að stofnað verði hlutafé- lag er öllum þorpsbúum svo og fé- lögum og fyrirtækjum verði boðin aðild að. Þótt allir vilji bæta úr núverandi ófremdarástandi greinir menn nokkuð á um leiðir. Margir þorpsbúar álíta að Hveragerðishreppur ætti að kaupa hótelið sem félagsheimili, en leggja beri niður veitingareksturinn. Aðrir vilja frekar reyna að mynda félag til sameiginlegs átaks og hefja rekstur í svipuðu formi og áður var, þ.e. veit- ingasala, gisting og aðstaða fyrir félags- og menningarstarfsemi. Þeir benda jafnframt á að hreppurinn sé að hefja grunnskólabyggingu auk fleiri stórra verkefna er kalli á allt hans fjármagn- og meira til. Einnig er bent á að líklega um 90% allra ferðamanna er koma til landsins fari um Hveragerði. Næstu daga munu nefndarmenn og aðstoðarfólk þeirra fara í hús í Hvera- gerði og leita eftir hlutafjárloforðum í formi 1.000, 5.000 og 10.000 króna bréfa. Treystir nefndin því að almenn þátttaka fáist og að hvergerðingar beri gæfu til að leysa þetta mál farsæl- lega. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.