Tíminn - 26.03.1983, Page 10
Mimmx
LAUGARDAGUR 26. MARS 1983
íþróttir
Hamburger Sportverein - Bayern Munchen í dag:
HVER SIGRAR BUNDESLÍGUNA?
Hamborg, Bremen, Dortmund, Munchen eða Stuttgart?
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í
Bonn.
Dagsetningar helstu leikja
í þýsku bundeslígunni í
kapphlaupinu um þýska
meistaratitilinn eru sem hér
segir:
26. mars: Hamborg-Bayern
Munchen
16. apríl: Stuttgart-Bayern
Munchen
30. apríl: Hamborg-Stuttgart
7. maí: Köln-Bayern
14. maí: Hamburg-Köln,
Bayern-Kaiserslautern.
21. maí: Kaiserslautern-
Hamburg,
Dortmund-Bayern.
28. maí: Stuttgart-Köln,
Hamburg-Dortmund.
4. júní: Kaiserslautern-
Stuttgart.
Keppnin um meistaratitil-
inn er orðin æsispennandi
vegna þess að stórliðin Ham-
burger Sportverein og Bayern
Munchen hafa verið f lægð að
undanförnu meðan Bremen
og sérstaklega Stuttgart hafa
leikið mjög vel. Þessi fjögur
lið verða að teljast þau sigur-
stranglegustu.'
Stórleikur næstu umferðar
er leikur Bayern og HSV. f
fyrri umferðinni lauk viður-
eign þeirra 2-2 eftir að Pfaff,
belgíski landsliðsmarkvörður-
inn hjá Bayern Munchen hafði
varið víti frá Manfred Kaltz á
síðustu mínútu leiksins. Ann-
ar athyglisverður leikur er
viðureignin Stuttgart-
Frankfurt. Frankfurt sigraði
3-0 í fyrri umferðinni, en Ás-
geir Sigurvinsson lék þá ekki
með Stuttgart vegna meiðsla.
■ Asgeir Sigurvinsson sést skora gegn Werder Bremen snemma í vetur
á þessari mynd. Ásgeir og félagar eru nú í toppbaráttu í Þýskalandi.
Níðsterku
EXQU/S/T
þríhjólin
þola slæma meðferð
Arhrti
Demparar
í flestar gerðir af bílum,
m.a.
FIAT
FIESTA
ESCORT
CORTINA
Amerísk úrvalsvara
Einnig í torfærubíia
Póstsendum
VOLVO
DATSUN
TOYOTA
MAZDA
HftGG©^Dl
QmiAliiUani í<fmi 771CH OAnlL. Ar\r\A rx _. »
Smiðjuvegi 14, sfmi 77152, Póstb. 4024,124 Reykjavik.
Fást í helstu leikfangaverslunum
og flestum
kaupfélögum um land allt
Heildsölubirgðir.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg Sími 37710.
EKKIBEIN UTSENDING
frá meistaramótinu í sundi
■ Besta körfuknattleikslið kvenna á íslandi, KR bæði fslands og bikarmeistarar.
Fremri röð f.v. Eria Péturdóttir, Margrét Árnadóttir, Linda Jónsdóttir, María
Sævarsdóttir, Erna Jónsdóttir. Efri röð f.v. Cora Barker, Anna Haraldsdóttir,
Emilía Sigurðardótlir, Stewart Johnson þjálfari, Björg Kristjánsdóttir, Kristjana
Hrafnkelsdóttir.
■ „Það er ég sem ákveð
hvort sent er út beint en ekki
einhverjir menn úti í bæ, og
mín ákvörðun byggist þá því
hvort það er hægt eða ekki“,
sagði Bjarni Felixson íþrótta-
fréttamaður sjónvarpsins i
samtali við Tímann í gær,
vegna fréttar Dagblaðsins í
gær um að bein sjúnvarpsút-
sending yrði frá Meistaramóti
Islands í sundi. „Það er ein-
faldiega ekki hægt að sjón-
varpa beint frá mótinu, þar eð
ekkert íþróttacfni er á
dagskrá klukkan 18.30, sem
væri eini tíminn sem til greina
kæmi.“
HRAUNGANGAN í DAG
■ ídagvcrðurhiðlangþráða
hraunganga háð í Bláfjöllum,
eða svokallað Lavaloppet, en
það er útlenskt orð sem þýðir
Hraunganga. Áður hefur ver-
ið skýrt frá Hraungöngunni í
Tímanum, en hún er í stuttu
máli skíðaganga í Bláfjöllum
og nágrenni, þar sem gengnar
eru þrjár vegalengdir cftir vali
þátttakenda sjálfra, sem
ganga til að keppa, eða sér til
hressingar, einstaklingar, eða
hópar frá fyrirtækjum, félag-
asamtökum eða stofnunum. í
veglegri mótsskrá sem gefin
hefur verið út má sjá að þátt-
takendur í lengstu vega-
lengdinni, 42,3 kílómetrum,
eru 63, í 21km 40, í einstak-
lingskeppni lOkm 50, og í
sveitakeppni lOkm 18, alls
161 keppandi, en flogið hefur
fyrir að keppendum hafi fjölg-
að eitthvað frá því skráin var
prentuð. Erlendir keppendur
eru alls 48. Hraungangan hefst
klukkan 11 í dag árdegis, og
verður gengið fram eftir degi.
Keppnin er eins og áður sagði
í Bláfjöllum.
„Þetta komst til tals við
forráðamenn sundhreyfingar-
innar, en ekkert var ákveðið í
þessu“, sagði Bjarni, „við
munum taka upp þarna, en
um beina útsendingu verður
ekki að ræða.“
Sundmeistaramót íslands
hófst í gærkvöld í Sundhöll
Reykjavíkur og verður keppt
þar alla helgina.
Ónnur umferð
'ae
ukkan 12.00 hefst
hefst í da£
■ t dag kluk
önnur umferð úrslitakeppni í efri
hluta 1. deildar íslandsmótsins í
handknattleik. Þessi umferð fer
fram í Laugardalshöll. Fyrsti
leikurinn hefst klukkan 12 og er
milli Stjórnunnar og FH, en
klukkan 13.15 leika Víkingur og
KR. Á morgun hcfst kcppnin
klukkan 21.15. Síðustu leikirnir
tveir verða á mánudag, þá leika
Víkingur og Stjarnan Idukkan
20.00, og KR og FH Idukkan
21.15. FH og KR standa best að
vígi nú í útslitakeppninni, hafa
bæði 5 stig eftir 3 leiki, Vðdngar
hafa 2 og Stjarnan ekkert. AUs
leikur hvert lið 12 leiki í úrslita-
keppninni.
■ Ungt og efnilegt Eyjafólk, cftir árlegt sundmót Kiwanisklubbsins þau Arnoddur Erlendsson og VUborg Valgeirsdóttir sem fengu sérstök
Helgafeils nýlega. Mótið var haldið í hinni glæsilegu íþróttamiðstöð verðlaun fyrir mestar framfarir frá síðasta móti.
Vestmannacyinga. Vcitt voru verðlaun fyrir 1.2. og 3. sæti og auk þess fengu
HIIIHIIIIHIHUWIIII///AUI jllji
ÞÚFÆRÐ...
reyktog
JSS&umi
SALTAÐOG
ÚRBEINAO
HR0SSAKJÖT
HROSSA- 0G
FOLALDA
BJÚGU
jgrófliakkaóa
HILLU
VÖRUR
A
MARKAÐS-
VERÐI
A GRILUÐ:
HERRASTEIK
BEINTÁ
PÖNNUNA:
nautakjöt
SVtNAKJÖT
fOLALDA-
KJÖÍ
lamba-
KJ0T
kindakj
STEIKUR
BUFF
GÚLLAS
HAKK 0.FL | berh> saman
VERÐ OG GÆÐI
PARfSARBUFF
PANNBtAOAR
GRÍSASNBDAB
OMMUKÚTELETnjR
FOLALDAKARBONADE
NAUTAHAMBOBGARAR
EFTIRLÆTI BÚÐAR
aN MANNSINS
KRYDDLEGIN
LAMBARIF
HAWAI
SNEK)
_ ^5ur~’
'c^ver^)
Viðulcenndrlqotiðnaðarinem tryggja gæðn|
WÖHO»T*
WBBJB
11
LAUGARDAGUR 26. MARS 1983
&ímmn
Umajón; Samúel örn Erllngsson
Skallagrímur sigraði
■ Nýlega var haldið Hcraðsmót
UMSB í sundi í Borgarnesi, en það er
árlegur viðburður hjá þeim Borgfirð-
irgum.og keppni þar hörð, ckki síst
millum félaganna í stigakcppni. Ung-
mennafélagið Skallagrímur sigraði í
stigakeppninni, hlaut 170,5 stig, Ung-
mcnnafélagið íslendingur varð í öðru
sæti með 136,5 stig, og Ungmennafé-
lag Stafholtstungna og Reykdæla, sem
tefldu fram sameiginlegu liði, urðu
þriðju með 77 stig.
"Stighæstu einstaklingaf á mótinu
* voru:
15-16 ára:
Gylfi Þór Bragason Isl.
Katrín Sigurjónsdóttir Stafh.
13-14 ára:
Eyvindur Magnússon UMFS
Margrét Snorradóttir ísl.
11-12 ára:
Jón Valur Jónsson UMFS
Guðbjörg H. Ingimundard. Reykd.
10 ára og yngri:
Björn H. Einarsson ísl.
Karen Rut Gísladóttir lsl.
Gerpla mun kaupa
Gerpluhúsið
■ íþróttafélagið Gerpla ætlar að
■kaupa íþróttahúsið að Skemmuvegi 6
í Kópavogi, en félagið hefur leigt það
undanfarin 5 ár. Fjárhagsstaða félags-
ins er fremur traust, og ríki( bjartsýni
hjá Gerplufólkivarðandi þetta tiltæki.
Undirbúningur aö kaupum þessum
var meðal stórverkefna félagsins síð-
astliðið ár samkvæmt fréttátilkynn-
ingu frá félaginu.
Námskeið fyrir fím-
eikaþjálfara
■ Námskeið fyrir þjálfara í áhalda-
fimleikum stúlkna og pilta verður hald-
ið í Ármannshúsi dagana 30. og 31.
mars og2., 4. og5. apríl nk., samtais
um 48 stundir.
Kennari verður kínverski þjálfar-
inn, Chen Shengjin, sem hefur staðið
framarlega í fimleikaþjálfun og skipu-
lagi fimleika í Kína, einnig þjálfað þar
landslið og ólympíufara.
Námskeiðið er ætlað þeim sem
kenna og þjálfa fimleika á íslandi í dag
og cr ekki að efa að þarna er gullið
tækifæri til að auka og bæta kunnátt-
una.
Þámaka tilkynnist til FSÍ fyrir 27.
mars.
Stórsvigsmót Ármanns
■ Stórsvigsmót Ármanns var haldið
á dðgunum í Bláfjöllum við frekar
erfiðar aðstæður, þar var slydda og
brautimar því þungar. Úrslit á mótinu
urðu þau helst að Guðrún Bjömsdóttir
Víkingi sigraði í kvennafiokki á 109,30
sek, önnur varð Inga Hildur Trausta
i áóttir Ármanni á 113,60 sek. og
þriðja Marta Óskarsdóttir Ármanni á
119,40 sek.
(karlaflokki sigraði Árni Þór Árna-
son Ármanni á 95,80 sek, annar varð
Tryggvi Þorsteinsson Ármanni á 96,40
sek. og þriðji Helgi Gcirharðsson
Ármanni á 97.40 sek.
I stúlknaflokki 11-12 ára sigraði
Auður Arnardóttir ÍR, en í sama
flokki pilta Egill Ingi Jónsson ÍR. (
flokki 9-10 ára drengja sigraði Pálmar
Pétursson Ármanni en í sama flokki
stúlkna Valdís Amardóttir ÍR. I flokki
8 ára og yngri sigraði Jón Teitur
Sigmundsson Armanni í drengjaflokki
og Theódóra Mathiesen í stúlkna-
flokki.
Gluten Blue Star er náttúrulegt, Prófaöu uppskriftirnar á umbúöunum.
óbleikjað hveiti. Heimabaksturinn fær í versluninni þar sem þú kaupir Gluten
þess vegna fallegan, gullinn blæ. Blue Star færðu einnig bækling með
Gluten BlueStarerdanskthveitisem uppskriftumaðgirnilegum kökum
blandað er amerísku mjöli. Hátt hlutfall og tertum.
sterkju (gluten) tryggir frábæra Gluten Blue Star. Danskt hveiti
bökunareiginleika og fallegan bakstur. blandað amerísku mjöli.
Biðjið um hveitið með bláu stjörnunni.
ferm
%
GRÁFELDUR
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2