Tíminn - 24.04.1983, Side 4

Tíminn - 24.04.1983, Side 4
4 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 Meira af öskubusku bresku konungsfjölskyldunnar — „lífið hefur leikið hana hart” en: „Hún stendur eftir sem sigurvegari” var aö sjálfsögöu Armstrong-Jones. Þeg- ar þær birtust hafði drottningin boðið honum til Balmoral, og þangað barst Margréti prinsessu nokkrum vikum síðar bréf frá Peter Townsend í Brússel sem tilkynnti henni að hann hygðist gifta sig aftur: hann var orðinn ástfanginn af nítján ára gamalli stúlku, Marie-Luce Jamagne, að nafni. Þessar fréttir komu sem þruma úr heiðskíru lofti... Þetta októbersíðdegi sagði hún Armstrong-Jones frá opinber- un Townsends. En, vegna þess sem óhjákvæmilega lá í loftinu, sagði hún honum einnig að bera ekki upp bónorð- ið. „Hann gerði það á endanum, en óbeinlínis þó. Það var mjög sniðuglega orðað,“ segir hún, Tveimur mánuðum ■ Margrét bretaprinsessa hefur löngum verið á milli tannanna á fóiki þó mörgum hafí nú lærst að öliu má ofgera. „Lífið hefur ieikið hana hart, en hún stendur eftir sem sigurvegari,“ skrifaði blaðamaður nokkur nýlega um prinsessuna: „Henni hefur lærst að þrauka.“ Við birtum hér annan kafla úr ævisögu Margrétar prinsessu, sem Christopher Warwick hefur skráð í samvinnu við prinsessuna, en fyrri kaflinn birtist fyrir viku. ■ A meðan allt lék í lyndi stunduðu Margrét prinsessa og Snowdon lávarður menningar- og skemmtanalífið af miklum krafti. Þegar flestir vina Margrétar prinsessu voru ýmist gengnir í það heilaga ellegar áttu í nánum samböndum við hitt kynið fór hún að efast um að hún hlyti nokkurn tíma hæfilegt bónorð. Og er tuttugasti- og sjötti afmælisdagurinn nálgaðist árið 1956 var reyndar farið að líta út fyrir að Margrét hlýti sömu örlög og Victoría prinsessa, dóttir Ját trðs sjöunda, en Alexandra drottning leyfði henni aldrei að piftast. Arið 1956 féllst prinsessan á að giftast Billy Wallace (gömlum vini hennar sem þegar hafði beðið hennar nokkrum sinnum), á þeim forsendum að betra væri að giftast manni „sem henni féll a.m.k. vel í geð“ heldur en að verða einmana piparjómfrú, að því tilskyldu að drottningin legði blessun sína yfir ráðahaginn. Wallace var svo sannfærður um blessun drottningarinnar að hann skellti sér til Bahamaeyja, til að jafna sig eftir veikindi, þar sem hann lenti í stuttu ástarævintýri. Hann var svo viss um að ekkert gæti komið í veg fyrir trúlofunina að hann sagði Margréti prinessu frá ævintýrinu þegar hann kom aftur. Hann var furðu lostinn þegar hún yfirgaf hann að bragði. (Wallace, lést úr krabbameini árið 1977, 49 ára að aldri. Prinsessan hafði þá löngu fyrirgefið honum og var meira að segja viðstödd giftingu hans árið 1965). Tveimur árum síðar, 20. febrúar 1958, hittust Margrét og Antony Armstrong- Jones svo í fyrsta sinn í kvöldverðarboði hjá lafði Elizabeth Cavendish. Armstrong-Jones var skemmtilegur náungi, „sjarmerandi", hæfileikaríkur, athafnasamur - og ljóshærður, bláeygð- ur og grannvaxinn sem hann var, var hann einnig líkamlega aðlaðandi. Mar- gréti prinsessu og Armstrong-Jones leist vel hvoru á annað en þó er ekki hægt að segja að um ást við fyrstu sýn hafi verið að ræða eins og sumir vilja halda fram. Hið rétt er að ef vinur Margrétar hefði ekki beðið Margréti um að sitja fyrir hjá Armstrong-Jones, sérstaklega fyrir sig, hefðu þau ef til vill aldrei hist aftur. En eftir annan fund þeirra fóru tilfinningar þeirra hvors til annars hlýnandi. Tony, eins og hann var kallaður, fæddist sjöunda mars 1930, sonur nafn- togaðs málaflutningsmanns. Tony fór til náms í Eton, að dæmi föður síns og annarra breskra heldri manna, og þó fræðilegur árangur hans væri ekki upp á marga fiska hélt hann til framhaldsnáms i Jesus College í Cambridge, í þeim tilgangi að læra húsagerðarlist. Tony var mjög félagslyndur og opinn maður. Hann var samt ekki sérstaklega góðhjartaður að eðlisfari að því er einn vina hans segir þó ekki verði samúð hans í garð fatlaðra dregin í efa, enda var hann sjálfur hætt kominn af völdum lömunarveiki í bernsku. Tony vakti upp „sígaunann“ í Margréti Hann var gjörólíkur því fólki sem Margrét hafði áður umgengist, lifði frjálslegu listamannslífi, vinahópur hans var mjög litríkur, hann hafði engan áhuga á stétt og stöðu fólks og lét sig engu skipta hvað álitið var „viðeigandi". Meira en tuttugu árum síðar átti hann eftir að segja „ég nýt sérhverrar sekúndu lífsins. Ætli ég sé ekki nokkurs konar sígauni." Það voru einmitt þessir eigin- leikar hans sem vöktu upp „sígaunann" í Margrétij sem vafalaust leit á vináttu þeirra sem staðfestingu á einstaklings- eiginleikum sínum. Jocelyn Stevens, náin vinkona þeirra og fyrrum eigandi vikublaðsins Queen, sagði um prinsess- una: „Ég hef alltaf litið á hana sem fugl í gullnu búri. Henni hlotnaðist aldrei það frelsi sem hún þráði.“ Þau áttu margt sameiginlegt. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á leikhúsinu og einnig á ballett - árið 1957 gerðist Margrét forseti the Royal Ballett Com- pany. Bæði voru þau sérlega skemmtileg í samræðum og áttu auðvelt með að segja frá. f þá daga átti William Glenton blaða- maður og kunningi Armstrong-Jones lítið þrjúhundruð ára gamalt hús í Bermondsey, sem varð fundarstaður Tonys og Margrétar, eða „ástarhreiður" eins og blöðin kölluðu það síðar. Arm- strong-Jones leigði herbergi á jarðhæð- inni og gerði það íbúðarhæft eftir margra ára vanrækslu, málaði veggina hvíta, smíðaði skápa til að fela vatnsrörin og bjó það smekklegum og íburðarlausum húsgögnum. Andstætt því sem talið hefur verið var hún ekki mjög tíður gestur í byrjun. Þó var „litla hvíta herbegið“ henni einstak- lega kært. „Þaðan var stórkostlegt út- sýni“, segir hún. „Maður gekk inn í herbergið og horfði beint út á ána“. Húsakynni Tonys voru umgjörð margra ánægjulegra kvölda: skemmti- legra samkvæma sem stóðu langt fram á nótt, rólegra kvöldverðarboða með fá- um velvöldum vinum eða bara samveru þeirra tveggja. Þá eldaði Tony einhverjai létta máltíð og prinsessan þvoði upp á eftir. Athyglisvert er að ekkert skuli hafa lekið í blöðin um samdrátt þeirra fyrir trúlofunina - eða öllu heldur að lekarnir skuli ekki hafa verið teknir alvarlega. Samband ljósmyndarans Armstrong- Jones við hina konunglegu fjölskyldu, svo ekki sé minnst á samband hans við kínversku dansmeyna Jacqui Chan sem öllum var kunnugt um, duldi vel kjarna málsins. Árið 1959 voru teknar fjölda margar opinberar myndir af prinsessunni í tilefni 29 ára afmælis hennar. Ljósmyndarinn ■ Hér er Margrét prinsessa ásamt vini sínum Roddy Llcwellyn - en mynd sem birtist af þeim saman í sumarleyfi á Mustique olli því að Snowdon lávarður varð loks við þeirri ósk konu sinnar að flytja út úr Kensington höllinni. síðar, í desember 1959, trúlofuðu þau sig leynilega. Mánuði síðar bað Arm- strong-Jones drottninguna um hönd syst- ur hennar og að þessu sinni sagði drottningin já. Of lík að skapgerð og of ólík að uppruna Almenningur í landinu varð bæði glaður og hissa þegar trúlofunin var opinberuð í febrúar 1960. Þó voru ekki allir jafn yfir sig hrifnir. „Borðaði með hertogafrúnni (af Kent, öðru nafni Mar- ina prinsessa) og Alexöndru prinsessu. Þær voru ekki ánægðar með trúlofun Margrétar prinsessu. Greina mátti kulda í rödd þeirra þegar ég ympraði á þessu,“ skrifaði Noél Coward í dagbók sína. Álitið var að þau væru of lík að skapgerð og of ólík að uppruna til að hjónaband þeirra gæti orðið hamingju- samt - um leið og ástin yrði hversdags- leg, eins og hún hlaut að verða, færi allt í bál og brand. Tony myndi aldrei tilheyra konungsfjölskyldunni að fullu, skapgerð hans kæmi í veg fyrir það. Og Margrét prinsessa yrði aldrei neitt annað en meðlimur konungsfjölskyldunnar, hversu hart sem hún legði að sér við að -aðlagast lífsháttum hans. Heimur kon- ungsfjölskyldunnar var eini heimurinn sem hún þekkti. Þau voru gefin saman í Westminster Abbey sjötta dag maímánaðar árið 1960, með eða án andstöðu, og þegar þau sneru úr brúðkaupsferðinni til Kara- bískueyjanna sex vikum síðar, fékk Armstrong-Jones að finna fyrir því hvað það þýddi að tilheyra hinni konunglegu fjölskyldu. Hann fylgdi konu sinni á opinberum ferðum og við opinber skyldustörf hennar og gekk þá skrefi fyrir aftan hana svo sem lög gera ráð fyrir. Sumum fannst hann bera þess merki þegar á fyrstu mánuðum hjóna- bandsins að hann væri ekki alls kostar ánægður með hlutverk fylgdarmannsins. í einkalífinu voru þau á hinn bóginn hamingjusamari saman en mörgum hjónum auðnast. Prinsessan hafði aldrei verið fallegri og ánægðari, hún ljómaði af hamingju og eiginmaðurinn sömuleið- is. Tony þarfnaðist engu að síður ein- hvers annars og fljótt kom í Ijós að sú ákvörðun hans árið 1959 að hætta störf- um sem Ijósmyndari olli honum von- brigðum og óhamingju. Ef Snowdon lávarður (hann var gerð- ur að lávarði árið 1961) er feiminn, jafnvel einrænn maður að upplagi verður að segjast að honum tókst að sinna opinberum skyldum sínum án þess að afhjúpa raunverulegar skoðanir sínar á þeim. Á sjöunda áratugnum naut Margrét prinsessa ára tiltölulega mikils frelsis og

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.