Tíminn - 24.04.1983, Page 18
18
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983
kvikmyndasjá
„Þetta er eins konar sápuópera frá
sautjándu öld - sambland af Bonnie og
Clyde, Dallas og Tom Jones, en samt
sem áður í sjálfu sér frumleg", segir
Michael Winner um söguþráðinn í nýju
inyndinni, sem hann kveðst hafa langað
til að gera allt frá því hann sá „The
Wicked Lady“ fyrsta sinni fyrir um 30
árum síðan.
■ Ein vinsælasta kvikmyndin, sem gerð hefur verið í Bretlandi fyrr og síðar, nefnist
„The Wicked Lady“, sem kannski mætti kalla „Vonda hefðarfrúin“, og var hún
frumsýnd árið 1945. Kona sú, sem nafn myndarinnar vísaði til, var alræmd aðalsfrú,
sem leit út fyrir að vera siðprúð hefðarkona að degi til en var ræningi, morðingi og
ævintýrakvendi hið mesta að næturlagi. Nú hefur Michael Winner gert nýja kvikmynd
um þennan söguþráð og fer Faye Dunaway með aðalhlutverkið.
Byggt á sönnum atburðum
Annars er það svo, að þessi saga
byggir á sönnum atburðum, sem sagt á
æviferli lafði Kathleen Ferrers, sem bjó
í húsi sem nefnist Markyate Cell í
Hertfordshire á Englandi. Hús þetta er
enn uppistandandi, og þar má enn sjá
leynigöngin sem liggja frá svefnherberg-
!
■ Á hefðarsetrinu.
Fay Dnnaway leiknr
„Vondu hefðarfrnna”
— Michael Winner hefur gert nýja mynd um
hefðarfrúna, sem læddist út á nóttunni til þess að
ræna og myrða ferðamenn
■ Leikstjórinn ræðir við aðalleikara sína, Faye Dunaway og Alan Bates.
inu - en um þau fór hún þegar hún hélt
á næturnar út á heiðina til að ræna og
drepa ferðamenn, sem voru á leiðinni til
London sem er í aðeins um 20 kílómetra
fjarlægð. Að sögn íbúanna á þessu svæði
er vonda hefðarfrúin Kathleen Ferrers
enn á þessum slóðum; þeir telja sig oft
hafa séð hana þar á ferð í hæðunum. Og
svo er auðvitað krá á þessum slóðum
sem nefnd hefur verið eftir henni.
Fyrir um fjörutíu árum síðan eða svo
skrifaði Magdalen King-Hall skáldsögu,
sem byggði á æviferli lafði Ferrers. Þessi
bók, sem seldist í metupplagi, bar heitið
„The Wicked Lady“, en þar var nafni
aðalpersónunnar breytt í lafði Barbara
Skelton. Þessari vinsælu skáldsögu var
svo breytt í kvikmynd árið 1945. Þar fór
Margaret Lockwood með hlutverk ræn-
ingjafrúarinnar, en önnur meginhlut-
verk voru í höndum James Mason,
Patricia Roc og Michael Rennie.
Nýja kvikmyndin er einnig byggð á
þessari skáldsögu, en í samræmi við
tíðarandann er myndin „djarfari" en sú
fyrri - sem þó þótti svo djörf, að taka
varð upp aftur verulegan hluta hennar
svo hún fengi sýningarleyfi í Bandaríkj-
unum!
Leikaraúrval
Eins og áður segir fer Faye Dunaway
með aðalhlutverkið, lafði Barböru
Skelton, sem er vissulega hið versta fól
eins og nafnið bendir til. Hún nælir t.d.
í unnusta bestu vinkonu sinnar rétt fyrir
brúðkaup þeirra, en missir svo áhuga á
honum á eigin brúðkaupsdegi er hún
verður ástfangin af öðrum. Útávið lifir
hún virðulegu lífi hefðarfrúarinnar á
herrasetrinu, en að næturlagi læðist hún
úr húsi dulbúin og með klút fyrir andlit-
inu og rænir ferðamenn og drepur á
þjóðveginum til London. Hún hittir
brátt aðra ræningja, þar á meðal Jerry
Jackson, alræmdan manndrápara sem
Alan Bates leikur. Hún gerir bandalag
við þennan ræningjaforingja en svíkur
hann svo að lokum eins og aðra.
Af öðrum leikurum má nefna Den-
holm Elliott, sem leikur sárþjáðan eigin-
manninn, Oliver Tobias, sem er elskhugi
frúarinnar, og John Gielgud, sem fer
með hlutverk þjóns á heimilinu. Hann
kemst að leyndarmáli frúarinnar og
bíður óskemmtilegs dauðdaga fyrir.
Hvaða þjóðar-
leiðtogi sá um
200 kvik-
myndir á ári?
— gluggað í Guinness-bók
um staðreyndir um kvik-
myndir og kvikmyndagerð
■ Vissirþú...
aö lengsta kvikmyndin, sem gerð hefur verið, tekur
tvo sólarhringa í sýningu?
að um 187 þúsund manns komu fram í einni
kvikmynd - mun fleiri en sáu hana?
að Winston Churchill skrifaði kvikmyndahandrit?
að lengsti framleiðslutími kvikmyndar til þessa er
18 ár?
Þetta, og þúsundir annarra upplýsinga
af öllu mögulegu tagi um kvikmyndir og
kvikmyndagerð, er að finna í athygl-
isverðri bók, sem nefnist „The Guinness
Book of Film Facts & Feats“ og er gefin
út af sama fyrirtæki og heimsmetabókin,
sem margir kannast við. Hér verður
gripið ofan í þessa bók á fáeinum
stöðum.
Stjórnmálamenn sem
handritshöfundar
Þar kemur m .a. fram, að ýmsir þekktir
■ Vinsælasta skáldsagnapersónan í kvikmyndum er Sherlock
■ Lincoln - Bandaríkjaforseti; leikarinn er Walter Huston. Holmes, en um hann hafa verið gerðar 175 kvikmyndir.
stjórnmálamenn hafa skrifað l^vik-
myndahandrit. Winston Churchill var
þannig á samningi hjá London Films frá
árinu 1934 og fram að upphafi síðari
heimsstyrjaldarinnar, og lagði sitt af
mörkum við nokkrar kvikmyndir, m.a.
„Lafði Hamilton" um þá frægu ástmey
Nelsons flotaforingja.
Roosevelt Bandaríkjaforseti skrifaði
upphaflega handritið að kvikmynd sem
nefndist „The President’s Mystery" og
gerð var þar vestra árið 1936. Franco,
einræðisherra á Spáni um áratugaskeið,
samdi einnig handrit að kvikmynd; sú
var gerð þar í landi árið 1941 og byggði
á skáldsögu, sem Franco hafði skrifað
undir höfundarnafninu Jaime de Andra-
de.
Moraji Desai er sennilega eini for-
sætisráðherrann sem hefur skrifað kvik-
myndahandrit á meðan hann var í
embætti. Hann hafði lofað að skrifa
þetta handrit er hann sat í fangelsi á
■ Napoleon - hefur verið leikinn í 163
kvikmyndum. Hér er það Marlon
Brando sem fer með hlutverk franska
keisarans.
Indlandi, en skömmu síðar var honum
sleppt og eftir mikinn kosningasigur
varð hann forsætisráðherra. Hann vildi
standa við loforðið og gerði það. Kvik-
myndin ber heitið Yogeshwar Krishna.
Af kvikmyndahandritum, sem aldrei
voru kvikmynduð, má nefna ævisögu Idí
Amin Dada, fyrrum einræðisherra í
Uganda - sem hann skrifaði sjálfur á
veldistímum sínum.
Flestar kvikmyndir
um Sherlock Holmes
Um hvaða skáldsögupersónur skyldu
flestar kvikmyndir hafa verið gerðar?
Jú, þar á Sherlock Holmes, einka-
spæjarinn hans Arthur Conan Doyles,
algjört met. Á árunum 1900 til 1980 voru
gerðar um Holmes 175 kvikmyndir, og
fara þar 61 leikari með hlutverk hans.
Næstur í röðinni er sá skuggalegi
náungi Drakúla greifi, sem Briam Stokes