Tíminn - 24.04.1983, Side 19

Tíminn - 24.04.1983, Side 19
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 19 ■ í kvikmyndinni er ræningjaforingi hengdur. Hér er leikstjórinn, Michael Winner, að máta á sig snöruna. Miklu til kostað Kvikmynd þessi er mjög dýr (lágmark 15 milljónir doílara), enda er ekkert til sparað. Mikið er lagt upp úr umhverfi og búningum (Faye Dunaway notar þannig 50 glæsilega kjóla í myndinni, og er hver og einn einasti þeirra handunninn úr silki). Það er Cannon Films sem framleiðir myndina, en það er kvikmyndafyrirtæki tveggja fsraelsmanna í Bandaríkjunum - Manahem Golans og Yoram Globus, en þeir hafa framleitt ýmsar vinsælar en ekki ýkja merkilegar kvikmyndir á undanförnum árum og grætt vel. Leikstjórinn, Míchael Winner, er einkar þekktur fyrir „Death Wish“-kvik- myndir sínar, sem hafa gengið vel fjár- hagslega en ekki þótt umtalsverðar að öðru leyti. Winner hefur fengið Tony Banks úr popphljómsveitinni Genesis til þess að semja tónlist við myndina, og er það í fyrsta sinn sem hann semur tónlist við kvikmynd. Og hvað heldur Winner svo um gengi nýju myndarinnar? „í þessum bransa segjunt við: Sérhver kvikmynd er árangursrík þar til sýningar hefjast! Við skulum bara sjá til“. -ESJ ■ Eins konar hlöðuball; Michael Winner leiðbeinir leikurum sínum. ■ Stalin - báðir hrifnir af „Lafði Hamilton“ bjó til á sínum tíma. Um hann hafa verið gerðar 133 kvikmyndir. Ófreskja Frankensteins hefur birst áhorfendum í 91 kvikmynd, 8Í myndir hafa verið gerðar um Tarsan apafóstra, 66 um kúrekahetjuna Hopalong Cassi- dy, 65 um hinn grímuklædda Zorro, 49 um kínverskættaða leynilögreglumann- inn Charlie Chan og 48 kvikmyndir um eftirlætisræningjann Hróa hött. En hvaða þekktar sögupersónur ætli hafi þá oftast birst á hvíta tjaldinu? Jú bókin góða telur að Napoleon Bona- parte hafi verið leikinn í að minnsta kosti 163 kvikmyndum. Vinsælasti for- seti Bandaríkjanna í þessu tilliti er Abraham Lincoln, sem mun hafa verið leikinn í 128 kvikmyndum. Af öðrum sögupersónum má nefna, að 125 myndir munu hafa verið gerðar um Jesú Krist, 55 um Lenin, jafn margar um Hitler, og 36 myndir um hvora þeirra ólfku kvenna Kleópötru og Viktóríu drottningu. ■ Churchill Eftirlætismyndir þjóðarleiðtoga Margir þjóðarleiðtogar hafa haft mik- inn áhuga á kvikmyndum, og jafnvel látið gera sérstaka sýningarsali fyrir sig. Þeir félagar Stalin og Chruchill voru báðir á stríðsárunum mjög hrifnir af kvikmyndinni „Lafði Hamilton", sem áður er nefnd, og munu hafa nefnt hana sem eftirlætismynd sína. Churchill mun hafa séð hana fjórum sinnum. Churchill yar mikill áhugamaður um kvikmyndir, og fór það nokkuð í taugarnar á ýmsum samstarfsmönnum hans - ekki síst þegat hann gerði hlé á mikilvægum kvöldfund- um til þess að horfa á kvikmynd en hélt síðan fundi áfram fram á miðja nótt hinn hressasti. Krústjoff hefur skýrt svo frá að Stalín hafi sjálfur valið myndirtil sýningar í Kreml, og haft þar mestan áhuga á vestrænum myndum, sérstaklega þó - sá um 200 kvikmyndir á ári kúrekamyndum eða vestrum. „Hann var vanur að bölva þeim og meta þær hugmyndafræðilega, en síðan pantaði hann strax nýja vestra“. Meðal þjóðarleiðtoga mun Titó heit- inn Júgóslavíuforseti sennilega hafa ver- ið mesti kvikmyndaáhugamaðurinn, því að hann horfði á um 200 kvikmyndir á ári. Eftirlætiskvikmynd hans var „The Petrified Forest" með Humphrey Bogart og Bette Davis frá árinu 1936. Kvikmyndir hafa verið sýndar í Hvíta húsinu allt frá árinu 1914 þegar Wilson förseti og ríkisstjórn hans horfðu á ítölsku kvikmyndina Cabiria eftir Gio- wanni Pastrone. Margaret Truman, dóttir Harry Trumans, lét sýna „The Scarlet Pimpernel" (Rauða akurliljan) 16 sinnum í Hvíta húsinu, og mun það vera met. Þeim, sem eru forvitnir að vita meira, skal vísað á Guinness. -ESJ. Vestfirðir Kaupfélag á Vestfjörðum óskar eftir að ráða VERSLUNARSTJÓRA. Æskileg reynsla í verslunarstörfum cg kjötaf- greiðslu. Ibúð fyrir hendi. Gæti verið gott fyrir ung hjón sem bæði ynnu að versluninni. Góð laun í boði fyrir réttan mann. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf svo og fjölskyldustærð, sendist starfsmannastjóra fyrir 10. maí. SAMBANDISL. SAM VINNUFEIAG A STARFSMANNAHALO Sjómannafélög - Kappróðrafólk Okkar sérhönnuðu kappróðraárar verða til af- greiðslu fyrir sjómannadaginn frá og með16. maí n.k. i? Nánari upplýsingar gefa: yfirverkstjóri og birgða- stjóri símar 50520 - 50168. Gleðilegt sumar Bátalón h.f. Hafnarfirði Aðalfundur Alþýðubankans h/f árið 1983 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykja- vík, laugardaginn 30. apríl 1983 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við ákvæði 18. gr. samþykkta bankans. b) Samþykktir og reglugerð bankans. c) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. d) Tillaga bankaráðs um nýtt hlutafjárútboð. Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31, dagana 27., 28. og 29. apríl n.k. f.h. bankaráðs Alþýðubankans h/f Benedikt Davíðsson form. Þórunn Valdimarsdóttir, ritari GLUGGAR OG HURÐIR Vönduð vinna á hagstœðu vérði. Leitið tilboða. ÚTIHURÐIR Dalshrauni 9. Hf. S. 54595.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.