Tíminn - 24.04.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983
inútlminn
Mezzoforle
á uppleið
í Hollandi
— litla platan komin í 19. sæti og sú
stóra í 16. sæti vinsældarlistans þar
■ Mezzoforte hefur aö undanförnu
rokið upp hollenska vinsældalistann og
er litla platan þeirra nú komin í 19. sæti,
úr 32. sæti í síðustu viku og stóra platan
fór úr 21. sæti og í 16. sæti. Menn reikna
fastlega með að Mezzoforte nái inn á
Topp 10 listann í Hollandi miðað við
velgengnina að undanförnu. Þetta er
mikilvægt því Holland hefur löngum
verið talið lykillinn að öðrum Evrópu-
löndum á þessu sviði.
Mezzoforte hélt utan til Bretlands á
sumardaginn fyrsta en ætlunin er að taka
upp nýja litla plötu með nýju lagi,
Rockall heitir það, en á hinni hliðinni
vérður svo væntaniega lagið Spáð í
skýin.
Á breska vinsældalistanum féll litla
platan úr 30. sæti og i 50. sætið og stóra
platan úr 30. sæti og í 39. sæti, þannig að
velgengnin þar hefur tekið smáhvíld.
Þótt Bretland sé þannig „úr sögunni"
í bili þá má búast við að menn þar bíði
nýju plötunnar með nokkurri eftirvænt-
ingu og Evrópumarkaðurinn er að byrja
að taka við sér, þeir hafa þegar komið
tvisvar fram í hollenska sjónvarpinu.
-FRI
EUROVISION ’83
BEIN ÚTSENDING
■ Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í
Evrópu 1983, Eurovision, verður á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld, iaugar-
dagskvöld, rétt á undan „kosninga-
bömmernum“ og er það bein útsending
frá Múnchen þar sem keppnin er haldin
að þessu sinni.
Mörgum þykir ekki mikið varið í það
sem boðið er upp á í þessum keppnum
en fylgjast samt alltaf stíft með og
vissulega hefur þessi keppni orðið mörg-
um til fjár og frama, nægir þar að nefna
sænsku hljómsveitina ABBA sem dæmi.
Engin þekkt nöfn eru íþessari keppni,
að venju, en fyrir þá sem vilja vita
hverjir taka þátt þá koma þátttakendur
hér, flytjandi, land og lag:
Guy Bonnet, Frakkland, Vivre. Jahn
Teigen og Anota Skrogan ásamt fleirum,
Noregur, Do-Re-Mi. Sweet Dreams,
Bretland, I’m never giving up. Carola
Haeggkvist, Svíþjóð, Fraemling. Riccar-
do Fogli, Ítalía, Per Lucia. Cetin Alp
and The Short Waves, Tyrkland, Opera.
Remedios Amaya, Spánn, Quien man-
eja mi bacra. Meriella Farré, Sviss, Io
cosi non ci sto. Ami Aspelund, Finnland,
Fantasiaa. Christi Stassinopoulou, Mou
les. Bernadette, Holland, Sing me a
song. Danijel Popovis, Júgóslavía, Julie.
Stavros og Constantina, Kýpur, ÞAgapi,
akoma zi. Hoffman og Hoffman, Þýska-
land, Ruecksicht. Gry Johansen o.fl.
Danmörk, Kloden Drejer. Ofra Haza,
ísrael, Hi. Armando Gama, Portúgal,
Esta Balada que te dou. Westend,
■ Nicole vann í fyrra með Ein Bisschen
Frieden
Austurríki, Hurricane, Pas de Deux,
Belgía, Rendez-vous. Corinne Hermes,
Lúxemborg, Si la vie est cadeau.
Sigurvegarinn í fyrra var Nicole með
lag sitt „Ein Bisschen Frieden" og hefur
það varla farið framhjá neinum á síðasta
ári, en þar áður vann breska sveitin
Bucks Fizz og spáir Nútíminn bretunum
velgengni í keppninni að þessu sinni sem
áður. -FRi
Fræbbbla-
nafnið al-
veg út úr
myndinni
■ Við greindum frá því um daginn að
Valli söngvari Fræbbblanna væri með
nýtt band í uppsiglingu og að restin af
þeim héldi áfram undir sama nafni með
Rut Reginalds. Nú hefur hins vegar
Fræbbblanafnið dottið úr lestinni og
Steinþór, Stefán og Sigurður Dagsson
gítarleikari koma til með að starfa undir
nafninu AEON, sem er nafn hins nýja
guðs sem gistir jörðina. Rut Reginalds
hefur ekki enn formlega gengið til liðs
við hljómsveitina en Stefán sagðist halda
að svo mundi verða.
Þegar ég spurði Stefán hvers vegna
Fræbbblarnir hefðu hætt, sagði hann að
tónlistarágreiningur hefði komið upp á
milli Valla og hinna og þeir tóku það ráð
að hætta í góðu í staðinn fyrir að láta
ágreininginn spilla fyrir. Af Vallabandi
er ekki fleira að frétta en að á gítar er
náungi að nafni Diddi og á bassa spilar
Helgi Briem. Bra
brask
Club Dancing ’83
/Steinar
■ Á kynningarblaði frá Steinum
um þessaplötu segir að „sum þéssara
laga hafa verið í hópi vinstelustu
laganna hcr heima síðustu vikurnar
og eru því meiriháttar heit einsog
það heitir á fagmáli diskótekara.
Club Ðancing ’83 er þvt dæmigerð
stuðplata einsog þær gerast bestar."
Undanfarið hefur það færst mjög í
vöxt að svona samansöfn cru gefin
út. yfirleitt með listamönnum sent
hafa meikað það nteð einu lagi af
stórri plötu. Það er sannarlega hag-
ræðing fyrir neytendur því þá þurfa
þeir ekki að kaupa stóru plötuna,
með vinsæla laginu því oftast er hún
kolómöguleg út í gegn. En útgefend-
ur þessara hagræðingarplatna cru
ekki þau fífl að fatta ekki aðaltrixið:
eftir að stóra platan, segjum t.d. með
Dollar, er búin að seljast sæmilega
með hjálp auglýsingamaskínunnar,
cr hit-lagið pikkað út og klesst á
samansafn. Ogsú plata selst grimmt.
Það er gaman að vita til þess að
plötur seljist eitthvað ennþá, á með-
an verð þeirra er stjamfræðilegt, en
það er minna gaman að hafa það á
tilfinningunni að platan sem maður
hefur í höndunum sé aðeins gefin út
í þeim tilgangi að hala inn stórfé.
Nokkur lögin á Club Dancing ’83
eru skemmtileg og fjörug, t.d. You
can’t hurry love með Phil Collins og
Eu Tambem Qucro Beijar með Pep-
eu Gomes, en restin fullvissaði mig
algjörlega um að diskótónlist líkt og
Earth Wind and Fire, Shalamar og
Chic leika hefur ekki stigið eitt
einasta þróunarspor í 7-8 ár. Það
eina sem hefur breyst er tæknin og
nú geta listamennirnir sett puttana í
fleiri takka.
Þótt þessi tónlist sé blessunarlega
danshæf hefur hún gert þá kynslóð
sem fékk hana í vöggugjöf meira og
minna rótlausa og rænulausa í tónlist
og sú andþróun hefur jafnvel gcrt
það að verkum að sumir verða að
spurningamerki í framan þegartalað
er um The Rolling Stones, Doors,
eða einhverjar hljómsveitir sem
eitthvað hafa haft til málanna að
leggja. Til allrar hamingju bjargaði
pönkið okkur frá þvíað stinga hausn-
um endanlega í sandinn og sprikla
löppunum í takt við maskínuna. Bra
Dúettinn
The Creatures sem telur Siouxsie
og trommuleikarann Budgie úr Bans-
hees gaf út sína aðra plötu fyrir
skömmu. í fyrra komu út með þeim
tvær litlar plötur í pakka og nutu þær
mikilla vinsælda.
Nú hafa þau fengið til Hðs við sig
tónlistarmenn frá Hawaii, en þar er
platan tekin upp. Hún inniheldur
lögin Miss the girl og Hot Springs in
the snow og er fyrsta platan sent
gefin er út á merki The Banshecs,
Wonderiand Records. Bra
ROYAL
SKYNDIBÚÐINGARNIR ^
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúlnn eftir
firtim mínútur
5 bragðtegundir
RJP 829«
Eigum fyrirliggjandi
CAV 12 volta startari:
Bedford
Perkins
L. Rover D.
M.Ferguson
Zetor
Ursusofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og alternatorar fyrir allar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími 29080
Bi/a/e/ganÁS
CAR RENTAL
ö 29090
mazoa 323
□ AIHATSU
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsimi: 82063
Kjarnaborun
Tökum ur steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJÓÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjárnaborun sf.
Simar 38203-33882
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
v&Fiá
REYKJAVIKURVEGI 25 Háfnarfirði simi 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.