Tíminn - 13.07.1983, Side 1
íslendirsgaþættir fylgja blaðinu í dag
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Miðvikudagur 13. júlí 1983
159. tölublað - 67. árgangur
FASTDGNIR A HOFUÐBORG-
ARSVÆUNU HRAPAIVERM
— Söluverð íbúða í fjölbýlishúsum var 11% lægra í apríl en á sama
tíma í fyrra miðað við fast verðlag
■ Verð á fasteignum á höfuð-
borgarsvæðinu hefur Ixkkað
undanfarna mánuði miðað við
fast verðlag. Söluverð íbúða í
fjölbýlishúsum var 11% lægra í
apríl s.l. en í sama mánuði í
fyrra. Innan tímabilsins varð
lækkunin mest frá október til
apríl, samtals um 9%.
Þessar upplýsingar koma fram
í nýju fréttabréfi Fasteignamats
ríkisins. Þar segir einnig að sölu-
verð sérbýlishúsa virðist hafa
lækkað meira á þessu tímabili.
Verðþróun þeirra sé ójöfn, en
nokkur vísbending sé þó að á
fyrstu fjórum mánuðum ársins
hafi raunverð þeirra lækkað um
6%.
Hafa verður þó í huga að
fasteignaverð í apríl 1982 varhið
hæsta sem hér hefur mælst í
áratugi.
í fréttabréfinu kemur enn
fremur fram að mikil eftirspurn
hafi verið eftir litlum tbúðum en
mikið framboð á einbýlishúsum
og raðhúsum. Litlar íbúðir voru
hlutfallslega mjög dýrar í apríl
s.l. Þá kostaði hver fermetri í 2ja
herbergja íbúð 12% meira en í
4rra herbergja íbúð. Munurinn
var 6% í október 1982 og hefur
farið vaxandi. Síðustu ár hefur
hann oft verið 3-5% en ákaflega
sjaldan farið yfir 7%.
Þetta hlutfallslega háa verð
litlu íbúðanna er væntanlega
bein afleiðing af litlu framboði
og mikilli eftirspurn. Lækkandi
verð einbýlishúsanna má á hlið-
stæðan hátt rekja til óvanalega
mikils framboðs undanfarna
mánuði.
„Þetta gæti hvort tveggja bent
til þess að fólk sækist nú almennt
eftir að kaupa minni íbúðir en
áður“ segir í fréttabréfi Fast-
eignamatsins.
GM
Bandarísk kona ferst í fall-
hlífarstökki við Grímsey:
EKKI REIKNAÐ MEÐ
STERKRI VESTANATT
YFIR GRÍMSEY SEM
HRAKTI ÞAU AF IEIÐ
■ Bandarísk kona fórst í fail-
hlífarstökki við Grímsey er hún
og bandarískir félagar hennar,
úr fallhlífahópnum Skylite, ætl-
uðu sér að stökkva úr flugvél
norðan heimsskautsbaugar.
Hópurinn, sem taldi 8 Banda-
ríkjamenn og 2 íslendinga úr
Flugbjörgunarsveitinni, lagði af
stað í flugvél frá Grímsey um 2
leytið í fyrrinótt. Var flogið upp
í 14-14.500 feta hæð þar sem
stokkið var úr flugvélinni og
ætlunin að mynda stjörnu í
„frjálsu falli“ áður en lent yrði
aftur á eynni. Veður var kyrrt og
heiðskírt á jörðu er lagt var af
stað, svolítill austanandvari.
„Það kemur svo í ljós, eftir að
stökkið úr flugvélinni hafði geng-
ið eðlilega fyrir sig yfir miðri
eynni, að sterk vestanátt var
þarna uppi sem þau hafa ekki
reiknað með en hún hrakti þau
austur ’fyrir eyna“ sagði Ófeigur
Baldursson rannsóknarlögreglu-
maður á Akureyri í samtali við
Tímann en hann stjórnaði
skýrslutöku í málinu fyrir
norðan.
„Þau reyna því að stýra sér inn
á eyna en á austurhlið hennar
er um 100 m hátt hamrabelti.
Aðeins fjórir náðu innfyrir það
en fimm þeirra tóku þann kost
að lenda frekar í sjónum fyrir
■ Þetta er bandaríski fallhlífa-
stökkvarinn sem lést. Hún hét
Rosemarie Abelson.
utan eyna enda voru allir fall-
hlífamennirnir í björgunarbún-
ingum.
Stúlkan, sem fórst, virðist fyrst
hafa ætlað að reyna að lenda á
eynni en horfið frá því og beygt
út á sjóinn en of seint“ sagði
Ófeigur.
Konan lenti utan í hamrabelt-
inu og hrapaði niður í fjöruna.
Var hún meðvitundarlaus er að
var komið. Hún og félagar henn-
ar fóru svo strax með sömu
flugvél frá Grímsey til Akureyr-
ar en er þangað var komið var
konan látin.
Bandaríski hópurinn var hér
á vegum Flugbjörgunarsveitar
Reykjavíkur að æfa meðlimi
sveitarinnar í fallhlífastökki.
-FRI
Bandarísku fallhlífamennirnir við komuna til Reykjavíkur,
Tímamynd ARI
— sögðu Bandarfkjamennirnir
við komuna til Reykjavíkur
■ „Þctta var hörmulegur at-
burður“ sögðu bapdurísku
fallhlífamennirnir úr Skylite
hópnum en fjórir þeirra komu
til Reykjavíkur með flugvél
Flugmálastjórnar í gærkveldi.
Að öðru leyti vildu þeir alls
ekki tjá sig um slysið í Gríms-
ey-
Aðspurður um hvort þetta
myndi breyta áætlunum þeirra
hérlendis sögðu þeir að það
væri allt í óvissu en áætlað var
að þeir færú héðan á mánudag.
. -FRI
Meirihluti
borgarráds
Reykjavlkur:
ÁKVEÐUR
44% HÆKKUN
Á HITAVEITU-
GJALDSKRÁ
Fulltrúar
minnlhlútans
mótmæltu
hækkuninni
hardlega
■ Gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur hækkar um 44%
unt næstu mánaðamót.
Ákvörðun þessa efnis var tekin
af þremur borgarráðsmönnum
Sjálfstæðisflokksins á fundi
borgarráðs í gær, gegn ein-
dregnum inótinælum fulltrúa
minnihlutans, þeirra Krístjáns
Benediktssonar og Sigurjóns
Péturssonar. Einnig lögðu full-
trúar Kveimaframboðs og Al-
þýðuflokks fram bókanir þar
sem hækkununum var
mótmælt.
i
Með ákvörðun um þessa
hækkun, hefur gjaldskrá Hita-
veitu Reykjavikur hækkað um
168% á einu ári, og kostar nú
hver rúmmetri heits vatns 12
krónur í stað tæplega 4.50
króna 1. ágúst 1982. „Þrátt
fyrir óumdeilda þörf Hita-
veitu Reykjavíkur fyrir auknar
tckjur, m.a. til aukinnaborana
og rannsókna, tel ég ekki fært
miðað vlð það ástand sem nú
er varðandi kaupgjaldsmál að
hækka vatnsverð Hitaveitu
'Reykjavíkur, svo mjög sem
tillaga er gerð uin. Hitaveita
Reykjavíkur mun að sjáif-
sögðu njóta góðs af þeim að-
gerðurri sem ríkisstjórnin hefur
gért til lækkunar verðbólgunn-
ar, eins og önnur fyrirtæki í
landinu“, scgir í bókun Krist-
jáns Benediktssonar, borgar-
ráðsmanns, vegna afgreiðslu
þessa máls í borgarráði í gær. í
sama streng tóku fulltrúar ann-
arra minnihluta tlokka.
í bókun borgarráðsmanna
Sjálfstæðisflokksins segir m.a.
að fjársvelti Hitaveitu Reykja-
víkur hafi stofn^ö þessu þjóð-
þrifafyrirtæki ( stórkostlega
" hættu. Þrátt fyrir að fjandsam-
leg afskipti ríkisvaldsins í garð '
fyrirtækisins gæti nú ekki
lengur, þá taki langan tíma að
rétta hag þess við, svo það geti
örugglega staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart not-
cndum þess. E'r nefot dæmi
þess að orkuverð Hitaveitunn-
ar sé aðeins um 15% af verði
óniðurgreiddrar oltu til húshit-
unar, og þrátt fyri; þessa
hækkun takist aðeins að koma
í framkvæmd 2/3 af fram-
kvæmdaáætlun ársins.
-Kás