Tíminn - 13.07.1983, Síða 3

Tíminn - 13.07.1983, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1983 3 Lóðaúthlutanir á vegum Reykjavlkurborgar: OLLU NEMA ArtUnsholt- NiimmiH) ÍGÆRDAG ■ AUir þeir einstaklingar sem sóttu um lóðir undir íbúðir hjá Reykjavíkurborg á þessu vori fengu lóðum úthlutað í gær, að undanskildum þeim áttatíu og þremur sem sóttu um lóðir í Artúnsholti, en þar voru aðeins 10 lóöir til úthlutunar, en 83 einstaklingar sóttu um þær. Má búast við að þessum lóðum verði úthlutað fljótlega. Öðrum lóðum var úthlutað á fundi borgarráðs í gær, enda lóðaframboð meira en þær umsóknir sem fyrir lágu. Auk þessa var ýmsum stofnunum og fyrirtækjum úthlutað lóðum. Ljóst er að 73 umsækjendur ganga af í Ártúnsholti, og verður þeim þá úthlutað lóðum annars staðar. sem þeir hafa þá nefnt sem varakost, ef þeir fengju ekki úthlut- að í Ártúnsholti. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar var gcrt ráð fyrir að 244 milijónir króna myndu innheimtast á þessu ári í formi gatnagerðargjaida vegna lóðaúthlutana, en vegna þess hve fáir sóttu um, eru engar líkur á öðru en aðeins innheimtist 170 milljónir króna vegna þessa liðar á þessu ári. - Kás. Borgarráð samþykkir 8% hækkun á rafmagnsverði ■ Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær 8% hækkun á gjaldskrá Rafmagns- veitu Reykjavíkur frá og með 1. ágúst n.k., að viðbættri hækkun vegna orku- kaupa frá Landsvirkjun. Var ákvörðun þessa efnis tekin samhljóða, af borgar- ráðsmönnum. Fjárvöntun Rafmagnsveitu Reykjavík- ur á þessu ári er áætluð um 62 milljónir króna. Til að brúa þessa fjárvöntun hefði Rafmagnsveitan þurft rúmlega 32% hækkun á gjaldskrá sinni frá 1. ágúst nk. Frumfjárhagsáætlun ársins 1984 bendir hins vegar til þess að afkoma veitunnar batni verulega á því ári, frá árinu í ár. Af þessum ástæðum þótti ekki ástæða til að hækka gjaldskrána nú nema um 8% . Búist er við að neikvæð sjóðsstaða Rafmagnsveitunnar verði nálægt 68 milljónum króna í næsta mánuði. Er gert ráð fyrir að henni verði mætt með skammtímalánum, sem endurgreiðast að hluta á síðasta ársfjórð- ungi þessa árs, og á árinu 1984, lána- breytingum, og e.t.v. frestun einstakra .útgjaldaliða. - Kás Tjónamat á Patreksfirði: Gengid f ram- hjá nýjum gögnum Fast- eignamatsins ■ Athugun Tæknideildar Fasteigna- mats ríkisins hefur leitt í Ijós að mikið misræmi er á milli brunabótamats og endurstofnverðs þeirra 17 húsa á Pat- reksfirði sem skemmdust eða eyðilögðust í náttúruhamförum í vetur sem leið. Samanlagt endurstofnverð íbúðar- húsa er 26,4% hærra en brunabótamat. Brunabótamat atvinnuhúsnæðis er hins vegar 40% hærra en endurstofnverðið. I ljós hefur komið að Fasteignamat ríkisins hefur metið níu af húsunum nýlega og eru því til stærðarreikningar, uppdrættir og matslýsing hjá stofnun- inni. Þessi gögn og matsupphæðir voru ekki notaðar við tjónamat á eignunum. í fréttabréfi frá Fasteignamatinu segir að matsmenn á Patreksfirði hafi senni- lega ekki vitað um tilvist þessara gagna því eftir þeim hafði aldrei verið leitað. í fréttabréfinu segir enn fremur: „Hér verður ekki lagður dómur á hvort bruna- bótamat þessara eigna eða endurstofn- verð er réttara. Athugun beggja aðila mun væntanlega leiða það í ljós. Hins vegar cr það augljóst að það er ekki í þágu almennings að gengið sé fram hjá nýlegum upplýsingum FMR um eignimar þegar tjónið var metið. Sérstaklega þeg- ar tekið er tillit til þess að nokkur áðurnefndra húsa gjöreyðilögðust svo að meta varð þau eftir skriflegum heim- ildum.“ GM Fréttir úr heímspressunni Beriinske Tidende SUNNY Eyðir minna en CITROEN 2 CY og samt sneggri og hrað- skreiðari en BMW. Hinn þekkti bflamaður Finn Knudstup á Berlinske Tidende varð mjög hrifinn af NISSA SUNNY. Hann skrifaði: „Sunny getur við fyrstu sýn litið út fyrir að vera hefðbundinn bíll en hin háþróaða tœkni og nti- kvœmni í framleiðslu kemur manni sannarlega á óvart. Pú kemst lengra á hverjum bensínlítra á Sunny en á Citroen 2 CV. Engu að síður er Nissan Sunny sneggri og hraðskreiðari en BMW 315. Og ekki er Sunny dýr. í stuttu máli þrjú atriði sem eiga eftir að gera Sunny að stórvinsœlum bíl - bíl sem veitir manni meiri og meiri ánœgju við hvern kílómetra.“ Citroen 2 CV (Citroen braggi) kostar ca. kr. 250.000. Samkvæntt upplýsingum umboðsins er hann ekki fluttur inn. Hann er of dýr miðað við aðra bíla í sama verðflokki. ' BMW 315 kostar kr. 365.500. Hann er 2ja dyra. NISSAN SUNNY 1500 5 gíra 4ra dyra, framhjóladrifmn með allskyns aukabúnaöi s.s. útvarpi, klukku, snúningshraðamæli, skott og bensínloki sem hægt er að opna úr ökumannssæti o.m.fl. kostar aðeins kr. 269.000. Munið bílasýningar okkarum helgar kl. 2-5. \ Tökum allar gerðir eldri bifreiða upp í nýjar LANG-LANG MEST FYRIR PENINGANA Ejwissan INGVAR HELGASON s., 3356» SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.