Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1983 4 Límmiðaprentun - Vörumiðaprentun Prentun sjálflímandi miöa og merki til ótrúlegustu nota, s.s. vörumerk- inga, vörusendinga og framleiöslumerkinga. Einnig hverskonar yfirlíminga-, leiöbeininga- og aövörunarmiöa og margt fleira allt samhangandi á rúllum í einum eða fleiri litum. LIMMERKI Síðumúla 21-105 Reykjavík, sími 31244. Ferðavinningur - grænlenskir dagar Dregið hefur verið í happdrætti grænlensku daganna 7.-9. júlí á Hótel Loftleiðum. Upp kom nr. 79 - ferðavinningur fyrir tvo til Grænlands. Vinsamlega hafið samband við yfirveitinga- stjóra fyrir 20. júlí n.k. HOTEL LOFTLEIÐIR Atthagafélög Grunnvíkinga ísafirði og Reykjavík Efna til hópferðar með rútu að Laugum í Sælingsdal, Dalasýslu, ef næg þátttaka fæst, dagana 30. júlí - 1. ágúst (Verslunarmannahelg- in). Grunnvíkingar, sýnum samstöðu og mætum vel. Tilkynnið þátttöku fyrir 20. júlí til: Gunnar Leósson Bolungarvík, sími 94-7193 Gógó Guðmundsdóttir, ísafirði, sími 94-3646 Einar Alexandersson, Reykjavík, sími 30462 Ingi Einarsson, Kópavogi, sími 44683 Undirbúningsnefnd. 1*1 M'l Útboð Tilboð óskast í að leggja stofnlögn í Selás fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3 Reykjavík gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. júlí 1983 kl. 9 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frfkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Bændur-Sjálflileðsluvagn Af sérstökum ástæðum er nú mjög lítið notaður bagga- þræll til sölu á sérstöku verði. Ath. hann tekur sjálfur upp baggana og af sér aftur á færibandið. Hlífið bakinu - Notið tækni Upplýsingar gefur Magnús í síma 99-6719 Útboð Tilboö óskast í aö leggja Elliöavogsæð 4. áfanga fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 1.500 skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö þriðjudaginn 26. júlí 1983 kl. 11 fh. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍXURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 ■ Fimm ættliðir á hátíðastund. Frá vinstri: Sigrún Jóhannsdóttir sem er 90 ára, sonur hennar Valdimar Kristinsson sem er 61 árs, dóttir hans Sigrún 36 ára, dóttir hennar Anna Jensdóttir 18 ára og dóttir hennar Sigrún Harpa í fangi ömmu sinnar. ,;ER BUIN AÐ STIGA FÆTl A FJÓRAR HEIMSÁLFUR" — sagdi langalangamman Sigrún Jóhannsdóttir sem byrjaði á langferdunum 75 ára að aldri Suður-Þingeyjarsýsla: Þótt íslenskar konur nái heimsins hæsta aldri að meðaltali mun þó frekar fátítt að þær taki þátt í skírnarveislum barna-barna- barna-barna sinna, þ.e. að þær verði langalangömmur. Mynd frá einum slíkum atburði barst okkur þó á Tímanum nýlega og þótti það ærin ástæða til að hringja í langalang- ömmuna - Sigrúnu Jóhannesdóttur á Höfða í Grýtubakkahreppi. „Það er eins og ég hef alltaf sagt, það er ekkert til sem ekki getur komið fyrir mig. Og þetta er eitt af því“, sagði Sigrún þegar við báðum hana um smá spjall í blaðið. - Jú, afkomendurnir eru orðnir nokkuð margir. Til að byrja með átti ég 15 börn, síðan bættust við rösklega 50 barnabörn. Sigrún Harpa litla er svo fyrsta langalangömmubarnið. Og guð hefur verið svo góður að allt er þetta heilbrigt og svona eins og fólk er flest, sagði Sigrún. Bömin kvað hún öll hafa komist upp, en elsta son sinn missti Sigrún 17 ára gamlan. Það er einhver guðs vernd yfir þessu öllu saman, því oft voru erfiðir flutn- ingar og ýmislegt sem á gekk eins og gerðist hjá fólki sem var að berjast áfram. Að Höfða kvaðst Sigrún hafa flutt árið 1932 og átt þar heima síðan. Mann sinn missti hún árið 1953, en bjó áfram með börnum sínum sem hún kvað þá öll hafa verið komin yfir fermingu. Á Höfða búa nú tveir synir hennar ásamt fjölskyldum sínum og á hún heima hjá öðrum þeirra. Hin börnin kvað hún hafa dreifst út um allt land. - Það hlýtur að vera síór hópur sem kemur saman þegar hátíðlegir atburðir gerast í fjölskyldunni og líklega oft gestkvæmt t.d. yfir sumarmánuðina? - Það getur oft orðið nokkuð margt. Flest varð það þó þegar ég varð níræð í fyrra - þá voru hér hátt á þriðja hundrað manns. Og auðvitað fengu allir súkkulaði og kaffi eins og sagt er frá í sögunum hennar Guðrúnar frá Lundi. - Okkur hefur borist til eyrna að þú hafir heldur betur lagt land undir fót iftir að áhyggjurnar af búskapnum fóru að minnka? - Já, ég er búin að stíga fæti á 4 heimsálfur. Ég byrjaði nú ekki á þessu fyrr en ég var orðin 75 ára. Þá fór ég til Austurlanda. Ég var búin að þrá alla mína æfi að komast austur til Gyðinga- lands og á þær slóðir og mér auðnaðist það. Það var mikið ævintýri og alveg dýrleg ferð. Þótt mig hafi eiginlega aldrei langað nema til Ameríku - var þar á íslendingadaginn þegar haldið var upp á 100 ára afmæli íslendinga- byggðar þar. - Hefur þú þá ekki einnig ferðast töluvert innanlands? - Ég er búin að koma í allar sýslur landsins og nokkuð inn á öræfin, Landmannalaugar og þess háttar. Síð- ast fór ég í hringferð um landið fyrir tveim árum. Börnin mín, sem mörg . búa í Reykjavík, heimsæki ég á hverju ári. - Heldurðu að þú eigir kannski enn eftir að leggja í iangferð? - Nei, nú er ég hætt að ferðast - er ekki orðin til þeirra hluta meir. -Mérheyrist þúa.m.k. hinhressasta í tali? - Já, munnurinn er alltaf í góðu lagi. Það er neðri hlutinn sem orðinn er heldur lélegur, sagði Sigrún gaman- söm. Það er þó ekki yfir neinu að kvarta. ■ Föstudaginn 1. júlí s.l. opn- uðu þrjú fyrirtæki saman í einu og sama húsnæðinu. Þetta eru fyrirtækin Hagkaup, Skeljungur ogrTomma-Hamborgarar. Framkvæmdir hófust í septem- ber s.l. á 10.000 fermetra lóð. Húsnæði Hagkaupa er 1200 fer- metrar á einum gólffleti og við verslunina eru 150 malbikuð bíla- stæði. Heildarflatarmál Skelj- ungs er 202 fermetrar, þar af flatarmál bensínstöðvar 88 fer- metrar, en veitingastaðar 114 fer- metrar. Tommahamborgarar eru jafnt veitingastaður og söluturn en veitingastaðurinn tekur 32 Ég lifi eins og blómi í eggi, allir eru mér góðir, eins og þar segir og ég reikna ekki með að ég eigi neina óvini. - Oft hefur hvarflað að undirritaðri að tæpast hafi fólk nokkurn tíma í sögunni lifað aðrar eins breytingar, og væntanlega framfarir og þeir er lifað hafa á íslandi síðustu 80-90 árin. - Það hugsa ég að sé rétt hjá þér. Þessvegna skammast ég mín líka fyrir ungdóminn nú tii dags sem er kvart- andi og kveinandi þó hann hafi alla hluti. Þetta unga fólk hefði þurft að kynnast gömlu eldhúsunum, reyknum og smalamennskunni og þessháttar á árum áður - það hefði haft gott af því. A.m.k. veit ég að ég kann vel að meta framfarirnar. En maður var samt ánægður með lífið þá eins og nú - hafði líka nóg að gera og ekki tíðkaðist að liggja í auðnuleysi. í þá daga var unga fólkið þó ekki síður kátt og skemmti- legt heldur en það sem maður sér núna, sem hengir hausinn og sést varla brosa.Það finnst mér heldur dauflegt að horfa á, sagði þessi einstaklega erna langalangamma, Sigrún á Höfða. -HEI manns í sæti. Hjá Hagkaupum í Njarðvík starfa um 35 manns og verður þar boðið upp á sama úrval í matvöru og í Reykjavík og sama verð verður á vörum þar. Hjá Skelj- ungi verður auk sölu á bensíni, dieselolíu og steinolíu á boðstól- um ýmsar þjónustuvörur fyrir bifreiðar. Einnig er á lóðinni þvottastæði fyrir 5 bifreiðar. Hjá Tomma-Hamborgurum verður boðiðúpp á fjölbreyttan matseðil s.s. nautasteikur, lambasteikur, fisk, samlokur, kaffi o.fl. Pá er í söluturni boðið upp á öl, tóbak og sælgæti. - ÞB Njarðvík: Þrjú fyrirtæki í sama húsnæði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.