Tíminn - 13.07.1983, Qupperneq 7

Tíminn - 13.07.1983, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLI1983 7 umsjón: B.St. og K.L. ■ Fólk virðist scint fá nóg af fréttum af einkalífi Elizabeth Taylor. SJÓNVARPSÞÆTTIR UM EINKfl- LÍF LIZ TAYLOR MEÐ HENNI SIÁLFRI í AÐALHLUTVERKI? ■ Þó að sýningar á leikriti Noels Coward „EinkaliT' með þeim Elízabeth Taylor og Ric- hard Burton í aðalhlutverkum hafi hvorki fallið gagnrýnend- um né öðrum áhorfendum í geð, er Elízabeth ekki af baki dottin. - Það er ekki við því að búast, að áhorfendur hafi áhuga á þessu hundgamla leikriti, segir hún. - En þeir hefðu áreiðanlega áhuga á sýn- ingum á mínu einkalífi. Þar hafði Liz rétt fyrir sér. Þó að engin kona hafi trúlcga fengið eins mikla umfjöllun í fjölmiðlum fyrr eða síðar og hún, virðast aðdáendur hennar seint verða fullsaddir á því að fylgjast með henni, 7 hjóna- böndum með 6 mönnum og öðru fjölskrúðugu ástarlífí hennar. Það var því ekki að ófyrirsynju, að sjónvarpsfyrir- tæki eitt sýndi málinu áhuga, þegar Liz lýsti sig reiðubúna til samstarfs. Heldur fóru þó að renna tvær grímur á framleiðend- urna, þegar Liz setti fram kröfur sínar. Eimm milljónir króna vill hún fá fyrir hvern þátt, enda ætlar hún að sjálf- sögðu að fara sjálf með aðal- hlutverkið. Þar við bætist, að hún er því frábitin, að þættirnir verði fleiri en 12. - Ég tek aldrci í inál að leika í 13. sjónvarpsþættinum. Til þess er ég of hjátrúarfull, segir hún. Það bendir því allt til, að ekkert verði úr fyrirhuguðum sjónvarpsþáttum um einkalíf Elizabeth Taylor, að sinni a.m.k. það gengið alveg þokkalega, þó sólina vanti eins og er. Nú höfum við verið með seglagerð fyrir ýmis fyrirtæki svo sem Landsím- ann og Rafmagnsveiturnar en þetta eru fyrirtæki sem mjög mikið þurfa á svona útbúnaði að halda. Þá er mikill hluti af starf- semi okkar bundin við skipin og bátana þó það sé af sem áður var þegar þilskipaútgerðin var upp á sitt besta því þá var seglasaumur- inn mun yfirgripsmeiri en nú er, og mikið um handsaum sem varla þekkist núna. Þetta byggist að sjálfsögðu allt á vélsaumi enda handsaumur nánast úr sög- unni.“ Hvernig gengur svo rekstur- inn? „Hjá fyrirtækinu vinna nú í dag um 15 manns en sumt af því eraðvísusumarfólk. Reksturinn hefur gengið alveg þolanlega með mikilli vinnu og góðu starfs- fólki. Við bindum miklar vonir við tjaldagerðina en hún hefur verið töluvert umfangsmikill þáttur í starfsemi okkar. Það er auðvitað samkeppni í þessu eins og öðru en ég held að við stöndum þokkalega að vígi. Samt er ekki um annan markað að ræða en innanlandsmarkað því að allt okkar hráefni er innflutt og nóg framboð erlendis á svipuðum afurðum. Þá miðast okkar afurðir við íslenskar að- stæður og kröfurnar verða því meiri. Ég gerði það að gamni mínu nú fyrir skömmu að aug- lýsa í Færeyjum framleiðslu okk- ar til að sjá hvað kæmi út úr því. Þá kom í ljós að ekki var um neitt slíkt að ræða því nóg virtist framboðið vera þar. Það er samt allt í lagi að vera með augun opin ef einhver markaður skapast. Annars man ég það núna að ég var að bjóða ykkur á Tím- anum að kaupa blaðburðarpoka frá okkur nú fyrir skömmu. Ég hef selt Þjóðviljanum og Dag- blaðinu með góðum árangri undanfarið úrvals blaðburðar- poka sem þeir hafa verið salla- ánægðir með. Ég held að það væri alveg við hæfi að þið slægj- ust í hópinn og sannfærðust um ágæti afurða okkar,“ sagði Jón Barðdal seglasaumari að lokum. - ÞB erlent yfirlit ■ MORGUNBLAÐIÐ skýrir frá því í gær, að Paul Volcker, scðlabankastjóri Bandaríkj- anna. hafi dvalizt hér á landi í síðastliðinni viku við laxveiði í Vatnsdalsá. Hann hafi verið hér í boði Seðlabankans. Hingað hafi hann komið á miðvikudag- inn, en farið utan ásunnudaginn. Skömmu eftir heimkomu Volc- kers fór sá orðrómur eins og eldur í sinu víða um heim, að Volcker hefði í hyggju að hækka vextina. Margirauðjöfrar brugð- ust við á þann hátt að auka kaup á dollurum með þeim afleiðing- um, að gjaldmiðill flestra Evrópuríkja féll í verði miðað við dollara. Hérlendis hafði þetta þó ekki teljandi áhrif. 6. júlí var dollar- inn skráður á 27.59 krónur, mið- að við sölu, en 11. júlí á 27.66. Það fylgdi ekki þessum orð- rómi, hvort hann ætti rætur að rekja til laxveiðanna í Vatns- dalsá og þeirra viðræðna, sem þar kynnu að hafa farið fram. Sennilegt er þó, að Volcker hafi ekki verið hvattur til þess að hækka vextina. Vafalaust hefur Volcker fallið það vel að fá sér nokkurra daga hvíld við veiðarnar í Vatnsdalsá. Nýlega er nefnilega lokið miklu baktjaldamakki í Washington, ■ Paul A.Volcker. legra væri að grípa til nokkurrar gengisfellingar, en reyna síðan að halda genginu föstu. Þetta leiddi til gengisfellingarinnar 1971. Þetta leiddi þó ekki til þess árangurs, sem stefnt hafði verið að. Gengi dollarans var aftur fellt 1973 og komst þá á sú skipan, sent síðan hefur verið fylgt. að hafa gengið fljótandi, eins og það er kallað. Árið 1975 var Volcker skipað- ur af Ford forseta yfirmaður útibús Federal Rescrve Board í New York, en það er langstærst af tólf útibúum bankans. Þessari stöðu gegndi Volcker til 1979, en Carter skipaði hann seðlabankastjóra eða chairntan of Federal Reservc Board, eins og staða hans er kölluð. Carter hafði áður aflað sér rækilegra upplýsinga um hver kæmi helzt til greina, og var að lokum staðnæmzt við Volcker. Sumir fréttaskýrendur telja, að Volcker hafi ekki launað Car- ter vel upphefðina og valdið. Eitt af fyrstu verkum hans var að hækka vextina, sem léiddi til þess í fyrstu. að bæði atvinnu- leysið og verðbólgan jukust. Þetta átti vafalítið sinn þátt í ósigri Carters í forsetakosning- unum 1980. Volcker er annar voldugasti maður Bandaríkjanna Hvaða áhrif hafði veiðin í Vatnsdalsá? sem snerist um það, hvort hann yrði endurskipaður í embætti seðlabankastjórans, en skipun- artími hans átti að renna út 6. ágúst. í fyrstu virtist Reagan vera því mótfallinn og flestir ráðu- nautar hans. Þeir höfðu það m.a. á móti Volcker, að hann hefði upphaflega verið skipaður af Carter og að hann hefði verið demokrati. Margir voru tilnefndir sem hugsanlegir eftirmenn hans, m.a. Friedman, en bráðlega fór sá hópur að þynnast. Enginn þótti sérstaklega álitlegur, og voldugir menn í fjármálalífinu studdu endurráðningu Volckers. Sjálfur lagði hann mikið kapp á að halda starfinu áfram. Það hjálpaði honum, að dreg- ið hefur úr verðbólgu síðustu mánuði og hagvöxtur hefur held- ur aukizt, Þetta þakka margir stefnu Volckers í peningamál- um. Hitt hefur horfið í skuggann, að hið mikla at- vinnuleysi í Bandaríkjunum er afleiðinghennar,a.m.k. aðveru- legu leyti. Svo fór að lokum, að Volcker stóð einn uppi af þeim mönnum, sem komið höfðu til greina. Allir keppinautar hans höfðu verið útilokaðir af mismunandi ástæð- um. Fyrir nokkrum dögum til- kynnti Reagan að hann hefði endurráðið Volcker sem seðla- bankastjóra. Rétt á eftir hélt Volcker norður til Vatnsdalsár, en lax- veiðar eru sagðar helzta eða eina íþrótt hans. SÚ STOFNUN Bandaríkj- anna, sem helzt líkist seðla- banka, nefnist Federal Reserve Board. Þessi stofnun er mjög valdamikil og má segja, að hún ráði meiru en forsetinn og ríkis- stjórnin um þróun peningamála. Hún ákveður seðlamagn, sem er í umferð, vexti og sitthvað fleira. Formaður þessarar stofnunar er hinn raunverulegi seðlabanka- stjóri Bandaríkjanna og er stöðu hans þannig háttað, að hann má heita næstum einvaldur. Hann er því oft talinn annar valdamesti maður Bandaríkjanna, næst á eftir forsetanum. Paul A. Volcker, sem er 55 ■ Volcker við veiðar. ára, er sagður hafa stefnt lengi að því að komast í þessa stöðu. Öll menntun, sem hann hafi aflað sér, hafi miðazt við það. Volcker er fæddur og uppalinn í New Jersey, þar sem faðir hans var eins konar borgarstjóri í einni af minni borgum fylkisins. Eftir að hafa lokið menntaskóla- námi, hóf hann hagfræðinám við háskólann í Princeton og hélt því síðan áfram við Harvardhá- skóla, þar sem hann lauk meist- araprófi. Á þessum árum var það mjög til siðs, að Bandaríkjamenn,sem lögðu stund á hagfræði, færu til framhaldsmenntunar við London School of Economics. Hann þótti þá fremri flestum öðrum skólum í þessari grein. Volcker hélt því til Bretlands og hugðist Ijúka doktorsprófi við umræddan skóla. Hann hóf nám þar og var kominn talsvert á veg með doktorsritgerðinaT'þégár honum barst boð um starf hjá útibúi Federal Reserve Board í New York. Volcker ákvað að taka boðinu og hætti því við doktorsritgerð- ina. Hann sagðist síðar hafa gert sér Ijóst, að það væri aðeins tímacyðsla að fást við slíka papp- írsvinnu. Volcker vann sér fljótt gott álit og hækkaði stöðugt í tign, fyrst hjá Federal Reservc Board i New York og síðar hjá Chase Manhattan Bank. I forsetatíð Kenncdys var hann ráðinn í þjónustu fjármálaráðuneytisins til að stjórna eins konar hagsýslu- stofnun. Arið 1969 var Volcker búinn að vinna sér slíkan orðstír, að Nixon skipaði hann aðstoðarráð- herra í fjármálaráðuneytinu og var starfssvið hans að fylgjast með þróun peningamála. Staða dollarans var þá veik, en gengi hans var þá skráð frá degi til dags. Volcker komst að þeirri niðurstöðu, að skynsam- ÞVÍ VAR haldið fram af ýms- um fréttaskýrcndum, þegar Re- agan dró það að endurskipa Volckcr, að það stafaði af því, að Reagan óttaðist, að Volcker gæti gcrt sér sömu glcnnu í forsetakosningunum 1984 og Carter 1980. " Volcker gæti nefnilega átt það til að grípa til aðgerða í pcninga- málum, sem kæmu Rcagan illa, ef Itann áliti það nauðsvnlegt. Hann myndi þá setja hagsmuni Bandaríkjanna ofar en hagsmuni Rcagans. Þótt margir telji Volcker eins konar harðlínumann í peninga- málum, hcnda aðrir á, að hann cigi það ekki síður til að vcra tækifærissinni, cf hann álíti stefnubreytingu eða frávik frá meginstefnunni nauðsynlega. Fylgismenn Reagans, sem beittu sér gegn endurskipun Volckers, eru sagðir hafa haldið því fram, að hann væri óútreiknanlegur. Þá veikti það nokkuð aðstöðu hans, að hann hefur gagnrýnt hinn mikla tekjuhalla á ríkis- rckstrinum, sem hann telur tor- velda stefnuna í pcningamálum. Annars sagði New York Times frá því, þegar Volcker dvaldi á íslandi, að hann hefðu nú mestar áhyggjur af skuldum þróunar- ríkjanna. Þessar skuldir væru orðnar svo miklar, að vanskil á þeim gætu haft hinar alvarlegustu af- leiðingar fyrir fjármálalíf Banda- ríkjanna, því að staða margra banka þar myndi þá verða mjög erfið og jafnvel leiða til gjaldþrots. Vaxtastefna Volckers hefur átt sinn þátt í að skapa þetta ástand. Olíufurstar og aðrir auð- menn hafa lagt fé sitt á vöxtu í Bandaríkjunum vegna háu vaxt- anna, Bankarnir hafa orðið að ávaxta það fé og gert það að verulegu leyti í þróunarríkjun- um. Þess vcgna hafa þeir verið örlátir á lánveitngar til þróunar- ríkjanna. EfbankakerfiðíBandaríkjun- um veikist vegna erlendu skuld- anna, gæti það leitt til þess, að olíukóngar og auðfurstar flyttu fé sitt þaðan. Mun Volcker þá reyna að stöðva það með hækk- un vaxtanna? Þetta er spurning, sem margir velta nú fyrir sér. Þórarinn Þórarinsson, ritstjori, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.