Tíminn - 15.07.1983, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ1983
GLUGGAR
OG HURÐIR
Vönduð vinna á hagstœðu verði.
Leitið ti/boða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.
|dn Bllaleiga PD Carrental yÆAÞJo- *
Dugguvogi 23. Sími82770
Opið 10.00-22.00. Sunnud. 10.00 - 20.00 Sími eftir lokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar Þvoið, bónið og
gerðir fólksbíla. gerið við bílana
Sækjum og sendum ykkar í björtu og rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
MJ FINNUR F/ð#G% ÚR
Ferðagræjunum
Kannaðu kjörin
EF
verð kr.
5.480.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI IOA - SlMI 16995
f réttir I
Sauðárkrókur
Fljúgandi sumarsælu
vika á Sauðárkróki
■ Flugdagur verður haldinn á Sauð-
árkróki þann 16. júlí n.k., og þar með
hefst Sumarsæluvika Sauðkræklinga.
Flugdagurinn er haldinn í minningu
Dr. Alexandcrs Jóhannessonar og
hefst kl. 13.30 meðsetningarræðu Jóns
E. Böðvarssonar.
Á flugsýningunni verður m.a. sýnt
hópflug lítilla flugvéla, listflug á svif-
flugu og vélflugu, fallhlífastökk, mó-
delflug, gírókopti og tvær heimasmíð-
aðar flugvélar munu koma, önnur frá
Akureyri en hin frá Reykjavík. Tvær
vélar frá Varnarliðinu munu koma t'
heimsókn, Pantom þotur, eldsneyt-
isvél af Herkúlesgerð ásamt björgunar-
þyrlu, er sýnir eldsneytistöku í lofti,
ásamt björgunarsýningu. Allt mun
þetta vera almenningi til sýnis á eftir.
í ár eru liðin nákvæmlega 200 ár frá
því fvrst var flogið í hitaloftbelg, en
það var nálægt París 1783. Af því
tilefni ákváðu félagar í flugklúbbi
Sauðárkróks að fá hitaloftbelg frá
Bretlandi í heimsókn og mun hann
koma ásamt tveggja manna áhöfn og
sýna listir sínar á flugdeginum. Loft-
belgurinn er 1840 rúmmetrar og hon-
um stýrir Philip Dunnington sem er einn
reyndasti loftbelgjaflugmaður Breta
og hefur haldið sýningar víða um heim.
Um kvöldið kl. 19.00, stendurgest-
um til boða að fara í ferð út í Drangey,
og er áætlað að sú ferð taki um 5-6
klukkustundir. Um kvöldið verður svo
dansleikur og mun Hljómsveit Ingi-
mars Eydal leika fyrir dansi.
- ÞB
Nýtt fyrirtæki
Gúmmívinnslan h/f
■ Þann 8. júlí s.l. var hlutafélagið
Gúmmívinnslan h/f stofnað á Akur-
eyri. Starfssvið félagsins er fólgið í
endurvinnslu á gúmmíúrgangi ásamt
hjólbarðasólun og tilheyrandi þjón-
ustu.
Eitt mikilvægasta verksvið Gúmmí-
vinnslunar h/f verður framleiðsla á
ýmsum gúmmívörum fyrir sjávarút-
veginn, svo sem framleiðsla á gúmmí-
bobbingum o.fl. Tilraunir með bobb-
inga framleidda úr afgangsgúmmíi
hafa þegar farið fram hjá einum togara
Útgerðarfélags Akureyringa og hafa
þær gefist mjög vel. Þá mun sólningar-
deild fyrirtækisins annast sólningu á
hjólbörðum fyrir stærri bifreiðir svo
sem vöru-, steypu- og flutningabíla.
Stofnendur fyrirtækisins eru Pórar-
inn Kristjánsson, Birgir Eiríksson,
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar h/'f, Möl
og Sandur h/f og Bandag h/f Reykja-
vík. Hlutafé félagsins er tvær milljónir
króna sem verður að hálfu í eign
Þórarins Kristjánssonar og að hálfu í
eign annarra aðila. Stofnkostnaður er
áætlaður um 6 milljónir króna og
árlegt framleiðsluverðmæti í fyrstu um
4 milljónir króna.
Stjórn Gúmmívinnslunnar h/f sem
kjörin var á stofnfundinum er skipuð
eftirtöldum mönnum: Þórarni Kristj-
ánssyni vélvirkja, Finnboga Jónssyni
framkvæmdastjóra, Friðfinni K. Dan-
íelssyni iðnráðgjafa, Hólmsteini
Hólmsteinssyni framkvæmdastjóra og
Pétri Rafnssyni framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri félagsins hefur ver-
ið ráðinn Þórarinn Kristjánsson vél-
virki.
- ÞB
Myndlistarsýning,
„Undir Jökli“ ’83
■ Næstkomandi laugar-
dag opnar Haukur Hall-
dórsson myndlistarmaður
sýningu á verkum sínum
í Ólafsvík, og stendur hún
til 24. julí n.k. Haukur
mun sýna um 50 verk og
eru þau í kol, krít, tússi
og silkilitum, og eru verk
hans sótt í þjóðsögurnar,
álfa, tröll og drauga.
Haukur gerði sér sér-
staka ferð til Ólafsvíkur
til að teikna nokkrar
myndir í túss, og verða
þær með á sýningunni.
Aðferð Hauks með silki-
liti er nokkuð sérstök, og
ekki vitað til þess að sú
aðferð hafi verið reynd
hér á landi áður. Þetta
verður því í fyrsta skipti
sem þessháttar myndir
eru sýndar opinberlega.
Haukur nefnir sýningu
sýna „Undir Jökli ’83“,
og verður hún haldin í
nýja sal grunnskólans í
Ólafsvík. Sýningin verður
opin alla daga frá kl. 2-8.