Tíminn - 15.07.1983, Blaðsíða 6
BROOKE SHIELDS
Á TÍMAMÓTUM
■ Þegar Brooke Shields auglýsti gallabuxur eins og myndin
sýnir, aðeins 16 ára gömul, var mörgum siðapostulanum nóg
boðið. En Breoke skýrði þá frá því, að hún væri fædd í
tvíburamerkinu og persónuleiki hennar því tvíklofinn.
■ Brooke Shields, sem á sér
langan feril að baki sem fyrir-
sæta og leikkona, stendur nú á
tímamótum. Hún hefur nú sótt
um inngöngu í Princetonhá-
skóla og hefur þar nám í haust.
Þó að vist við þennan skóla sé
svo eftirsótt, að næslum sé
slegist um hvert pláss þar, átti
llrooke ekki í neinum erfið-
leikum með að fá inngöngu,
enda er henni fleira gefið en
glæsilegt útlit. Stúlkan er
nefnilega bráðgreind, mamma
hcnnar, sem til þessa hefur
stjórnað öllu hennar lífi,
heldur því fram, að greindar-
vísitala hennar sé 155!
Ferill Brooke sem fyrirsætu
hófst meðan hún var enn með
bleiu! Móöir hennar, Teri,
gerði sér nefnilega fljótlega
Ijóst, að dóttir hcnnar var
óvenju fríð og var ckkcrt að
tvínóna við að notfæra sér það.
10 ára gömul sat Brooke fyrir
nakin hjá ijósmyndara, 12 ára
gömul lék hún vændiskonu í
hinni umdeildu kvikmynd
Pretty Baby og 15 ára göniul
var hún orðin fyrirmynd jafn-
aldra sinna eftir leik sinn i
kvikmyndinni Illuc Lagoon. í
þeirri kvikmynd átti Brooke
að koma fram nakin, en nú
voru farnar að renna tvær
grímur á móður hennar, og
kom hún því til leiðar að stað-
gengill var notaður í þeim at-
riðum. í samræmi við þessa
hugarfarsbreytingu Teris hef'ur
hún reynt að fá því framgengt,
að myndirnar, sem teknar voru
af Brooke 10 ára, verði tcknar
endanlega úr umferð. Það hef-
ur henni þó ekki tekist enn.
Margir halda, að líf Brookes
hafi verið átakalaust og taka
ekki tillit til þess, að auk þess
að hafa stundað mikla vinnu
alla tíð hefur hún staðið sig
með afbrigöum vel í skólanum.
En Brooke hefur líka orðið að
fást við erfiðleika í einkalífi.
Þegar hún fæddist, voru for-
eldrar licnnar þegar skildir.
Hún ólst upp hjá móður sinni,
en hefur alltaf haft gott sam-
band við föður sinn, sem fljót-
lega eftir skilnaðinn giftist
aftur og eignaðist börn, sem
Brooke lítur á sem systkini sín.
Það hefur alltaf verið álitið,
að Teri stjórnaði dóttur sinni
harðri hcndi og Brookc sjálf
legði lítið til málanna. Það
kom því ekki lítið á óvart fyrir
nokkru, þegar Brooke kom
fram opinberlega og skýrði frá
drykkjusýki móður sinnar, sem
fram að þeim tima hafði verið
á fárra vitorði og allir keppst
við að halda leyndri. Tilgangur
Brookes með því að skýra frá
þessum vanda opinbcrlega var
tvíþættur. Annars vegar vildi
hún benda öðrum unglingum,
sem við sama vanda búa, á, að
þetta vandamál skýtur víða
upp kollinum. Hins vegar vildi
hún setja móður sinni stólinn
fyrir dyrnar. Hún yrði að velja
á milli Brookes og flöskunnar.
Móðir hennar skildi ábending-
una og með dyggri aðstoð
Brookes hefur hún nú sagt
skilið við brennivíniö.
Þó að Brooke hefji nú alvar-
lega skólagöngu, ætlar hún
ekki algerlega að segja skilið
við kvikmyndirnar, en skólinn
skal hafa algeran forgang. Hún
hefur nú nýlokið leik í mynd-
inni Sahara, sem verður byrjað
að sýna í bandarískum kvik-
myndahúsum í ágúst.
Spilavítin f Las Vegas loka og stjörnurnar
missa atvinnuna
■ Hér á landi er rétt cinn
umganginn farið að tala um
samdrátt og kreppuástand.
Víst er um það, að víða annars
staðar hefur undanfarin ár ríkt
samdráttur á mörgum sviðum,
jafnvel svo að hér hefur verið
um barnaleik að ræða miöað
við ástandið þar. Nú hefur t.d.
kreppuástandið í Bandaríkjun-
um leitt til þess, að farið er að
loka spilavítunum í Las Vegas,
og þykir þá langt gengið!
Astæðan fyrir lokun spilavít-
anna, sem lengi hafa verið ein
aðaltekjulind borgarinnar, er
auðvitað sú, að gcstum hefur
fækkað mjög, auk; þess sem
þeir, sem ennþá falla fyrir
freistingunum, eyða miklu
minna fé í skemmtunina en
fyrr. Spilavítin hafa löngum
boðið viðskiptavinum sínum
upp á íburðarmikil og fín
skemmtiatriði og ráðið til þess
að sjá um þau dýrustu og
þekktustu skemmtikrafta
heims. Sumir hafa jafnvel verið
á boðstólum í Las Vcgas árum
saman. Má þar nefna nöfn eins
og Frank Sinatra, sem í 10 ár
hefur skemmt gestum Cesar’s
Palace, Diana Ross og Tom
Jones. En nú hefur þetta
fræga fólk mátt bíta í það súra
epli að vera sagt upp störfum.
Sem bet'ir fer eru þessar
stjömur ekki á nástrái, þó að
þær hafi misst vinnuna um
sinn.
■ Ég þarf ekki að taka fram betlistafinn, þó ég missi vinnuna
í Las Vegas, segir Tom Jones, sem hefur sungið þar á sviði í
meira en 10 ár.
viðtal dagsins
Ásgeir Smári opnar sýningu í Asmundarsal
■ í dag, laugardaginn
16. júlí kl. 2 e.h., opnar
Ásgeir Smári Einarsson
myndlistarsýningu í Ás-
mundarsal að Freyjugötu
1. Hann sýnir þar olíu-
myndir, temperamyndir og
skúiptúr. Flest eru verkin
gerð á þessu ári, en nokkur
eru frá seinni hluta síðasta
árs. Þau eru öll til sölu.
1 samtali við Tímann
■ Ásgeir Smári Einarsson.