Tíminn - 04.08.1983, Side 5

Tíminn - 04.08.1983, Side 5
5 FIMMTUD\GUR 4. ÁGÚST 1983 Aðeins 7-8% íbúða í Stokkhólmi og Kaupmanna- höfn eru fimm herbergja eða stærri: EN HÉR ER RÚMUR FJÓRÐUNGUR ÍBUO- ANNA SVO STÚRAR! ■ Reykvíkingar búa í miklu stærri íbúðum heldur cn íbúar höfuðborga Danmerkur og „velferðarríkisins“ Sví- þjóðar, að því er frani kemur í nýrri skýrslu Borgarskipulags Reykjavíkur. Af hverjum 100 íbúðum í Stokkhólmi eru 62 tveggja herbergja eða minni. þar af 33 aðeins 1 herbergi og eldhús, eða þriðjungur af öllum íbúðum borgarinn- ar. Aðeins 38 af hverjum 100 íbúðum þar eru því 3ja herbergja eða stærri, og þar af niinna en 8 af hverjum 100 íbúðum sem eru stærri en 4ra hcrbergja. í Kaupmannahöfn eru 2ja herbergja íbúðir algengastar, eða rösklega 41 af hverjum 100 íbúðum í borginni. l-2ja herbergja íbúðir eru þar 53 af hverjum 100. Rösklega fjórðungur íbúða Kaup- mannahafnar eru svo 3ja herbergja íbúð- ir og aðeins rúmlega 7 af hverjum 100 íbúðum sem eru stærri en 4ra herbergja. eða svipað hlutfall og í Stokkhólmi. Hjá Reykvíkingum (illa launuðum og snauðum) snýst dæmið heldur bctur við. Aigengasti stærðarflokkur íbúða í Reykjavík er 5 herbergja eða stærri, eða rösklega 27 af hvcrjum 100 íbúðum. Röskur helmingur allra íbúða í borginrii cru 4ra herbergja eða stærri. Af hverjum 100 íbúðum í Reykjavík eru svo tæplega 27 þriggja herbergja, tæplega 21 íbúð 2ja herbergja og aðeins rúmlega 2 af hverjum 100 íbúðum scm eru aðeins 1 herbcrgi og eldhús, eða um 15 sinnum færri hlutfallslega heldur en í höfuðborg Svíaríkis. Því má bæta við að íbúðir í nágrannasveitarfclögum höfuðborgar- innar eru þó nokkru stærri að meðaltali heldur en í Rcykjavík. enda margir flutt þangað sem ekki hafa fengið að byggja nógustórt í Reykjavík,sem kunnugt er. Þess má að vísu geta að hlutfall l-2ja manna heimila er heldur hærra ytra cn á Fróni. eða 70,6% í Kaupmannahöfn og 77,4% í Stokkhólmi á móti 67,2% i Reykjavík - munurinn er því ekki mikill. Stór heimili cru hins vegar orðin fátíð í öllum þcssum horgunt. í Reykjavík er aðeins 5% fjölskyldna sein eru 5 manna eða stærri. í niðurstöðum skýrslunnar segir m.a. að líklegt sé að fjölskyldur í Rcykjavík eigi enn cftir að minnka. vcrði þróunin svipuð og á hinum Norðurlöndunum. Brýn þörf sé því á aö byggja mikið af litlum og mcöalstórum íbúöum á höfuð- borgarsvæðinu á næstu árum. - HEl ■ Hér er auglýst útsala og ekki að vita nema gefist tækifæri til að versla ódýrt. Aðsóknin er svo mikil að það verður að hleypa fólki inn í smáhópum. Myndin er tekin á Laugaveginum í gær. Tímamynd Ari Akureyri: Verid að semja um lokun „Las Vegas” ■ „Það er verið að vinna að því að fá þessum stað lokað, en það verður ekki farið út í neinar lögbannsaðgerðir meðan von er til að hægt sé að leysa málið með friðsamlegu rnóti," sagði Helgi Bergs bæjarstjóri á Akureyri í samtali við blaðið í gær en í Degi í síðustu viku var sagt frá því að eigendum leiktækjasalar- ins „Las Vegas" á Akurcyri hafi veriö hótað lögbanni ef salnum yrði ckki lokað þegar í stað. „Las Vegas" cr til húsa á miðbæjar- svæðinu í húsi sem á að víkja samkvæmt skipulagi, en Akureyrarbær og eigendur hússins eiga í málaferlum sem snúast um bætur fyrir húsið. Staðurinn fullnægir ekki kröfum bygginga- og hcilbrigðis- reglugerða. Lcyfi til rekstrarins rann út I. apríl s.l. Ef leyfa ætti þcnnan rckstur áfram þyrftu að fara fram miklar breyt- ingar á húsnæðinu að sögn Hclga Bcrgs. - JGK T rjákvoðuverksmiðjan: Tirest on* ★ Sumarhjólbarðar ★ Jeppahjólbarðar ★ Vörubílahjólbarðar Allar almennar viðgerðir umboðið FLATEYRI Sigurður Sigurdórsson sími 94-7630 og 94-7703 Kennarar óskast að Vopnafjarðarskóla. Meðal æskilegra kennslu- greina eru íþróttir. Upplýsingar veitir Magnús Jónasson, sími 97-3146 og Ásta Ólafsdóttir, sími 97-3164, vinnusími 97-3200. Umsóknir sendist fyrir 12. ágúst til skólanefndar. Skólanefnd Vopnafjarðar, Ágústa Þorkelsdóttir Kjötiðnaðarmaður Viljum ráða duglegan og reglusaman kjötiðn- aðarmann til'starfa í kjötvinnslu okkar á Selfossi strax. Upplýsingar gefur kaupfélagsstjórinn í síma 99-1208 Kaupfélag Árnesinga Selfossi. Bandarískur aðili kannar hagkvæmni Bilaleigan\$ CAR RENTAL O 29090 DAIHATSU ■ „Það er verið að athuga öll mál varðandi hugsanlega trjákvoðuverk- smiðju, stóriðjunefnd vinnur að þvi núna og auk þess verður kallaður til sérfróður bandarískur aðili til að fara yfir rekstrargrundvöll slíkrar verksmiðju og staðsetningu hennar," sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra í aær. Sverrir sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin í málinu, það biði þar til niðurstöður stóriðjunefndar og hins bandaríska aðila lægju fyrir. - JGK REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK Kvöldsími: 82063

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.