Tíminn - 04.08.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 04.08.1983, Blaðsíða 12
■ Fæðan gefur okkur þá orku, sem líkami okkar þarfnast til að við getum lifað heilbrigðu lífí. Ef við borðum hollan mat ræður það miklu um hvort hár okkar tennur, húðog neglur er heilbrigt og fallegt. Og til að halda réttri líkams- þyngd eigum við að borða þann mat, sem veitir okkur næga orku en ekkert um- fram það. Konur þurfa 1.800 - 2.500 hitaeiningar á dag, en karlmenn 2.500 -3000 til að viðhalda líkamsþyngd sinni. Ef dag- legur hitaeiningafjöldi í mat er minnkaður um 1000 eigum við að léttast um 1 kíló á viku. Hæg megrun mun yfírleitt reynast ár- angursríkari til lengdar en skyndileg og mikil megrun. Ef við grennumst hratt, eru kílóin líka fljót að koma aftur, ef slakað er á matarkúrnum. Einnig get- ur of hröð megrun gengið mjög á vítamínforða líkamans. Nægilcgt C-vítamín fáum við daglega með því að borða cina appclsínu. C-víta- mín gcymist ekki í líkamanum, svo að við getum borðað cins og viö viljum af C-vítamínríkum ávoxtum og grænmcti daglcga og margir hafa trú á stórum ■ Þctta er nú einmitt eitt af því, sem þarf að varast.satur sleikibrjóstsykur. Gætum ad matarædinu C-vítamínskömmtum viö ýmsum sjúk- dómum. D-vítamín cr mcst í lýsi og cr nauðsyn- legt fyrir bcin og tennur þar scnt líkam- inn þarfnast þess við vinnslu kalks og forfórs. Það cr stundum kallaö sólskins- vítamínið, því að við fáum það yl'ir sumartímann úr gcislum sólarinnar í gcgnum húðina. D-vítamín cr cinnig í cggjarauðu, og fcitum fiski t.d. Alls ckki má borða of niikiö af D-vítamíni, cf líkaminn fær of mikiö af því. koma fram eituráhrif. Fólk má því ckki bæði taka lýsi og vítamíntöflur. scm innihalda D-vítamín. Öðru hvoru koma fyrir til- felli. þar scm börn fá hættulcgar citranir vcgna þcss að þau hafa komist í „mcin- lausar" bragðgóðar vítamíntöflur, scm þau eiga að taka eina af daglega. cn fengið sér nokkrar. Vítamín - töflur sem og aðrar töflur ættu því alltaf að vcra geyntdar, þar sem smábörn ná ckki til þeirra. B-vítamín cru mörg og þau fáum við .aðallega úr korni. kjöti. eggjum og innmat. Þau eru nauðsynleg fyrir tauga- kerfi líkamans, hár. húð og neglur. A-vítamín eru í lýsi og mikiö af því cr í gulrótum. Það er nauðsynlegt fyrir slím- húö líkamans og skortur á því gctur valdið augnsjúkdómum. Áreiðanlcga vilja flcstir borða hollan og góðan mat og þar mcð þau vítamín ogsteincfni, scm líkamanum cru hollust, cn frcistingarnar cru margar. scrstaklega kannskc fyrir börn og unglinga. í Itvcrri matvöruverslun og sjoppu blasir viðs gífurlegt úrval af sælgæti ýntiss konar í skrautlcgum, aðlaðandi umbúðum og tcgundirnar eru svo margar að frcistandi cr fvrir marga að prófa. Þcss vegna cr ckki víst, þrátt fyrir góðan ásctning og allt scm við vitum um hoílan mat, að viö munum cftir því, þcgar sælgætið, gos- drykkirnir og kökurnarcru á boðstólum. En...Hvað skyldum við borða mikinn sykur daglega'? Það cr vafalaust ntcira cn okkur grunar. Aö meðaltali borðutft viö um 40 kíló af sykri á ári og um hclmingur þcss kcmur úr fæðu og drykkjum sem við etum og drekkum fullunnið. Utan á fjölmörgum vörutcgundum, scm við neytum, eru upplýsingar af skornum skammti um sykurinnihald. En er þctta mikla sykurát okkur til ills'? Svo telja læknar og tannlæknar. Þegar við borðum sykur, breyta bakte- ríur í munninum honum í sýru og það leiðir til tannskemmda, sérstaklega í börnunt. Öll kolvctnarík fæða breytist í sýrur á þennan hátt, en sykurinn breytist ntjög fljótt í sýrur. Og það cr sama hvort unt cr að ræða hvítan eða brúnan sykur. Annað vandamál í sambandi við syk- urát er það að hann inniheldur svo margar hitaeiningar að við erum fljót að borða meira cn gott cr fyrir vaxtarlag okkar. Þegar við borðum sykur. fær líkaminn cngin vítamín né stcinefni úr honum. aðeins hitaeiningar. Sykurinn gefurokk- ur orku. en það gerir öll hitaeiningarík fæða vcgna þess að hitaeiningar eru orka. í mörgum tilbúnum mat og sælgæti cr mikill sykur, t.d. cr 70% af karamellum sykur. 23% í tómatsósu og 9% í Rice Krispies. svo dæmi séu nefnd. Sykur cr nauðsynlegur í framleiðslu margra mat- artegunda. Hann er rotvarnarefni í sultum og marmelaði:, sem annars myndi strax skemmast, ef sykurinn væri ekki . Sykur eykur líka gerjun í brauð- bakstri, gerir kökur léttar og Ijúffengar og sama gildir unt sælgæti. Fólk vill líka hafa matvörur sætar og framlciðendur fara eftir því. En nú cr fólk farið að hugsa unt að minnka sykurát og hefur því sykurát ekki farið vaxandi. Framlciðcndur niðursoðinna ávaxta hafa nú hafið fram- leiðslu á ávöxtum, sem ekki cru í sykurlegi. heldur aðeins í náttúrlegum ávaxtasafa. Framleiðendur, sent fram- leiða barnamat hafa nú sumir hætt að bæta sykri í barnamat. nema í súra ávexti. t.d. apríkósur. sem ekki væri hægt að borða án sykurs. Og nú er hægt að fá barnamat eingöngu úr ávöxtum án nokkurra aukaefna. STERKASTI HLEKKURINN NYIR KAUPENDUR HRINGIÐ ! SÍMI 86300 Leidbeinenda- starfsemi verði komið á úti á landsbyggðinni ■ I júní s.l. var haldið Landsþing Kvcnfélagasambands íslands að Hrafnagili í Eyjafirði. Forscti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari samtakanna og sat hún þingið. Fyrirlesarar þingsins voru þær Sig- ríður Thorlacius fv. formaður K.I.. en hún hélt erindi um Friðarhreyfingu íslenskra kvenna og Elsa E. Guðjóns- son, safnvörður, sem hélt erindi um störf Þjóðbúninganefndar. Landsþingið ræddi mörg mál. Mest- ur áhugi var á að auka starf Leiðbein- ingastöðvar húsmæðra, scm K.í. hefur rekið um langt árabii. Ennfremur að komið verði á lciðbeinendastarfscmi úti á landsbyggðinni og héraðsráðu- nautar verði ráðnir til farkcnnslu. Stefnt skuli að aukningu starfsliðs K.í. úr hálfu stöðugildi í þrjú og stjórninni falið að sækja um fjárstyrk til þess úr ríkissjóði. Einnig voru friðarmál rædd og sam- þykktu þingfulltrúar áskorun á íslenskar konur að stofna með sér friðarhópa og vinna markvisst að því að komandi kynslóðir geti lifað í heimi friðar og frelsis. Varðveisla íslensku þjóðbún- inganna var talið of brýnt verkefni til þess að búa við fjársvelti og var skorað á Alþingi að veita þessu verkefni fastan árlegan fjárstyrk. Þingfulltrúar samþykktu áskorun á ríkisstjórn Islands að hraða undirbún- ingi samfellds lífeyriskerfis fyrir alla landsmenn, þannig að lífeyriskerfið tryggi öllum sömu réttindi. Nýja stjórn Kvcnfélagasambands íslands skipa: María Pétursdóttir, formaður, Stefan- ía María Pétursdóttir og Sólvcig Alda Pétursdóttir. Varastjórn skipa: Helga Guömundsdóttir. Unnur Schram Ágúst- dóttir og Þórunn Eiríksdóttir. ■ Þetta grill er búið til úr múrsteinum og er málmgrind lögð yfir. Undir kolin er gott að setja tvöfalt lag af álpappír til að endurkasta hitanum og þá skemmist ekki grasið undir. eldhúshornið ■ Þó að veðráttan í sumar hafi ekki vcriö með allra besta móti, nota þó margir útigrillin, þegar sólin sýnir sig eða veður er kyrrt. Mörgum finnst matur glóðaður á útigrilli bragðast mun betur en matur glóðaður t grillinu í eldhúsofninum. En það er ýmislegt, scm hafa þarf í huga, þegar grillað er, m.a. eftirfarandi reglur: 1. Staðsetjið grilltæki á öruggum stað, ekki nálægt trégirðingu eða. UM UTIGRILL ■ Skerið appelsínuna í bita, einnig eplið og vínberin í helminga. Setjið í salatskál ásamt túnfiskinum og avoc- ado ávextinum, sem hefur verið skor- inn niður í bita. Örlitlum pipar stráð á áður en salatið er borið fram vel kalt. trjám. Gætið þess að slétt sé undir tækinu. 2. Notið aldrei grilltæki innan dyra. brennandi kolin gefa frá sér eitraða lofttegund (kolmonoxíð), scm safnast fyrir inni í húsinu. 3. Reynið ekki að kveikja í glóðinni með bensíni eða paraffín olíu. Það er ckki aðeins hætta á of miklum loga, heldur gefa þessi efni matnum vont bragð. 4. Gott er að hafa fötu fulla af vatni, nálægt til að geta minnkað eldinn án þcss að hann slokkni alveg. 5. Hreinsið glóðartækið vel eftir hverja notkun. Appelsínusalat 1 appelsína 1 rautt epli rúml. lOOg grxn vínber(ánsteina) 250g túnfiskur, 1 avocado, svartur pipar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.