Tíminn - 04.08.1983, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.08.1983, Blaðsíða 6
6 _____________ f spegli tímans FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 ■ Eva Peron þótti fögur kona. Þegar hún kynntist Peron var hún dansmær og var að reyna að koma undir sig fótunum við kvikmyndir. koma aftur til föðurlands síns. Hann skipaði líka svo fyrir, að Peron yrði skilað líki Evu. Þá hafði sífeilt hnjask sett sín mörk á líkið. Hnén voru brotin, rispur voru á rifjum og hálsi, nefíð brotið og stór skurður á enninu. Samt grét Peron, þegar hann sá Evu aftur, og fannst hún líta út fyrir að vera lifandi, aðeins sofandi. 1972 sneri Peron, sem nú var giftur aftur, til heimalands síns, en þegar hann dó í júlí 1974, tók kona hans, Isabel, við forsetaembættinu. Hennar ' fyrsta verk í valdastóli var að skipa svo fyrir, að Eva skyldi flutt aftur heim. Hundruð þús- unda voru í líkfylgdinni, þegar Eva var flutt til forsetahallar- innar. ísabel hélt völdum í tvö ár áður en henni var steypt af stóli af einni herforingjastjórn- inni enn. Og nú tók enn eitt flökkutímabilið við hjá Evu. Það var svo 1976, að yfirvöld Argentínu gátu loks komið sér saman um endanlegan sama- stað fyrir Evu. Hún var loksins komin lieim eftir 24 ára eirðar- laust flakk um heiminn. — áður en það fékk endanlegan samastað ■ Enn þann dag í dag, 31 ári eftir dauða sinn, er Eva Peron, fyrrum forsetafrú í Argentínu, átrúnaðargoð landa sinna. Þeir líta á grafhýsi hennar sem helg- an stað, en smurður líkami hennar liefur loksins fengið endanlegan samastað í skot- heldu neðanjarðarbyrgi í fjöl- skyldugrafreit í Buenos Aires. Eva átti stutta en litríka ævi. Hún var fædd óskilgetin dóttir fátækrar móður. Því var það, að þegar hún var orðin valda- mikil forsctafrú í Argentínu, átti hún auðvelt með að skilja kjör og líf fátæklinganna þar í landi, sem hún bar mjög fyrir brjósti. Þeir hafa aldrei getað gleymt Evitu sinni og dýrka hana enn í dag. En stjórnmál i Argentínu hafa löngum verið stormasöm og sviptingar miklar og fiðar. Fyrir barðinu á þeim hefur jafnvel orðið nár Evitu, sem hefur lent í heilmiklum hrakn- ingum á því 31 ári, scm liðið er frá því Eva dó 33 ára gömul úr hvítblæði. I upphafí var líkinu komið fyrir á viðhafnarböruin í her- bergi einu í byggingu samhands verkalýðsféiaga í Iiuenos Air- es. Innan skamms höfðu tvær milljónir syrgjenda vottaö lienni virðingu sína með því að leggja leið sína framhjá börun- um. Er kom fram á sumar 1955 steypti herforingjastjórn manni liennar af stóli, en þá var Eva enn á viðhafnarbör- unum. Peron fór í útlegö á Spáni og gerði þá kröfu, að lik Evu yrði sent sér. Æðsti maöur hcrforingastjórnarinnar neit- aði og hóf mikla herfcrð til að sverta Peron-hjónin í auguin almennings. En þarskaut hann yfír markið og eini árangurinn varð sá, að persónudýrkun á Evu jókst að mun. Almenning- ur krafðist þess, að henni yrði rcist minnismerki. Herforingj- arnir komust að þeirri niður- stöðu, aö réttast væri aö eyða ■ Lík Evu Peron á viðhafnarbörum líkama Evu, en brast kjark til að láta til skarar skríða. En nú leið að því, að ný herföringja- stjórn kæmist til vulda og komst hún að sömu niöurstöðu og sú hin fyrri, að hætta stafaði af tilvist líkama Evu. Var ákveðið að flytja hann frá Buenos Aires, ákvörðunar- staður ókunnur. Það áttu el'tir að líða 16 ár áður en Argentínumenn fengu að líta sína elskuðu Evitu á ný. A þessum 16 árum geröi Eva víðreist og hafði áhrif á ýmsa atburöarás. Enn er ekki vitað um allar ferðir hennar, en þó er vitað að stóran hluta af þessum 16 árum hvíldi líkami hennar í grafrcit í Mílanó á Italíu. Áður var hún á flækingi, og lcnti m.a. á heimili for- stöðumanns argentínsku leyni- jijónustunnar, Arandia majórs. Nú voru argentínskir verka- menn farnir að ókyrrast og þegar kvittur harst út um hvar Evita væri niðurkomin, liótuðu öfgafullir Peronistar að koma liöndum yfír líkiö. Arandia varð skelkaður og svaf alltaf með lilaðna byssu undir kodd- anum. Nótt eina hrökk hann upp við hávaða frá baðher- berginu. Hann sá skugga af mannveru í gættinni, greip til byssu sinnar og hleypti af tvisvar. Hann komst að raun um, að hann hafði skotið harnshafandi konu sína til ólíf- is. Þessi athurður varð til þess, að enn var Eva send á flakk. Nú lá leiðin til Brússel, Bonn, Róinar og að lokum til Mílanó, og þar fékk hún að hvíla í friði næstu 15 árin. Á þessum árum valt á ýmsu í argentínskum stjórnmálum, eins og fyrr. Hcrforingjastjórn tók við af herforingjastjórn, en svo gerðist það, árið 1971, að þáverandi forseti Argcntínu bauð Juan Peron, sem þá var oröinn aldraður maður, að Kommúnistaleiðtoginn er strangur fjölskyldufadir ■ Enrico Berlinguer, for- maður italska kommúnista- flokksins, predikar jafnt og þétt að þjóöfélagiö sé staðnað Og rotið og þurfí breytingar við. Þó að hann sé sjálfur orðinn 61 árs, beinir hann ckki hvað síst oröum sínum til ungs fólks. En þegar hans eigin fjöl- skyldumeðlimir ætla að taka hann á oröinu og fella úr gildi gamla þjóöfélagsfordóma, er skyndilega kcmið annað hljóð í strokkinn. Dóttir hans Bianco 23 ára gömui, hugöist fara að búa með vini sínum, Saverio, sem er sonur leikarans Raf Vallone, án þess að liirða um að rölta upp aö altarinu fyrst. Þá var pabba hennar nóg boðið. Hann læsti dóttur sína einfaldlega inni á meðan hún var að hugsa ráð sitt! Á eigin heimili er Bcrlinguer greinilega gamli og góði fjöl- skyldufaöirinn, sem hefur öll ráð fjölskyldunnar í hendi sér! ■ F.nrico Berlinguer þreytist aldrci a þeiin boðskap að það þurfí að brevta og bylta þjóðfélaginu, cn þegar hans eigin fjölskyldumeðlimir taka liann á orðinu, kcmur nnnað hlióð i strokkinn Eva Peron Lik hennar var á 24 ára laHá um hemim SVONA GANGA ER STÓRFYRIRTÆKI — rætt við Rúnar Ármann Arthúrs- son, framkvæmdastjóra Fridargöngunnar ’83 ■ „Aðalyfirskrift göngunnar verður „Aldrei aftur Híró- síma", cn gangan er farin á Hírósímadaginn, 6. ágúst, en þá verða liðin 38 ár frá því sprengjunni var varpað á Hírósíma. Síðan verða hafðar uppi aðrar kröfur, hlutleysi Islands gagnvart öllum hernað- arbandalögum, kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd, og að sjálfsákvörðunarréttur þjóða sé virtur. Fólki er líka frjálst að vera með eigin spjöld uppi ef kröfurnar samræmast þessum ramma. Ég reikna til dæmis með því að uppsetningu með- aldrægu flauganna í Evrópu verði mótmælt, þótt það sé ekki innifalið í aðalkröfun- um,“ sagði Rúnar Ármann Arthúrsson framkvæmdastjóri Friðargöngunnar '83, sem farin verður á laugardaginn frá Keflavík til Reykjavíkur. Hvernig er undirbúningi fyr- ir svona göngu háttað? Þetta er stórt fyrirtæki og þarfnast margháttaðs undir- búnings. Það þarf að skrá fólk í gönguna og það tekur mikinn tíma. Þá þarf að útvega fólki far til Keflavíkur um morgun-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.