Tíminn - 04.08.1983, Qupperneq 10
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
umsjón: Samúel Örn Erlingssonj
Zico kominn
til ttalíu
■ Brasilíska knatlspyrnuhctjan Zico er
nú komin til Ítalíu, þar sem hann mun
leika með Udincse næsta keppnistímabil.
Zico lék áður með Flamenco í Brasilíu, og
greiddi Udinese fyrir hann drjúgan
skilding. Um tíma lcit út fyrir að Udinese
fengi ekki að kaupa kappann, vegna
krúka í ítölskum kauplögum, en úr því
greiddist á síðustu stundu.
Ingvar hættur
■ Ingvar Viktorsson handknattleiks-
forkólfur í Hafnarfirði lét nýlega af störf-
um sem formaður handknattlciksdcildar
FH, en Ingvar hefur verið formaður
deildarinnar í 12 ár, og 17 ár í stjórn
deildarinnar við góðan orðstír. Ingvar
baðst undan endurkjöri á aðalfundi hand-
knattlciksdeildarinnar sem haldinn var
fyrir skömmu. Formaður var kjörinn á
fundinum Egill Bjarnason. Á fundinum
voru þrír leikmenn FH í handknattleik
heiðraðir. Kristján Arason og Gyða Úlf-
arsdóttir fengu Barkarbikarinn, en slíkur
bikar er afhentur þeim leikmanni í karla
og kvennaflokki sem besta leiki sýnir á
keppnistímabilinu. Þá fékk Pálmi Jónsson
Muggsbikarinn, sem veittur er þeim sem
mestar framfarir sýnir á undangengnu
keppnistímabili.
Gylfi og Úlfar
til Portúgal
■ Gylfi Kristinsson GS, Islandsmeistari
og Úlfar Jónsson GK sem varð annar á
Islandsmótinu í golfí 1983 sem var um
síðustu helgi munu keppa í undankcppni
Heimsmeistarakeppninnar í golfi í Portúg-
al í september. Þeir Úlfar og Gylfi verða
fulltrúar Islands í kcppninni, en sá heiður
fylgdi einmitt þeim góða árangri sem
þessir ungu og efnilegu kyllingar náðu á
Islandsmótinu.
Álls munu 12 þjóðir senda kcppendur á
þctta mót, og fulltrúar fjögurra efstu fara
áfram í úrslitakeppnina sem verður í
Indónesíu í desember.
Góð þátttaka
í laðarsmótinu
■ Um 70 keppendur tóku þátt í Jaðars-
mótinu á Akureyri um síðustu helgi, úr 10
golfklúhbum víðs vegar af landinu, og
meira að segja frá Lúxcmhorg. Kcppend-
um gekk misjafnlcga að ciga við „Stóra
Bola“, eins og völlurinn er stundum
kallaður, eins og gengur, en veður var
óhagstætt þegar mótið fór fram, báða
dagana. Jón Þór Gunnarsson GA fór með
sigur af lióhni eftir spennandi keppni við
Skúla Skúlason GH, en Skúli varð fyrir
því óhappi á 16. holu að stilla upp kúlunni
of langt fyrir aftan merkin á upphafsteig,
og fékk 2 högg í víti. Jón Þór fór 36
hofurnar á 156 höggum, en Skúli á 159
höggum. Þriðji án forgjafar varð Þórhall-
ur Pálsson GA á 162 höggum, þá Gunnar
Þórðarson GA og Sigurjón R Gíslason
GK báðir á 164 höggum, sjötti Peter
Safflton GR á 165 höggum og sjöundu til
áttundu urðu Jón Alfrcðsson GL og
Kristján Hjálmarsson GH á 168 höggum.
Með forgjöf sigraði Jón Ævar Haraldsson
GE (Golfklúbbi Iískifjarðar) á 143 högg-
um nettó, annar Bogi Bogason GE einnig
á 143 höggum nettó cinnig, og þriðji
Þórður Svanbcrgsson GA á 144 höggum
nettó. - gk/SÖE
Fatamarkaður
■
FH-inganna
II Fatamarkaður verður föstudaginn 5.
ágúst á túninu við apótekið í Hafnarfirði
frá 14-22. Eru það hinir síkátu og knáu
handknattlciksmenn FH sem að
markaðinum standa. Ef illa viðrar verð-
ur markaðurinn fluttur í anddyri íþrótta-
hússins við Strandgötu. Þessi fatamark-
aður er liður í fjáröflun fyrir Evrópu-
keppni IHF sem FH-ingar taka þátt í í
vetur. Þarna er hægt að fá ný og gömul
föt á mjög góðu verði. Svona fatamark-
aður hefur verið áður og mæltist þá mjög
vel fyrir. FH hvetur alla velunnara
félagsins tii að mæta og næla sér í flík.
-Jó!
Hefðu betur boðið
vinnu sfna fyrr
■ ’ Friðrik Guðmundsson, formaður
HSÍ.
■ „Okkur hefði nú þótt betra að þessir
menn hefðn boðið fram vinnu sína fyrr í
stað þess að hlaupa með þetta í blöðin
nú,“ sagði Friðrik Guðmundsson for-
maður llandknattleikssambands íslands
þegar liann var inntur eftir áliti á bréflnu
sem leikmenn landsliðsins skipuðu leik-
mönnum 21 árs og yngri skrifa til
fremur en hlaupa með þetta í blööin’%
segir Friðrik Guðmundsson form. HSÍ
handknattleiksforystunnar, og sjá má
hér að neðan. „Það er rétt að piltarnir
voru ekki spurðir um þetta, en 6 manns
úr þessum hópi voru í unglingalandslið-
inu sem fór til Færeyja á dögunum og sá
hópur átti að afla 70 þúsund króna, en
aflaði aðeins 20 þúsunda. Þar stcndur
eftir 50 þúsund króna skuld. Málið er
það að þessi ferð er svo dýr að við höfum
ekki ráð á henni, sambandið skuldar
tæpa eina milljón króna, og við fáum
ekkert í dag ncma gegn staögreiðslu.
Við verðum að minnka skuldirnar áður
en farið er út í svona dýrt fyrirtæki. Hins
vegar er mjög margt af því sem stendur
í bréfi piltanna rétt.“
„Blóðugt að missa
af keppnirmi”
— segir Þorgils Óttar Mathiesen
■ „Það er náttúrlega alveg út í hött að
tala ekki við okkur áður en svona
ákvörðun er tekin“, sagði Þorgils Óttar
Mathiesen, en hann er einn þeirra pilta
sem undirrita þetta opna bréf til hand-
knattlciksforystunnar á íslandi.
„Það er ekki á hverjum degi sem
Hcimsmeistarakeppni fer fram, og því
hlóðugt að missa af henni. Svona keppni
er mjög lærdómsrík fyrir okkur og
kemur okkur örugglega seinna til góða“,
sagði Þorgils Ottar.
„Auðvitað er svona ferð dýr og við
skiljum vel að fjárhagurinn skuli vera
bágur hjá HSÍ, en hví að leggja svona
mikla áherslu á A-landsliðið þegar engin
stórvcrkefni eru hjá því liöi á þessu ári,
og láta landsliðið 21 árs og yngri alveg
sitja á hakanum, þegar það lið hefur
tryggt sér þátttökurétt til úrslita Heims-
meistarakeppninnar í Finnlandi?“
-Jól.
Þorgils Óttar Mathiesen.
„Það er enginn kominn til með að
segja að við þurfum ekki að fara í
forkeppni ef við tökum þátt í þessari
keppni aftur, þó við leikum nú,“ sagði
Friðrik Guðmundsson. „Þess ber að
gæta að aðeins tveir þeirra leikmanna
sem eru í liðinu nú, léku í liðinu sem
vann sér þátttökurétt. Við höfum fengið
svar frá IHF um það að við fáum ekki
vítur eða keppnisbann þó við föllum frá
ferðinni, enda ekkert einsdæmi að lið
verði að draga sig út úr keppni af
fjárhagsástæðum."
„Þessi ferð er sérstaklega dýr, dýrari
en ferð A-landsliðsins í B-keppnina
síðastliðinn vetur. Ferðin kostar 800
þúsund krónur minnst, það var marg-
kannað af sérfróðum aðilum. Ferðin er
dýr og svo uppihald fyrir 21 mann í þann
tíma sem ferðin tekur. Við eigum ein-
faidlega ekki fyrir þessari ferð, og ein-
hvers staðar verður að draga saman. Það
er ekkert gamanmál að taka við sam-
bandi með tæpra milljón króna skuld.“
- En fer A-landsliðið í keppnisferð í
vetur?
„Við erum nú að kanna möguleikana
á slíkri ferð, helst kemur til greina að
fara til A-Þýskalands í desember. Það er
tiltölulega ódýrt dæmi, einungis flugfar
til Danmerkur og ferja þaðan. Uppihald
er frítt. Það er lífsspursmál fyrir okkur
að fara slíkar ferðir, því helstu tekjur
Opid bréf til handknattleiksforystunnar
- frá leikmönnum landsliðsins 21 árs og yngri:
STÓRT SKREF AFTUR Á
■ Fyrir nokkru lét formaður Hand-
knattleikssambands íslands hafa eftir
sér í sjónvarpsviötali að draga ætti
landslið 21 árs og yngri í handknattleik
út úr Heimsmeistarakcppninni, sem
fram fer í Finnlandi í desember á þessu
ári, þrátt fyrir að liðið hefði með frábærri
frammistöðu í síðustu Heimsmeistara-
kcppni komist sjálfkrafa í þessa úrslita-
keppni, þ.c.a.s. liðið þurfti ckki að fara
i neina undankeppni. Formaðurinn,
Friörik Guðmundsson, bar við bágborn-
um fjárhag Handknattleikssambandsins.
Okkur undirrituðum, sem vorum leik-
menn í landsliði 20 ára og yngri og
tókum þátt í Noröurlandamóti þessa
aldursflokks 1982, blöskraði þetta og
skrifum því þetta bréf. En af hverju við?
Jú, þetta Norðurlandamót, sem haldið
var 1982, var sérstaklega á laggirnar sett
fyrir Norðurlöndin, sem undirhúnings-
mót fyrir Heimsmeistarakeppnina fyrir
landslið 21 árs og yngri í handknattleik í
Finnlandi 1983.
Mikilvægi
unglingastarfseminnar.
Enginn, sem eitthvað fylgist með
íþróttum, efast um mikilvægi unglinga-
starfseminnar í handknattleik sem í
öðrum íþróttagreinum. Einn hluti ung-
lingastarfseminnar sem er hvað mikil-
vægastur er, að unglingarnir fái tækifæri
til að keppa við sterkustu þjóðir heims
og fara á mót.eins og Heimsmeistara-
keppnina t.d. til að öðlast keppnis-
reynslu, sem síðar kemur til góða er í
'A-landsliðið er komið.
Ef við tökum sem dæmi unglingastarf-
semi hinna Norðurlandaþjóðanna í
handknattleik, þá spila unglingalandslið-
in 21 árs og yngri og 18 ára og yngri
nokkra landsleiki á ári hverju, en hér á
Fróni er slíkt ekki til staðar og hefur ekki
verið vegna landfræðilegrar legu. Ung-
lingastarfsemin hefur því verið aftarlega
á merinni síðustu árin, en nú tckur
steininn úr fyrst lið, sem með stórkost-
legri frammistöðu hefur tryggt sér ’sjájf-
krafa sæti í úrslitakeppni HM er dregið
út úr keppninni. Nú er enn aftar á
merina komið.
Þeir erlendu þjálfarar, sem hér hafa
þjálfað síðustu ár, hafa oft og einatt
verið spurðir hvað gera þurfi í hand-
knattleiksmálunum hér til að koma ís-
lenska landsliðinu á toppinn. Hafa þeir
undantekningarlaust svarað því til að
leggja þurfi megin áherslu á unglinga-
starfið. En nú á að hunsa álit þessara
færu manna og skella skollaeyrum við
orðum þeirra.
Árið 1978 var Heimsmeistarakeppnin
í handknattleik fyrir landslið 21 árs og
yngri haldin í Danmörku og lenti þá lið
íslands í 7. sæti keppninnSr. Á þeim
tíma hefur fólk kannski ekki gert sér
grein fyrir mikilvægi þess, að sent var lið
í þá keppni. En það hefur marg skilað
sér, það sést greinilega í dag. f þessu liði
sem þá spilaði voru t.d. menn eins og
Sigurður Gunnarsson, Alfreð Gíslason,
Brynjar Kvaran, Sigurður Sveinsson og
Kristján Arason, allt burðarásar íslenska
A-landsliðsins í dag.
Árið 1981 var sama keppni haldin í
Portúgal og enn náði 21 árs liðið stórgóð-
um árangri, lenti í 6. sæti og tryggði sér
því sjálfkrafa rétt til þáfttöku í Finnlandi
1983 án þess að þurfa að taka þátt í
undankeppni. Þurftu þó stórþjóðir eins
og Spánn. V.-Þýskatand og Pólland að'
gera slíkt. Það þarf hvorki meira né
minna en að fara 22 ár aftur í tímann til
að finna hliðstæðan árangur hjá A-lands-
liðinu.
Fjárhagurínn og
A-landsliðið.
Með því að draga lið okkar út úr
keppninni í Finnlandi stígum við stórt
skref aftur á bak og drögumst sjálfkrafa
aftur úr í þróun handknattleiksins. Sí-
fellt eru gerðar kröfur um, að við
stöndumst bestu liðum snúning, en
hvemig er slíkt hægt, þegar við fáum
ekki einu sinni að etja við þau kappi?
Eins og fyrr segir bar formaður HSI
við slæmum fjárhag Handknattleiks-
sambandsins, er ákveðið var að draga
liðið út úr keppninni. Okkur dettur ekki
í hug að véfengja það, því að fjárhagur
flestra í landinu er ekki upp á það besta
um þessar mundir. Auðvitað ber því að
draga saman seglin og spara, en þetta er
ekki rétta leiðin.
Það hefur ekkert verið við okkur talað
,og við ekki verið spurðir, hvort við
hefðum áhuga á að reyna að afla fjár til
þessarar ferðar og finnst okkur það í
hæsta máta furðulegt.
Varaformaður HSÍ, Jón Erlendsson,
sagði í Morgunblaðinu 21. júlí, að
A-landslið karla færi alla vega í eina
keppnisferð til útlanda í vetur, þrátt
fyrir að engin stórverkefni liggi fyrir
liðinu á ári þessu. í ár er svokallað
„milliár" hjá A-landsliðinu.
Væri ekki nær að leggja aðaláhersluna
á landsliðið 21 árs og yngri á þessu
„milliári" A-landsliðsins og senda 21 árs
liðið á Heimsmeistarakeppnina í Finn-
landi í stað þess að verja öllu fénu í
A-landsliðið. Við þykjumst fullvissir
um, að strákarnir í A-landsliðinu eru
okkur fyllilega sammála.
Verði liðið dregið út úr HM í Finn-
landi þarf næsta landslið 21 árs og yngri
örugglega að taka þátt í undankeppni
fyrir næstu Heimsmeistarakeppni og þá
verður þetta kannski enn dýrara en það
þyrfti að vera í það skipti.
Við undirritaðir erum tilbúnir að
leggja á okkur mikla vinnu við að
fjármagna þessa ferð ásamt HSÍ, jafn-
hliða því að þurfa kannski að æfa tvisvar
á dag.
Með svona hugsunarhætti og slíkum
starfsaðferðum getum við ekki látið
okkur dreyma um að vera áfram taldir
verðugir andstæðingar stórþjóða í heimi
handknattleiksins. Verði ekki eitthvað
að gert, kemur brátt sá tími, aðstórþjóð-
irnar telja það ekki ómaksins vert að
heimsækja Island í náinni framtíð.
Við efumst ekki um, að það er fjöldi
fólks sem vill styðja við bakið á ís-
lenskum handknattleik og vonum við,
að handknattleiksforystan sýni það í
verki að hún sé verðug þess stuðnings.
Oft er þörf, en nú er nauðsyn.
Þorgils Óttar Mathiesen FH
Gísli Felix Bjarnason KR
Hermann Björnsson Fram
Haraldur Ragnarsson FH
Óskar Þorsteinsson VQdngi
Geir Sveinsson Val
Júlíus Jónasson Val
Gylfi Birgisson Þór, Ve.
Aðalsteinn Júnsson UBK
Guðmundur Albertsson KR
Jóhannes Benjamínsson Gróttu
Willium Þórsson KR
Karl Þráinsson Víkingi
Elías Haraldsson Val.
okkar fáum við af landsleikjum hér
heima, og ef við förum ekki og léikum
við aðrar þjóðir úti, þá koma þær ekki
hingað heim. Við erum útkjálkaþjóð, og
verðum að gera okkur grein fyrir því.
Svíar hættu t.d. við að koma hingað nú
í vetur vegna kostnaðar, og austantjalds-
liðin verðum við að borga undir frá
Kaupmannahöfn, ef þau ætla að koma
hingað."
■ Giorgio Chinaglia, enn all hress
þrátt fyrir árin 36.
X? * T
•Á' , • ■í' -
•w-*w*\ V . - • *»<
‘iáiám *
■ Sigurður Einarsson Ármanni sigraði í gærkvöld í spjótkasti á Reykjavíkurleikun-
um í Laugardal. Sigurður keppti einn, ailir aðrir hættu við. Sigurður lét það ekki á
sig fá, kastaði í anda ungmennafélagshreyfingarinnar. Tímamynd Árni Sæberg
clð hðBttði ■ ■ ■
en Chinaglia skorar enn
■ Giorgio Chinaglia, fyrrum þjóðhetja
á Ítalíu þar sem hann lék sem atvinnu-
maður í knattspyrnu með Lazio uns
hann var keyptur til New York Cosmos
í Bandaríkjunum, ætlar nú að leggja
skóna á hilluna. Þar hefur hann leikið
í átta ár, og segja íþróttafréttamenn þar
að hann hafi aldrei leikið betur með
Cosmos en nú. Chinaglia er 36 ára, lék
11 vertíðir á Ítalíu, þar af 8 með Lazio,
og hefur leikið 8 ár með New York
Cosmos. Hann segist vilja hætta á
toppnum.
„Maður verður að skipuleggja líf sitt,
ef maður lifir á svona nokkru", segir
Chinaglia. „Ferillinn endar fyrr eða
síðar, og ég vil enda vel.“
„Cosmos liðið verður heppið ef það
nær í einhvern sem getur skilað næstum
eins góðu og hann", segir Franz Becken-
bauer um Chinaglia, þeir eru gamlir
mótherjar, fyrir tíu árum eða svo. Giorg-
io er fæddur til þess að skora mörk.
Leikmenn eins og hann er orðið erfitt að
finna í dag."
Ghinaglia hefur alla tíð verið ótrúleg •
markamaskína. Fjögur keppnistímabil
af þeim átta sem hann hcfur spilað fyrir
Cosmos hefur hann verið markahæsti
leikmaður bandarísku deildarinnar.
Hann á markametið þar, sett árið 1978,
þá skoraði kappinn 34 mörk í 30 leikjum.
Auk þess 18 mörk úr „bráðabana" 1978,
sem iíka er met. Á árunum 1976-1982
skoraði hann 175 mörk í deildinni með
Cosmos, og auk þess fjöldann allan úr
„bráðabana".
En þctta var svo sem ekkert nýtt.
Chinaglia skoraði 290 mörk í ítölsku
deildinni alls, þar af 209 með Lazio, og
var markakóngur þar veturinn 1973-4,
og leiddi Lazio til sigurs í deildinni.
Hann lék með ítalska landsliðinu í HM
árið 1974 og skoraði þá 4 mörk.
Kappinn mun ætla að snúa sér að
viðskiptalífinu, þó forráðamenn Cosmos
voni að bið verði á því, kappinn hafði
skorað síðast þegar frettist 16 mörk í 13
leikjum í bandarísku deildinni. Hann er
þó ckki ókunnugur viðskiptúm, hann
keypti knattspyrnuliðið á Italíu scm
hann lék sem lengst með, Lazio, fyrir
allnokkru, og ætlar að enda feril sinn í
október með því að leika með Cosmos
gegn Lazio á Italíu, og ætlar að leiða
Cosmos til sigurs, gegn sínu eigin liði.
Slappir Reykja-
víkurleikar
Veður slæmt — fáir þátttak-
endur — fáir áhorfendur
— eitt vallarmet
■ Heldur voru Reykjavíkurleikarnir, í
frjálsum íþróttum klén skcmmtun en
leikunum lauk í gærkvöldi á Laugardals-
velli. Veður fór versnandi eftir því sem
leið á keppnina, byrjaði með úða og
endaði með hellirigningu. Ekki var loft-
hita heldur fyrir að fara. Kcppendur
sneru frá keppni hver af öðrum, og þá
frekar íslenskir en erlendir. Ungmcnna-
félagsandinn, að vera með var, víðs
fjarri.
Keppnin var óvíða skemmtileg á
vallarsvæðinu í Laugardal í gær. Þó brá
því fyrir. í 800 metra hlaupi kvenna var
mikil og hörð keppni milli Unnar Stefán-
sdóttur, húsmóðurinnar úr Skarphéðins-
þingi, og hinnar kornungu Súsönnu
Helgadóttur FH. Lauk svo að þær komu
svo jafnar á marklínuna, að langan tíma
tók að úrskurða, af myndinni sem tekin
var meðsjálfvirka timatökubúnaðinum,
hvor var á undan. Lauk svo að Unnur
dæmdist á undan, en báðar fengu sama
tíma, 2:15,77 mín. Þriðja varð Anna
Valdimarsdóttir FH á 2:29,45, mín. Þá
var mikil keppni í 800 metra hlaupi karla
milli Viggó Þ Þórissonar FH og Gunnars
Birgissonar ÍR. Viggó vann á 2:02,05
en Gunnar var annar á 2:02,48 mín.
Gamli jaxlinn Stefán Hallgrímsson varð
þriðji á 2:05,44 mín, en keppendur voru
flestir í þessari grein, 7.
Sigurborg Guðmundsdóttir Ármanni
sigraði í 400m grindahlaupi á 64,17 sek,
önnur vrð Birgitta Guðjónsd HSK á
68,06 og þriðja Kolbrún Svavarsd ÍR á
70,,09 sek. Stefán Hallgrímsson KR
sigraði í 400 m grindahlaupi á 55,90 sek,
annar varð Jónas Egilsson ÍR á 57,23 sek
og þriðji Sigurður Haraldsson FH á
57,39. Sigurður Sigurðsson Ármanni
sigraði í lOOm hlaupi á 11,05 sek, annar
varð Hjörtur Gíslason KR á 11,15 og
þriðji Harald vonHoffe V-Þýskalandi á
57,39.
Útlcndingarsigruðu í öllum kastgrein-
um nema spjótkasti, þar kastaði Sigurð-
ur Einarsson einn, 65,34 metra. Marco
Montelatici sigraði í kúluvarpi karla
kastaði 19,29 metra, og er það hans besti
árangur í ár. Luigi de Santis varð annar.
með 18,52. Þriðji og síðastur á eftir
Itölunum var Garðar Vilhjálmsson
UMSB með 13,21 m. Swetlana Owts-
chinnikova sigraði í kúluvarpi kvenna,
kastaði 15,88 meta, og er það vallarmet
í Laugardal, Guðrún Ingólfsdóttir varð
önnur með 13,39 metra og Soffía Rósa
Gestsdóttir þriðja með 13,24 metra.
Þrefaldur ítalskur sigur varð í kringlu-
kasti karla, þar keppti enginn sterkustu
Islendinganna í greininni. Armando
Vincentis sigraði með 59,26 metra, ann-
ar varð Marco Martini með 58,90 metra
og þriðji Luigi de Santis með 53,86
metra.
Schmedemann frá V-Þýskalandi sigr-
aði í stangarstökki með 4,20 mctra,
annar að Bieschinski frá V-Þýskalandi
með 4,00 metra og þriðji Torfi Rúnar
Kristjánsson HSK með 3,90 metra, oger
það pcrsónulcgt met Torfa. Þórdís
Hrafnkelsdóttir ÚÍA sigraði í hástökki,
stökk 1,70 mctra, önnur Guðrún Svcins-
dóttir KR mcð 1,55 mctra.
Ranghermt var í blaðinu í gær að
kastlandskeppni íslands og Ítalíu væri
tvcggja daga, hcnni lauk í fyrrakvöld og
sigruðu ítalir mcð þcim tölum sem skýrt
var frá, 26 gcgn 18.
■ Stefán Hallgrímsson sigraöi í
gærkvöld í 400 metra grindahlaupi,
og varö þriöji í 800 mctra hlaupi.
Stóö sig vel blessaður kallinn.
Tímamynd Árni Sæberg
FJARHAG HANS ER BORGIÐ
um alla framtíð, standi hann sig og fari sæmilega með.
Hann hefur samt aðeins leikið eitt ár í fyrstu deild
■ Hann byrjaði aö leika fótbolta sem atvinnumaður áriö 1975, þá 17 ára gainall.
Launin voru um 15 hundruð krónur á viku miðað við verðlag í dag. I sumar gerði
hann þriggja ára samning og laun hans næstu 3 árin verða sem samsvarar 85
þúsund krónum á viku. Hann byrjaði að leika í fjórðu deild árið 1975 á Englandi, og
hefur leikið með sama liði síðan. í fyrravetur lék hann sitt fyrsta keppnistímabil í
fyrstu deild, varð markakóngur í ensku deildinni með 27 mörk, lék níu landsleiki, og
í sínum fyrsta heila landslcik skoraði hann þrjú mörk fyrir England. Hann ólst upp í
fátækt, fæddur á Jamaica og flutti 6 ára til Englands með fjölskyldu sinni. Hann heitir
Luther Blissett.
Luther Blissett er einn þeirra hörunds-
dökku knattspyrnumanna sem haslað
hafa sér völl í ensku knattspyrnunni
undanfarin ár. Upphaf þess að hann fór
að spila með Watford var það að
einn stjórnarmanna félagsins sá
hann leika fótbolta með félögum
sínum í götuporti, og bauð
honum að koma á æfingu.
Strákur var síðan ráðinn. Síðan hefur
mikið vatn runnið til sjávar. Fjórðu
• deildarliðið sem var keypt af poppstjörn-
unni Elton John á þessum tíma, var eflt
og ótrúlegur uppgangur beið þess. Lut-
her lék einn heilan leik í fjórðu deildinni
tímabilið 1975-76, og kom tvisvar inn á
sem varamaður. 1976-77 lék hann líka
einn heilan leik, og kom inn á þrisvar.
Tímabilið 1977-78 lék hann 17 heila
leiki og kom 16 sinnum inn á, og árið
eftir vann hann sér fastan sess í liðinu.
Þá lék hann 40 leiki og var einu sinni
varamaður. Þetta sama ár, 1978-79
vann Watford fjórðu deildina, og komst
upp í þriðju deild. Luther skoraði 21
mark á tímabilinu. Árið eftir lék liðið í
3. deild og vann hana iíka. Tímabilið
1980-81 og 81-82 lék Watford í annarri
deild, og vann sér fyrstu deildarsæti
vorið 1982. Watford lék svo sitt fyrsta
keppnistímabil í 1. deild í fyrra, mcð
Luther Blissett sem aðalstjörnu, og náði
ótrúlegum árangri, varð í 2. sæti.
Til Mílanó á ttalíu
Það vakti mikla athygli að leikmaður
sem lék í fyrsta sinn í fyrstu deild á
Englandi skyldi verða markakóngur
deildarinnar í fyrra. Það urðu því vitan-
lega margir til að gjóa augunum til
Englands, ekki síst fulltrúar stórliða á
meginlandinu sem vantaði marka-
skorara. Að lokum fór svo að stórliðið
AC Milanó á Ítalíu bauð best, og var
tilboðið þess eðlis að hvorki Blissett, né
Watford gátu hafnað því. Mílanó greiddi
Watford eina milljón sterlingspunda,
eða 42 og hálfa milljón íslenskra króna,
fyrir kappann, og laun hans skyldu verða
eins og áður er lýst. Framtíð Luthers
Blissett fjárhagslega séð er því tryggð, ef
hann ávaxtar peningana sína. Annar
plús í þessu er sá, að Blissett er aðeins
25 ára, og þegar samningurinn verður
útrunninn er hann 28 ára, og ætti
samkvæmt því að verða á toppi ferils
síns þá.
„Ekki hægt að neita“
„Hvernig ætti ég mögulega að geta
neitað, bæði atvinnulega séð og siðferð-
islega, neinum um slíkt tækifæri", segir
Graham Taylor framkvæmdastjóri
Watford. „Tilboðið var svo gott að lið
eins og Watford getur ekki hafnað því,
og hvernig er hægt að neita svona góðum
strák eins og Luther um að tryggja
fjárhagslega framtíð sína? Laun eins og
þau sem Mílanó bauð Luther, getur
hann ekki reiknaðmeðaðfáhérheima."
„En að sjálfsögðu vorum við ekki
áfjáðir í að selja Luther. Þegar Mílanó
bauð okkur fyrst 500 þúsund sterlings-
pund fyrir hann, sagði ég þeim að
gleyma þessu bara, þeir yrðu að bjóða
hclmingi meira ef þeir ætluðu sér einhver
viðskipti. Mér kom það mest á óvart
þegar þeir gerðu einmitt það."
„Þetta er stórt tækifæri fyrir Luther,
og virðingarvert af honum að fara til
Ítalíu. Það verður honum mikill skóli.
Hann á margt ólært, og þetta, sem
verður kannski Watford til baga, kemur
landsliði Englands til góða“. Því má svo
bæta hér við, að Luther Blissett tekur
við stöðu landa síns hjá AC Mílanó, þar
lék í fyrra sem ntiðframherji hinn kunni
Joe Jordan.