Tíminn - 14.06.1983, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.06.1983, Blaðsíða 6
■ Catharine Bach (Dukes Of Haraard's o.fl. myndir) er hér með móður sinni, Norma Verdugo. Catherine segist hafa fengið áhugann á leiklistinni og fcrðalögum frá möminu sinni. „Við erum svo líkar, við erum eins og systur!“ ieikið í Hallowen), „en þegar ég var komin í vandræði þá leitaði ég alltaf ráða hjá mömmu“. Jainie sést hér með móður sinni, Janet Leigh, sem sjálf var fræg leikkona. FALLEGAR MÆÐGUR Viðtöl við tvær ungar, bandarískar leik- konur, þær Catharine Bach og Jamie Lee Curtis, birtust með þessum myndum, þar sem þær eru með mæðrum sínu, hinum glæsilegustu konum. ■ Þrátt fyrir það, að maður skyldi ætla, að viðurkenndar og fallegar leikkonur hefðu öðlast sjálfsöryggi og gætu því staðið á eigin fótuni, þá koin fram hjá þeim báðum, að þær hlaupa alltaf til mömmu þegar citthvað bjátar á! „Undir niðri er ég gamal- dags og óörugg, og mér finnst gott að ræöa vandamálin við mömmu, við erum svo líkar“, segir Catharine Bach. Cathy segist meira að segja hafa rætt hjónabandsvandamál sín við móður sína, - en niainma er orðin þreytt á því að fylgjast með þeim málum nú oröiö, sagði hún hnuggin. Catharine hafði þá nýlega yfirgefið David Shaw, eiginmann sinn, í þriðja skipti! Engin furða þó Norma, nióðir hennar, sé orðin leið á því vandamáli. Jamie Lee Curtis, dóttir leikkonunnar Janet Leigh og lcikarans Tony Curtis, sagðist aldrei hafa getað hugsað sé annað lífsstarf en að leika. „Þetta iiggur í blóðinu“, sagði hún. Hennar vandamál í sam- bandi við starfið er auðvelt að ræða við móöurina, því að þau mál þckkir Janet Lcigh út í æsar. Jamie Lee Curtis varð óskaplega ástfangin af rithöf- undinum Ray Hutcherson, og Janet, mamma Jamie, segir hlæjandi: „Svo kom hún til mín, til þess að vita hvernig mér litist á liann. Ég sagði henni að hún ætti að búa með honum, en ekki ég, og nú yrði hún að ákveða sjálf hvernig framhaldið yrði á þcirra samb- andi.“ Blaðamaðurinn sem talaði við mæðgurnar komst að þeirri niðurstöðu, að sér virtist sem enn væri í gildi hið gamla orðtæki: Mamma eralltaf besti vinurinn. — Elliot Gould og sonar- dóttir Hemingways leika saman í væntanlegri kvikmynd ■ Hvað gerist (skeður, kem- ur fyrir, á sér stað, hendir) þegar Gyðingagaur verður ást- fanginn af fallegri sfúlku sem ekki er Gyðingur? Elliot Gould leikur Gyðing- inn en sonardóttir Ernest Hemingway, hún Margaux, leikur fallegu stúlkuna í nýrri kvikmynd sem nú er væntan- leg. Shelley Winters, sem leikur móður Elliots, segir: „Myndin storkar öllum. Gyðing;um, negrum, hvítum, kristnum o.s.frv.“ Kannski fáum við Frónbúar að sjá myndina eftir nokkur ár?! ■ Forboðin ást blómstrar skautahöllinni. „MÁLFREYIUR HÉRERU MJÖG VIRKAR“, — segir Mrs. Ruth Seppard væntanlegur formaður al- þjóðasamtaka málfreyja. ■ Málfreyjur þinga. F.v.: Kristjana Milla Thorsteinsson væntanlegur formaður Málfreyjufélags íslands, Ruth Seppard væntanlegur formaður Alþjóðasamtaka Málfreyja og lngveldur Ingólfsdóttir núverandi formaður Málfreyjufélags íslands. - ■ ■< tmmm

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.