Tíminn - 14.06.1983, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
fréttir
Friðrik Sóphusson um „mirmislista”
ríkisstjórnarinnar:
„EINGÖNGU ATRIÐI SEM
MENN ERU SAMMAlA UM”
■ „Þcssi minnislisti var tilkominn
vegna þess að það var álit stjórnarflokk-
anna að sjálf stefnuyfirlýsingin mxtti
ekki verða of löng og ítarleg, og þess
vegna væri ekki ástæða til þess að setja
inn í hana öll þau atriði sem menn voru
sanunála um að gera þyrfti á starfstíma-
bilinu,“ sagði Friðrik Sóphusson vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali
við Tíinann í gær, er blaðamaður ræddi
við hann um minnislista ríkisstjórnarinn-
ar, sem birtur var í blaðinu í gær.
„Þessi minnislisti er eingöngu um þau
atriði sem menn eru sammála um,“ sagði
Friðrik, „en öðrum efnisatriðum sem
um var fjallað í stjómarmyndunarvið-
ræðunum, sem menn urðu ekki sammála
um, var vikið til hliðar, Ég get nefnt
dæmi um það, að við sjálfstæðismenn
lögðum á það mikla áherslu, að frjálst
útvarp yrði tekið inn í minnislistann, en
á það var ekki fallist og var það fyrst og
fremst Tómas Árnason sem beitti sér
gegn því.
Hins vegar varðandi það mál, sem alit
þetta hefur snúist um, þ.e.a.s. að for-
stöðumenn fjármálastofnana láti af
störfum, taki þeir sæti á Alþingi þá var
ákveðið að hafa þetta atriði í minnislist-
anum. en ekki í kaflanum um Fram-
kvæmdastofnun, en þetta samkomulag
missir á engan hátt gildi sitt, þó að það
sé í minnislistanum en ekki stefnuyfirlýs-
ingunni. Það má gjarnan koma fram, að
textinn urn Framkvæmdastofnunina er
að öðru leyti eftir þá Matthías Bjarnason
og Tómgs Árnason - og þeir sem lesa
þann texta sjá að eftir þær breytingar sem
sá texti gerir ráð fyrir, er ekki nokkur
þörf fyrir kommisar. Þess vegna lýsi ég
undrun minni á yfirlýsingum Tómasar
Árnasonar, varðandi þessi mál."
Friðrik sagði jafnframt er Tíminn bar
undir hann hvort það fælist ekki í
orðalagi minnislistans að þessi 25 atriði
væru til athugunar á kjörtímabilinu, og
þar með ekki bindandi: „Það má alltaf
spyrja sig að því hvort svona minnislisti
sé bindandi. Það er bara spurning um
pólitískt siðferði og pólitískt þrek. Það
var talið að þessi listi væri nauðsynlegur
til fyllingar sjálfri stefnuyfirlýsingunni,
vegna þess að það var ekki hægt að setja
öll þessi atriði inn í hana. Ef menn ætla
að hengja sig í það, þá er það bara
brigðmælgi af hálfu þeirra sem við
sömdum við." - AB
„Ég tel listann
ekki bindandi”
— segir Gudmundur Bjarna
son, alþingismadur
son, alþingismaður, er Tíminn spurði
hann álits á því sem Friðrik Sóphusson,
alþingismaður segir í blaðinu í dag um
ininnislista ríkisstjórnarinnar, og það að
hann tclji listann vera bindandi fyrir
ríkisstjórnina.
„Ég tel að það sé ekki hægt að segja
um hvert þessara atriða, að þau séu
bindandi, enda eru sum þeirra ekki þess
eðlis, því í mörgum tilvikum er talað um
endurskoðun," sagði Guðmundur jafn-
framt og bætti við: „Það sem aðallega er
nú rætt um er atriðið um endurskoðun á
lögum um Framkvæmdastofnunina og
mér finnst sjálfsagt og eðlilegt að margir
þættir í því sambandi séu teknir til
■ „Það voru allir sainmála um að
stjórnarsáttmálinn ætti fyrst og fremst
að fjalla um cfnahags- og atvinnumál, og
síðan almennum orðum um félagslega
þjónustu og uppbyggingu almennt, en
varðandi ýmis atriði önnur sem fram
komu í okkar umræðum, þá var sam-
koinulag um að setja þau á þennan lista,
sem gjarnan er nefndur niinnislisti. Það
keniur fram í upphafsorðum þessa lista,
að þetta eru atriði, sem ríkisstjórnin
hyggst taka til sérstakrar athugunar á
kjörtímbilinu, og þar með hlýtur að eiga
eftir að fara fram frekari umræða um
þessi atriði, og tel ég listann því ekki
bindandi,“ sagði Guðmundur Bjarna-
endurskoðunar og færðir til betri vegar,
m.a. er þetta svokallaða kommissera-
kerfi, en ég lít sem sagt ekki svo á að
einstök atriði þessa lista geti talist bind-
andi."
- AB.
HeimsóknStuttgart ítilefni 75áraafmælis Víkings:
„Áttum vissulega von
á fleiri áhorfendum”
r«>
ö
^ATd^
&
Simar
13630
19514
VC/STUAÐ HE/LL
KASS/MEÐ 18PELUM
KOSTAREKK/
NEMA 106,20?
Perkins
DÍESELVELAR
— sagdi Eiríkur Þorkelsson, form.
knatfspyrnudeildar Víkings
■ „Við komum út með tapi, það er
alveg ljóst", sagði Eiríkur Þorkelsson,
formaður knattspyrnudeildar Víkings í
samtali við Tímann er hann var spurður
um fjarhagslega útkomu af knattspyrnu-
leikjunum tveimur sem voru á Laugar-
dalsvellinum í tilefni af 75 ára afmæli
Víkings.
„Við erum ekki búnir að gera þetta
alveg upp en satt að segja áttum við von
á fleiri áhorfendum. Við vorum þó alveg
meðvitaðir um það að með heimsókn
Stuttgart og Stjörnuliðsins vorum við að
taka vissa áhættu. Það voru ákveðnir
þættir sem við vissum ekkert um. Þættir
eins og áhugi almennings á leikjum sem
þessum og veðurfar", sagði Eiríkur.
„Samtals borguðu sig inn u.þ.b. 5800
manns á báða leikina, en við hefðum
þurft svona 8000 manns til að sleppa
sléttir frá þessu. Eru þá reiknaðar inn í
þetta tekjur sem komu síðar inn eins og
auglýsingatekjur frá Sjónvarpinu og
góður afsláttur frá Flugleiðum vegna
fótboltaskólans. Fótboltaskólinn er
kannski það ánægjulegasta af þessu öllu.
Ég vil að lokum segja það að við stóðum
eins vel að þessu og við höfðum vit á og
þeir áhorfendur sem komu á völlinn
fengu að sjá mjög góðan fótbolta, þannig
að við Víkingar eru ekkert skælandi
þessa dagana", sagði Eiríkur að lokunt.
-Jól.
L
4.154 og 4.165
Verð kr. 116.200.-
Góð greiðslukjör
Suðurlandsbraut 32 - Sími 86500
Reykjavík