Tíminn - 14.06.1983, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
9
aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins
Guðmundur
ritari í stað
Tómasar
■ Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra var endurkjörinn formaður
Framsóknarflokksins á aðalfundi mið-
stjórnar, sem haldinn var s.l. laugardag
og sunnudag. Guðmundur Bjarnason
alþingismaður var kjörinn ritari. en
Tómas Árnason ga£ ekki kost á sér, en
hann hefur gegnt ritarastörfum um langt
skeið. Guðmundur G. Þórarinsson verk-
fræðingur var endurkjörinn gjaldkeri og
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegstáð-
herra varaformaður. Ragnheiður Svein-
bjarnardóttir bankamaður var kosinn
vararitari og Sigrún Magnúsdóttir kaup-
maður varagjaldkeri.
Aðrir sem kosnir voru í framkvæmda-^
stjórn flokksins eru Finnur Ingólfsson
formaður SUF, Erlendur Einarsson for-
stjóri, Tómas Árnason alþingismaður,
Ólafur Jóhannesson alþingismaður,
Hákon Hákonarson vélvirki, Níels Árni
Lund æskulýðsfulltrúi, Þorsteinn Ólafs-
son fulltrúi, Dagbjört Höskuldsdóttir
skrifstofumaður og Hákon Sigurgríms-
son framkvæmdastjóri. Varamenn voru
kjörnir Jónas Jónsson búnaðarmála-
stjóri, Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra og Arnþrúður Karlsdóttir útvarps-
maður.
Þrír menn sem lengi hafa setið í
framkvæmdastjórn flokksins gáfu ekki
kost á sér til endurkjörs. Þeir eru
Eysteinn Jónsson, Helgi Bergs og Þórar-
inn Þórarinsson.
Á blaðstjórn Tímans voru kosin Hall-
dór Ásgrímsson, Steingrímur Her-
mannsson, Geir Magnússon, Vilhjálmur
Jónsson, Þorsteinn Ólafsson, Heiður
Helgadóttir, Sigrún Sturludóttir, Hákon'
Sigurgrímsson, Eiríkur Tómasson.
Varamenn Áskell Þórisson og Haraldur
Ólafsson.
■ Stjórn Framsóknarflokksjns að loknu stjórnarkjöri á sunnudaginn. Frá vinstri: Halldór Ásgrímsson, varaformaður, Sigrún Magnúsdóttir vararitari, Steingrímur
Hermannsson.formaöur, Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,varagjaldkeri og Guðmundur Bjarnason, ritari. Á myndina vantar Guðmund G. Þórarinsson sem var kjörinn
gjaldkeri flokksins, en Guðmundur er nú erlendis. Tímamynd - Ari
„FLOKKSMAUN VORU
FYRST OG FREMST RÆDD”
■ Þorsteinn Olafsson í ræðustól á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins si.
sunnudag. Tímamaynd - Ari
Ekki verði
kvikað frá
markaðri braut
■ Eftirfarandi stjórnmálaályktun var
gerð í lok aðalfundar miðstjórnar:
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknar-
flokksins, haldinn 11.-12. júní 1983 fagn-
ar því að tekist hefur að mynda ríkis-
stjórn undir forystu formanns Fram-
sóknarflokksins, sem taka mun af festu
og ábyrgð á þeim efnahagsvanda sem við
þjóðinni blasir.
Fundurinn leggur áherslu á að ekki
verði kvikað frá þeirri braut, sem
mörkuð hefur verið í efnahags- og
atvinnumálum enda verði gætt fyllstu
réttsýni og sérstaklega leitast við að bæta
kjör þeirra sem lægst hafa launin og
þyngst framfæri.
Miðstjórnin leggur jafnframt áherslu
á, að þegar verði hafin ný framsókn með
vel undirbúinni fjárfestingaráætlun,
hagsýni í opinberum rekstri og virku
stjórnkerfi. Á grundvelli trausts efna-
hags- og atvinnulífs verði full atvinna
tryggð og kjörin bætt.
Aðaldagskrárefni fundarins var innra
starf Framsóknarflokksins, skipulag
hans og framtíðarverkefni. Voru haldin
framsöguerindi um ýmsa þætti þessara
mála og þau síðan reifuð og rædd nánar
í starfshópum sem skiluðu greinargerð-
um um helstu niðurstöður, án þess að
um ályktanir væri að ræða. Vænta menn
að þessi umræða haldi áfram í flokksfé-
lögunum svo að flokkurinn verði fær um
að koma til móts við breyttar aðstæður
og þjóðfélagshætti.
— segir Steingrímur Hermannsson,
sem var endurkjörinn formaður flokksins
■ „Það er allt gott um þennan fund að
segja. Hann var dálítið ööruvísi en venja
hefur verið, því það var ekki gert ráð
fyrir ýtarlegri stjórnmálaályktun, heldur
voru flokksmálin fyrst og fremst rædd, í
framhaldi kosninga og með tilliti til þess
mikla átaks sem nauðsynlegt er fram-
undan,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra er Tíminn ræddi
litillega við hann um aðalfund miðstjórn-
ar Frainsóknarflokksins, sem haldinn
var um helgina, en Steingrímur var
endurkjörinn formaður Framsóknar-
flokksins á þeim fundi.
„Það er ekki bara af hálfu ríkisstjórn-
arinnar sem mikið átak er nauðsynlegt,“
sagði Steingrímur, „heldur einnig af
hálfu flokksmanna.
Ég tel að þau fimm erindi sem flutt
voru á fundinum hafi verið mjög athygl-
isverð og umræðurnar í starfshópnum að
loknum erindunum hafi verið mjög
hrcinskiptar og gagnlegar."
Steingrímur sagðist hafa boðað fram-
kvæmdastjórnarfund á morgun, þar sem
þegar yröi byrjað að vinna úr því efni
sem fram hefði komið á fundinum,
þannig að það yrði síður en svo látið
rykfalla í. skúffum og hillum.
- AB
„VÆNH GÓDS SAMSTARFS
VIÐ AULA FLOKKSMENN”
— segir Guðmundur Bjarnason,
nýkjörinn ritari Framsóknarflokksins
■ „Ég þakka það traust sem mér hefur
verið sýnt með því að vera valinn til
þessa ábyrgöarmikla starfs,“ sagði
Guðmundur Bjarnason, nýkjörinn ritari
Framsóknarflokksins ejr Tíminn ræddi
lítillega við hann í gær. Guðmundur var
kjörinn ritari á miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins nú um helgina, en frá-
farandi ritari Tómas Árnason gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
„Auðvitað byggist það mikla starf sem
framundan er ekki á mér einum," sagði
Guðmundur, „og ég vænti góðs sam-
starfs við alla flokksmenn og aðra þá
sem vilja vinna að framgangi Framsókn-
arflokksins til þess að vel megi til takast.
Ég mun gera mitt besta til þess að vera
þessa trausts verðugur og vinna þetta
starf af trúmennsku.
Ég vil nota þetta tækifæri til þess að
þakka fyrrverandi ritara flokksins, Tó-
masi Árnasyni fyrir hans mikla og óeigin-
gjarna starf í stjórn flokksins mörg
undanfarin ár.“
BlaðamaðurTímans spurði Guðmund
í hverju starf ritara Framsóknarflokksins
væri helst fólgið:
„Stprf ritara flokksins eru fyrst og
fremst fólgin í því að fylgjast með
flokksstarfinu í innviðum flokksins,
skrifstofunni, samskiptum við flokksfólk
um land allt og félagslegri uppbyggingu.
Ég býst við að þetta verði æðimikið
starf, eins og allt er í pottinn búið.
Kosningaúrslitin segja okkur það, að við
þurfum að hyggja að innra flokksstarfi,
reyna að byggja það upp og laga þar til. “
- Hvað viltu segja um aðalfund mið-
stjórnar Framsóknarflokksins sem var
haldinn nú um helgina?
„Aðalfundarefni þessa fundar var
flokksstarfið í nútíð og framtíð, og þar
fengum við margar góðar ábendingar og
tillögur. Við munum á næstu dögum og
vikum setjast niður og vinna úr þessu
efni.
Auðvitað fara nú í hönd sumarleyfi og
þá eru menn kannski ekki svo mikið að
hugsa um félagsmál almennt, þannig að
þetta verður að líkindum aðalstarfið
með haustinu."
- Muntu þá hafa mikið samband við
flokksfélögin úti í kjördæmunum?
„Já, ég reikna með að hafa töluvert
mikið samband út í kjördæmin. Ég hef
hugsað mér að hafa gott samband við
stjórnir kjördæmissambandanna og eftir
því sem ég get að fara á kjördæmisþing,
til þess að koma þeim málum áleiðis sem
við ræddum á þessum miðstjórnarfundi,
og ég myndi vilja að flokksfélögin fengju
a.m.k. úrdrátt úr þessum tillögum af
miðstjórnarfundinum, til úrvinnslu, sem
síðan yrðu lagðar fyrir kjördæmisþingin
og þau ályktuðu í framhaldi af því um
uppbyggingu flokksins, flokksstarfsins
og hugsanlegar breytingar sem menn
teldu ástæðu til þess að gera á störfum
og stefnuskrá og það yrði síðan grunnur-
inn að því starfi sem framkvæmdastjórn-
in yrði að undirbúa fyrir næsta mið-
stjórnarfund. Það er reyndar í beinu
framhaldi af ályktun sem samþykkt var
á flokksþinginu í fyrra um að eitthvað í
þessum dúr skyldi gert.“
Guðmundur sagðist nú þegar hafa
haldið einn fund með starfsfólki skrif-
stofu Framsóknarflokksins og annar
fundur hefði nú verið ákveðinn. Hann
sagðist hafa látið sér detta í hug að vera
með reglulega fundi með starfsfólki
skrifstofunnar og hugsanlega að vera
með viðtalstíma og símaviðtalstíma, fyr-
ir þá sem vildu koma að hitta sig að máli,
eða ræða símleiðis.
- AB