Tíminn - 14.06.1983, Qupperneq 10
ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1983
10
viðskiptalífið
umsjón Skafti Jónsson
lceland Sea-
food
Corporation:
Salan
jókst
um 10
milljónir
dollara
■ Iceland Seafood Corporation, sölu-
fyrirtæki Sambandsfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, jók sölu sína um 10,1
milljón Bandaríkjadala, cða 11,1% á
árinu 1982. Á árinu varð heildarsalan
34.900 tonn, sem er 9,8% meiri en árið
áður.
Á aðalfundi.Sambandsins kom fram
að þessi söluaukning er langt umfram
þaö, sem gerðist almcnnt á freðfisk-
markaði í Bandaríkjunum, og cr því
Ijóst að fyrirtækið hefur bætt verulega
við markaðshlutdeild sína.
Á síðustu fimm árum hefur fyrirtækið
jafnt og þétt verið að auka sölu sína.
Árið 1978 seldi fyrirtækið fyrir rúma 72
þúsund dollara, 1979 fyrir 84 þúsund
dollara, 1980 fyrir 91.500 dollara, 1981
fyrir 91.000 dollara og 1982 fyrir rúmlega
101 þúsund dollara. ^
Iðnaðar-
deild
Sambands-
ins:
Japans-
markaður
æ mikil-
vægari
■ Iðnaðardeild Sambandsins tók þátt í
sýningunni „I5th Tokyo International
Trade Fair," sem fram fór í Tokyo í
byrjun mat'. Þetta var í fyrsta skipti sem
Iðnaðardeildin tók þátt í þessari sýningu
og á hennar vegum voru sýndar ullar- og
skinnavörur.
I Sambandsfréttum segir, að á tvcimur
síðustu árum hafi mikilvægi japanska
markaðarins aukist til muna. Á síöasta
ári hafi deildin selt þangað 23 tonn af
handprjónabandi að verðmæti 253 þús-
und dollarar.
Sýning Iðnaðardeildar var haldin í
samvinnu við fyrirtækið Aoki A/S auk
tleiri fyrirtækja. Forráðamcnn Iðnaðar-
deildar telja að í kjölfar þessarar sýning-
ar megi gera ráð fyrir auknum við-
skiptum við Japani. og þá sérstaklega
sölu á skinnavörum og tilbúnum ullar-
fatnaði.
Hafskip:
Dóttur-
fyrirtæki
yfirtekur
skipa- og
vöruafgreiðslu
■ Innan skamms verður stofnað sér-
stakt dótturfyrirtæki Hafskips, sem mun
yfirtaka alla skipa- og vöruafgreiðslu
félagsins í Reykjavík ásamt verkstæðis-
rekstri.
Á aðalfundi Hafskips kom fram, að
markmiðið með þessari breytingu er að
stuðla að aukinni hagkvæmni á þessum
vettvangi í rekstri félagsins. Hefur fyrir-
tækið yfir að ráða 76 þúsund fermetra
vörugeymslusvæði, þar af 23 þús. fer-
metra undir þaki. Tækjafloti jaman-
stendur af 63 lyfturum og bílum og
gámar í notkun eru um ll(X). Urn 130
manns- starfa við skipa- og vöru,-
afgreiðsluna.
Hagnaður Hafskips
fjórar milljónir
■ Verulegs samdráttar í útflutningi gætti hjá Búvörudeild Sanibandsins á s.l. ári
■ Rekstur Hafskips skilaði fjögurra
milljöna hagnaði og flutningar á veguin
félagsins jukust um fjóra af hundraði
meðan hcildarflutningar til og frá land-
inu drógust saman uin 10%.
Sölustofnun
lagmetis:
r
Utflutningur
jókst um
37%
■ Útflutningur á vegum Sölustofnunar
lagmetis jókst um 37 af hundraði milli
áranna 1981 og 1982. Á sama tíma jókst
FOB verðmæti útfluttrar vöru frá stofn-
uninni um 145%, segir ■ í frétt frá
Sölustofnun lagmetis.
í fréttinni kemur fram að stærstan hlut
í þessari aukningu eigi niðursoðin rækja.
Einnig liafi kavíar selst talsvert betur en
áður.
Aðrar helstu vörutegundir voru gaffal-
bitar, sem seldust sem fyrr til Sovétríkj-
anna, og reykt síldarflök, kippers, sem
mestmegnis fóru á Bandaríkjamarkað.
Lagmeti var flutt út frá 14 verksmiðj-
um og eru stærstu framleiðendurnir K.
Jónsson og Co á Akureyri, Norður-
stjarnan í Hafnarfirði, Niðursuðuverk-
smiðjan hf. á ísafirði, Lagmetisiðjan
Sigló síld á Siglufirði og Fiskiðjan Arctic
hf. á Akranesi.
Helstu markaðslöndin voru Vestur-
Þýskaland, Sovétríkin, Bandaríkin og
Frakkland.
Breytingar
hjá Hafskip
■ Albert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, hefur látið af störfum formanns
stjórnar Hafskips hf. í hans stað var
Ragnar Kjartansson, annar fram-
kvæmdastjóra félagsins kjörinn stjórnar-
formaður á aðalfundinum á föstudag.
Frá sama tíma tckur Björgólfur
Guðmundsson við forstjórastarfi félags-
ins, en þeir Björgólfur og Ragnar hafa
farið sanreiginlega með framkvæmda-
stjórn félagsins undanfarin 5 ár. Ragnar
mun samhliða stjórnarformennskunni
annast sérstök verkefni fyrir félagið.
Búvörudeild
Sambandsins:
Samdráttur
í útflutningi
■ Rúmlega fjögurra milljóna hagn-
aður varö af rekstri Hafskips árið
1982. Flutningar á vegum félagsins
jukust um 4% að magni, þrátt fyrir að
hcildarflulningar til og frá landinu hafi
dregist saman um 10%.
Þctta kom fram á aðalfundi
Hafskips, sem haldinn var í vikunni
sem leið. Ennfrcmur kom fram að
vcltuaukning frá árinu á undan varð
urn 88% í islcnskum krónum, en
16,5% samkvæntt SDR gjaldeyrisvisi-
tölunni. Heildaraukning rekstrar-
gjalda félagsins nam rúmlega 75,6%,
eða rúmlega 13% minna en vcltuaukn-
ingin.
Þá kom fram að þegar hafa verið
stofnuð fjögur dótturfyrirtæki sem
reka eigin skrifstofur félagsins í Bret-
landi, Bandaríkjunum, Danntörku og
Vestur-Þýskalandi. Og aö nú er unnið
að undirbúningi stofnunar Hafskips-
Bcnclux, sem mun hafa untsjón nteð
rekstri skrifstofa fé.lagsins í Hollandi
og Belgíu.
Stefnt er að samtals sjö eigin skrif-
stofum erlcndis með milli 30 og 40
mannastarfsliði.aðmeginhluta íslend-
ingum. Telja stjórnendur Hafskips að
reynslan af skrifstofurckstri erlendis
sé góð og beinn fjárhagslegur sparnað-
ur af þcint sé umtalsverður.
■ Heildarsala Búvöru-
deildar Sambandsins nam
um 610 milljónum króna í
fyrra, sem var 45,7% aukn-
ing frá 1981. Útflutningur
deildarinnar nam alls rúm-
lega 217 milljónum, sala á
innanlandsmarkaði um 340
milljónum og sala frá Kjöt-
iðnaðarstöð Sambandsins
nam um 52,6 milljónum.
Vöruafgreiðslur í innanlandssölu juk-
ust að magni úr 5.330 lestum í 6.979
lestir, eða um 31%. Afgreiðsla dilka-
kjöts jókst um 28,9% á árinu, eða úr
2300 lestum í 2950 lestir, og afgreiðsla á
ær- og geldfjárkjöti jókst um 37,9%, úr
395 lestum í 546 lestir. Einnig varð 6%
aukning á afgreiðslu hangikjöts. Hins
vegar varð verulegur samdráttur í sölu á
nautgripakjöti eða um 37,7%. Seit gæru-
magn jókst um 110%, 2.160 lestir á móti
1.030 árið áður. Ekki var þó um teljandi
framleiðslumun að ræða, heldur aðeins
færslumun.
Verulegs samdráttar gætti í útflutningi
í fyrra miðað við árið 1981, og var
magnið 4.440 lestir á nróti 6.640. Út-
flutningur á dilkakjöti minnkaði úr rúm-
um 3000 lestum í tæpar 2000 lestir, eða
um 36%. Hins vegar jókst útflutt ærkjöt
úr 130 lestum í 345 lestir á sama tíma,
eða um 164%.
í Kjötiðnaðarstöð Sambandsins dróst
sala saman um nálægt 3%, eða úr 1.078
lestum í 1.046 lestir.
Vörubirgðir í ársbyrjun 1982 voru
312,8 milljónir króna og í árslok 482,4
milljónir.