Tíminn - 30.09.1983, Qupperneq 3

Tíminn - 30.09.1983, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1983 MIKIÐ UM AD ÓSAMÞYKKT RAF- TÆKI SEU SELD í VERSUINUM — „Getur ordið að lögreglumáli ef sami aðili gerir sig sekan um að brjóta ítrekað settar reglur’% segir tæknifræðingur hjá Rafmagnseftirlitinu ■ „Það er erfitt fyrir okkur að segja nákvxmlega hversu mikið er af ósam- þykktum rafvörum á markaðnum hér. Hins vegar er óhætt að segja að það sé of mikið af þeim,“ sagði Hreinn Jónas- son, tæknifrxðingur hjá Rafmagnseftir- liti ríkisins, þegar hann var spurður að því hvort mikil brögð væru að því að innflytjendur eftirlitsskyldra raftækja færu ekki að settum reglum og seldu ósamþykkt tæki í verslanir. - Hver eru viðurlögin við því að selja ósamþykkt raftæki? „Það er fyrst gripið til þess ráðs að stöðva söluna, en til þess hefur Raf- mangseftirlitið vald. Ef einn aðili gerir sig sekan um að brjóta settar reglur ítrekað getur það orðið lögreglumál. Hins vegar er reglan sú, með örfáum undantekningum þó, að við náum að stöðva söluna áður en þörf er að kæra málið." - Eru einhver fyrirtæki sérstaklega erfið í þessu tilliti? „Það er ekki unnt að nefna einstök fyrirtæki í þessu sambandi. Aftur á móti eru mörg fyrirtæki sem eru betri en önnur hvað þetta varðar. Passa sem sagt vel upp á að fá samþykki áður en varan er sett á markað." - Hvernig er eftirliti háttað? „Það er nú því miður of lítið, nt.a. vegna mannfæðar. Það er farið af og til í verslanir og ef ósamþykkt tæki finnast er haft samband við innflytjandann. Ég hef það ekki á takteinum hversu mörg tæki voru tekin í fyrra, en þau voru nokkuð mörg." - Stafar hætta af tækjum sem eru á markaði hér? „Það kannski stafar ekki alltaf bein hætta af tækjum. En það er ýmislegt annað sem þarf að athuga, til dæmis ending. Tæki gætu t.d. haft veilur sem ekki koma í Ijós fyrr en eftir langa notkun og þess vegna orðið hættuleg eftir nokkur ár." - Dæmi er um að kviknað hafi í út frá tiltölulega nýju sjónvarpstæki, sem sprakk að næturlagi án þess að vera í gangi. „Sjónvarpstæki eru enn sent komið er ekki prófunarskyld. Við höfum því miður ekki bolmagn til að'líta eftir þeim þó að reynt sé að fylgjast með að ekki séu flutt inn tæki sem ekki standast öryggiskröfur." - Nú eru gömul tæki seld í verslunum. Til dæmis hjá Sölunefnd varnarliðs- eigna. „Sölunefndinni var gert skylt að láta yfirfara sín tæki af fagmönnum og hafa við okur samráð, ef um væri að ræða gömul tæki." - Hvernig getur kaupandi verið viss um að tæki sé samþykkt? „Við höfum sérstakt viðurkenningar- merki. Því miður er ekki skylda að nota það á öllum raftækjum. Til þess að vera viss verður kaupandinn einfaldlega að spyrja," sagði Hreinn. í fyrra voru 1218 beiðnir samþykktar hjá Rafmagnseftirlitinu, en 134 var synjað. -Sjó. Reykjavíkurskákmótid í febrúar: Allir sterkustu íslend- ingarnir með á mótinu — Óvíst hvaða útlendingar sjá sér fært að mæta Vetrarstarf Kammermúsíkklúbbsins hefst n.k. sunnudagskvöld: Árni Kristjánsson og Erling Blöndal Bengtsson — leika verk eftir Beethoven Jafnréttisráð: Magdalena Schram ráðin fræðslu- fulltrúi ■ Magdalena Schram blaðamaður hef- ur verið ráðin í stöðu fræðslu- og upplýs- ingafulltrúa hjá Jafnréttisráði. Starf hennar felst í því að sjá um fréttabréf ráðsins, tengsl við jafnréttis- nefndir sveitarfélaganna, jafnframt því að kynna starfsemi ráðsins út á við, og sjá um fræðslu um jafnréttismál almennt. ■ Bnndaríski stórmeistarinn Samuel Resevsky og ungverski stórmeistarinn Adorian eru meðal þeirra skákmanna sem spurst hafa fyrir um Reykjavíkur- skákmótið sem haldið verður í febrúar á næsta ári. Ekki hefur enn komið svar frá Bent Larsen, Jan Timman pg tveini sovéskum stórmeisturum sem boðið var sérstaklega til mótsins. Að sögn Gunnars Gunnarssonar for- seta Skáksambands íslands hefur Skáksambandið fengið nokkrar óskir um þátttöku í mótinu. Ljóst er að allir sterkustu skákmenn íslands munu taka þátt en enn er ekki víst með erlenda þátttakendur, Gunnar sagði að líklega yrði ekki úr að Resevsky kæmi á mótic^ en hann óskaði sérstaklega eftir að þurfa ekki að tefla á laugardögum, þar sem hann er Gyðingur. Honum var svarað að ekkí væri hægt að ábyrgjast það en ef andstæðingarnir myndu samþykkja,væri slíkt e.t.v. mögulegt. Gunnar sagði að greinilegur áhugi ríkti meðal skákáhugamanna á þessu móti og Skáksambandið væri bjartsýnt á að það myndi bera sig. - GSH ■ Vetrarstarf Kammermúsíkklúbbsins hefst n.k. sunnudagskvöld kl. 20.30 í Neskirkju en þá leika þeir Árni Krist- jánsson og Erling Blöndal Bengtsson tónverk eftir Ludwig van Beethoven fyrir selló og píanó. Þeir leika sónötur óp.5 nr. 2, óp. 102 nr.l og óp.102 nr.2 og ennfremur tólf tilbrigði við lag Mozarts, „Ein Madchen oder Weibchen" úr Töfraflautunni. Kammermúsíkklúbburinn hefur birt skrá yfir fyrirhugaða tónleika á starfsár- inu sem er að hefjast. Þrettánda nóv. n.k. vcrður minnst 150 ára afmælis Jóhannes- ar Brahms með kammertónleikum þar sem flutt verður tríó fyrir klarinettu, selló og píanó, 5 ljóð, þar af tvö mcð samleik víólu og píanós, og loks strengjakvartett op. 88. Flytjendur vcrða Einar Jóhannesson, Gunnar Kvaran, Gísli Magnússon, Ruth Magn- ússon, Michael Shelton, Þórhallur Birg- isson, Hclga Þorarinsdóttir og Joscph Breines. Tónlcikar hafa verið ákveðnir í byrjun mars cn efnisskráin liggur ekki fyrir cnnþá né hverjir verða flytjendur.en um miðjan apríi kemur Sinnhofer Kvartett- inn frá Múnchen í heimsókn og flytur m.a. strcngjakvartetta eftir Mozart, Becthoven og Shostakovich. Verður þar e.t.v. um fleiri en eina tónleika að ræða. - JGK Pólýfónkórinn: Boðið að flytja H-moll mess- una1985á Ítalíu — á ári tónlistarinnar íEvrópu ■ Árið 1985 verða liðin 300 ár frá fæðingu tveggja stórmenna tónlistar- sögunnar, þeirra J.S. Bachs og Hándels og hefur Evrópuráðið ákveðið að þess skuli minnst með því að helga þetta ár tónlistinni. Pólýfónkórinn hyggst fyrir sitt leyti minnast þessara tímamóta með flutningi á einu stærsta verki Bachs og jafnframt tónlistarsögunnar, H-moll messunni og hefur m.a. boðist fyrir- greiðsla til tónleikahalds á Ítalíu. Þetta er auðvitað gtfurlegur heiður fyrir kór- inn og íslenskt tónlistarfólk, því H-moll messan er ekki fyrir neina fúskara að fást við. Kórnum hefur jafnframt verið boðið á tónlistarhátíð í Granada á Spáni næsta sumar en getur líklega ekki þegið það boð vegna fjárskorts. Kórinn hefur boð- ið Listahátíð sem haldin verður næsta vor að flytja þar eitthvert af höfuðverk- um Bachs en því boði hefur ekki verið svarað. Vetrarstarf kórsins er nú að hefjast, bæði æfingar á miðsvetrarverkefni og starfsemi kórskólans. í desember flytur kórinn jólaóratoríu eftir Heinrich Schútz og í vor mun kórinn flytja Stabat Mater Rossinis. Söngfólk vantar í allar raddir, einkum karlaraddir. í söngskólanum sem mun starfa í tveim deildum, byrjendadeild og fram- Tímamynd Árni Sæberg ■ Stjóm og stjómandi Pólýfónkórsins á blaðamannafundi í gær. haldsdeild ef þátttaka fæst, eru kennd undirstöðuatriði í tónfræði og raddbeit- ingu. Þar hafa ýmsir góðir söngvarar stigið sín fyrstu skref í list sinni. „Þetta er líklega eina menntastofnunin á Islandi sem engra opinberra styrkja nýtur," sagði stjórnandi kórsins Ingólfur Guð- brandsson á blaðamannafundi í gær. Hann bætti því við að opinber fyrir- greiðsla við starfsemi kórsins hefði verið svo lítil að það hefði lítil áhrif haft. - JGK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.