Tíminn - 30.09.1983, Side 5

Tíminn - 30.09.1983, Side 5
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1983 hann og þá var málið leyst að okkar óskum. Kynnin urðu nánari á árunum 1970- 1975, á síðari formanns árum hans í Norræna félaginu. Hann hefur einn manna á sextíu ára ferli félagsins verið kjörinnformaður þess í tvígang. með nokkru millibili. Hann varð fyrst formaður Norræna félagsins á árunum 1954-1965, en þá fluttist hann til Danmerkur og gerðist sendiherra íslendinga þar eins og menn muna. Eftir heimkomuna réði hann úrslitum um veigamiklar skipulags- breytingar á Norræna félaginu. Þá var komið á stofn framkvæmdaráði, sem tók virkan þátt í stjórnun félagsins. Aukin áhrif deilda þess utan Reykjavíkur urðu mjög örfandi fyrir alla starfsemina. Nýj- ar félagsdeildir spruttu upp víða. Aldrei hef ég átt ánægjulegra samstarf við nokkurn mann. Gunnar var alla tíð tillögugóður og jákvæður, fljótur að átta sig á hvar kjarnann var að finna og alltaf reiðubúinn að faliast á það sem hann taldi horfa félaginu til heilla. Þessara ára minnumst við sem störfuðum náið með honum með gleði og söknuði um leið. Á sjötugsafmæli Gunnars sæmdi Norr- æna félagið hann gullmerki sínu sem þakklætisvott fyrir störf hans. Þegar spurðist um hátíðarhöld Græn- lendinga vegna 1000 ára landtöku Eiríks rauða þar vestra fórum við hjá Norræna félaginu á fund Gunnars Thoroddsen eins og löngum áður. Hann tók okkur af sama skilningi og Ijúfmennsku sem fyrr með gamanyrði á vörum. Hans verk var það. að veita Norræna félaginu færi á að koma hugmyndum sínum á framfæri við stjómvöld og framkvæma síðan tillögur nefndar sem hann skipaði í málið og ríkisstjórnin öll féllst á. Síðasti þáttur þessarra tillagna, sem þegar hefur verið framkvæmdur, er hin glæsilega Grænlandssýning, sem stóð hér í Norræna húsinu síðari hluta ágúst-■ mánaðar. Það má því segja að verka hans hafi séð stað í þágu norrænnar samvinnu og Norræna félagsins allt fram á þennan dag. Sjálfsagt eiga rnargir enn eftir að ylja sér við þá hlýju sem streymdi frá þessum siðfágaða og alþýðlega unnanda lista, fegurðar og mannúðar. Ósjálfrátt koma mér í hug vísuorð Stephans G. Stephanssonar er hann segir: Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða hvassan skilning, haga hönd hjartað sanna og góða. Elskulegri konu hans, Völu,og öllum ættingjum og venslafólki færi ég innileg- ustu samúðarkveðjur. Hjálmar Olafsson fréttir Norræna félagið: Ráðstefrta um bókmenntir ■ Norræna félagið í Danmörku gengst fyrir æskulýðsráðstefnu um norrænar nútímabókmenntir á Hindsgavl á Fjóni, dagana 17.-20. október. Gert er ráð fyrir þátttakendum af öllum Norðurlöndun- um. Á ráðstefnunni verða fluttir fyrirlestr- ar þar sem fjallað verður um ýmsar tegundir nútímabókmennta, forsögu þeirra og hvert stefnir í þróun bók- mennta á Norðurlöndum. Norrænir rit- höfundar munu kynna og lesa úr verkum sínum og ennfremur verður fjallað um leiðir til að auka áhuga skólafólks á samtímabókmenntum. Þátttakendur munu starfa í umræðuhópum og á ráðstefnunni verður efnt til „ritsmiðju". Nánari upplýsingar um ráðstefnuna veitir skrifstofa Norræna félagsins, Nor- ræna húsinu, Reykjavík, og umsóknir um þátttöku þurfa að berast Norræna félaginu fyrir 7. október n.k. -GSH Umferðarvika surinanlands ■ Untferðarvikur hafa verið haldnar víða um land í tilefni af Norrænu umferðaröryggisári, m.a. stendur slík vika yfir á Akureyri. Fyrirhuguð er umferðarvika í Reykjavík, Seltjarnar- nesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, og Grindavík, dagana 3.-10. október og standa umferðarnefndir sveitarfélag- anna að þessu átaki í samstarfi við foreldra og kennarafélög, slysavarnar- félög, JC-hreyfinguna, skáta og fleiri félagasamtök. í tilefni vikunnar munu skólar sinna umferðarfræðslu sérstaklega, endur- skinsmerkjum verður dreift sem víðast, og haldnir fundir með öldruðum og einnig almennir borgarafundir. Efnt verður til margháttaðra kynninga, m.a. á starfi lögregíu og á skipulagi. Þá stendur fyrir dyrum sérstakt átak lög- reglu gegn ölvunarakstri og munu skátar annast dreifingu á áróðri gegn ölvunar- akstri um allt land í samstarfi við Um- ferðarráð. Þess er vænst að sem flestir taki virkan þátt í umferðarvikunni m.a. með því að mæta á fundi og önnur dagskráratriði og leggi þannig sitt af mörkum til bættra umferðarhátta. -GSH Gúmmí-Tarsan hjá Leikféiagi Kópavogs ■ Leikfélag Kópavogs hefur vetrar- starfið laugardaginn 1. okt. n.k. með frumsýningu á barnaleikritinu Gúmmí,- Tarsan eftir Ole Lund Kirkegárd í þýðingu Jóns Hjartarsonar. Leikritið er unnið upp úr samnefndri bók sem náð hefur gífurlegum vinsældum bæði hér- lendis og á hinum Norðurlöndunum. Um 20 manns koma fram í sýningunni sem sett er upp með tónlist og söngvum. Gúmmí-Tarsan fjallar um strák sem stendur höllum fæti í samkeppninni við hina strákana í skólanum. Hann er hins vegar svo heppinn að kynnast galdra- norn. Þá breytast hlutirnir til hins betra fyrir hann. Ýmsar sérkennilegar per- sónur koma fram í leiknum svo sem Tarsan sjálfur, apar, skógarpúki, krók- ódíll^auk mannlegra vera af ýmsu tagi. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson, leik- mynd og búninga hannaði Karl Aspe- lund en Lárus Björnsson sér um lýsingu. Tónlistina hefur Kjartan Ólafsson samið. -JGK ■ í sumar hefur happdrættismiðum Umferðarráðs verið dreift til þeirra bílstjóra sem nota örjggisbelti við aksturinn. Þessi mynd var tekin þegar Jón Helgason samgönguráðherra dró í einum áfanga bQbeltaheppdrættisins að viðstöddum fulltrúum Umferðarráðs, þeim Tryggva Jakobssyni og Ola H. Þórðarsyni. Tímamynd Árni Sæberg Minmm Auglýsing um i nnlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóös C f lokkur 1973 Hinn 3. október hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í C flokki 1973, (litur: gulur). Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 1.000, nú kr. 10,00, verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1973 til gjalddaga í ár. Innlausnarverð hvers skuldabréfe er kr. 559,80 Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á, að bréfin eru eingöngu innieyst í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, Reykjavík. Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðla- bankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans. Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu framfærslukostnaðar. Skuldabréfín fymast á 10 ámm, talið frá gjalddaga hinn 1. október 1983 Reykjavík, september 1983. II SEÐLABANKI ÍSLANDS Snjóruðningstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berast sem fyrst svo hægt verði að afgreiða þær fyrri part vetrar StálIækni sf. Síðumúla 27, sími 30662 HRINGIÐ ! BLAÐIÐ KEMUR UM HÆL SÍMI 86300 mmm ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband PRENTSMIDJAN é^clclc Cl HF. SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR SÍMI 45000

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.